Dagblaðið - 29.09.1975, Blaðsíða 2
2
Dagblaðið. Mánudagur 29. september 1975.
Innbrot í
Iðnskólann
Iðnskólar virðast vinsæl
skotmörk afbrotamanna. í
fyrri viku var eldur borinn að
skólanum i Keflavik og ó laug-
ardaginn var framið innbrot i
Iðnskólann i Reykjavik. Þar
var stolið Aristo M-64 vasa-
tölvu, sem kostar nær 16 þús.
kr., Lamy penna, sem kostar
tæplega 4000, og smááhöldum.
Húsráðendur héldu að söku-
dólgurinn hafi látið loka sig
inni húsinu en lögreglumenn
telja liklegra að hann hafi
komizt inn um einhverja
smugu. —ASt
Óheppilegur
Norðursjávarfari
Tveir menn voru handteknir
á Hringbrautinni eftir að þeir
höfðu brotizt inn i kjallaraibúð
við götuna og komizt þar yfir
smáræði af peningum. Voru
þetta piltar 23 ára gamlir og
annar þeirra velþekktur hjá
lögreglunni og er enn geymd-
ur i fangageymslu.
Piltarnir höfðu ráðið sig til
Norðursjávarveiða en brottför
dróst og leiddi það til drykkju
þeirra. Svo fór að skipstjórinn
tók að leita manna sinna og
fann þessa hjá lögreglunni.
Leizt honum ekkert á afbrota-
lista þess, sem enn er inni, og
taldi hann ekki heppilegan til
veru I erlendum höfnum og
mun sá ekki fara á Norðursjó-
inn i bili. —ASt.
Stal lyfseðli
og falsaði
Lyfseðillinn hljóðaði upp á
deyfilyf. Seðillinn var með
áprentuðu nafni héraðslæknis-
ins á Eyrarbakka, en sá sem
með hann kom I apótek i
Reykjavik þótti grunsamlegur
og var þvi lögreglan tilkvödd.
Við rannsókn kom i ljós að
hér var á ferð maður sem
veriö hafði á Litla-Hrauni en
losnað s.l. miðvikudag. Fór
hann til læknisins á Eyrar-
bakka og fékk saklaus lyf hjá
honum. En honum tókst að
stela einum lyfseðli úr blokk á
borði læknisins og falsaöi hann
á áðurnefndan hátt. En lengra
en i apótekið komst hann ekki
með fals-seðilinn. —ASt.
• •
Olvaður, próflaus
á stolnum bíl
Ungur piltur I Keflavfk rétt-
indalaus og ölvaður, tók bif-
reið móður sinnar ófrjálsri
hendi aðfaranótt sunnudags
og bauö félaga sinum i öku-
ferð. *'
ökuferðinni lauk með þvi að
billinn valt út af vegi og er
stórskemmdur eftir. Piltarnir
sluppu hins vegar frá ævintýr-
inu án meiðsla. —ASt.
Enn aka menn
undir áhrifum
Lögreglumenn á flestum
stöðum utan Reykjavikur áttu
rólega helgi. Dansleikir fóru
yfirleitt vel fram og umferð-
aróhöpp og önnur slys litilfjör-
leg. Akureyrarlögreglan, tók
þó tvo ökumenn aðfaranótt
laugardags, sem hún grunar
um ölvun við akstur. Nokkur
slik mál komu og upp á Kefla-
vfkurvelli og i Reykjavik.
—ASt.
Hruflaðist og
skarst í andliti
Drengur hljóp fyrir bil á
Bárugötu i Vestmannaeyjum
kl. rúmlega 5 á föstudaginn.
Slapp hann við beinbrot en
hruflaðist mikið i andliti og
varð að sauma saman sár
hans. Drengurinn er nú á góð-
um batavegi i sjúkrahúsi.
—ASt
og stofnunum skólans.
Málefni menntaskóla i dag
eru afar mörg og fjölbreytileg,
svo segja má ekki veiti af að
starfsskipting verði viðhöfð við
stjórnun hans. Aukinheldur má
geta þess að Menntaskólinn við
Hamrahlið er langfjölmennasti
menntaskóli á landinu. Nem-
endur við skólann eru um 1360
og skiptast I 812, sem er reglu
legir nemendur, og 548 i
öldungadeild.
Sem fyrr sagði er „þrieyki”
sem þetta algjört nýmæli við
skólastjórn hér á landi og halda
menn jafnvel að „þrieykis-
stjóm” sú, sem nú rikir i Portú-
gal, hafi sótt hugmynd sina upp
iMenntaskólann við Hamrahlið.
Þrleykiö á stjórnarfundi. Frá
vinstri: Hjálmar ólafsson, Jón
Böövarsson og Jörgen Pind.
Kváðu þeir þremenningar
samstarfið hafa gefið góða raun
og mætti vel athuga hvort ekki
bæri jafnvel að stefna að slfkri
stjórnskipan menntaskóla i
framtiðinni. —BH
1 Menntaskólanum við
Hamrahlið var sú nýbreytni
tekin upp f haust, þegar Guð-
mundi Arnlaugssyni rektor var
veitt leyfi frá störfum fram aö
áramótum, að við starfinu tóku
þrir menn. Þeir Jón Böðvars-
son, Hjálmar ólafsson og Jörg-
en Pind. Er þetta algjör nýlunda
hér á landi að skóla skuli stjórn-
að af „þrieyki” sem þessu.
Menntamálaráðuneytio setti
Hjálmar Ólafsson staðgengil
rektors en Jón Böðvarsson að-
stoðarskólastjóra i hans stað.
Samningur var gerðúr ' um'
hvaða málaflokkar heyrðu und-
ir hvern þeirra, og i grófum
dráttum er skiptingin þessi.
Jörgen Pind hefur að mestu
umsjón með nemendum og
námi þeirra, fylgist með skóla-
sókn og breytingum sem nem-
endur kunna að æskja á náms-
greinum sinum.
Hjálmar ólafsson kemur
fram fyrir hönd skólans út á við,
setur hann og áritar prófskir-
teini. Hefur umsjón með skóla-
húsinu og stjórnar öldunga-
deild.
Jón Böðvarsson sér um kenn-
ara og nefndir kennara, sam-
skiptin við ráðuneytið, stjórnun
kennarafunda og „þrieykis-
funda”. Umsjón með skrifstofu
Þríeyki við stjórn í Hamrahlíðarskóla
KVENNADÓMSTÓLL SETTUR A LAGGIRNAR
Fjallar um afbrot og
yfirgang gegn konum
„Það er kannski ekki alveg
rétt að kalla þetta dómstól held-
ur einhvers konar upplýsinga-
miðstöð,” sagði Kristin Didrik-
sen okkur, er við leituðum hjá
henni upplýsinga vegna frétta-
tilkynningar um alþjóðlegan
kvennadómstól.
Það munu vera kvenlaga-
nemar, viðs vegar að úr heimin-
um, sem standa aö stofnun
þessa dómstóls. Þær héldu fund
i Paris siðastliðið vor og sögðu
þar hver annarri frá afbrotum
og yfirgangi gagnvart konum i
sinum heimalöndum. A þeim
upplýsingum byggðu þær siðan
skipulagningu félagsskaparins
og ákváðu að skipta afbrotum
gagnvart konum i fimm mála-
flokka, sem eiga að ná yfir
hvers konar afbrot viðs vegar
um heiminn:
1. Likamlegt ofbeldi og kyn-
ferðisafbrot.
2. Valdbeiting viðvikjandi barn-
eignum.
3. Yfirgangur innan fjölskyld-
unnar.
4. Fjárhagsleg þvingun
5.,Stjórnmálaleg, trúarbragða-
leg og/eða hugmyndafræðileg
undirokun.
A íslandi var myndaður
starfshópur, sem i eru fimm
konur, reyndar allar úr Rauð-
sokkahreyfingunni. Kristin
kvaðst þó vilja taka fram að
starfsemi hópsins yrði engan
veginn takmörkuð við þá hreyf-
ingu, heldur óskaði hún eftir að
konur alls staðar að tækju þátt i
starfseminni.
Nú hlýtur kostnaður við dóm-
stól sem þennan að vera tölu-
verður. Sagði Kristin að þau
mál væru nú i athugun. Hún
nefndi sem dæmi, að i Noregi
hefðu konur fengið nokkurn
stuðning frá opinberum aðilum
og einnig hefðu þær safnað pen-
ingum sjálfar.
Kvennadómstóllinn stefnir að
þvi að koma saman i Brussel i
desember næstkomandi, og þar
verða kynnt og rædd þau mál,
sem borizt hafa. Einnig er á-
formað aö tvær konur frá hverju
landi komi og segi frá þvi órétt-
læti, sem þær eru beittar.
Þær konur, sem vilja koma
vandamálum sinum á framfæri,
geta haft samb. við Kristinu,
sem býr að Bárugötu 7 i Reykja-
vik. Sagði hún að lokum, að þær
þyrftu ekki að vera feimnar við
að tjá sig, þvi að starfshópurinn
er bundinn þagnarskyldu, og
nöfn yrðu ekki birt nema með
leyfi sendenda.
—AT—
Strœtisvagnaferðum í Breiðholt fjölgað
12-14 MILLJÓNIR KOSTAR AÐ REKA
HVERN STRÆTISVAGN
Hraðferðavögnum strætisvagn-
anna á leiðinni Breiðholt/Miðbær
verður frá og með deginum i dag
fjölgað um helming á timabilinu
frá kl. 7—9 að morgni og frá kl.
5—7 siðdegis. Verður þessi áætlun
I gildi alla daga vikunnar nema
laugardaga og sunnudaga. Verða
ferðirnar þvi hér eftir á hálftima
fresti á þessari leið.
Þá hefur verið ákveðið að gera
tilraun með sérstakar ferðir á
milli hverfa i Breiðholti. Sú leið
nefnist Hólar/Bakkar. Vagnar á
þeirri leið aka á timabilinu frá kl.
9 að morgni til kl. 5 siðdegis
mánudaga til föstudaga. Þessar
ferðirhófustlika i morgun. Er ek-
ið á heilum og hálfum timum frá
Suðurhólum og ekið um Austur-
berg, Norðurfell, Breiðholts-
braut, Stöng, Arnarbakka rétt-
sælis til baka um Stöng, Breið-
holtsbraut, Norðurfell, Vestur-
berg að Suðurhólum.
Allmiklar umræður hafa orðið
um þær breytingar, sem SVR á-
kvað að gera á ferðum um Breið-
holtshverfi. Erikur Ásgeirsson,
forstjóri SVR, vill að það komi
fram að stofnunin telur það hlut-
verk sitt að veita góða þjónustu. A
hinn bóginn verði að hafa i huga
alla þá hagræðingu, sem unnt er
að koma við, ef verða mætti til að
draga úr útgjöldum borgaranna
vegna SVR. Hver strætisvagn
kostar 12—14 millj. kr. i rekstri á
ári og af þvi má sjá hve miklar
fjárhæðir eru i húfi.
Laumaðist brolt
ökumaður, sem grunaður er
um að hafa verið ölvaður undir
stýri, laumaðist af slysstað að-
faranótt laugardagsins. Hans var
leitað kirfilega án árangurs, en
siðla nætur gaf hann sig fram og
var þá ölvaður. Eftir stutta yfir-
heyrslu viðurkenndi ökumaður að
hafa verið ölvaður við akstur er
slysiö varð.
Slysið varð á Neshaga og ók bif-
reiðin á gangandi mann og konu.
Handleggsbrotnaði maðurinn en
konan fótbrotnaði og bæði skárust
er þau skullu á framrúðu bilsins.
ökumaðurinn skildi bilinn eftir
með lyklum i, en hvarf sjálfur,
sem fyrr segir.
Aðstæður benda ekki til mikils
ökuhraða._____________—ASt.
Liggur enn í dái
Tvltugur piltur, Ölafur Eiriks-
son, liggur enn meðvitundarlaus I
gjörgæzludeild Borgarspitalans
eftir umferðarslysiö sem varð I
Grlmsnesi um fyrri helgi. 1 slys-
inu fórust tveir félagar Ólafs en
hinn fjórði er á góðum batavegi
og úr allri llfshættu.
Ólafur er höfuökúpubrotinn,
auk annarra brota og meiösla er
hann hlaut I slysinu. —ASt.
Áhugi úr ýmsum
áttum
Mennirnir, sem handteknir
voru við innbrotsiðju I Apóteki
Kópavogs, eru enn báðir í gæzlu-
varðhaldi og hafa lögregluyfir-
völd fleiri staða en Kópavogs sýnt
áhuga á piltunum.
Komið er I ljós að I apótekinu
leituðu þeir að ákveðnum pillum
og einnig munu fleiri mál bland-
ast inn I rannsóknina. Er annar
mannanna I gæzlu þar og i sífelld-
um yfirheyrslum.
Rannsóknarlögreglan I Reykja-
vík hefur hinn til meðferðar. Hef-
ur hann verið úrskurðaður I 90
daga gæzluvarðhald vegna si-
brota og verður nú afbrotalisti
hans tekinn til meðferðar. ASt.
Að drqgq fólk á asnaeyrum
Það virðist vefjast fyrir
Mjólkursamsölunni I Reykjavlk
að annast þá sjálfsögðu þjónustu,
sem hún hefur verið að reyna að
myndast við að veita, með
afgreiðslu mjólkur I einni
mjólkurbúða sinna á sunnudags-
morgnum. 1 þessa einu búð, að
Laugavegi 162, er öllum Ibúum
Reykjavikur ætlað að sækja,
vanhagi þá um mjólk á sunnu-
degi.
A hverjum sunnudagsmorgni
myndast þarna mikil örtröð blla
og fólk verður að láta sér lynda að
bíða langtlmum saman I biðröð
eftir afgreiðslu. Minnir það einna
helzt á biðraðirnar á haftatimum
Islenzkrar verzlunar.
I gærmorgun keyrði þó um
þverbak I þessari frægu mjólkur-
deild. Biðröðin var e.t.v. ekkert
lengri en aðra sunnudaga, en hún
náði langleiðina meðfram þessu
stórhýsi einkasölunnar. Þvl tók
fólk með jafnaðargeði að venju,
en þegar mjólk var til þurrðar
gengin kl. rúmlega 11.30 hitn-
aði mörgum I hamsi, sem
komiö höfðu langt að og lengi
beðið. Þeir siðustu, sem mjólk
fengu, - urðu að láta sér lynda
pelahyrnur, og gefur auga leið
hver óþægindi eru af sllku.
Áfgreiðslustúlkurnar gátu
ekkert um það sagt, hvort meiri
mjólk yrði á boðstólum, kváðust
ekki ná simasambandi við neinn
ábyrgan aðila.
Augljóst virtist þvl I gær að
Mjólkursamsalan réði ekki við
það verkefní, sem. hún er aö
bisa við að inna af hendi með
þessari mjólkursölu á sunnu-
dögum. Vær þvl ráð, að hún gæfi
t.d. Mjólkurbúi Flóamanna eftir
aðstöðu til þessarar mjólkursölu.
Þar virðast ráöa málum menn,
sem kunna að fitja upp á nýjung-
um og vilja veita viðskiptavinum
einhverja þjónustu, og um leið
koma fram við þá af fullri
virðingu.
—ASt.