Dagblaðið - 02.01.1976, Page 4

Dagblaðið - 02.01.1976, Page 4
4 Dagblaöiö. Föstudagur 2. janúar 1976. ENGINN GRUNDVÖLLUR FYRIR SÖLU KINDAKJÖTS TIL ÍRAN OG KUWAIT — hins vegor má losna við ullarteppin þangað Samband islenzkra sam- vinnufélaga kannaði fyrir nokkru sölumöguleika á kinda- kjöti i iran og Kuwait. Niður- stöður þeirrar könnunar leiddu i ljós að útflutningur þangað er ó- hugsandi, þrátt fyrir nægan markaö, vegna þess hve lágt verð fæst fyrir kjötið. 1 Iran og Kuwait er m jög mik- ils neytt af kindakjöti. Kjötið er aöallega keypt frá Nýja-Sjá- landi, Astraliu, Argentinu og Tyrklandi. Arlega er flutt til Kuwait 30-40 þúsund tonn af kjöti og hundruð þúsunda tonna til írans. Vegna þessa mikla magns tekst löndunum að selja kjötiöásvoláguverði að tsland, sem framleiðir ekki nema um þrettán þúsund tonn, er engan veginn samkeppnisfært. Jafnframt könnuninni á kindakjöti var athugað hvort markaður væri fyrir aðrar land- búnaðarafurðir og fisk. Niður- staöan varð sú að helzt kæmi til greina að selja ullarteppi. —AT— Skýtur stálboltum gegnum tommuþykkt HITAVEITA LÖGD f EITT FLIIG- SKÝLID í REYKJAVÍKURFLUGVELLI Andri Heiðberg kafari: Nú skömmu fyrir jólin fór fram viðgerð á flutningaskipinu Eldvik, þar sem skipið lá við bryggju i Reykjavikurhöfn. Hafði komið leki að skipinu eftir að það tók niðri við ólafsvik nú fyrir skömmu. Andri Heiðberg kafari var fenginn til þess að kafa undir skipið og kanna skemmdirnar, en þær voru tald- ar það litlar, að ekki borgaði sig að taka skipið i slipp, enda kom i ljós þegar Andri hafði kafað i köldum sjónum, að myndazt hafði um 40 sentimetra rifa á einn af fremri tönkunum i stefni skipsins. Það sem athygli okkar vakti var, að til stóð að Andri gerði viö skemmdirnar með bolta- byssu mikilli, sem hann á. Fengum við þvi leyfi til þess að fylgjast með könnuninni á skemmdunum en er i ljós kom Dr. Gunnlaugur gefur Vor, Haust og Skammdegi „Málverkin eru gefin i þvi skyni að sýna systrunum i Landakoti þakklæti og til uppörvunar sjúklingum spital- ans, sagði dr. Gunnlaugur Þórðarson, hæstaréttarlög- maður i viðtali við Dagblaðið. Dr. Gunnlaugur gaf Landa- kotsspitalanum 3 stór oliumál- verk fyrir helgina. Þau eru eftir Karl Kvaran, listmálara. „Mál- verkin eru abstrakt,” sagöi dr. Gunnlaugur, „og ættu ekki sizt þess vegna að gefa þeim, sem njóta þeirra, tilefni til að láta hugann reika og lyfta honum.” Málverkin heita: „Vor”, „Haust” og „Skammdegi”. —BS einum flugvirkjanum hafi orðið aö orði, er flugskýlismálin bar á góma: „Þetta minnir á gömlu dagana þegar allar viðgerðir, að SÓTTU ÖLBIRGÐIR í Tveir drengir i Hafnarfirði, hafa orðið uppvisir að innbroti i golfskála Keiiis á Hvaleyrarholti. Fóru þeir þar inn með rúöubrot- um 18. desember. Sóttu þeir i öl- birgðir á staðnum en brutu i leið- inni perur, hurð aö fundarher- bergi og fleira. minnsta kosti á stærri flugvélun- um, voru framkvæmdar úti hvernig sem viðraði.” AT GOLFSKÁLA A heimleiðinni komu þeir við i Sveinskoti, bæ á Hvaleyrarholti, þar sem ekki er búið nema að sumarlagi. Brutust þeir einnig þar inn og rótuðu i búslóð sem þar er geymd. Ollu þeir nokkrum skemmdum. —ASt. Hvellhetta, hlaðin dýnamiti, er fest á haus skrúfboltanna og siöan sprengir byssan þá hvellhcttu. Hún er siöan skrúfuö af þegar boltinn er kominn i gegn og þá er skrúfgangur fyrir róna tilbúinn. DB-mynd BP. að þær voru svona litlar, þótti ekki taka þvt að gera við þær strax, þar eð skipið var á förum með saltfisk til Grikklands og ttaliu. „Það er nú óþarfi að gera mikið veður út af þessari byssu”, sagði Andri, er viðbáð- um hann að sýna okkur gripinn. „Þvi erhins vegar ekki að neita, að hún er kraftmikil, eins og þið sjáið.” Sýndi hann okkur þvinæst eins tommu þykkt stál sem bolta hafði verið skotið I gegnum og myndirnar sýna. Sagði Andri, að hann hefði oft gert við skip, sem orðið hefðu fyrir skemmdum neðansjávar, og minntist sérstaklega eins at- viks er hann negldi með byssunni þrisvar sinnum þriggja metra stálplötu á skips- skrokk. „I það verk þurfti 150 bolta og þá varmaðurnú orðinn heldur lúinn, sem vonlegt er”, sagði Andri. Byssuna fékk hann hjá Bret- um og er uppfinningin gömul. Mun hún hafa komið fram á striðsárunum og sagði Andri að skotbirgðir sinar væru frá þeim tima. „En það er örugglega nægur kraftur i dýnamitinu ennþá,” sagði Andri. HP Andri Heiöberg, kafari meö kanónuna góöu sem hægt er aö skjóta skrúfboltum meö I gegnum tommuþykkt stál. Andri lætur sig falla i ískaldan sjóinn til þess aö kanna skemmdirnar á Eldvikinni í Reykjavfkurhöfn. Nokkrar umbætur eru væntan- legar á aðstöðu flugvirkja á Reykjavikurflugvelli á næstunni. Nú er unnið að þvi að leggja hita- veitu i flugskýli númer fjögur, en það hefur verið óupphitað hingað til. Þetta skýli var tekið undir við- gerðir á Fokker Friendship flug- vélum Flugfélagsins eftir að ljóst varð að einhverjar tafir yrðu á byggingu nýs flugskýlis i stað þess sem brann i janúar siðast- liðnum. Hitinn i flugskýli númer fjögur er nú svipaður og utan dyra, svo að ljóst er að bóta er þörf á að- stööunni. Það er þvi ekki furða að

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.