Dagblaðið - 02.03.1976, Side 15
Dugblaðiö. Þriðjudagur 2. marz 1976.
..
Ummólið minnkar svona
um 100 metra
15
"N
,Ja, ég gæti trúað að það færu á
þriðja tonn á ári,” sa'gði Margrét
Sölvadóttir hjá heilsuræktinni Hcbu
í viðtali við Dagblaðið. Og hvaða
tonn er Margrct að tala um? Jú, það
eru tonnin sem kvenfólkið, sem fer í
hina ,,krassandi” sex vikna
megrunarkúra hjá Hebu, missir út í
veðurog vind á ári hverju.
í síðasta megrunarkúrnum fóru
420 kg og 380 gr og kvenfólkið
minnkaði í ummáli um 19 m og 40
sm. Þetta voru fjórir hópar með 16
konum í hverjum. Við getum séð á
þessum tölum að það hefur ekkert
smávegis farið af hverri konu, en það
er líka oftast af nógu að laka.
Margrét sagði okkur að þessi góði
árangur byggðist aðallega á því
hversu góð samstaða væri, þegar í
upphafi, á miili þeirra sem í megrun-
ina færu. Þegar einhverri gengi vel
þá stæði ekki á að láta hinar vita í
hverju leyndarmálið væri fólgið. En
auðvitað vrðu allir að fylgja þeim
matarkúrum sem Heba byggir
árangur sinn mikið á.
Læknisskoðun, vigtun,
mæling og svo tekur
lýsisbræðslan við
í byrjun eru allar vigtaðar og
mældar bak og fyrir. Áherzla er líka
auðvitað Iögð á að konurnar hafi
farið í læknisskoðun. Margrét sagði
að þessi sex vikna kúr væri raunar
byggður upp af margs konar matar-
æð'i, samkvæmt ráðleggingum lækna,
svo að ekki ætti að vera nein hætta á
næringarskorti. Samt sem áður ættu
allar fyrst að hafa samráð við
heimilislækni sinn.
Síðan tekur Iýsisbræðsla Kópavogs
við, eins og Margrét sagði að gárung-
arnir kölluðu Hebu stundum.
Á sex vikum er hægt að léttast upp
undir 17-18 kg. Það fer auðvitað eftir
viljastyrk hvers og eins hversu hratt
gengur en algengt er að ná af §ér 6
kg'
Mætt er fjórum sinnum í viku og í
tvo tíma í senn. í hvert skipti er
stigið á vigtina. en á mánudögum er
máli smellt á mannskapinn, til að sjá
hver hefur vinninginn í sent.imetra-
fjöldanum. í 45 mínútur er hamazt
í leikfimi. Já. hamazt Síðan er farið í
sturtu og saunabað og til þcss að láta
líða úr ser. Eftir þetta er lagzt fyrir í
hvíldarherbergi þar sem cinnig er
ha*gt að fara í háfjallasól. Nudd er
hægt að fá ef vill, en það kostar þá
700 kr. aukalega. Eftir allt þetta er
setzt niður í setustofunni og góður
kaffisopi drukkinn (auðvitað
mjólkur- og sykurlaus). Og þar er
mikið rætt um mittismál, mjaðma-
mál, vigt og hitaeiningar. Þar fyrir
utan er auðvitað talað um landsins
gagn og nauðsynjar og sagði Margrét
að margar konurnar, sem þarna hitt-
ast í fyrsta skipti, hafi orðið hinar
beztu vinkonur. Meira að segja vildi
kvenfólkið nú gjárnan halda árs-
hátíð. Ekki stæði heldur á því að
komá því í kring, sem fyrst. Yrði þá
vitanlega að gera undantekningu á
þeirri annars algildu reglu — enga
karlmenn nálægt — og leyfa þeim að
koma.
Vitanlega æskilegast
að grennast hægt
Margrét sagði að vitanlega væri
það æskilegra að megrast ekki allt of
ört, sérstaklega' ef af miklu væri að
taka, en hinn ,,krassandi” sex vikna
kúr yki sjálfstraustið. Algengt væri að
taka nokkra sex vikna kúra yfir árið
en þá er aðeins mætt tvisvar í viku.
Spurningu okkar um það hvort
tonnin vildu nú ekki bara koma strax
aftur, svaraði Margrét á þá leið að
auðvitað yrði að vera vel á verði
gagnvart þeirri hættu. Hins vegar ef
það tækist að komast eins og eitt tvö
kíló niður fyrir sína venjulegu þyngd
í svolítinn tíma væri tiltölulega auð-
velt aö halda sér í réttri þyngd.
Og það eru konur á öllum aldri
sem taka þátt í þessu, frá fermingu
upp í sextugt. Algengasti aldurinn er
þó frá 25 ára upp í 50 ára.
Hvað það kosti að verða straum-
línulagaður á ný?
Jú, sex vikna kúr, mætt fjórum
sinnum í viku, kostar kr. tíu þúsund.
Sex vikna kúr, mætt tvisvar í viku,
kostar fimm þúsund kr.
Ef þú ert svo sú heppna, sem
missir flest kílóin á þessum sex vikum
í stranga kúrnum, þá hreppir þú ferð
til sólarlanda.
Sú heppna síðast var Fjóla Gríms-
dóttir. Húp. léttist um 15 kíló og
mjókkaði um 66 sm.
ERNA V.
INGÓLFSDÓTTll
Þær Lily og Kolla hafa verið
nuddarar hjá Hebu frá byrjun.
Auðséð er að þær eru ánægðar með
störf sín og eiga kokkteil skilið að
loknu vcl unnu stan'i.
Hér cr hún Halldóra Söl .adóttir, systir Margrétar, cn þær rcka heilsuræktina
Hcbu. Hún tckur hér létt dansspor mcð þjálfaranum, Svövu Svavarsdóttur. Það
gcra líka allir þátttakcndur scx vikna kúrsins hjá Hcbu. I)B-mynd. Ragnar l'h.
Þessar eru búnar að vera að síðan í haust. Það er auðséð að þær geta braðum fanð að taka það rolega. Hun Guöbjorg
þarna í hægra horninu er líka búin að losa sig við 26 kg.
OG Á ÞRIÐJA
T0NN FER ÚT
í BUSKANN
Þær urðu í fyrsta og öðru sæti. Fjóla Grímsdóttir til vinstri sem grenntist um 15 kg og V ilhelmína Vilhelmsdóttir til
hægri, sem léttist um 13 kg og 200 gr. Fjóla hlaut í verðlaun sólarlandaferð til Kanaríeyja. Samkomulagið var líka
hið bezta í hópnum og til þess að Fjóla gæti áreiðanlega komizt í ferðina buðust hinar til þess að passa börnin