Dagblaðið - 02.03.1976, Side 1
2. árg. — Þriðjudagur 2. marz 1976 — 48, tbl. ..Ritstjórn Síðumúla 1*2, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022.
INGIMAR:VINSÆLL HLOMSVEITARMAÐUR
Á SJÚKRAHÚSI EFTIR ÁREKSTUR —bls. 9
BSRB:
VERKFALLS-
RÉnUR í
SJÓNMÁLI?
Nú virðist vera að komast skriður á
samningaviðræður opinberra
starfsmanna og ríkisins um verkfalls-
rétt, þar sem vinnunefndir á vegum
ríkisins hafa lagt fram hugmynd um
verkfallsrétt sem nokkurs konar
gagntilboð við hugmyndum BSRB
manna um fullan verkfallsrétt. í
stórum dráttum er hugmyndin sú, að
heildarsamtökin fái verkfallsrétt, en
ekki komi þó til verkfalla fyrr en
sáttátillaga hefur verið lögð fram og
hún felld í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Það skal tekið fram að hvorugur
samningsaðila hefur tekið beina af-
stöðu til þessarar hugmyndar, en
væntanlega verður þingað um hana
nú í vikunni. -GS.
Fundir með
flugvirkjum
til morguns
Samningafundir í flugvirkjadeilunni
stóðu á Hótel Loftleiðum fram undir
morgun. Samningar hafa tekizt í kjara-
deilu flugfreyja, en ósamið er við
flugmenn.
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði í morgun, að enn væri
nokkuð óljóst um kröfur flugmanna.
Samningar þeirra runnu ekki út fyrir en
1. febrúar, og lítið hefur enn verið um
fundi, aðeins undirbúningsfundir.
Hinn nýi samningur flugfreyja gildir
allt til 15. október 1977 eða mun
lengur en almennu kjarasamningarnir.
Bilið frá 1. maí til 15. október næsta ár
er brúað með hliðstæðum kjarabótum
og eiga að verða á tímabilinu fram að
þeim tíma. -HH.
Sjómannasamningarnir felldir víða:
Sjómenn óánœgðastir
með skiptaprósentuna
„Bg t(‘l að sjómenn hafi verið
óánægðástir með skiptaprósentuna.
Þtíir tclja sig eiga að fá meira út úr
brevtingunni á sj('k)akcrfinu en þeir
fengu,” sagði Oskar Vigfússon,
formaður Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar, í morgun.
Oskar sagðist furða sig á tali út-
vegsmanna um, að þeir væru tregir
til að halda áfram viðræðum, cftir að
mörg sjómannafélög hafa fellt
samningana. ,,Ég tel, að málið sé í
htindum ríkissáttasemjara og hann
eigi að taka frumkvæðið að áfram-
haldandi samningaviðræðutn,” sagði
Öskar.
Sjómannafélag Reykjavíkur felldi
samningana með 54 alkvæðum gegn
9, en 7 skiluðu auðu. Þetta er, einst)g
sjá má, mjög lítil fundarsókn í mikil-
vægu máli. Þá voru samningamir
felldir í Hafnarfirði, Keflavík,
Garðinum og Sandgerði en
samþvkktir í Vestmannaeyjum, á
Akranesi, í Grindavík og Þorláks-
h(">fn.
Öskar sagði, að sjómenn á Sna*-
fellsnesi mundu taka afstöðu til
samninganna á fundum í dag.
Hann sagði, að fram hefði komið á
fundunum í gær, að sjómenn væru
nokkuð ánægðir með þá kaup-
trvggingu, sem út úr samningunum
hefði fengizt.
-HH.
Svona fór um
þó!
Landsliðið
fékk
alvarlega
viðvörun
ÍMETZ
- ÍÞRÓTTIR
Castro
bak
við
morðin
á
Kennedybrœðrum
segir bandarískt blað
-erl. fréttir á bls. 6-7
Mjólkuðu sér
8%, - meðan
aðrir fengu
bara eitt