Dagblaðið - 14.01.1976, Síða 1
friálst,
nháð
dagblað
SAMTAKA
NÚ!
— öngþveiti í umferðinni rétt einu sinni
Mikinn skafrenning og
óveðursáhlaup með talsverðri
veðurhæð gerði i Reykjavík i
gær. Lögreglan var vel á verði
og bað snemma dags um að-
stoð hjálparsveita frá SVFt og
skátum. Komu þessir sjálf-
boðaliðar á vettvang með 12
stóra bila og sveit manna.
Aðstoðarlið þetta ásamt lög-
reglumönnum vann sleitu-
laust að þvi að aðstoða bila
sem stöðvazt höfðu og aðstoða
fólk, sem i vandræðum var.
Starfsmenn á moksturs-
tækjum borgarinnar unnu
sleitulaust við ruðning gatna
allan daginn i gær
2.árg. — Miðvikudagur 14. janúar 1976 —11. tbl.
Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022
Blaðamaður
stœrsta blaðs
Bretlands:
„Almenningsálitið i Bretlandi
hefur snúizt Islendingum i vil,”
sagði Gordon Hughes, blaða-
maður stærsta blaðs Bretlands,
Daily Mirror, i morgun i viðtali
við Dagblaðið.
„Siðustu sjónvarpsmyndir og
fréttir blaða um ásiglinguna á
ALMENNINGSALITIÐ
ISLENDINGUM í VIL"
Þór i fyrri viku hafa haft mikil
áhrif á almenning,” sagði hann.
„að var ofurgreinilegt af
myndunum, að brezka herskipið
átti sökina.
Auðvitað er álit manna i Hull
og Grimsby enn andsnúið Is-
lendingum.en hin venjulegi
Breti spyr: Hvað i ósköpunum
er brezki flotinn að gera við að
kúga þjóö, sem á svo mikið
undir fiskveiðum?” —HH
Kópasker:
VIÐGIRÐARSTARFIÐ AÐ FARA í GANG
- FLYTJUM FÓLK FRÁ LEIRHÖFN
„Það greip um sig almenn
skelfing er jarðskjálftinn varð
hér i gær, og þegar maður
litur yfir þorpið hér, þarf eng-
an að undra, að svo hafi ver-
ið,” sagði Guðjón Petersen,
fulltrúi Almannavarna i við-
tali við Dagblaðið I morgun.
Guðjón var staddur i Keidu-
hverfi er jarðskjálftinn varð
og hraðaði hann för sinni strax
til Kópaskers, þar sem hann
stjórnar nú björgunaraðgerð-
um.
„Flest húsin hér, sem eru
um 40 að tölu, eru meira -eða
minna sprungin og innan-
stokksmunir stórskemmdir i
öllum húsunum,” sagði Guð-
jón ennfremur. „Austast i
þorpinu eru 3 hús, sem af
flestum eru talin ónýt. Von er
á verkfræðingum til þess að
taka út skemmdir hér og
verður þá úr þvi skorið.”
Sagði Guðjón, að sjálft
könnunar- og viðgerðarstarfið
væri nú að hef jast, á staðnum
hefðu verið um 40 verkfærir
menn i nótt, flestir frá Kópa-[
skeri. Þeim yrði nú skipt i
fjóra hópa til þess að kanna
skemmdir og hefja viðgerð á
vatnsveitunni, til þess að meta
skemmdir á húsum, til þess
að reyna að koma frystihúsinu
i gang og til þess að reyna aði
lagfæra bryggjuna. Hún er
mikið skemmd, fimm stórar
sprungur, allt að 20 sentimetr-
ar, hlutuðu bryggjuna niður.
Jarðvegur allur i bænum er
krosssprunginn og þarf að lag-
færa allar götur. Þá eru brýr á
þjóðveginum illa farnar.
„Verið er að gera ráðstaf-
anir til þess að flytja fólk, alls
um 40 manns, sem farið var
með út að Leirhöfn, til Rauf-
arhafnar,” sagði Guðjón enn-
fremur. „Ekki er talið ráðlegt
að hafa svo margt fólk á bæj-
unum þar, ef annar kippur
kæmi. Þá verður fólkið frá
Kópaskeri flest á Raufarhöfn,
eða um 55 manns, aðallega
konur og börn og gamalrúenni.
Á Húsavik eru um 40 manns.”
Ekki taldi Guðjón likur á
þvi, að fólkið gæti flutt til baka
um sinn. Bjóst hann fremur
við þvi, að það myndi halda til
Akureyrar og jafnvel til
Reykjavikur og leita þar á
náðir skyldmenna, þar til við-
gerðir hafa farið fram á hús-
um. „Algjört skilyrði fyrir
þvi, að hægt sé að vera hér, er
að vatnsveitan komist i lag og
við vitum ekki ennþ'á, hvað
hún er mikið skemmd,” sagði
Guðjón.
„Sem betur fer urðu engin
slys á mönnum, þótt minnstu
munaði, að illa færi i frysti-
húsinu,” sagði Guðjón enn-
fremur. „Enginn, sem ekki
hefur upplifað svona jarð-
skjálfta, fær skilið hvernig til-
finning það er að hendast um
og fá ekkert að gert.
Dæmi eru til um það, að
ljósakrónur hafi brotið af sér
skerma þar sem þær héngu i
loftinu, og þá getur fólk séð,
hvers konar gauragangur var
hér á ferðinni. Og eins og i
Vestmannaeyjum, má búast
við þvi, að fólkið, sem hér bjó,
geri sér ekki grein fyrir þvi,
hvað gerzt hefur fyrr en eftir
TJONIÐ NEMUR
HUNDRUÐUM
MILLJÓNA
— segir fréttamaður
DB ó Kópaskeri
— Baksíða
Kjarnorkuvopn
engin á íslandi
— segja þeir í varnar-
málanefnd og telja
heimildir Þjóðviljans
fyrir slíku rangar
— bls. 8
Amerískar
ástargœrur
//
//
— eins viðkomu og
ekta íslenik,
segir Kaninn í
auglýsingum um
eftirlíkingu sína
— bls. 4
Alvarlegt slys
á Keflavíkurvegi
— baksíða