Dagblaðið - 08.09.1975, Page 17
Dagblaðið. Mánudagur 8. september 1975.
37
■ -s
beztu innkaupin?
verzlunum má sjá ein-
hvern afgreiðslumann-
inn ganga um með
stimpil og verðmerkja
á ný vörurnar, sem
hann merkti siðast
fyrir helgi.
Dagblaðið gerði blaðamann
og ljósmyndara Ut af örkinni á
miðvikudaginn i siðustu viku
(3.9) til að bera saman vöruverð
i nokkrum verzlunum. Verzlan-
irnar voru valdar meira og
minna af handahófi, bæði smáar
og stórar, og vörulistinn, sem
farið var eftir, varð til á leið-
inni. A honum voru algengustu
vörur, sem yfirleitt eru til á
hverju heimili:
Sykur, hveiti, sulta,
marmelaði, te, hrisgrjón, egg,
tómatsósa, sardinur, pakka-
súpa, gulrætur og grænar baun-
ir og eins fuglakjöt og slög.
Verzlanirnar, sem heimsóttar
voru, státa af mismunandi
miklu vöruvali:
Kaupgarður, Hagkaup, SS-
Glæsibæ, Silli & Valdi i Austur-
stræti, Kjörbúðin Dalmúli,
Hólagarður i Breiðholti III og
KRON við Norðurfell, einnig i
Breiðholti III.
KRON ódýrast
Ef ódýrustu vörurnar, sem
nær allar voru af sömu tegund
og i sama magni, voru valdar,
þá var hægt að fá vörurnar á
ofangreindum lista ódýrastar i
KRON við Norðurfell eða fyrir
kr. 3.970.00. Dýrastar urðuþær i
nýrri og stórri kjörbúð i Hóla-
hverfi i Breiðholti III, Hóla-
garði, þar kostuðu þessar vörur
kr. 4.375. Þar munar á kr.
405.00.
Ef dýrustu vörurnar hefðu
verið teknar, þá hefði Kjörbúð
Dalmúla við Siðumúla i Reykja-
vik, orðið hagkvæmust, þar má
fá þessar vörur fyrir kr.
4.298.00. Dýrastar eru þær i
kjörbúð SS i Glæsibæ, þar fær
neytandinn að greiða fyrir vör-
urnar kr. 4.697.00. Þar munar
kr. 399.00 á þvi verði, sem hægt
er að komast af með með þvi að
verzla við Kjörbúð Dalmúla,
þar kostar sama vara kr.
4.298.00.
Hér er rétt að taka fram, að i
Kaupgarði i Kópavogi kann að
vera heppilegast að gera
innkaup sin, en það dæmi hefur
fram til þessa ekki verið tekið
meö i reikninginn, þvi þar voru
ekki til slög (verzlunin býr sjálf
til úr þeim rúllupylsu og fleira),
unghænur og rúsinur. Hinar
þrettán vörutegundirnar kost-
uðu I Kaupgarði kr. 3.123.00, en
ef einnig væru aðeins taldar 13
vöruteg. i hinum verzlununum,
þá kæmi næst-hagstæðast út að
verzla IKRON i'Norðurfelli, þar
kosta vörurnar kr. 3.137 — og
munar á fjórtán krónum.
Verðmunur tiltölulega
litill
Til nánari skýringar skal hér
birtur listiyfir verzlanir og verð
i röð frá A—G.
Eins og fyrr segir voru
innkaupin hagstæðust I KRON,
miðað við að ódýrustu vöru-
tegundirnar væru valdar. Þar á
eftir kemur SS i Glæsibæ, kr.
4.136.00, og fast á hæla Slátur-
félagsins fylgir Hagkaup i
Skeifunni með aðeins tveimur
krónum dýrari innkaup, kr.
4.138.00.
I fjórða sæti er Kjörbúð
Dalmúla, þar var verðið kr.
4.188.Ö0, I fimmta sæti Silli &
Valdi með kr..4.247.00 og I sjötta
og siðasta sæti Hólagarður með
kr. 4.375.00.
Ef dýrustu vörurnar hefðu
verið valdar, þá hefði útkoman
FYRSTA GREIN
orðið önnur. Þá hefði, eins og
fyrr segir, orðið hagstæðast að
verzla i Kjörbúð Dalmúla fyrir
kr. 4.298.00, siðan KRON fyrir
kr. 4.310.00, þar næst i Hagkaup
fyrir kr. 4.358.00, i fjórða sæti
lenti Silli & Valdi með kr.
4.679.00, Hólagarður i fimmta
sæti með kr. 4.706.00 og dýrast
væri að þessu sinni að verzla i
SS-Glæsibæ fyrir kr. 4.739.00.
Það segir sig sjálft, að vöru-
val er nokkuð mismunandi i
verzlunum. Þvi virtist i' upphafi
nokkrum erfiðleikum bundið að
finna i öllum verzlunum vörur
af sömu tegund, sama magni og
svo framvegis. Það tókst þó
vonum framar, en þar sem það
var ekki hægt, var magn látið
ráða ferðinni.
Vörutegundir
Þannig má nefna, að hveiti
var yfirleitt alls staðar Pills-
bury’s Best, sykur var af ýmsu
tagi, teið var Melrose’s með 20
tegundir eru misjafnlega dýr-
ari, af algengari tegundum er
Tetley’s hvað dýrast i samsvar-
andi pakkningum), hrisgrjón
voru undantekningarlaust
River Rice, marmelaði var is-
lenzkt, danskt, brezkt og sulta
sömuleiðis, en áberandi var, að
hvað varðar sultu og marme-
laði, þá eru pólskar vörur ódýr-
astar. Sem dæmi má nefna, að i
Hagkaupi er hægt að fá 450 gr.
krukku af pólskri sultu fyrir 190
krónur.
Egg voru alls staðar álika
hvit, en það vakti sérlega at-
hygli okkar, að á þeim var verð-
munurinn einna mestur. í Hag-
kaupi má fá 1 kg af eggjum fyrir
350 krónur en i Silla & Valda
kostar kilóið 495 krónur. Þar
munar ótrúlega miklu, eða 145
krónum.
Eins var með kjúklinga, ódýr-
asta kilóið fæst i KRON á 710
krónur en dýrast er það örlitið
norðar i Breiðholti III, i Hóla-
garði, þar sem kilóið kostar 860
krónur. Hér ber að sjálfsögðu að
taka tillit til þess, að ekki er
alltaf um sama framleiðandann
að ræða — og auk þess er verð
mjög breytilegt.
Slæmar merkingar á
islenzkum vörum
Tómatsósa var i meginatrið-
um af þremur gerðum: islenzk
frá Val, sem yfirleitt er dýrust,
verðið allt frá 80 krónum upp i
118, bandarísk frá Libby’s og
svo Heinz, sem einnig er
bandarisk. Er tómatsósan var
skoðuð kom vel i ljós, hversu is-
lenzkum iðnaðarvörum er
ábótavant um merkingar.
Sardinur voru aðallega islenzk
framleiðsla og aðeins með
tveimur undantekningum dýr-
ari en aðrar tegundir, norskar
og danskar. Pakkasúpa var
Maggi, Vilko og Blæ B?nd,
rúsinur kaliforni'skar, niður-
soðnar perur yfirleitt banda-
riskar, en einnig eru algengar
ástralskar og s-afriskar. í Silla
& Valda eru einnig til kinversk-
ar perur og hálfdósin af gulrót-
um og grænum baunum isienzk
framleiðsla.
Nánar verður greint frá þess-
um verðsamanburði Dagblaðs-
ins á morgun, og á næstu dögum
birtast nokkrar greinar til
viðbótar um vöruverð, innkaup
almennings og neytendamál
yfirleitt.
Þá er að lokum ástæða til að
geta þess, að á engan hátt má
lita á þessa litlu könnun Dag-
blaðsins sem visindalega unna
rannsókn, einhverskonar
salómónsdóm, heldur einvörð-
ungu sem lauslegan verð-
samanburð á nokkrum nauð-
synjavörum. — ÓV.
Það er hægur vandi fyrir hinn almenna neytanda að kaupa köttinn I sekknum.
OZ
•UJ
X
Q
E
Q.
□
*
oz
LU
X
Q
E
Q.
□
y
oí
•LU
X
Q
E
Q.
VINSÆLAR PLÖTUR:
STUÐMENN /PLATAN OG CASETTAN
ROLLING STONES / METAMORPHOSIS NV
ROLLING STONES / MADE IN THE SHADE NÝ
POCO / THE VERY BEST OF
TEN YEARS AFTER / ALLAR
WINGS / VENUS & MARS
DAVID CASSIDY / THE HIGER THEY CLIMB
ERIC CLAPTON / THERES ONE IN EVERY CROWD
ERIC CLAPTON / RAINBOW CONSERT
ELTON JOHN / FRIENDS
LOU REED / METAL MACHINE MUSIC
BOB DYLAN / BLOOD ON THE TRACKS
BILLY COBHAM / SHABAZZ
BUARI/SOUL
BILL HALEY / TRAVELIN BAND
CURTIS MAYFIELD / ALLAR
CHAPTAIN BEEFHEART/BLUEJEANS& MOONBEAMS
DAVID BOWIE / YOUNG AMERICANS
ELLA FITZGERALD / WALKING IN THE SUN
THE GUESS WHO / POWER IN THE MUSIC
GREENSLADE / SPYGLASS GUEST
JOHN LENNON / ROCK & ROLL
J. GEILS BAND / NIGHTMARES
KEVIN COYNE / MATCHING HEAD & FEET
LABELLE / LABELLE 1
LABELLE / MOON SHADOW
M F S B /LOVE IS THE MESSAGE
LITTLE RICHARD / HIS GREATEST HITS
ORGINAL RÖCK OLDIES / VOLUME 1 & 11
IKE & TINA TURNER / LIVE AT CARNEGIE HALL
IKE & TINA TURNER / FELL GOOD
TIIE THREE DEGREES / INTERNATIONAL
WHO / THE WHO SELL OUT
SPARKS / KIMONO MY IIOUSE
JIMI HENDRIX / BIRTH OF SUCCESS
JIMI HENDRIX / RARE
JIMI HENDRIX / ROOTS
JIMI HENDRIX / MOODS
JIMI HENDRIX / GENIUS OF
BARRY WHITE / NO LIMIT ON LOVE
DEEP PURPLE / THE BOOK OF TALIESYN
DEEP PURPLE / SHADES OF DEEP PURPLE
ÓSIBÍSA / SUPERFLY
KING CRIMSON / STARLESS & BIBLE BLACK
HERMAN IIERMITS / THE MOST OF
FUNKADELIC / MAGGOT BRAIN
FUNKADELIC / FREE YOUR MIND
FUNKADELIC / FUNKADELIC
THE KINGS PRESERVATION ACT 1.
Sendum gegn póstkröfu þær plötur seni ]iér
krossið við Pósthölf 1143
Nafn
Heimilisfang
/