Dagblaðið - 02.03.1976, Blaðsíða 24
Skjótt skipast veður í lofti
Það cr víst engum blöðum um það að
fletta að skjótt skipast veður í lofti hér á
hjara veraldar. í dag stöndum við með
pálmann í höndunum hvað hitastig
sncrtir. í morgun var spáin þannig að
það var þíðviðri um allt land, þótt
Akureyringar hafi enn þurft að sætta
sig við frost í morgun þá er mælirinn
þar á hraðri uppleið. í Meistaravík var
frostið hins vcgar 40 stig og í London 1
stig.
Það var aðra sögu að segja í gær. Þá
var frostið um nóttina 1 1 stig hér í
Rcvkjayík. Varð svo 7 stig um morgun-
inn, um hádcgi 4 stig, um miðjan
daginn 2 stig og komið var upp fyrir
frostmark í gærkvöld.
Hún Soffía Gestsdóttir, sem hann
Ragnar Ijósmyndari smellti af einni
mynd í gær, ætlaði alls ekki að láta sér
verða kalt. Henni er óhætt að stinga
treflinum niður í skúffu í dag því hitinn
verður um 5 stig eins og í Marseilles í
Frakklandi.
EVI
ÁTTU EKKI DROPA AF MJÓLK
— Það er dálítið erfitt að spá um
hvenær öll framleiðslan verður komin í
eðlilegt horf, sagði Oddur Helgason
sölustjóri Mjólkursamsölunnar í viðtali
við Dagblaðið í morgun.
Við munum láta ganga fvrir að vinna
mjólkina og koma henni til neytenda.
en í morgun þegar vélar verksmiðjunn-
ar fóru í gang kl. 7 eins og vanalega, var
ekki dropi til af mjólk. Vanalega er til
um 60—70% af daglegri neyzlu, sem þá
er hægt að keyra út í mjólkurbúðirnar
strax.
ABj.
Tveir sitja
enn inni
— og annor hefur
jótað milljónaþjófnað
Það voru 1335 þúsund krónur í
peningum og ávísunum sem voru í
peningaskápnum, scm stolið var úr
Bragakjöri í Grindavík fvrir helg-
ina. Auk þess voru í skápnum silfur-
peningar sérslegnir, sem eru verð-
mætir. Þá voru þar víxlar o.fl. Þjóf-
arnir stálu auk þess skjalatösku sem í
voru óinnheimtir reikningar að upp-
hæð 15—1600 þúsund krónur.
Kópavogslögreglan handtók 3
karlmenn og konu vegna þjófnaðar-
ins. Sitja 2 karlmcnn enn inni en
vinahjúum þeirra hefur verið sleppt.
Komu þau ckki við sögu sjálfs inn-
brotsins. Játning annars er inni situr
liggur fvrir en hinn neitar enn. Sást
þó til tveggja manna á innbrotsstað.
Sýnt þykir að þjófarnir voru aðeins
i peningaleit og víxlar og reikningár
hefðu þeim ekki orðið nokkurs virði.
Er til þcirra náðist höfðu þeir evtt
12000 kr. af þýfinu ASt.
Handteknir
uppi á húsþaki
— og þóttust eiga
heiminn
Fjórir menn sváfu í fangageymsl-
um lögreglunnar í Vestmannaeyjum
í morgun. Höfðu þeir brotizt inn í
húsakvnni Fiskiðjunnar í Vest-
mannaeyjum í nótt og handtók lög-
reglan þá á þaki hússins, þar sem
þeir fóru með grín og spaug og
þóttust ciga allan heiminn. Til að
komast leiðar sinnar upp á þakið
þurftu þeir m.a. að brjóta tvær
hurðir og fara um geymsluloft. Þar
uppi var rok og rigning sem á jörðu
niðri, svo hafi fjórmenningarnir
verið að leita útsýnis eða veðurblíðu
gripu þeir í tómt. Einskis af eignum
Fiskiðjunnar var saknað.
Lögreglan í Eyjum hafði mikið að
gera í nótt vegna ölvunar í bænum
og urðu viðbrigöin mikil eftir bind-
indi undanfarinna daga. í morguns
árið var ökumaöur tekinn ölvaður
við akstur. —ASt.
frfálst, úháð dagblað
Þriðjudagur 2. marz 1976.
Tauga-
veiklaðir
togara-
skip-
stjórar
Freigátan Yarmouth, sem skemmdist
allmikið á laugardaginn var þegar hún
sigldi á varðskipið Baldur, er álitn hafa
siglt til baka til Bretlands og í fylgd
með henni dráttarbáturinn Rollicker. í
stað Yarmouth kom á miðin freigátan
Naiad svo að tala herskipa hennar há-
tignar á miðunum við ísland er áfram
fjögur stykki.
Athyglisverð eru mörg samtöl sem
heyra má milli togaranna og herskip-
anna og milli togaraskipstjóra. „Andró-
meda, ýttu nú aðeins við honum fyrir
mig,” sagði einn sárgramur togaraskip-
stjóri, og átti þar við varðskipið Tý. A
meðan Týr sigldi fram og aftur við
jaðar togaravöðunnar spurði einn
brezku togaraskipstjóranna kollega sína
hvort þeir vissli hvar varðskipið væri.
„Það er um át'ta mílur frá þér,” var
honum svarað um hæl. ,Jú, ég get séð
varðskipið núna í radarnum, það nálg-
ast mig á miklum hraða, það er að
koma,” hrópaði hinn örvæntingarfulli
skipstjóri. Rétt á eftir heyrðist svo þegar
sagt var í talstöðina við skipstjórann:
„Nei, nei, þetta er ekki varðskipið, þetta
er flugvél!”
Greinilegt er að mikil taugaveiklun er
meðal brezku togaraskipstjóranna og
virðast þeir álíta að Landhelgisgæzl-
unni sé til alls trúandi. BH
Strax og bensínið
fékkst aftur:
30
órekstror
Þegar bensín fékkst á alla bíla
hækkaði árekstratalan í borginni á
stundinni upp í sinn gamla farveg.
Urðu nálega 30 árekstrar í Reykja-
vík í gærdag. Nokkur hálka var, en
þó ekki umtalsverð miðað við að-
stæður í þeim efnum að undan-
förnu. Lögreglan telur ástæðunnar
frekar að leita í hinu venjulega og
óskiljanlega gáleysi ökumanna en
tilfallandi aðstæðum . Árekstrarnir
teljast flestir smávægilegir, ollu ekki
slysum, en samanlagt eignatjón er
umtalsvert.
—ASt
Nýr kirkjugarður Reykvíkinga, Sel-
tirninga og Kópavogsbúa við Gufunes
Þar nœsti kirkjugarður ó Kjalarnesi eða í Hvalfirði
Hafizt vcrður handa á'næstunni
við framra'slu hiris nýja kirkjugarðs-
svæðis Reykjavíkur. Kópavogs og
Sclljarnarness. \ inna við sva*ðið
hólst í fyrra. en þá hafði Hafliði
jónsson. garðyrkjusijóri Revkjavíkur-
borgar. skipulagt það og gert áætlun
um framra'slu sva*ðisins sem na*r yfir
mikið mvrarsva‘ði. Stenclur nvi
kirkjugarðurinn í kvos ofan við Gufu-
nesbæinn nýja og Keldnaholt.
„Þetta er gríðarmikið svæði eða
um 70 80 hcktarar að sta*rð," sagcY
Hafliði í samtali við Dagblaðið. Mik-
il vinna er við framræslu mýrarinnar.
cn landsva*ðið er kjtaið land fyrir
kirkjugarð.
Stutt er í það, að Fossvogskirkju-
garður verði fullnýttur og um frckari
stækkun hans en orðið er, verðurekki
um að ræða.
Hinn nýi kirkjugarður við Cíufunes
er sem fyrr segir einnig ætlaður
Kópavogi og Seltjarnarricsi. Círeiða
þeir kaupstaðir hluta við fram-
kva*mdir. Það er skylda bæjarfélaga
að sjá um eða útvega landr\*mi fyrir
kirkjugarða. Kirkjugarðsgjaldið scm
hvcr skattþegn greiðir rcnnur til við-’
halds garðanna og vinnulauna í
görðunum.
Þegar rúm þrvtur í nýja garðinum
við Gufunes cftir nokkra áratugi,
verður vart um annað land að ræða
fvrir næsta kirkjugarð en Kjalarnes
eða Hvalfjörð. taldi Hafliði.
60—70% allra landsmanna hljóta
hinztu hvíld í kirkjugörðum Reykja-
víki r. Margir eru grafnir þar, sem
hafa alið allan sinn aldur úti á landi.
Banabeð þeirra er oft á sjúkrahúsum
í Revkjavík og kjósa þeir sér hinzta
hvíidarstað hér, enda oft ættingjar
hingað komnir til búsctu. ASt.
✓
V