Dagblaðið - 28.11.1975, Page 6
6
Pagblaðift. Föstudagur 28. nóvember 1975.
Höfundur heimsmetabókar
Guinness myrtur í London
Ross McWhirter, sem ásamt
tviburabróður sinum Norris,
samdi metsölubækurnar i flokki
„Heimsmetabóka Guinness”,
var skotinn til bana á heimili
sinu i London I gærkvöld. Kona
hans var vitni að morðinu.
Lögreglan telur að morðið sé
verk Irska lýöveldishersins
IRA. Undanfarna þrjá mán.
hefur gengið yfir sprengjufar-
aldur i London, sem kostað
hefur 8 mannslif og sært rilm-
lega 200 manns. Talið er aö IRA
hafi staðið á bak við allar
sprengingarnar.
McWhirter, sem var fimmt-
ugur,bauöstnýlega til að greiða
50 þúsund sterlingspund (17
millj. isl. kr.) til hvers þess, er
veitti upplýsingar, sem leiddu
til handtöku sprengjumann-
anna. Viö þaö tækifæri sagöi
hann að sér væri ljóst, að hann
væri oröinn „helzta skotmark”
sprengjumannanna.
Að sögn lögreglunnar var Mc-
Whirter að opna útidyrnar fyrir
konu sinni þegar tveir skot-
menn, sem höfðu falizt I garöin-
um við húsið, höfu skothrið.
Hann dó skömmu eftir aö komið
var með hann á sjúkrabUs.
Kona hans slapp ómeidd.
Moröið hefur vakiö mikinn ó-
hug I Bretlandi. Morðingjaruir
komust undan i bil konu hins
myrta.
Múrverk — Flísalagnir
Getum bætt við okkur múrverki og flisa-
lögnum.
Gerum föst tilboð.
Upplýsingar i sima 71530.
Kjarvalsmyndir
Sala á verkum eftir Jóhannes S. Kjarval
fer fram föstudag, laugardag og sunnudag
,28.-30. nóvember i Brautarholti 6 frá kl.
14 til 22.
18881
18870
Bílasalan Höfðatúni 10
Seljum i dag og næstu daga:
Fiat 128 1974 ...............................kr. 650.000.00
Morris Marina 1974 ..........................kr. 750.000.00
Toyota Carina 1974 ..........................kr. 1200.000.00
Mazda 616 1974.........................................kr. 1100.000.00
Mazda 818 1973............................................kr. 900.000.00
Peugeot 504 1974 .............................kr. 1600.000.00
Dodge Charger hard-top 1970 .................kr. 900.000.00
Volvo 144 de luxe 1969 ..................... kr. 650.000.00
Datsun 1200 1972 .............................kr. 600.000.00
Datsundisil 1972 ............................ kr. 850.000.00
Land Rover disil 1973 ........................kr. 1100.000.00
Bilar fyrir fasteignatryggö veöskuldabréf, 3-5 ára:
Volkswagen 1300 1974 ........................ kr. 790.000.00
Ford Torino hard-top 1969 ....................kr. 800.000.00
Mercedes Benz 230,6 cy 1 1968...........................kr. 1075.000.00
Mercedes Benz 508, sendibill, 1971........................kr. 2000.000.00
selst meö mæll.talstöö og stöövarplássi.
Látiö skrá bilinn strax. Okkur vantar mikiö af alls konar bilum.
Viö seljum alla bila.
Opiö alla virka daga kl. 9-6. — Laugardaga kl. 10-3.
Bílasalan Höfðatúni 10
Símar: 18881 - 18870
Nálastungur lœkna
heyrnarleysi
Þessi piltur er nemandi viö heyrnleysingjaskólann I Kanton. Lækning
hans gengur prýöilega.
Kinverskir læknar hafa á und-
anförnum sex árum beitt nála-
stunguaöferðinni „akupunktur”
meö góöum árangri til aö ráða bót
á heyrnarleysi.
Tilraunir sinar hafa læknar
gert á heyrnleysingjaskóla
skammt utan við borgina Kanton.
Nemendur þar eru rúmlega 300
og segja læknar, að 76% þeirra
barna, sem gengiöhafa i skólann
siöan 1969 hafi fengið heyrn aftur,
ýmist að hluta eða alveg.
Fréttamaður Dagens Nyheter i
Kina segir frá þessu I grein i DN
nýlega. Hefur hann eftir læknun-
um, að ekki sé nóg að beita nála-
stungum aðeins i kringum eyrun,
heldur um allan likamann, eink-
um hand- og fótleggi.
Beztum árangri náðu læknarn-
ir, er barn, er hafði veriö heyrn-
arlaust frá fæðingu, fékk fulla
heym eftir sex mánaða vist á
skólanum. Yfirleitt tekur lækn-
inginmiklu lengri tima. Reynslan
hefur leitt i ljós, aö árangur næst
að meðaltali ekki fyrr en eftir sex
ára meðferð, en sá timi mun eiga
að styttast eftir þvi sem reynsla
lækna og hjúkrunarfólks eykst.
Læknarnir viö heyrnleysingja-
skólann telja mjög mikilvægt i
þessu sambandi að hafa gott
samstarf og samband við fjöl-
skyldur heyrnarlausu barnanna.
DÆMDUR FYRIR AÐ OFRÆGJA
PÁFA í BÓK OG KVIKMYND
Bandariski rithöfundurinn
Robert Katz var i gær dæmdur i
14 mánaða skilorðsbundiö fang-
elsi á Italiu fyrir að ófrægja
minningu Piusar páfa tólfta i
kvikmyndinni „Fjöldamorð i
Róm”.
Framleiðandi myndarinnar,
Carlo Ponti (eiginmaöur Sophiu
Loren) og leikstjórinn, George
Pan Cosmatos, voru hvor um
sig dæmdir i sjö mánaöa skil-
orösbundiö fangelsi fyrir sama
brot.
Það var eftirlifandi frænka
Píusar páfa, Elena Rossignani
greifaynja, sem stefndi Katz á
þeirri forsendu, að athuga-
semdir rithöfundarins I bók
hans og kvikmynd um páfann
væru ófrægjandi.
„Fjöldamorð i Róm” fjallar
um hefndardráp nasista á 335
Rómverjum i marz 1944 eftir aö
33 SS-hermenn höföu verið
myrtir þar.
1 bókinni og kvikmyndinni —
sem gerð er eftir bókinni — er
þvi haldið fram, að Pius páfi
hafi vitaö um áætlanir nasista
um hefndarmoröin, en ekkert
gert til að koma i veg fyrir þau.
Réttarhöldin hafa staðið yfir i
tvö ár. Meðal vitna voru fjórir
fyrrum foringjar i þýzku her-
sveitinni, sem átti þátt i hefnd-
armorðunum.
Katz sagði við fréttamenn
eftir að dómurinn hafði verið
kveðinn upp, að hann hygðist á-
frýja honum og að hann reikn-
aði með að verða sýknaður aö
fullu og öllu.
,,Ég er mjög vonsvikinn yfir
þessum úrskuröi,” sagði hann.
„Ég tel ekki aö vinna min á
sviöi sagnfræði eigi svona með-
ferö skilið i frjálsu lýðræöis-
þjóðfélagi.” '
Þetta var i fyrsta skipti, sem
italskur réttur úrskurðar um
störf páfa. Afstaða Piusar til
nasista i striðinu hefur oftlega
orðið tilefni deilna. Katz segist
hafa fullkomnar sannanir fyrir
staðhæfingum sínum.
Aðalhlutverk myndarinnar
leikur Richard Burton. Hann
leikur þýzka SS-höfuðsmanninn
Herbert Kappler, sem raunar
situr enn I fangelsi á Italiu fyrir
að fyrirskipa hefndarmorðin.
Italski leikarinn Marcello
Mastroianni leikur rómverskan
prest, sem í rauninni var ekki
til.
Er þetta Loch Ness skrímslið?
Brezki náttúrufræðingurinn Sir Peter Scott, sem skýrði frá þvi I vikunni, að hann hefði séð ljósmyndir af
margnefndu skrimsli I vatninu Loch Ness I Skotlandi, hefur nú málað þessa mynd af „Nessie” og systur
hennar.