Helgarblaðið - 12.06.1992, Qupperneq 12
Alltaf
„Þar sem ég ólst upp,
austur á Norðfirði, var sjó-
mannadagurinn aðal hátíð-
isdagur ársins og jafnvel
haldið meira uppá hann en
17. júní og jólin," segir
Magnús Ölversson, smá-
bátasjómaður í Hafiiarfirði.
Magnús er eigin herra á 5,6
tonna bát sínum Magnúsi, sem
hann festi kaup á fyrir nokkru.
Hann er með krókaleyfi og er
einn á. Áður hafði hann verið til
sjós á flestum skipategundum og
Helgar
12
blaðið
sveiflur í afla
þekkir ekkert annað líf en sjó-
mannslífið.
Að sjálfsögðu ætlar hann að
taka þátt í hátíðahöldum sjó-
mannadagsins í Hafnarfirði sem
hann telur að skipi veglegri sess í
hugum bæjarbúa heldur en fyrir
nokkrum árum.
Eins og hjá velflestum öðrum
sjómönnum er honum ofarlega í
huga boðuð þorskkvótaskerðing.
„Auðvitað komu þessi tíðindi eins
og þruma úr heiðskíru lofti.“
Magnús segir að hann geti ekki
hugsað dæmið til enda verði nið-
urskurðurinn að veruleika. „Þá er
ekkert framundan enda enga at-
vinnu að hafa í landi,“ segir hann
og glottir út í annað. „Hins vegar
geri ég ekki ráð fyrir öðru en
maður reyni að þrauka þennan
samdrátt sem allir eru að tala
um.“ Að hans mati er það engin
nýlunda að sveiflur komi í afla-
brögðin og hann geti verið tregur
um skeið. „Sumir fiska vel og
aðrir ekki.“ Aftur á móti var tíðin
á fyrri hluta ársins ekki sem
skyldi og það hafði sín áhrif á
aflabrögðin.
Magnús liggur ekkert
á þeirri skoðun sinni að
hápunkturinn í tilverunni
sé að vera einn úti á sjó á
báti sínum þegar vel afl-
ast.
„Okkur sem erum bún-
ir að vera á sjó alla okkar
ævi, líður hvergi betur
en þar og vonandi verður
svo áfram hvað mig
varðar,“ segir Magnús
Ölversson smábátasjó-
maður.
Helgar
13
blaðið
Magnús Ölversson sjómaö-
ur lætur ekki deigan siga
og ætlar ekki að gefa sjó-
inn upp á bátinn þó svo aá
þorskkvótinn ver&i skertur
allverulega.
Hagsmunaaóilar í sjávarútvegi telja flestir a& framkomnar niburstöbur um ástand þorskstofnsins séu svo alvarlegar aá ekki verái undan því vikist aó minnka þorskkvát-
ann verulega frá þvi sem nú er. Myndir: Kristinn.
Sjómannadagurínn
í skugga samdráttar
Um þessa helgi er sjó-
mannadagurinn haldinn há-
tíðlegur hér á landi en það
mun hvenji tíðkast annars-
staðar í heiminum að dagur
sé sérslaklega helgaður sjó-
mönnum. Að þessu sinni er
sjómannadagurinn haldinn
í skugga yfirvofandi 40%
skerðingar þorskveiðiheim-
ilda sem boðuð hefur verið
og trúlega verða einhveijir
með herping í maganum
vegna þessa. Hafrann-
sóknastofnun mun væntan-
lega leggja fram tillögur sín-
ar um afla næsta fiskveiði-
árs á mánudaginn. Akvörð-
un um aflann mun þó ekki
liggja fyrir alveg á næstunni
því tíllögur Hafró eiga síðan
eftír að fara fyrir óháðan er-
lendan sérfræðing áður en
ríkisstjómin tekur af skarið
og ákveður hversu mikið
má veiða á næsta fiskveiði-
árí sem hefst þann 1. sept-
ember næstkomandi.
En sjómenn eru ýmsu vanir og
láta ekki yfirvofandi tíðindi trufla
þá stcmmningu sem einatt rikir í
sjávarplássum landsins á þessum
hátíðisdegi. Á mörgum stöðum cr
umfang dagsins orðið svo mikið að
mörg atriði sjómannadagsins fara
einnig fram á morgun, laugardag.
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, segir að
þótt menn reyni að gleyma „væli“
hversdagsins á þessum degi sé því
ekki að ncita að yfirvofandi kvóta-
skerðing og afleiðingar hennar
setji sinn svip á hátíðahöldin. Því
sé heldur ekki að leyna að afla-
brögðin hafi ekki verið sem skyldi
og sóknin því mun meiri en oft áð-
ur með þeim afleiðingum að lög-
bundin hafnarfrí sjómanna hafi
einatt verið brotin.
Aftur á móti telur formaður Sjó-
mannasambandsins að menn taki
geysilega áhættu ef ekki verður
farið efiir framkomnum ráðlegg-
ingum um niðurskurð í þorskafla.
„1 þessum efnum verðum við að
hugsa um framtíðina þótt það geti
verið erfitt.“
Óskar segir að á sjómannadag-
inn muni menn m.a. leggja mikla
áherslu á öryggismál sjómanna og
hnykkja enn og aftur á þeirri kröfu
að þyrluflotinn verði
stækkaður, auk fjölmargra ann-
arra mála sem brenna á sjómönn-
um.
Öldin önnur
Á þeirri rúmlega hálfu öld sem
sjómannadagurinn hefur verið
haldinn hátíðlegur hefur margt
breyst í starfi sjómannsins og þá
sérstaklega það sem snýr að að-
búnaði hans á vinnustað. Þá virðist
sem vegur sjómannsins meðal
þjóðarinnar hafi einnig breyst.
„Áður fyrr var hann ofi nefndur
hetja hafsins - hermaður þjóðar-
innar. I dag er sjómaðurinn hins
vegar öfundaður þegar vel gengur
og skellt við skollaeyrum þegar á
móti blæs,“ segir Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambands ís-
lands.
Norður á Akureyri hafa menn
verið í óða önn að undirbúa hátíða-
höldin sem standa í tvo daga, laug-
ardag og sunnudag. Konráð Ál-
freðsson, formaður Sjómannafé-
lags Eyjaljarðar, segir að það hafi
orðið geysileg ljölgun í félaginu á
undanfomum árum, enda hafi
skipastóll þeirra Norðlendinga
stækkað til muna. Hann segir að
fyrirhuguð kvótaskerðing muni
hafa veruleg áhrif á afkomu sjó-
manna þar nyrðra. „Þetta lítur afar
illa út fyrir okkur, ef af verður.“
Engu að síður telur formaður Sjó-
mannafélags Eyjaíjarðar ekki ann-
að hægt en að taka það alvarlega
sem fiskifræðingamir hafa fram að
færa um ástand þorskstofnsins.
-grh
Þeir félagar, Bjarni Björnsson t.v. og Haraldur Þorgeirsson t.h. a&
taka saman netin. Þeir eru búnir meí þorskkvótann en eiga eftir
eitthvab smóræbi af ýsu.
Allur
afli á
fisk-
markað
„Þetta er allt annað líf eftír
að fiskmarkaðimir tóku tíl
starfa. Hins vegar hefur
fiskverðið ekki alltaf verið
til að hrópa húrra fyrir. í
vetur lækkaði þorskverðið
um allt að 25% miðað við
það sem var í fyrra og það
var fyrst og fremst vegna
verðlækkunarinnar sem
varð í saltfiskinum, sögðu
æskuvinimir úr Vesturbæn-
um og skipsfélagar á Haf-
svölunni, þeir Haraldur
Þorgeirsson og Bjami
Bjömsson.
Hafsvalan er 9,6 tonna plastbát-
ur sem gerður er út á net og línu-
veiðar. Aflinn á fiskveiðiárinu hef-
ur verið þokkalegur og eru þeir
svo til búnir með kvótann. Eftir er
eitthvert smáræði af ýsu sem þeir
ætla að taka á næstunni. „Það er
síðan spuming um aflabrögð hvert
framhaldið verður. Ef afli verður
góður er aldrei að vita nema eitt-
hvað reki á íjörumar,“ segir Har-
aldur. Aðspurðir um boðaða
kvótaskerðingu segir þeir að henni
verði bara að taka eins og hverju
öðru hundsbiti. „En ef tvöföldunin
verður einnig tekin af línunni er
hætt við miklu atvinnuleysi meðal
beitningamanna og annarra, til
viðbótar við það sem kvótaskerð-
ingin hefur í för með sér,“ segir
Bjami.
Hann segir að með tilkomu fisk-
markaðanna hafi mikið breyst til
batnaðar frá því sem áður var. Til
að mynda reri hann hér á árum áð-
ur fyrir norðan og þá urðu menn
að henda steinbít og karfa því að
frystihúsið vildi ekki taka við þeim
afia. „Fiskmarkaðimir selja aftur á
móti allan fisk sem komið er með
að landi og það út af fyrir sig er
mikil bót til hins betra.“
Smábátar hafa löngum verið
gagnrýndir fyrir netaveiðar sínar
og þá einkum fyrir að stunda þær á
bátum sem geta ekki vitjað þeirra
nema eftir dúk og disk sé eitthvað
að veðri. Haraldur segir að menn
stundi netaveiðamar á smábátun-
um með allt öðrum hætti en áður.
„Menn taka netin upp ef spáin er
slæm.“
Mikil ásókn á sjóinn
Gunnar Kristjánsson, háseti á togaranum Rán frá Hafnarfirbi,
man timana tvenna á sjónum þvi hann hefur veriá háseti í 27 ár.
„Það er töluverð ásókn í að
komast í pláss og þeir hringja
meira að segja út á sjó til að spyrj-
ast fyrir. Þetta endurspeglar að
sjálfsögðu atvinnuástandið í landi
auk þess sem töluvert atvinnuleysi
er meðal sjómanna," segir Gunnar
Kristjánsson, háseti á togaranum
Rán.
Gunnar þekkir tímana tvenna á
sjónum, þar sem hann hefur starf-
að síðan 1965, eða í tuttugu og sjö
ár. I fyrstunni var hann á bátum,
síðan á gömlu síðutogurunum áður
en hann skipti yfír á skuttogara.
Ránin, sem er tæplega 500 tonn að
stærð, er ísfisktogari með 15
manna áhöfn. „Við erum þetta frá
átta til níu daga á sjó þegar við
löndum heima en að sjálfsögðu
mun lengur þegar við siglum.“ En
Ránin hefur einatt farið í sölutúra
til Þýskalands þegar uppistaðan í
afianum hefúr verið karfi. „Þetta
hafa auðvitað verið misjafnar sölur
en allt í lagi þegar á heildina er lit-
ið.“
Gunnar segir að afiinn á þessu
fiskveiðiári hafi verið frekar léleg-
ur en engu að síður er hann á því
að þeir nái að klára kvótann. „Það
hefúr oft verið góður afli í júní og
júlí fyrir vestan." Hann er ekki í
nokkrum vafa um að boðuð kvóta-
skerðing muni hafa mikil áhrif á
kjörin um borð í Ráninni enda séu
þeir ekki með svo mikinn kvóta
fyrir. „Hins vegar er það ekkert
nýtt að afii geti verið tregur á mið-
unum hér við land. Þegar ég var að
byrja á gömlu síðutogurunum var
trollinu ekki dýft hér í sjóinn,
heldur var siglt beint á Grænland-
smið. Eg get ekki ímyndað mér að
það heföi verið gert ef eitthvað
hefði verið að hafa hér“.
Gunnar segir að sú einhliða um-
ljöllun um sjómannsstarfið sem oft
vill verða í fjölmiðlum, fari dálítið
fyrir brjóstið á sjómönnum. „Það
er mikið skrifað um topptúrana og
tíundað nákvæmlega hvað háseta-
hluturinn er mikill og aflaverð-
mælið. En það vill því miður oft
gleymast að yfir heildina ná sjó-
menn ekki þessum tekjum,“ segir
Gunnar Kristjánsson háseti.
FöstudaRurinn 12. júní
Föstudagurinn 12. júni
ÞREFALDUR
1. VINNINGUR