Dagblaðið - 02.03.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 02.03.1976, Blaðsíða 6
6 Dagblaðið. Þriðjudagur 2. marz 1976. Þœgilegir, norskir leðurstólar Verð kr. 64.000.— Heimilið SOGAVEGI 188 — SlMI 37210 Nýkomið: Leðursandalar ó kvenfólk Stœrðir: 36—41 Verð: 2*900* — Skóbúðin, Snorrabraut 38 sími 14190 Snumostúlkur óskost strax Blófeldur, Síðumúla 31, sími 30757 Lousor stöður Ráðgert er að veita á árinu 1976 nokkrar rannsóknarstöður til 1-3 ára við Raunvísindastofnun Háskólans. Til greina koma stöður við eftirtaldar rannsóknastofur: Eðlisfræðistofu, efnafræðistofu, jarðvís- indastofu, reiknifræðistofu og stærðfræðistofu. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs verkfræði- og raunvísindadeildar og stjórnar stofnunarinnar, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennslan skuli teljast hluti af starfsskyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ýtarlegri greinargerð og skilríkjum um mennt- un og vísindaleg störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 31. mars n.k. Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækj- anda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. 26. febrúar 1976. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ u Smurbrauðstofan BJOFININM NjólsgÖtu 49 - Sími 15105 SLA-hreyfingin undirbýr bankaránið...Ef ég hefði ekki staðið mig vel... ætluðu þau að drepa mig”. Patty samdi ekki ávörpin sjálf — segir sérfrœðingur í málfari og ritstíl Hljóðrituð byltingarávörp Patriciu Hearst til umheimsins voru ýmist skrifuð eða lesin fyrir af tveimur kvennanna, sem áttu þátt í brott- námi hennar, að því er sérfræðingur í málfari og ritstíl bar fyrir rétti í gær. Oliver Carter dómari féllst á mótmæli sækjenda og úrskurðaði að vitnisburður sérfræðingsins dr. Margaretar Singer sálfræðings við Kaliforníuháskóla, væri ekki tekinn gildur fyrir kviðdómnum. Sagði dómarinn að slíkur vitnisburður hefði aldrei fyrr verið tekin gildur fyrir alríkisdómstól. Dr. Singer sagði að þrjár fyrstu hljóðritanirnar, sem borizt hefðu frá Patty Hearst, í febrúar og marz 1974, hefðu að hluta til verið hennar eigin smíð. í þeim hvatti hún föður sinn til að beita sér fyrir 'matargjöfum til fátækra svo hún fengi að fara frjáls. Aftur á móti sagði dr. Singer að þrjár síðari hljóðritanir, þar sem Patty fordæmdi fjölskyldu sína og sagðist hafa gengið til liðs við Symbíónesíska frelsisherinn um leið og hún tók sér byltingarnafnið ,,Tania”, hafi verið lesnar fyrir af Angelu Atwood, einum „her- manna” SLA. Síðasta hljóðritunin, sem gerð var þremur vikum eftir að Atwood og flestir aðrir félagar SLA létu lífið í skotbardaga við lögregluna í Los Angeles, var saminn af félaga Patty á flóttanum, Emily Harris, sagði dr. Singér. Dr. Singer sagði það vera fyllilega mögulegt að þekkja málfar og ritstíl einstakra manna með „vísindalegri nákvæmni.” Hún sagði einnig, að ræður SLA-foringjans „Cinque” hefðu verið samdar af Angelu Atwood. Dr. Singer er eitt síðasta vitnið, sem verjendur Patty leiða fram áður en kviðdómurinn fær málið til meðferðar og dóms. Það gæti orðið á fimmtudaginn. Fárviðri á Norðursió: Borpall rak á land — sex drukknuðu Þrátt fyrir ofsalegan storm, sem geisaði á Norðursjónum í gær, komust fjörutíu og fjórir menn lífs af, er lífbáti þeirra hvolfdi. Mennirnir voru hluti áhafnar olíuborpalls, sem strandaði í ofsaveðrinu í gærmorgun eftir að hafa rekið stjórnlaust um hafið. Borpallurinn getur siglt fyrir eigin vélarafli og var á leið til Bergen til viðgerðar, eftir aé hafa verið staðsettur á borunarsvæði Norðmanna í Norðursjónum. Björgunarbáturinn. sem er af nýrri gerð, yfirbyggður, með sa*ti fyrir yfir fimmtíu manns og sætisólum, þar scm farþegarnir eru spenntir í sa*tin. er talinn hafa orðið þeim sem náðu að komast inn og loka að sér til lífs. Sex Norðmenn, sem sáust hanga utan á bátnum, hurfu í hafið, enda fór stormurinn vfir með um 150 kílómetra hraða. Að sögn eins skipbrotsmannanná, Reidar Dehli, mun borpallinn hafa farið að reka stjórnlaust, er vélar hans höfðu ekki undan ofviðrinu. Strandaði hann um klukkan þrjú í fyrrinótt og fyrirskipaði stöðvarstjórinn öllum að yfirgefa pallinn. Borpallurinn, sem er talinn rúmlega 52ja milljarða króna virði, er ónýtur, þar sem hann liggur á strandstað. Veður eru válynd á INoröursjo, par sem oiiuvmnsla íNorömanna ter tram. Sex létu lífið þar í gær.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.