Dagblaðið - 02.01.1976, Side 8

Dagblaðið - 02.01.1976, Side 8
8 Dagblaðið. Föstudagur 2. janúar 1976. „MUN AFTUR MORGNA - ÚR ÁRAMÓTARÆÐU FORSETA ÍSLANDS „Islendingar eru að upplagi og uppeldi bjartsýnir og trúa á framtiðina. Vist skelfur jörð i sumum héruðum og jarðeldar sjóða upp úr og eru til i allt. Vist er þorskastrið og vist er þröngt i sameiginlegu búi voru. Allt er þetta háskasamlegt, það væri barnaskapur að dyjast þess.” Þetta sagði forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, i áramóta- ávarpi sinu. Hann sagði enn- fremur: ,,En i þjóðfélagi voru er lika mörgu góðu að hrósa, ef hið betra væri talið, og þjóðin er æðrulaus og að ég hygg i góðum hugum og tekur undir niður- lagsorð Aldamótaijóðanna: „Mun aftur morgna”, nú þegar vér leggjum á siðustu fjórðungsáfanga þessarar ald- ar..” „Vér höfum neyðzt út i ófrið við grannþjóð vora og gamla viöskiptaþjóö, sem vér viljum i raun og veru aðeins eiga góð og friðsamleg skipti við,” sagði forseti lslands. „Hér er komið i óvænt efni, en um það tjóar þó ekki að fást, þvi að lif liggur við. Þessi nýársdagur er að þvi leyti meiri timamót en aðrir nýárs- dagar, að aldrei áður hefur þetta islenzka einkunnarorð verið viðlika skýru letri skráð, svart á hvitu: fiska eða farast.” —HH Fengu sín 200 þúsundin hvor í rithöfundastyrk frú útvarpinu: Fiskverðið komið MEÐALHÆKKUN TAL- ONEITANLEGA MIKIL UPPÖRVUN IN 1% Samkomulag hefur tekizt um fiskverð og standa að þvi allir fulltrúar i yfirnefnd. Meðalhækk- un má meta, að sé um 1 prósent, að sögn Ingólfs Ingólfssonar, sem situr i yfirnefnd af hálfu seljenda. Ingólfur sagði, að verðið væri til bráöabirgða. Þvi er aðeins ætlað aö standa út janúar, þar til endur- skoðun sjóðakerfis sjávarútvegs- ins lýkur. Verðbreytingar eru ekki aðrar, að þvi er tekur til þorsks, ýsu og ufsa, en þær, sem fram koma af breytingum á stærðarflokkum. Þvi er erfitt að meta, hve mikil verðbreytingin er, en það fer að sjálfsögðu eftir afla. Komið var til móts viö kröf- ur sjómanna þannig, að nú telst „stór þorskur” sá, sem er 70 sentimetrar og þar yfir, en mörk- in voru áður við 75 sm. Stór ýsa telst nú sú, sem er yfir 52 senti- metra en áður var miöaö við 54 Um 20% hækkun verður á verði á skarkola og hrognum. Stærðarflokkarnir eru annars þannig, að þorskur 54—70 sem telst miðlungsstór. Miðlungsufsi telst 54—80 sm. í yfirnefndinni sátu, auk Ingólfs, Jóns Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sem var oddaniaður, Arni Benediktsson og Eýjólfur Isfeld Eyjólfsson fyrir kaupendur og Kristján Ragnarsson fyrir seljendur.-HH Dagblaðið býður blaðburðar- börnum sinum og sölubörnum i dreifingarklúbbi blaðsins til jólatrésfagnaðar um helgina. Blaðburðarbörnin eiga að koma á morgun, laugardag, en sölu- börnin á sunnudaginn. Jólatrésfagnaður þessi verður „Þetta er óneitanlega mikil uppörvun”, sagði Jón Björnsson rithöfundur i morgun þegar Dagblaðið rabbaði við hann . Hann hlaut 200 þúsud krón- ur úr rithöfundastjóði ríkis- útvarpsins, og sömu upphæð haldinn að Brautarholti 6. efstu hæð og stendur frá kl. 4—7 báða dagana. Þarna verður margt til skemmtunar, — leikir, spurn- ingakeppni, jólasveinar koma I heimsókn og jólasveinar Dagblaðsins, þeir Ómar Valdi- marsson og Helgi Pétursson, hlaut Björn Bjarman rithöf- undur, en þeir félagar sjást hér óska hvor öðrum til hamingju með verðlaunin, sem afhent voru við hátiðlega athöfn á gamlársdag. Hvorugur þeirra rithöfundanna átti verk á bóka- syngja og leika lausum hala. Hljómsveit Karls Adolfssonar sér urh tónlistina. Nú er búið að afhenda miða til blaðburðarbarnanna, en sölu- börn þau sem eru i dreifingar- klúbbnum fá sina miða i dag og á morgun i Þverholti 2. A sunnu- markaði á siðasta ári, en Jón sagði okkur að hann hefði tvenns konar verkefni á prjónunum þessa stundina. Á myndinni er Jón Björnsson til vinstri, en Björn Bjarman til hægri (DB-mynd Bjarnleifur) daginn gefst starfsfólki Dagblaðsins einnig kostur á að koma með sin börn. Þau sem geta ekki komizt á sunnudaginn mega koma daginn áður. Starfsfólkið þarf ekki að sýna miða við innganginn. —AT JÓLATRÉSFAGNAÐIR DAGBLAÐSINS blaðburðarbörnin koma á laugardag, en sölubörnin á sunnudag Takmarkað svigrúm í kjarasamningum Tryggja má núverandi rauntekjur heimilanna — Úr áramótarœðu forsœtisráðherra „Þjóðin öll stendur nú and- spænis þvi vandasama verkefni að ráða kjaramálum sinum fyrir næsta ár farsællega til lykta. Nú rlður á að tapa þvi ekki, sem áunnizt hefur. En vissulega eru aðstæður erfiðar. Horfur um hag þjóðarbúsins á árinu, sem i hönd fer, eru þann- ig, að kjaraákvarðanir geta að- eins miðazUvið það að tryggja núverandi rauntekjur heimil- anna og fulla atvinnu. Þetta verður bezt gert með þvi að ákveða nú hóflegar kjarabreyt- ingar, sem virða þau takmörk, sem þjóðarbúinu eru sett, og stefna að þvi að draga úr verð- bólgunni.” Þetta sagði Geir Hallgrims- son forsætisráðherra i áramóta- ávarpi sinu. Hann sagði, að það væri mikill og gleðilegur árangur að takast skyldi að komast þannig gegnum mis- vindi liðins árs, að ekki kæmi til atvinnuleysis. Þá hefði dregið verulega úr verðbólguhraðan- um siðari hluta ársins. „Þessa jákvæðuþætti i þróun efnahags- mála, þrátt fyrir andbyr, ber að verulegu leyti að þakka, hve hófsamlega og hyggilega var staðið að kjarasamningum á ár- inu,” sagði forsætisráðherra. Um landhelgismálið sagði hann meðal annars: „Við skul- um ekki vænta skjótrar lausnar á deilunni við Breta. Þegar þeir láta af hersiglingu sinni um islenzka lögsögusvæðið og togarar þeirra hætta ólöglegum veiðum, kann lausn að finnast. Til þess verður brezka ríkis- stjórnin þó að viðurkenna villu sins vegar. Vegna þrýstings fá- menns hóps sendi hún flota sinn á vettvang, en nú bendir margt til þess, að herskipaihlutun á Islandsmiðum sé alls ekki i samræmi við réttlætiskennd brezku þjóðarinnar.” Forsætisráðherra ræddi um deilur innanlands og sagði: „Við skulum ekki láta spjóta- glamur glepja okkur sýn, svo að við berjumst innbyrðis í stað þess að snúast sameiginlega gegn þvi, sem okkur er and- stætt.” —HH

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.