Dagblaðið - 14.01.1976, Qupperneq 15
Dagblaðið. Miðvikudagur 14. janúar 1976.
15
HIFUR KEYPT
VELGENGNINA
Efst í horninu er Elton John í hlutverki sinu í poppó-
perunni „Tommy", þar sem hann er að keppa um
heimsmeistaratitil sem poppstjarna.
Elton John er þekktur að þvi að vera skrsutlega og
fáránlega klæddur og á eitthvert stærsta safn af gler-
augum sem um getur í sögunni.
Velgengnina, sem stundum
reynist miög skammvinn, hafá
sumir keypt dýru verði, logið,
stolið og jafnvel drepið til þess
að öðlast hana. Oftast nær hefur
það einnig kostað annað og
meira, það er að segja lffsham-
ingju fólksins, sem velgengnina
hefur hlotið.
,,Súper”-stjarnan Elton John
hefur látið mikið i sölurnar fyrir
velgengnina og ekki vilað fyrir
sér að fórna öllu á altari frægð-
arinnar.
Ef þið efizt um .þetta skuluð
þið hlusta vel á plöturnar hans
„Captain Fantastic” og „Brown
Dirt Cowboy”.
— „Jú, þetta eru bitur lög”,
segir Elton John. ,,Ég get held-
ur ekki i'myndað mér nokkurn,
sem ekki hefur átt sinar óham-
ingjusömu stundir, á leið sinni á
tind frægðarinnar”.
Hann segir einnig að söngur
sinn sé mjög einlægur, — hann
sé ekki með nein látalæti og get-
ur ekki skilið vegna hvers fólk
sé að gagnrýna hann fyrir þetta.
Elton John hét áður Reg
Dwight og var faðir hans i
brezka hernum. Fyrir utan að
gera son sinn hálftaugaveiklað-
an með ströngu uppeldi var
hann mjög spar á ást sina til
sonarins. Faðir hans hataði
popptónlist og til þess að gera
honum til geðs lék Elton Chopin
istaðinn fyrir popp, en einungis
þegar faðir hans hlustaði á.
Þegar hann var að heiman
hamaðist Elton og lék ekkert
nema popp. Honum fór mikið
fram og loks kom að þvi að hann
fór að semja sjálfur.
Pianóiðvarðbrátt bezti og,að
honum fannst stundum. eini
vinur hans. Honum fannst hann
vera of lágvaxinn, of feitur og
einhvern veginn i alla staði ó-
mögulegur. Það er athyglisvert
að þrátt fyrir þá staðreynd, að
hann var mjög feiminn, fór
hann að heiman þegar hann var
sautján ára gamall og gerðist
liðsmaður popphljómsveitar
sem hlotið hafði nokkra frægð
og kallaði sig „Bluesology”.
Hann ferðaðist með þessari
hljómsveit og félagarnir héldu
tónleika næstu þrjú árin. Og
kvöld eitt hitti hann Lindu.
Hún var mjög falleg stúlka en
himinhá i loftinu, rúmlega 187
cm á hæð. Hann varð yfir sig
ástfanginn af þessari himna-
lengju og flutti hún inn til hans i
ibúðina i London, sem hann
leigði með vini sinum, laga-
smiðnum Bernie Taupin.
En sælan stóð ekki lengi.
Linda hafði engan áhuga á
popptónlistinni og skömmu áður
enbrúðkaupið skyldi standa rak
Elton hana á dyr.
Sfðan þetta ævintýri gerðist
hefur Elton John helgað sig
popptónlistinni algjörlega, en
hvort hann hefur alveg lagt
kvenfólkið á hilluna skal látið ó-
sagt.
En eitt er vist að hann lætur
ekkert koma á milli sin og
poppsins og leggur allt i sölurn-
ar fyrir það.
Það virðist enginn endir á þvi
hvað poppstjörnur gera til þess
að vekja á sér athygli. Nýlega
kom Elton John fram á hljóm-
leikum i Bandarikjunum og var
klæddur i „base-ball” búning,
sem var alsettur glitrandi stein-
um.
Hljómleikarnir voru haldnir á
leikvelli Dodgers félagsins i Los
Angeles og áhorfendur voru I4b
þúsund! Hann hefði vel getað
haldið aðra hljómleika næsta
dag, þvi þúsundir urðu frá að
hverfa, en nota átti völlinn fyrir
boltaleik.
>v'v V- 'V
/ * 0 -V
HVERNIG HEIMSMEISTARINN
Heimsmeistarinn Mu-
hamed Ali er mjög vel
stæður og hefur nóg
fvrir sig og sina að
leggja þótt hann verði
hundrað ára gamall.
Eitt af þvi fáa sem Muhamed
Ali talar ekki um i bók sinni
„Sannleikurinn um lif mitt” er,
hvernig hann hafi varið þeim
milljónum dala sem hann hefur
unnið sér inn sem boxari.
Ali lætur nægja að segja frá
þvi að brúttótekjur hans hafi
verið 30.051.115 dollarar (sem er
á sjötta milljarð isl. kr.) frá þvi
hann kom fyrst fram i október
1960 og til leiksins við Joe
Frazier 30. sept. s.l.
Hafa þessir peningar runnið
honum smátt og smátt úr greip-
um eins og tilfellið hefur verið
með svo marga fyrirrennara
hans i hnefaleikarastéttinnis?
Nei, alls ekki. Hann hefur allt
sitt á hreinu, jafnvel þótt hann
yrði hundrað ára gamall. Þegar
hann kveður hnefaleikana fyrir
fullt og allt, eftir svona tvo til
þrjá leiki i viðbót, hefur hann
tryggt sjálfum sér og fjölskyldu
sinni áhyggjulausa framtið.
Hann þarf ekki að leika
fleiri leiki peninganna vegna —
þvi hann er séður maður i fjár-
málum.
Þvi er haldið fram að Mu-
hamed Ali hafi varið niu
milljónum dala (rúml. einn og
hálfur milljarður isl. kr.) til
þess að kaupa oliuhlutabréf,
fasteignir og iðnfyrirtæki Þetta
er talið gefa honum a.m.k. eina
milljón dala (170 millj. isl. kr.) i
tekjur árlega. Oliuhlutabréfin
hans stigu verulega eftir bar-
dagana við Frazier en fyrir
hann fékk Ali fimm millj. dala
(850 millj. isl. kr.).
Muhamed'Áli á landsvæði ná-
lægt Chicago sem metið er á 400
þúsund dali (68 millj. isl. kr.).
Einnig á hann æfingasvæði, sem
nefnt hefur verið „Himnariki
boxarans”, sem metið er á 500
þús. dali (85 millj. isl. kr.). Loks
á hann „lúxus villu” i finasta
hverfinu i Chicago, stórt sam-
býlishús þar i borg fyrir utan
hluta i alls kyns fyrirtækjum
viðs vegar um Bandarikin.
Bilakostur Múhameðs Ali er
mikill og dýr. Hann er með bila-
dellu og siðustu fréttir herma að
heimsmeistarinn .eigi niu bila
fyrir utan griðarstóran hús-
vagn. Bilakosturinn saman-
stendur af tveim Rolls Royce,
einum fólksvagni, einum
„station-bil”, einum jeppa,
Chevrolet með rými fyrir niu
farþega, einum Mercedes 300,
einum Ford Falcon og einum á-
ætlunarbil með baði, eldhúsi og
farþegarými fyrir 20 farþega.
Þegar Múhamed Ali fékk 10
þúsund dollara (um 1,7 millj.
isl. kr.) fyrir undirskrift samn-
ings við „The Louisville
Sponsoring Group” keypti hann
kirsuberiarauðan kádiliák. sem
Niu milljónir dala (1530 milj.
isl. kr.) virðist ekki vera há
upphæð miðað við þær 30
milljónir sem Múhamed Ali hef-
ur unnið sér inn, en það er sú
upphæð sem hann hefur orðið að
greiða i skatta.
Skattalega séð fer Múhamed
Ali betur út úr þvi að keppa utan
heimalands sins og er það á-
stæðan fyrir kappleikunum i
Zaire, Malajsiu og Filippseyj-
um. Fyrir leikinn við Fore-
man fékk hann nærri 5,5 milj.
dala og fyrir leikinn við Frazier
i Manilla fékk hann 5 millj. dala
Hann fer fram á að fá 7 millj.
dala fyrir að keppa við Ken
Norton og ennþá meira vill hann
fá fyrir að keppa við Foreman á
ný.Fyrir keppnina viðForeman
og Frazier fékk Muhamed Ali
meiri peninga en Joe Louis
heimsmeistarinn fyrrverandi,
vann sér inn á öllum ferli sinum.
NOTAR PENINGANA SINA
DÝRU VERÐI