Dagblaðið - 31.10.1975, Page 1

Dagblaðið - 31.10.1975, Page 1
1. árg. — Föstudagur 31. október 1975 — 44. tbl. 'Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 NU HEIMTA RÚSSARNIR BEINHARÐAN GJALDEYRI — baksíða „FRYSTIHÚSA- EIGENDUR SITJA Á DYNAMÍTI" — segir Guðmundur j. Guðmundsson i Dagsbrún „Þetta eru siðlausar aðgerðir frystihúsaeigenda”, sagði Guð- mundur J. Guðmundsson i Dags- brún. Fréttamaður Dagblaðsins spurði hann, hvað verkalýðsfé- lögin hygðust fyrir vegna upp- sagna starfsfólks frystihúsa og lokunar þeirra. „Við litum það mjög alvarleg- um augum, að frystihúsin skuli skyndilega nú i. október ætla að loka. Við munum fylgjast með og gera gagnráðstafanir”, sagði Guðmundur. Hann sagði enn- fremur: „Æltiþað sé ekki bezt, að verkafólk taki upp siðferði frystihúsaeigenda og gangi út úr frystihúsunum yfirfullum af Jap- ans-loðnu eða dýrum vertiðar- fiski. Þessir menn sitja á dyna- miti”. 1 dag verða fundir verkalýðsfé- laga frá Vestmannaeyjum til Akraness, þar sem þessi mál veröa til umræðu. Einkum taka aðgerðir frystihúsaeigenda til Suðurnesja en varða að sjálf- sögðu allar verstöðvar á Suður- landi og Vestmannaeyjum. BS— Gosið frá Sanitas ennþá í búðum: „SÆKJUM ÞAÐ, ÞEGAR VIÐ KEYRUM ÚT NÝTT" „Borgarlæknir kom hér i gær og tók sýni af þeim lager er við erum nú með hér inni,” sagði Sigurður Waage, forstjóri gos- drykkjaverksmiðjunnar Sanitas i morgun. „Hann fann ekkert athugavert við það magn og munum við aka þvi i búðirnar á næstunni. Ekki sagðist Sigurður hafa látið sækja þær birgðir, sem lægju i verzlunum i borginni, sagði þá vilja spara. sér það ómak þar til þeir ækju út nýjum birgðum. Hins vegar hefði verið fyrirskipuð sölu- stöðvun. „Ekki kemur til greina, að efni þetta, sem við höldum að sé einhvers konar lútur, hafi kom- izt i hráefnið,” hélt Sigurður áfram. „Við höfum leitt að þvi getur, að efnið hafi komið inn i óþvegnum flöskum af einhverju verkstæði, eða þvi um liku, og harðnað eins og grjót i sagg- anum og þvi ekki skolazt burt i skolunarvélinni”. Taldi hann það siðan liklegt að lúturinn hefði leystst upp i gos- drykknum, en þá væri hér aðeins um litið magn að ræða, einn bakka eða svo, sem gæti hafa dreifzt viða. „Við höfum engu að leyna i þessu sambandi, viljum fyrir alla muni komast til botns i málinu og höfum haft nána samvinnu við borgar- lækni”, sagði Björn Þorláksson, lögfræðingur fyrirtækisins. „Þvi sem kallað verður inn, hellum við tafarlaust niður, enda ástæðulaust og ómögulegt að taka sýni af svo miklu magni”. HP Kassastæða af gosdrykkjum hjá Sanitas, sem taldir eru ónýtir (DB-mynd Björgvin)

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.