Dagblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — LAUGARDAGUR 15. MAÍ 197« — 106. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Geirf innsmálið:
Erla játaði á sunnudegi
sett í gœzlu á þriðjudegi
Tveir dagar liðu frá því að
Erla Bolladóttir skýrði frá því
við yfirheyrslur að hún hefði
sjálf banað Geirfinni Einars-
syni og þangað til hún var
hneppt í gæzluvarðhald.
Sunnudaginn 2. maí var Erla
kvödd til yfirheyrslu hjá Saka-
dómi Reykjavíkur. Stóð hún
eitthvað fram eftir degi en síð-
degis fór Örn Höskuldsson
sakadómari heim, enda var
ekki búizt við að neitt nýtt
kæmi fram í málinu.
En það fór á annan veg. Örn
var varla fyrr kominn heim en
hringt var í hann og honum
sagt að nýjar og óvæntar
upplýsingar lægju fyrir. Þegar
hann kom á staðinn var Erla
þar fyrir grátandi og endurtók
að hún hefði sjálf skotið Geir-
finn á athafnasvæði Dráttar-
brautar Keflavíkur. ÓV.
— Ciesielski hafði dregið allt til baka
þegar blaðamannaf undurinn var
haldinn 26. marz! — BAKSÍÐA
Dýraspítalinn, hin rausnarlega gjöf Marks
Watsons, auður og yfirgefinn og fer að
grotna niður. Lykillinn fannst fyrir utan
útidyrnar (DB-myndir R. Th. og BP).
Innlendar fréttir ó bls. 5,6,7 og baksíðu
— það er mikið við að vera um helgina!
Dýraspítalinn er
að grotna niður
— útidyralykillinn fannst kolryðgaður
utandyra
,,Það er ekki að vita hvað
hefði skeð ef einhverjir óvitar
hefðu fundið þennan lykil,”
sagði Gunnar Pétursson, for-
maður Dýraverndunarfélags
Reykjavíkur, en hann fór á
dögunum og ætlaði að skoða
dýraspítalann sem Mark
Watson gaf fyrir nokkrum
árum og fann þá r.vðgaðanlykil,
sem gekk að útihurðinni á
spítalanum, liggjandi í mölinni
framan við dyrnar. ,,Það er
þjóðarskömm að ekki er enn
farið að starfrækja dýra-
spítalann, hélt Gunnar áfram,
,,það þarf ekki að kosta neitt
miklu til rekstrarins. Ég tel það
þyrfti bara einn starfskraft til
að taka á móti dýrum og hugsa
um þau og svo kæmi dýra-
læknir tvisvar í viku og liti á
þau dýr sem væru eitthvað
veik. Svo væri hægt að hafa
þarna aðstöðu til að geyma dýr
ef eigendurnir þyrftu að
skreppa eitthvað frá, gegn
greiðslu auðvitað. En eins og
málin standa í dag grotnar
húsnæðið þarna niður og er
engum til gagns. Við hjá Dýra-
verndunarfélaginu viljum
beina þeim eindregnu
tilmælum til nefndarinnar, sem
skipuð var til að skipuleggja
reksturinn á dýraspítalanum,
að taka nú til hendinni og fara
að gera eitfhvað í málunum. ”KL
Landhelgisgœzlan:
Verður að taka flug-
vélar á leigu þegar
ekki er til fyrir vara-
hlutum í SÝR
I þessari viku þurfti Land-
helgisgæzlan að taka flugvél á
leigu hjá Flugfélagi Islands
fyrir um 100 þúsund krónur á
klukkustundina til gæzluflugs
vegna þess að’ekki gekk nægi-
lega greiðlega að leysa út vara-
hluti i flugvél Landhelgisgæil-
unnar, þeir voru búnir að vera
ótollafgreiddir i landinu um
nokkurn tíma.
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Gæzlunnar. sagði i viðtali við DB
að þetta væri rétt og að svipað
hefði nokkrum sinnurn komið
fyrir áður. Er þá gripið til þess
að taka Flugfélagsvélar á leigu
en þær eru ekki eins vel búnar
tækjum og gæzluflugvélin
stóra.
Sagði Pétur að peningar til
Gæzlunnar færu í gegnum opin-
ber kerfi, sem gæti valdið því
sem að ofan er sagt frá. Hann
tók fram að þetta kæmi síður
við útgerð skipanna, þar væri
lengur hægt að bjarga
hlutunum en í flugvélinni sem
gæti stöðvazt jafnvel vegna
smástykkis.
Að lokum var Pétur að því
spurður hvort ekki væri eðli-
legra að Landhelgisgæzlan
fengi tafarlausa fyrirgreiðslu í
tilvikum sem þessum þar sem
hún ætti í rauninni í stríði.
Pétur taldi að svo væri,
spurningin væri hins vegar
hvort það væri nægilega viður-
kennt. —G.S