Dagblaðið - 14.01.1976, Síða 11
Dagblaðið. Miðvikudagur 14. janúar 1976.
11
úr sama héraði og Li. Hann er
sextiu og þriggja ára gamall,
næstum tiu árum yngri en þeir
Li og Teng, og talinn vera einn
valdamesti hershöfðinginn i
landinu.
Chen er yfirmaður hersveit-
anna i Peking og nágrenni. Á
undanförnum árum hefur meira
borið á honum opinberlega en
nokkrum öðrum kinverskum
hershöfðingja. Á liðnu hausti
var Chen formaður sendinefnd-
ar til Hanoi og á þjóðhátiðar-
daginn var hann formaður sér-
legrar sendinefndar rikisstjóm-
arinnar i Urumchi i Sinki-
an-héraði sem er eitt mikilvæg-
asta hérað Kina. Þeir Teng og
Chen áttu náið og gott samstarf
á timum göngunnar miklu þeg-
ar Teng var um tima pólitiskur
umsjónarmaður herdeildar
Chens.
Ungu mennirnir
biða sins tima
Þessir þrir varaforsætisráö-
herrar — Teng, Li og Chen —
eru taldir mynda kjarna þess
hóps sem liklegasthefur völdin i
Kina á næstu árum. En þetta er
aðeins fyrsta skrefið i þeirri við-
leitni að láta nýja kynslóð
manna taka við. Þá kynslóð
skortir alla reynslu úr löngu
göngunni og baráttunni við Jap-
ani og hermenn Kuomintang.
Nokkrir þessara ungu manna
eru þegar nokkuð þekktir utan
Kina. Fremsturþeirra — eða að
minnsta kosti sá sem oftast er
nefndur — er Shanghai-maður-
inn Wang Hung-wen sem orðinn
er eins konar tákn hinnar ungu
kynslóðar. Hann er aðeins fer-
tugur að aldri og er talinn einn
valdamesti maður Kina. Hann
er einn af varaformönnum
flokksins og á sæti i fastanefnd
miðstjórnarinnar.
Hvar er Wang?
Siðan i haust hefur þó borið á
umræðum og getgátum um að
hann hafi fallið i ónáð enda hef-
ur hann ekki komið fram opin-
berlega i Peking um nokkurra
mánaða skeið. Siðan i júli i
fyrra hefur nafn hans aðeins
tvisvar verið nefnt opinberlega
en ekkert bendir þó til að hann
hafi verið sviptur embættum
sinum. Og auk þess hafa menn
áður horfið af sjónarsviðinu i
Kina um stundarsakir, saman-
ber Teng sem nú er að verða
valdamesti maður landsins.
Dánargjöf
Schevings
— um sýningu á dánargjöf Gunnlaugs
Schevings á Listasafni íslands
Fyrir okkur sem fjöllum um
myndlist á íslandi, svo og
áhugamenn alla, er skortur á
upplýsingum það sem oft gerir
okkur lífið leitt. Fyrir utan
timamótaverk Björns Th.
Bjömssonar, „Islensk mynd-
list”, er afar fátt um bækur sem
innihalda einhverjar haldgóðar
upplýsingar um islenska mynd-
list og myndlistarmenn. Að visu
hafa verið gefnar út vandaðar
bækur um nokkra helstu lista-
menn okkar en þar hafa eftir-
prentanirnar oftast verið látnar
tala máli listamannsins, stund-
um heldur slælega, en lesmál
hefur verið með minnsta móti.
Hafa áhugamenn þvi þurft að
leita i úrklippusöfn vitt og breitt
um bæinn eða þá að elta uppi
kunnuga menn. Þegar nýtt
Listasafn Islands er loksins orð-
ið að veruleika, trúl. öðru hvor-
um megin við næstu aldamót,
hlýtur næsta skrefið að vera það
að koma upp rannsóknastofnun
um Islenska myndlist með sam-
starfi Listasafns og Háskóla fs-
lands. Þar ætti að vera á einum
stað allt það sem skrifað hefur
verið um islenska list, úrklippu-
safn, segulbandsupptökur og
ljósmyndir, auk safns af lit-
skyggnum til kennslu og at-
hugana. Æskilegt væri að
stofnun sem þessi hefði
greiðan aðgang að skipuíegu
arkivi verka i eigu Listasafns
tslands, fullgerðum myndum,
teikningum, formyndum eða
öðru rissi. Allt eru þetta heim-
ildir um listsköpun og vatn á
myllu hvers þess sem leggja vill
fyrir sig fræðilegar rannsóknir
á islenskri menningarsögu eins
og hún kemur fram i myndlist.
En meðan þessi stofnun er ekki
fyrir hendi verða menn sem
áður að eyða óþarfa tima i
endalaus hlaup eftir ártölum.
Stór gjöf
Tilefni þessara hugleiðinga og
draumóra er sýning sú sem nú
stendur yfir á hluta dánargjafar
Gunnlaugs Schevings i Lista-
safni Islands. Arfleiddi lista-
maðurinn Listasafnið að flestu
þvi sem I vinnustofu hans var:
oliumálverkum, vatnslita-
myndum, túskskissum, býants-
og blekteikningum, litkritar-
myndum, grafik, collage, auk
teikni-og dagbóka. Hlýtur þetta
að vera með stærstu gjöfum
sem Listasafnið hefur fengið,
samtals hátt i 2000 verk. í
þrengslunum hjá Listasafninu
hlýtur það að vera erfitt fyrir-
tæki að flokka þessi verk og
geyma, fyrir utan það að engin
aðstaða til nákvæmra rann-
sókna á þeim er fyrirhendi þar.
Fjöldi þessara verka og fjöl-
breytni hlýtur að koma mörgum
á óvart. Allir þekktu málarann
Scheving og hinar voldugu sjáv-
armyndir hans, færri vissu um
ævilangan áhuga hans á vatns-
litum og enn færri hafa vitað um
hina miklu og yfirveguðu undir-
búningsvinnu hans fyrir hvert
meiriháttar oliumálverk.
Markviss rannsókn
Hvað vinnu siðastnefnda við-
kemur halda margir að mynd-
listarmenn hafi litið fyrir þvi að
búa til myndir og þvi er okkur
öllum hollt að sjá hvernig Gunn-
laugur rannsakar markvisst
alla möguleika myndflatarins i
formyndum, I þeim tilgangi að
finna það sjónhorn og jafnvægi
sem honum hentar.
Einna flestar formyndir hér
eru fyrir „Hákarlinn tekinn
inn” sem hangir frammi i forsal
safnsins og er hrein unun að sjá
hvemig listamaðurinn prófar
myndgildi hákarlsins sjálfs i
efri hluta myndarinnar þangað
til að hann finnur þá stöðu sem
gefur honum mest óljóst jafn-
vægi, jafnvægi sem ekki gerir
hreint og slétt „design” úr
myndinni.
Hér má einnig sjá formyndir
að fleiri stórum málverkum en,
eins og Olafur Kvaran segir i
formála að sýningarskrá, væri
það mesti misskilningur að lita
einvörðungu á þessar teikning-
ar sem aðdraganda að málverki
þvi margar þeirra eru sjálfstæð
og örvandi listaverk. Af þessari
sýningu að ráða virtist Gunn-
laugur næraldrei iðka teikningu
af einskærri áhyggjulausri
ánægju, eins og t.d. Kjarval
gerði óspart, heldur er hún hon-
um æfing (eins og i skútumynd-
unum nr. 4) eða þá hrein undir-
búningsvinna.
Föst og ákveðin
teikning
Samt sem áður er teikning
Gunnlaugs aldrei stirð og
óvönduð, ef frá eru skildar byrj-
endateikningar, heldur föst og
ákveðin og gædd vissri mýkt.
Það er aftur á móti i landslags-
og húsamyndum sinum, einkan-
lega vatnslitamyndunum, sem
Gunnlaugur kemur fram inni-
legur og afslappaður. Sjó-
mannamyndir hans virðast nær
ávallt hafa ýtt undir hið episka i
listamanninum en i landslags-
myndum er ekki nein slfk
pressa á honum. Þær eru þýðar
og ljóðrænar og oftast gerðar
með breiðum pensli, ekki
kannski af sömu skerpu og
vatnslitamyndir Asgrims, en
ásæknar eru þær samt. Á siðari
árum átti Gunnlaugur það til að
blanda saman vatnslitum og lit-
krit I landslagsmyndum og eru
nokkrar þeirra mynda til sýnis
hér. Sem heild valda þær nokkr-
um vonbrigðum þótt skemmti-
legtilþrif megi finna i nokkrum
þeirra.
Voldug málverk
Siðan eru hér sýndar nokkrar
epískar myndir Gunnlaugs,
oliumálverkin stóru. Eru þær
allar stórfenglegar að sjá og
makalaust örugg er öll bygging
þeirra, auk þess sem litaskyn
höfundar er með þvi sérkenni-
legasta og heilsteyptasta sem
finnst i islenskri myndlist.
Alls eru sýnd 56 verk á þessari
sýningu, 14 oliumálverk, um 30
vatnslitamyndir og svo ýmiss
konar undirbúningsteikningar
og formyndir. Vonandi gefst al-
menningi tækifæri til að sjá
fleira úr þessari veglegu dánar-
gjöf, t.a.m. collage-myndir og
teiknibækur listamannsins.
„Haustnæturhiminn”
Staðan í landhelgismálinu
Grindavik kunngjöra að þjóðin
sættir sig ekki lengur við for-
ustuleysið og skort á samræmi i
þvi að hér skuli sitja varnarlið á
friðartimum, en þegar verja á
Island fyrir hernaðarárás fs-
lendinga vegna reynist það
einskis nýtt. Einnig lýsir sér i
aðgerðum Grindvikinganna sú
mikla tortryggni i garð stjórn-
valda er rikir meðal sjómanna,
útgerðarmanna og mikils
meirihluta þjóðarinnar eftir
gerð þýzku samninganna. I
þeim var islenzka þjóðin látin
afsala til handa rlkustu þjóð
Evrópu 60 þúsund tonnum af
fiski að verðmæti i dag á þýzka
markaðnum 6000 milljónir
króna eða 500 milljónir króna
hvern mánuð ársins næstu 24
mánuði. Eru þetta verðmæti að
jafnvirði ársframleiðslu is-
lenzks landbúnaðar á 4 mánaða
fresti eða þrefalt ársverðmæti
islenzks landbúnaðar á ári
næstu tvö árin. Og þjóðin og sjó-
mennirnir, sem var lofað 200
milum i siðustu kosningum, fá
niður i ekki einu sinni helming
af 50 milunum sums staðar við
landið eða niður i rúm 10% af
200 mílunum. Að auki eru Þjóð-
verjum opnuð mikilvæg þorsk-
fiskimið þótt þeir eigi svo til
engan þorsk að veiða.
Fordæming sjómanna á þess-
um stjórnaraðgerðum er nú
fram komin en þeir kefjast nú
þess eina sem eftir er tiltækt, en
það er allsherjarlokun sumra
þessara svæða fyrir öllum tog-
veiðum. Hér ganga sjómenn
fram fyrir skjöldu og bjóða tim-
anlega fórn til verndar framtið-
inni.
Ef skyggnzt er að baki að-
gerða Breta hér kemur eftirfar-
andi i ljós: Bretar eru að reyna
að knýja fram uppgjöf Islend-
inga fyrir næsta fund Hafréttar-
ráðstefnunnar i New York i
marz nk. Þeir hafa sagt skilið
við önnur riki Efnahagsbanda-
lagsins og skipað sér á bekk
með 200 milna þjóðunum. Þvi
horfa Bretar i marzmánuði
fram á þá stöðu að berjast mef
hernaðarofbeldi á móti 200 mil-
unum við Island en með 200 á
hafréttarráðstefnunni. Þvi
verðuraðkúga Islendinga fljótt
Brezku heimafiskimennirnir,
sem lokuðu höfnum Bretlands i
fyrra, hafa ekki látið til sin
heyra i sambandi við aðgerðir
brezku stjórnarinnar við Island.
Brezka rikisstjórnin getur ekki
öllu lengur gengið i berhögg við
kröfur og hagsmuni þeirra sem
er 100 milna einkafiskveiðilög-
saga við Bretland. En gera á ör-
væntingarfulla tilraun til að
kúga Islendinga til samninga
fyrst. Hér eru brezk stjórnvöld i
algjöru timahraki. Skozki Þjóð-
ernissinnaflokkurinn, sem er
orðinn sterkasta stjórnmálaafl-
ið i Skotlandi, krefst nú 200
milna fiskveiðilögsögu við Skot-
land. Vitað erað brezka stjórnin
getur aðeins staðið á móti þess-
um kröfum i mjög takmarkaðan
tima, þvi gerir brezka stjómin
nú örvæntingarfullar tilraunir
til að kúga tslendinga með hern-
aðarofbeldi.
Hinir ýmsu fiskistofnar við
Bretlandseyjar sem gáfu af sér
1.5 milljón tonna á siðastliðnu
ári, en af þvi magni tóku Bretar
sjálfir aðeins 1/3 eða 500.000
tonn, eru yfirleitt svo ofveiddir
að yfir þeim vofir .algert hrun
nema verndaraðgerðir komi
strax en það krefst útfærslu á
fiskveiðilögsögu Breta i 100 mil-
ur. Þvi gerir brezka stjórnin nú
örvæntingarfullar tilraunir til
þess að kúga Islendinga til upp-
gjafar með hernaðarofbeldi.
Hver dagur sem liður gerir
brezku stjórninni erfiðara fyrir
þvi stærri og stærri hluti brezku
þjóðarinnar gerir sér ljóst dag
frá degi að stjórnin er að fórna
brezkum þjóðarhagsmunum
fyrir hagsmuni hins fámenna
hóps togaraeigenda i Hull og
Grimsby. Brezka stjórnin getur
þvi aðeinshaldið áfram hernað-
arofbeldi sinu i mjög takmark-
aðan tima. Hún er fyrirfram
dæmd til að tapa. Þvi má ekki
koma til þess undir neinum
kringumstæðum að setzt verði
að samningaborði við Breta nú
ogsemja við þá, beygja sig fyrir
hemaðarofbeldinu og afsala sér
þjóðarverðmætum sem ekki eru
til skiptanna. Hvert verðmæta-
afsal til Breta á fiskauðlindum
tslands þýðir nákwæmlega til-
svarandi niðurskurð á lifskjör-
um almennings á Islandi. Þessi
verðmæti eigum við einir skv.
Haagdómstólnum, náttúruauð-
lindirsem Islandsem strandriki
á eitt skv. starfsreglum NV At-
lantshafsfiskveiðinefndarinnar.
Jafnframt verði strax gripið til
allra tiltækra ráða til mótvægis
við ofbeldi Breta innan S.þ..
Evrópuráðsins, NATO og við
Bandarikjastjórn,- skipakostur
landhelgisgæzlunnar verði auk-
inn til muna, tækja- og vopna-
búnaður bættur. Um leið og ailir
tiltækir möguleikar Islendinga
eru nýttir til fulls er sigur Is-
lands gegn hernaðarofbeldinu
tryggður. Pétur Guðjónsson.
form. Samtaka
áhugamanna uni
sjávarútvegsmál.