Dagblaðið - 08.09.1975, Blaðsíða 6
26
Dagbla&ið. Mánudagur 8. september 1975.
Hallsteinn Sigurðs-
son myndhöggvari
heldur um þessar
mundir þriðju einka-
sýningu sina á járn-
skúlptúr i vinnustofu
sem hann hefur
innréttað að Korpúlfs-
stöðum.
Hallsteinn er fæddur 1945,
stundaði nám við Myndlista- og
handiðaskólann 1963- 66 og i
London 1966- 72, þar af árin
1969- 72 i St. Martins School of
Art undir handleiðslu enska
myndhöggvarans Anthony Caro
og annarra.
Hallsteinn leggur einnig
mikla áherslu á að sjá erlenda
list eigin augum og hefur þvi
ferðastum Bandarfkin og dvalið
bæði á ítaliu og i Grikklandi.
A.I.: Hallsteinn, réð fordæmi
frænda þins (Asmundar Sveins-
sonar) einhverju um það að þú
fórst út i skúlptúr?
H.S.: Ég held að það hljóti að
vera. Viljinn var fyrir hendi og
Asmundur var eini nærtæki
samanburðurinn sem ég hafði.
Þegar ég var yngri og var að
fitla við myndgerð, kom hann
stundum i heimsókn og kri'tiser-
aði þessi verk min hart, — sem
var náttúrlega það besta sem
hann gat gert mér og ég er hon-
um afskaplega þakklátur fyrir.
Ég var svo aðstoðarmaður hans
i 4 sumur við að steypa og
stækka myndir, sem var að visu
ekki skapandi, einfaldlega
vinna, — en mikill lærdómur
samt.
A.I.: Eftir ljósmyndum að
dæma virðist meirihluti þeirra
myndverka, sem þú gerðir áður
SKRIÐ OG SVIF
en þú fórst til London 1966, taka
mið af Henry Moore og vera ieit
að einskonar náttúrlegu sam-
ræmi i formsköpun.
H.S.: Alveg rétt. Ég varð fyrir
miklum áhrifum af Moore, úr
listaverkabókum. Ég held að
það sem heillaði mig við Moore
sé þetta massifa form i verkum
hans, — og svo þessi dularfullu
göt sem margir hafa hrifist af.
Ég gerði fjöldann allan af liggj-
andi konumyndum i hans stil.
A.I.: Var það kannski Henry
Moore og ensk höggmyndalist
sem réð þvi að þú fórst til Eng-
lands til framhaldsnáms?
H.S.: An efa. Ég vissi að i
Englandi og Bandarikjunum
var eitthvað að gerast i skúlptúr
sem átti við mig. Svo var lika
stutt að fara frá London til
Parisar þegar á lá.
A.I.: Hvað var það sem þú
IGNIS
Nú fylgir ekki kjötskrokkur
með i IGNIS kistunni...
En við bjóðum
betrn verð en aðrir.
*##»
Nýjar sendingar komnar,
einnigúr
ryðf ríu stúfi að innan.
RAFIÐJAN
RAFTORG
gerðir i London frá 1966- 69, áð-
ur en þú fórst til St. Martins?
H.S.: Ég teiknaði eingöngu
heilan vetur módel og upp^
stillingar,sem ég hafði afar gott
af. Siðan innritaðist ég í
Hammersmith College of Art og
var þar i tvö ár. Þar var ágætur
maður, Matthews að nafni, og
vann ég við allskonar mynd-
Myndlist
mótun og steypu undir handar-
jaðri hans, sem var mjög góð
undirstaða fyrir mig.
A.I.: Svo færðir þú þig yfir i
St. Martins, höfuðstöðvar
Anthony Caro og fylgismanna
hans I járnskúlptúrnum. Breytti
dvölin þar afstöðu þinni endan-
lega I átt til járnskúlptúrs?
H.S.: Já. Ég er ekkert að
leyna því að ég fór þangað
beinlínis til að verða fyrir áhrif-
um af Caro og hans stefnu, til að
sökkva mér niður i það sem þar
var að gerast. En um leið óx ég
frá Henry Moore.
A.I.: Hvað var svo það fyrsta
sem þú gerðir i St. Martins?
H.S.: Það var stór gólfmynd i
skærum litum, Skúlptúr með
stórum staf, — afskaplega slæm
mynd. Og það voru min fyrstu
reglulegu kynni af andanum i
St. Martins að þessi mynd var
mikið gagnrýnd af kennurum og
öðrum, þeir rifu hana i sig. Sem
var svo ákaflega góð reynsla
fyrir mig.
A.I.: Hvernig var svo Caro
sem kennari?
H.S.: Mjög stimúlerandi.
Hann lagði á það rika áherslu i
•byrjun að fólk gerði það upp við
sig hvort það vildi vinna figúra-
tift eða afstrakt. Ef fólk kaus af-
strakt leiðina, þá átti það að
losa sig algjörlega frá hinu
figúratifa. Þegar nemendur
höfðu svo fundið sér persónu-
lega leið þá hvatti hann þá til að
leita sjálfir, finna óvæntar leið-
ir. Caro lagði einnig mikið upp
úr þvi að fólk hugsaði um end-
anlega stærð verks alveg frá
byrjun og sleppti þvi alveg að
gera „maquettur”, ynni verkið
beint eins og það ætti að vera.
A.I.: A fyrstu sýningu þinni i
Asmundarsal 1971 mátti svo sjá
hluta af þvi sem þú hafðir gert i
London, að mestu leyti strengja-
og hreyfiverk, ákaflega opin og
fingerð. Voru þau hugsuð sem
spennu- og rúmverk?
H.S.: Já, sem einskonar
þriggja vidda teikningar sem
spönnuðu visst rúm. Þetta er
eitt af þvi sem er mjög spenn-
andi fyrir verðandi myndhöggv-
ara, að uppgötva að hægt er að
vinna með rúmtak án massa.
A.I.: Svifmyndirnar byggðust
svo á könnun á spennu og jafn-
vægi. Vora hreyfiverk Calders
kveikjan að þeim?
H.S.: Hann er að visu upp-
hafsmaðurinn að slikum mynd-
um. En ég held að það sé enginn
beinn skyldleiki til staðar. Min-
ar svifmyndir, þá og nú, voru
hugsaðar á annan hátt en
hreyfimyndir Calders. Hreyfing
i myndbyggingunni sjálfri
skiptir mig ávallt meira máli
heldur en hreyfing ýmissa liða
innan myndarinnar, eins og á
sér stað i svifmyndum Calders.
Minar svifmyndir eru þvi skúlp-
túr sem hangir, en ekki verk
sem verður skúlptúr með aðstoð
hreyfingar. Ég nota mikið vir-
net I þeim, einsogþú sérð. Netið
finnst mér sjarmerandi, það er
hvorki opinn né lokaður flötur,
— gegnsær og skapar vissan
léttleika.
A.I.: Enn i dag vinnur þú
einnig með stór „massa” verk
eins og „Hyrningana” hér úti,
samtimis þessum léttu
„rúm”verkum.
H.S.: Jú. Þetta er kannski
vani. Eða þá þörf. Ég veit ekki
hvort. Ég hef, alveg frá þvi ég
var strákpatti, unnið skúlptúr á
tvo óllka vegu. Ég var t.d. að
hnoða leir og stakk svo vir i leir-
inn eftirá.
A.I.: Hvenær komu svo áhrif
ameriska myndhöggvarans
David Smith til sögunnar?
H .S.: Ég vissi að sjálfsögðu af
honum áður en ég fór út til læris.
En svo sló hann mig reglulega
þegar ég fór til Bandarfkjanna
1973. En þetta er nú dálftið
viðkvæmt mál. Ég hugsa að ég
hafi verið óþarflega kaldur við
að sýna þær fjórar myndir sem
ég gerði i hans stíl, þar eð ég
vissi að hugmýndin var frá hon-
um komin. Mér liggur við að
segja að þetta hafi verið algert
hliðarspor. En þess ber að gæta
að ég var þá að læra nýja vinnu-
aðferð, að smiða úr plötujámi
og var að æfa mig, ef svo má
segja.
Gleymið ekki að
endurnýja
Nú fer skólafíminn í hönd, — rétti tíminn til að
endurnýja skólavörurnar.
Nýjar og fallegar skólavörur lífga upp á nómið og
gera það skemmtilegra strax fró byrjun.
Þess vegna bjóðum við nú meira úrval af líflegum
vörum fyrir framhaldsskólanemendur en nokkru
sinni óður.
Komið og skoðið úrvalið — komið og endurnýjið.
Hafnarstræti 18 Laugavegi 84 Laugavegi 178