Dagblaðið - 08.09.1975, Síða 3
Dagblaðiö. Mánudagur 8. september 1975.
23
Asgeir Tómasson blaða-
maður
Asgeir er 21 árs. Hann tók
stúdentspróf i fyrravor og var
prófarkalesari á Morgunblaóinu
um skeió, auk þess sem hann
hefur annazt poppsíóu Visis.
RITSTJÓRN
Þetta fólk hef ur skapað
Dagblaðið/ eina frjálsa
og óháða blaðið i landinu.
Þetta eru mestmegnis
„Visismenn." Af 17
blaðamönnum og öðrúm
starfsmönnum á ritstjórn
eru aðeins fjórir, sem
ekki hafa unnið á Visi að
undanförnu. Þetta eru
blaðamenn með mikla
reynslu að baki. Flestir
hverjir hafa starfað sem
blaðamenn um margra
ára skeið á ýmsum sér-
sviðum. Marga þeirra
mun raunar óþarft að
kynna. Alls hefur þetta
fólk unnið við blaða-
mennsku í 127 ár. Af 6
starfsmönnum i skrif-
stofu Dagblaðsins hafa 4
verið starfsmenn Visis.
Jóhannes Reykdal útlits-
teiknari
Jóhannes er 30 ára. Hann hef-
ur fagmenntun i landmælingum
og kortagerö. Hann hefur veriö
útlitsteiknari VIsis i 4 ár og
hafói áöur unniö i fréttastofu
sjónvarps. Jóhannes veröur út-
litsteiknari Dagbiaösins.
Asgeir Hannes Eiríksson
auglýsingastjóri
Asgeir er 28 ára. Hann tók
verzlunarskólapróf 1967 og hef-
ur starfað við verzlun og út-
gáfu. Asgeir verður auglýsinga-
stjóri Dagblaðsins, meöan veriö
er aö ýta þvi úr vör.
Asgrimur Pálsson hand-
ritalesari
Asgrimur er 40 ára. Hann
lauk BA-prófi i dönsku og ensku
við Háskóla lslands 1962. Hann
hefur verið prófarka- og hand-
ritalesari á Visi í ll ár, jafn-
framt kennslu.
Bjarnleifur Bjarnleifsson
Ijósmyndari
Bjarnleifur er 60 ára. Hann
hefur starfað sem blaðaljós-
myndari i alls 21 ár, mest viö
töku iþróttamynda. Þar af hefur
Bjarnleifur veriö ljósmyndari á
Visi 7 siðustu árin.
Björgvin Pálsson Ijós-
myndari
Björgvin er 20 ára. Hann hef-
ur verið við menntaskólanám en
jafnframt tekiö ljósmyndir fyrir
Visi og fleiri blöð um 5 ára
skeið.
Hallur Símonarson blaða-
maður
Hallur Simonarson er 48 ára.
Hann hefur verið blaðamaður i
27 ár, þar af hefur hann ritstýrt
iþróttasiðum Visis siöustu 6 ár-
in. Hann mun ritstýra Iþrótta-
siðum Dagblaðsins.
Hallur Hallsson blaða-
maður
Hallur er 24 ára. Hann tók
kennarapróf 1973 og var kennari
i 2 ár. Hallur Hallsson mun
aðallega skrifa um iþróttir I
Dagblaöinu.
Erna V. Ingólf sdóttir
blaðamaður
Erna er 43 ára. Hún
útskrifaðist úr Kvennaskólan-
um 1949. Erna hefur verið
blaðamaður á Visi i rúmt ár og
mikið skrifað um málefni neyt-
enda. Hún hefur störf á Dag-
blaðinu 1. október.
Bolli Héðinsson blaða-
maður
Bolli er 21 árs. Hann tók
stúdentspróf I fyrravor. Bolli
leggur stund á þýzku og fjöl-
miðlafræði i Þýzkalandi. Hann
mun taka þátt i aö ýta Dag-
blaðinu úr vör en siðan fara
aftur til náms.
Haukur Helgason rit-
stjórnarfulltrúi
Haukur er 38 ára. Hann tók
kandidatspróf i viðskiptafræði
1960 og MA-róf i hagfræði við
Chicagoháskóla 1967. Hann hef-
ur verið blaðamaöur á Visi i
rúm 7 ár, þar af ritstjórnarfull-
trúi siðustu 2 árin.Hann hefur
ritað mikið um efnahags- ug at-
vinnumál og erlend málefni.
Haukur verður ritstjórnarfull-
trúi Dagblaðsins.
Bragi Sigurðsson blaða-
maður
Bragi er 49 ára. Hann lauk
lögfræðiprófi viö Háskóla ts-
lands 1954. Bragi hefur verið
blaöamaður á Alþýöublaöinu i 3
ár. Hann hefur mikiö ritað um
atvinnu- og dómsmál og málefni
hins opinbera.
Inga Guðríöur Guð-
mannsdóttir handritales-
ari.
Inga er 34 ára. Hún út-
skrifaðist úr Samvinnuskólan-
um 1959. Inga hefur verið hand-
ritalesariáVisi i tvö og hálft ár.
Jón Birgir Pétursson
fréttastjóri.
Jón er 36 ára. Hann tók
stúdentspróf árið 1959. Jón
Birgir Pétursson hefur verið
blaðamaður i alls 13 ár. Þar af
hefur hann verið fréttastjóri
Visis siðustu 9 árin. Hann
verður fréttastjóri Dagblaðsins.
Jónas Kristjánsson rit-
stjóri
Jónas er 35 ára. Hann tók BA-
próf i sögu við Háskóla tslands
1966. Hann hefur stundað blaða-
mennsku I alls 14 ár, þar af
hefur hann sföustu 9 árin verið
ritstjóri Vísis. Jónas verður rit-
stjóri Dagblaðsins.
Maria ólafsdóttir hand-
ritalesari
Maria er 36 ára. Hún tók
stúdentspróf árið 1957. Maria
hefurverið handritalesari á Visi
siðustu tæp 3 árin.
Sigurður Hreiðar
Hreiðarsson blaðamaður
Sigurður er 37 ára. Hann út-
skrifaðist úr Samvinnuskólan-
um 1959. Sigurður lauk á þessu
ári prófi I ensku við háskólann i
Cambridge. Hann hefur stundað
blaðamennsku I alls 11 ár og
verið blaðamaður á VIsi siðasta
árið. Sigurður mun hjálpa til við
aö hleypa Dagblaðinu af stokk-
unum en siðan snúa sér aö
kennslu.
Ómar Valdimarsson
blaðamaður
Omar er 25 ára. Hann er
gagnfræðingur. Omar hefur
starfað við blaöamennsku i
samtals rúm 5 ár. Hann mun
annast erlendar fréttir i Dag-
blaðinu.
Sveinn R. Eyjólfsson
framkvæmdastjóri
Sveinn er 37 ára. Hann tók
stúdentspróf árið 1958. Sveinn
hefur verið framkvæmdastjóri
Visis i rúm siöustu 7 ár. Hann
verður framkvæmdastjóri Dag-
blaðsins.
Valgerður Heba
dóttir aðstoðaraf-
greiðslustjóri
Valgerður er 22 ára. Hún er
gagnfræðingur og hefur starfað
hjá Visi i 2 ár.
Þráinn Þorleifsson gjald-
keri
Þráinn er 41 árs. Hann tók
próf úr Verzlunarskólanum áriö
1953. Þráinn starfaöi hjá Al-
þýöublaðinu i 4 ár. Þar af var
hann ú'tbreiðslu- og dreifingar-
stjóri i 1 ár. Hann hefur starfað
hjá Visi i 1 ár og verður nú
gjaldkeri Dagblaösins.
SKRIFSTOFA
Kristin ólafsdóttir af-
greiðslustúlka
Kristin er 17 ára. Hún tók
gagnfræðapróf i fyrra. Kristin
hefur starfað sem afgreiðslu-
stúlka i Hótel Höfn og hjá Silla
og Valda.
Már Halldórsson af-
greiðslustjóri
Már er 29 ára. Hann er gagn-
fræðingur. Már hefur starfað
hjá Visi undanfarin 7 ár. Hann
verður afgreiöslustjóri Dag-
blaösins. Már er erlendis og
mynd ekki linnanleg.