Dagblaðið - 02.03.1976, Blaðsíða 13
Dagblaðið. Þriðjudagur 2. marz 1976.
Iþróttir
þróttir
íþróttir
róttir
Alvarleg aðvörun fyrir
íslenzkg landsliðið
— sagði Ólafur H. Jónsson, fyrirliði þess, eftir að liðið hafði aðeins gert jafntefli
við franska I. deildarliðið Metz í gœrkvöldi.
Frakkarnir jöfnuðu úr vitakasti i 25-25 rétt i leikslok
Það vantar alla festu í
leik íslenzka landsliðsins
um þessar mundir og
úrslit leiksins hér í Metz
eru alvarleg aðvörun. Við
verðum að taka okkur
heldur betur á ef ekki á
illa að fara í leiknum við
Júgóslava í Olympíu-
keppninni á sunnudag,
sagði Ólafur H. Jónsson,
fyrirliði íslenzka lands-
liðsins, þegar Dagblaðið
ræddi við hann í Metz í
Frakklandi í gærkvöld.
íslenzka landsliðið hafði þá nýlokið
við að leika við 1. deildarlið Metz-
borgar í handknattleiknum — lið, sem
er í þriðja sæti í 1. deildinni frönsku.
íslenzku landsliðsmönnúnum tókst ekki
að sigra þetta franska lið. Jafntefli varð
25-25, þar sem Frakkar skoruðu jöfn-
unarmarkið úr vítakasti nokkrum
sekúndum fyrir leikslok.
Þetta var ákaflega slakt hjá okkur —
bæði í sókn og vörn, sagði ólafur H.
Jónsson ennfremur, og þó þetta væri
æfingaleikur fyrst og fremst afsakar það
ekki neitt. Það verður að leggja mikinn
kraft í æfingar liðsins og og lagfæra —
sníða af þá vankanta, sem hafa verið á
leik landsliðsins., Þar má ekki taka á
málum með-neinum vettlingatökum ef
ekki á illa að fara — já, jafnvel mjög illa
gegn Júgóslövum á sunnudag.
Þrátt fyrir 25 mörk í leiknum var
skotnýting okkar slæm — oft illa farið
með upplögð tækifæri — og varnarleik-
urinn var hvorki fugl né fiskur. Afar
slakur allan leikinn og markvarzlan
einkenndist af honum. Aðstæður allar
voru frábærar, svo ekki var þar um neitt
að sakast. í liði Metz eru tveir franskir
landsliðsmenn — meðal annars mark-
vörður liðsins, sem varði vel. En við
misnotuðum fjögur vítaköst í leiknum
— og þremur leikmönnum íslenzka
liðsins var vísað'af velli í tvær mínútur
hverjum. Dómararnir voru franskir, en
við höfðum ekkert upp á þá að klaga,
sagði Ólafur H. Jónsson.
íslenzka liðið hafði yfirleitt forustu í
leiknum og staðan í hálfleik var Í3-11
fyrir það. Síðari hálfleikurinn var afar
skrykkjóttur — en áhorfendur, sem
vóru allmargir í íþróttahöllinni þekktu í
Metz, voru vel með á nótunum, þegar
franska liðið var að.vinna upp muninn
og jafnaði svo úr vítakasti alveg í leiks-
íokin. Þá glopruðum við niður mörgum
góðum færum — leikurinn er vissuleea
alvarleg aðvörun.
Mörk íslenzka liðsins í leiknum
skoruðu Páll Björgvinsson 6, Ólafur H.
Jónsson 5, Gunnar Einarsson 5 (eitt
víti), Ólafur Einarsson 4 (eitt víti),
Bjarni Jónsson 2, Árni Iriðason 1, Jón
Hjaltalín Magnússon 1 og Jón Karlsson
1.
Æfingaaðstaða hefur verið og verður
ágæt í ferðinni — og hér er mjög gott
veður. Komið vor að því er virðist. Eng-
inn íslenzku leikmannanna hefur
meiðzt í leikjunum tveimur og allir eru
frískir. í kvöld leikum við í Nancy og
síðan verða tveir leikir í Vestur-
Þýzkalandi við kunn 1. deildarlið í
suðurdeildinni þýzku, áður en haldið
verður til Júgóslavíu í Olympíuleikinn,
sagði Ólafur H. Jónsson að lokum.
Hann bað Dagblaðið að skila kveðjum
heim frá öllum íslenzku landsliðsmönn-
Ólafur H
landsliðsins.
Jónsson,
Sterkara lið en úður!
— íslenzka landsliðið i körfubolta gegn Portúgal hefur verið valið
íslenzka landsliðið í
körfuknattleik, sem á að
leika við Portúgali hér í
Reykjavík dagana 8. 9. og
10. apríl, hefur verið
valið.
Talsverðar breytingar eru frá leikjun-
um við Englendinga og ljóst að liðið
ætti að vera sterkara en þá. Liðið er
tengt, að koma sér upp knattspyrnu-
velli. Heitar uppsprettur eru við skál-
ann.
Fyrir rúmum 35 árum hófu Víkingar
byggingu skíðaskála í Sleggjubeins-
skarði undir forustu Gunnars Hannes-
sonar og Alexanders Jóhannssonar.
Brátt var kominn þar skáli —
annálaður fyrir fegurð. En á páskum
1964, 29. marz, brann skálinn til
grunna eftir að sprenging varð út frá
Ijósavél. Tókst dvalargestum, sem voru
um 50 talsins, naumlega að sleppa út úr
skálanum, en litlu sem engu tókst að
bjarga. Skálinn fagri og innbú var
vátryggt fyrir*330 þúsund krónur. í maí
sama ár hófst endurbygging skálans og
teiknaði Kjartan Sveinsson hinri nýja
skála — endurgjaldslaust. 22. febrúar
sl. var skálinn svo formlega tekinn í
notkun — en þar hefur þó verið mikil
starfsemi undanfarin ár.
Skíðaskáli Víkings í bvggingu.
þannig skipað:
Jón Sigurðsson, Ármanni, Kristinn
Jörundsson, ÍR, Kolbeinn Kristinsson,
*R, Guðsteinn Ingimundarson,
Ármanni, Kári Marísson, UMFN, og
Kolbeinn Pálsson, KR. Þórir Magnús-
son, Val, Torfi Magnússon, Val, Birgir
Jakobsson, ÍR, Agnar Friðriksson, ÍR,
Bjarni Jóhannesson, KR, Símon Ólafs-
son Ármanni. Jónas Jóhannesson,
UMFN, Bjarni Gunnar Sveinsson, ÍS,
Jón Héðinsson, ÍS, og Jón Jörundsson,
ÍR.
Þorsteinn Hallgrímsson ÍR var einnig
valinn en hann sá sér ekki fært að taka
þátt í landsleikjaprógrammi landsliðs-
ins á árinu. Liðið, sem síðar verður
valið á Polar-Cup keppnina í Kaup-
mannahöfn, verður valið úr þessum
hópi — 10 menn. h.halls.
Er að rœtast úr
þíálfaramálum
Akurnesinaa?
Heldur \ irðist vera að birta til í
þjálfaramálum hjá íslandsmeistururn
Akraness. Eins og kunnugt er hafa
Skagamenn leitað fyrir sér um þjálfara
eftir að ljóst var að George Kirby kom
ekki til greina. Var leitað hófanna hjá
Jack Johnson, danska þjálfaranum, sem
þjálfaði ÍBA fvrir tveimur árum. Hann
hins vegar sá sér ekki fært að fara til
Skagamanna.
Nú eru talsverðár líkur á að úr rætist
— Mike Ferguson, áður kunnur
leikmaður með Blackburn, Aston Villa
ogQPR kemur til Iandsins annaðhvort
á morgun eða miðvikudag til að kanna
samningamöguleika og aðstæður. Telja
verður líklegt að Ferguson verði þjálfari
Skagamanna næsta sumar og því er sú
óvissa, sem ríkt hefur um þessi mál
uppi á Skaga, úrsögunni. -h. halls.
Olympísk
gullvon
Portúgals!
Carlos Lopez, Portúgal, er talinn hafa
mikla möguleika að hljóta verðlaun í
10000 metra hlaupinu á Olympíu-
leikurrum í sumar — jafnvel
gullverðlaunin. í Chepstow í Wales á
laugardag vann Lopez stórsigur í miklu
alþjóðlegu víðavangshlaupi. Hafði
yfirburði, þótt þar kepptu margir fremstu
langhlauparar heims.
Carles Lopez er 29 ára bankastarfs-
maður í Lissabon og hafði þegar fyrir
þetta hlaup unnið tvo aðra athyglisverða
sigra áður í vetur. Hann hafði yfirburði í
hlaupinu í Wales — vegalengdin var 12
km — og kom 16 sekúndum á undan
öðrum manni í mark. Um tíma var hann
hálfri mín. á undan öðrum, en gaf aðeins
eftir í lokin, þegar sigurinn var oihiggur.
Frægir garpar urðu lagt á eftir. Mariano
Haro, Spáni, sem hefur verið í öðru sæti í
þessu hlaupi síðustu fjögur árin, varð
aðeins 11 og enn verr gekk hjá Gaston
Roelants, sem gerði sér vonir um fimmta
sigur í hlaupinu. Hann varð 13. og landi
hans Eric de Beck, meistarinn 1974, kom í
mark sem 49.
Ursl it^ urðu þessi:
1. C. Lopez, Portúgal, 34:47.8
2. A. Simmons, England, 35:04.0
3. B. Ford, England, 35:07.0
4. K. Lismont, Belgíu, 35:08.0
5. D. Uhlmann, V-Þýzkal. 35:17.0
6. E. Sellik, Sovét, 35:17.0
Keppt var í sveitakeppni — sex manna
sveitir með þátttöku 18 þjóða. England
sigraði með 90 stigum, BelgTa varð í öðru
sæti með 118 stig og Frakkland 3ja með
187 stig. Þá komu Sovétríkin, 219 stig,
Ítalía 224 stig og Bandaríkin 243 stig.
Vestur-Þýzkaland varð í sjöunda sæti með
292 stig, þá Wales 304 og Finnland 348.
Þrátt fyrir sigur Lopez varð portúgalska
sveitin ekki í nema 12. sæti með 394 stig,
og enn verr gekk hjá Svíum, sem urðu nr.
17 með 600 stig.
íslandsmótið í badminton verður háð á
Akranesi 3. og 4. apríl — í nýja
íþróttahúsinu þar — og er það í fyrsta
skipti, sem slíkt meistaramót er háð á
Akranesi. Keppt verður í einliða- og
tvíliðaleik karla og kvenna og tvenndar-
keppni í meistaraflokki og A.-,flokki og
tvíliðaleik í ,,Qld bovs” flokki.