Dagblaðið - 28.11.1975, Page 7
Dagblaðiö. Föstudagur 28. nóvember 1975.
Erlendar
fréttir
REUTER
Olíuleit ó
Jótlandi
Danskt fyrirtæki, DUC,
hefur í næsta námuði oliuleit 3
km undir yfirborði jarðar i
Hylderbjerg nærri Farsö á
Norður-Jótlandi.
Reiknaö - er með, aö
boranirnar taki um það bil
mánuð. Siðan verður borað
eftir oliu i Rödding viö Skive.
Talsmaður fyrirtækisins hefur
lýst björtustu vonum með
góðan árangur borananna,
enda hafi jarðfræðilegar
rannsóknir leitt i ljós, að oliu
sé að finna á þessu svæði.
Agnew blaða-
fulltrúi Sinatra
Spiro Agnew, fyrrum vara-
forseti Bandarikjanna,
hefur fengiö vinnu. Hann er
blaðafulltrúi söngvarans
Franks Sinatra, að sögn
frönsku fréttastofunnar AFP.
Varaforsetinn var i vikunni i
Teheran, höfuðborg tran,
ásamt söngvaranum, sem hélt
þar tónleika fyrir blinda
trana.
Agnew, sem neyddist til að
segja af sér embætti varafor-
seta USA 1973 eftir aö upp
komst um stórfelld skattsvik
hans og mútuþægni, sagði
fréttamönnum aö hann væri
einnig kominn til tran i
viðskiptaerindum.
Portúgal:
Fjöldahandtökur
vinstrisinnaðra
herforíngja
Allsherjar herferð gegn vinstri-
sinnum i porúgalska hernum
virðist vera i úppsiglingu eftir að
byltingartilraun var kæfð i vik-
unni. Allt yfirbragð hers og
stjórnmála hefur tekið á sig hóf-
samari blæ.
Talið er að yfirmaður öryggis-
sveita hersins (Copcon), Car-
valho hershöfðingi. og yfirmaður
landhersins, Carlos Fabiao, sem
voru settir af i gær, verði einnig
reknir úr byltingarráöi hersins.
Rúmléga fimmtiu vinstrisinn-
aðir herforingjar hafa verið
handteknir vegna byltingartil-
raunarinnar og fjölda annarra er
leitað.
Útgöngubann er enn i gildi i
Lissabon að næturlagi og blöð
komu ekki út i morgum, þriöja
daginn i röð. Hálfgert hernaðará-
stand rikir enn i höfuðborginni,
þrátt fyrir opinbera yfirlýsingu
Costa Gomes forseta um að bylt-
ingartilraunin hafi verið brotin á
bak aftur.
Rikisstjórn Azevedos forsæt-
isráðherra hefur enn ekki hafið
stjórnarstörf á ny. Costa Gomes
forseti hefur þvi sem næst al-
ræðisvald i landinu og er ekki vit-
að hvenær rikisstjórnin hefur
störf sin á ný. Hún hefur veriö i
„verkfalli” siðan i fyrri viku.
Sú var tiðin: Otelo Carvalho hershöfðingi (t.h.) ræðtr við Salgueiro
Maia, liöfuðsmann, á fundi stjórnmálahreyfingar hersins i Lissabon
i mai i vor. t>að var Maia, sem stjórnaði hersveitunum, er nú brutu
byltingartilraunina á bak aftur.
Fraser
nýtur
fylgis
meiri-
hlutans
Leiðtogi frjálslynda flokksins
i Astraliu. Malcolm Fraser lor-
sætisráöherra bráðabirgða-
stjórnarinnar, nýtur stuönings
meirihluta þjóðarinnar. Þetta
kemur fram i niöurstööum
skoðanakönnunar, sem birt var
i morgun, hálfum mánuöi áöur
en kosningar fara fram i land-
inu.
Fraser kom i morgun fram
opinberlega i fyrsta skipti siöan
hann var skipaður forsætisráð-
herra.
Skoðanakönnun, sem birtist i
blaðinu Sydney Sun, sýnir að á
undanförnum tveimur vikum
hafa vinsældir Frasers vaxiö
um 22%, úr 23 I 55%.
Gough Whitlam, fyrrum for-
sætisráöherra sem var rekinn
úr embætti af landstjóra Breta-
drottningar. nýtur stuönings
42% þjóðarinnar, skv. skoðana-
könnuninni. t siöustu könnun
fyrirhálfum mánuði hlaut hann
sama fylgi.
Spónn:
Tóragasi og vatni beitt
Juan Carlos Spánarkonungur
stóö i morgun frammi fyrir þvi,
aö ekki væru allir þegnar hans
jafn ánægðir með vikugamla
stjórn hans, þrátt fyrir ánægða
hópa fólks, sem fögnuöu honum
á götum Madrid eftir aö hann
tók formlega við embætti i gær.
Mótmælaaðgerðir i Madrid,
Barcelona og San Sebastian
settu sinn svip á spænskt þjóðlif
i gær. t Madrid komu rúmlega
2000 manns saman utan við
stærsta fangelsi borgarinnar.
Fleiri en nitján er bannað að
koma saman til fundar skv.
spænskum lögum.
Lögreglan beitti vatnspump-
um og táragasi. til aö dreifa
mannfjöldanum, sem mótmælti
náöunaráformum konungs.
Fréttastofan Cifra sagði 22
manns, þar á meðal tiu leikara
og fimm blaöamenn, hafa verið
handtekna eftir mótmælaað-
gerðirnar i Madrid. Þau hafa
verið látin laus, en jafnframt
var þeim gertað mæta fyrir rétt
i morgun — raunar þann sama
rétt og dæmir aðeins i pólitisk-
um málum.
Að sögn Cifra voru hinir hand-
teknu fremst i hópi mótmæl-
enda, hrópandi slagorð og veif-
andi krepptum hnefum. Einn
var sagður hafa boriö ólöglegan
áróður og annar ljóð eftir chil-
eanska Nóbelsskáldið Pablo
Neruda, þar sem Franco er
gagnrýndur.
t Baskaborginni San Sebasti-
an fór um eitt þúsund manna
hópur um götur og krafðist
fullrar sakaruppgjafar. Lög-
reglan dreifði hópnum með
skotvopnum — án þess þó að
meiðsli hlytust af.
t Barcelona hélt um 1000
manna hópur mótmælafund og
krafðist sakaruppgjafar og auk-
innar heimastjórnar fyrir
austurhéruöin i Katalóniu.
Hópurinn hafði dreifzt áður en
lögreglan kom á staöinn, en á
götunni skildu menn eftir sig
flugrit, sem undirrituð voru af
Katalóni'uráðinu — samstarfs-
nefnd lýðræðissinna i Katalóniu.
ENGAR TRÚAR-
OFSÓKNIR í SOVÉT
— segir sendinefndin á þingi
Alkirkjuráðsins
Sendinefnd sovézku rétttrúnað-
arkirkjunnar á þingi Alkirkju-
ráðsins i Nairobi, sem nú stendur
yfir, hefur þverneitað aö trúarof-
sóknir séu stundaðar i Sovétrikj-
unum.
Það voru fullyrðingar tveggja
kirkjunnar manna i Moskvu um
þetta, sem voru tilefni yfirlýsing-
ar sendinefndarinnar. 1 henni
sagði, að rétttrúnaðarkirkjunni
væri frjálst að aia upp nýja
kynslóð kristinna manna sam-
kvæmt gamalli trú og venjum —
svo lengi sem það brýtur ekki i
bága við lög um aðskilnað rikis og
kirkju.
Kirkjumennirnir i Moskvu
skrifuðu fundi Alkirkjuráðsins i
Nairobi og fóru fram á aðstoð viö
ofsótta kristna menn i Sovétrikj-
unum, einkum þá, er settir hafa
verið á geðveikrahæli vegna
skoðana sinna.
t svari sendinefndarinnar. sem
undirritað var af formanni utan-
rikisdeildar kirkjunnar i Moskvu.
sagði að báðir mennirnir væru
stórlega varasamir. Annar væri
uppreisnarmaður innan kirkj-
unnar og hinn alþekktur andstæð-
ingur kirkjulegrar samvinna.
Angola: Asakanir stórveldanna ganga ó víx’
Suður-Afrika styöur þjóðern-
issinnahreyfinguna UNITA i
Angola vegna ótta s-afrisku
stjórnarinnar viö aukin áhrif
Sovétrikjanna i Afriku. Þau á-
hrif séu ógnun við vestrænt lýð-
ræði. Þetta er haft eftir áreiðan-
legum heimildum i Pretóriu.
Ekki hefur veriö skýrt frá
fjölda s-afrlkanskra hermanna i
Angola né magni eða tegundum
vopna, sem þangaö hafa verið
send.
Enginn stuðningur
Kina
Kinverjar hættu að veita
hernaðaraðstoð til allra þriggja
sjálfstæðishreyfinganna i
Angola „eftir að þær komust að
samkomulagi viö portúgölsku
stjórnina um sjálfstæði lands-
ins,” aö þvi er segir i opinberri
yfirlýsingu kinversku
sendinefndarinnar hjá Samein-
uðu þjóöunum I New York. t
yfirlýsingunni sagöi, aö fylking-
arnar þrjár heföu „allar ástæð-
ur til að endurreisa samstöðu
sina og enga ástæöu til ágrein-
ings, klofnings og stríðsað-
gerða.”
Kinverski sendiherrann hjá
SÞ, sem undirritaði yfirlýsing-
una, sagði i svari viö sovézkum
ásökunum um að Kina hefði af-
skipti af innanrikismálum
Angola, að það væri slúður og
ekki annaöen „viðurstyggilegt”
bragð þjófsins, sem hrópar
„gripið þjófinn”.
Bandariskir
ráðgjafar?
Þjóðarhreyfingin t;l frelsunar
Angola (FNLA) hefur borið til
baka fréttir um að hermenn frá
Zaire og Portúgal ásamt banda-
riskum hernaðarráðgjöfum
berðust með henni i Angola. Þaö
var timaritið „Unga Afrika”,
sem gefiö er út i Paris, sem
skýröi frá þvi i vikunni, að 4-
6000 hermenn frá Zaire, nærri
1000 frá Portúgal og um það bil
200 bandariskir hernaðarráð-
gjafar berðust með liðsmönnum
FNLA. Neitun FNLA á fréttinni
var flutt af zairísku fréttastof-
unni Azap.
USA kemur i veg fyrir
sölu á farþegavéluin til
Angola.
Hin kommúniska alþýöufylk-
ing til frelsunar Angola, MPLA,
hefur sakað bandariska utan-
rikisráðuneytið um aö hafa
koniið i veg fyrir að flugfélagið i
Angola fengi keyptar tvær þotur
af gerðinni Boeing 707. Banda-
riska sjónvarpsstööin NBC
sagði frá þessu i gærkvöldi i
fréttasendingu frá Luanda.
Fréttamaður NBC hafði þetta
eftir samgönguráðuneyti
stjórnar MPLA.
Að sögn voru MPLA-mennirn-
ir þegar búnir að borga flugvél-
arnar, þegar fyrirskipun kom
frá bandariska ráðuneytinu
um aö afhenda þær ekki.
I Washington sagðist tals-
maður ráðuneytisins ekkert vita
um máliö.