Dagblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 3
DACBLAÐIÐ. LAUC.ARDAGUR 8. MAÍ 1976.
Hvenœr eru fríðartímor?
OUT skrifar:
„Það var athvglisvert svarið,
sem fulltrúi bandaríska hersins
gaf fréttastofu útvarps, er hún
spurðist fyrir um það hvort
Orion kafbátaleitarflugvélarn-
ar væru vopnaðar. Hann
svaraði því til, að vélarnar
væru óvopnaðar á friðartímum.
Nú er það svo, að í sáttmálan-
um milli íslands og Bandaríkj-
anna um hersetu þess síðar-
nefnda segir, að á Islandi skuli
ekki vera her á friðartímum.
Það fer víst ekki fram hjá
neinum, að /herinn er enn á
Keflavíkurflugvelli og á Horna-
firði og sýnir í engu, að hann sé
að hugsa sér til hreifings. Sam-
kvæmt sáttmálanum eru því
ófriðartímar í heiminum, og er
því spurningunni enn ósvarað,
hvort Orionflugvélarnar séu
óvopnaðar frekar en Nimrod-
kafbátaleitarvélar Tjallans.”
EKKIA AÐ SLEPPA MONNUM
EFTIRUTSLÍTIÐ MED STÓR-
PENINGA FRÁ ALMENNINGI!
Trausti Guðmundsson skrifar:
,,í Dagblaðinu í síðustu viku
birtist athyglisverð grein um
málefni fyrirtækisins Sand-
skip hf. Þar kom frám hvernig
fjárglæframenn geta valsað
með stórar upphæðir, eftirlits-
lítið, til mikils skaða.
Ýmsar spurningar gerast
áleitnar bg fróðlegt væri, og
raunar sjálfsagt, að viðhlítandi
svör fengjust við þeim.
Já, ýmsar spurningar vakna,
til að mynda:
„Hvers vegna var aðstand-
endum fyrirtækisins Sandskip
hf. sleppt svo gersantlega laus-
um á grandalausa borgarana áp
þess að tryggt væri að þessir
menn hefðu eitthvert vit á
rekstri slíks fyrirtækis eða
skips? Hvers vegna var ekki
búið svo um hnútana, að ekki
yrði keypt til landsins annað
skip en það, sem hefði þann
lágmarksútbúnað er þurft hefði
til þess að skipið væri fært að
sinna hlutverki sínu? Þess er
hér með farið á leit að banki sá,
er veitti ábyrgð varðandi kaup
á skipinu, svari þessu á viðhlít-
andi hátt.
Heitir það virkilega fjármála-
snilli, þegar menn haga sér eins
og forráðamenn Sandskips
gagnvart starfsmönnum sín-
um?
Ef til vill vildi bankaráðs-
maðurinn Kristinn Finnboga-
son svara því.
Væri það ekki réttmætt og
fortakslaust, að ef opinberir
sjóðir og bankar, sem ennþá
fengjust til að lána fé út á þetta
skip, gerðu það ekki nema hluti
þess fjár gengi upp í margra
mánaða gamla launaskuld til
fyrrverandi áhafnar skipsins,
hvort sem það heiti'r nú Perla
eða eitthvað annað? Hvað
finnst hæstaréttarlögmannin-
um Knúti Bruun um það?
Finnst ekki heildsalanum
Páli G. Jónssyni að það skjóti
nokkuð skökku við að menn
skuli geta kinnroðalaust keypt
fasteignir upp á tugi milljóna á
sama tíma og þeir greiða ekki
starfsfólki sínu laun svo mán-
uðum skiptir?
Að lokum: Ætla Farmanna-
og fiskimannasamband Islands
og Sjómannafélag Reykjavíkur
að sjá til þess að skip þetta
hefji ekki störf fyrr en laun til
sjómanna hafa verið greidd og
málum komið á hreint af hálfu
útgerðar þess, eða ætla þessi
„móðurskip” íslenzkra sjó-
mannasamtaka ekki að gera
það?”
Neytendasamtök móttlaus
neytandinn réttlaus!
— segir lesandi og telur sig hafa verið hlunnf arinn í viðskiptum við bif reiðaverkstœði
Úlfljótur Jónsson skrifar:
„Eg segi farir mínar ekki
sléttar. — Hve mörg lesenda-
bréfa Dagblaðsins hafa ekki
innihaldið þessa setningu?
Neytandinn hefur mátt sæta of-
riki og ósanngirni og því virðist
eina vörnín gegn slíku að snúa
sér til blaðanna. Neytendasam-
tök á Islandi virðast alltof mátt-
vana til þess að fá nokkru á-
orkað.
Já, ég segi farar mínar ekki
sléttar og ef til vill finnst
mörgum í þessu mikla verð-
bólguþjóðfélagi okkar að ekki
taki að karpa og rífast þó þessi
eða hinn reikningurinn sé
nokkrum þúsundum krónum of
hár. Ef til vill ekki, — þó er
hægl að kaupa sér eitthvað
annað fyrir krónurnar en að
borga ósanngjarna reikninga.
Þannig er einmitt ástatt um
mig.
t marz síðastliðnum lét ég
gera við bílinn minn hjá
Viðgerðarþjónustunni hf. Fest
var gírstöng og skipt um hjöru-
lið . Þéssi viðgerð kostaði mig
2800 krónur, hvað ég borgaði að
sjálfsögðu enda virtist það
sanngjarnt verð.
t byrjun maí varð ég aftur að
setja bíl minn á verkstæði. Að
þessu sinni var gírstöngin soðin
saman og skipt um hjöruliðs-
kross í afturdrifi..Keimlík við-
gerð þeirri er farið hafði fram í
marz. Þetta var gert hjá bíla-
verkstæði Gísla Hermanns-
sonar — og nú í byrjun maí —
einum og hálfum mánuði síðar
— hljóðaði reikningurinn upp á
8.201 krónur. Já, á níunda þús-
und.
Eðlilega var ég ekki sáttur
við þá reikningslist, er að baki
þessum reikningi lá, og talaði
því við Gísla og benti honum á
verðmismuninn á svipaðri við-
gerð. En auðvitað var mér tjáð
að ég færi með fleipur, hefði
ekkert vit á þessum hlutum og
mér sagt að hætta öllu röfli.
Að svo búnu sneri ég mér til
Félags íslenzkra bifreiðaeig-
enda og mér var vísað á sátta-
mann þeirra og Bílgreinasam-
bandsins. Sáttamaðurinn taldi
seinni reikninginn ólögíegan
en að um svipaða
viðgerð hefði verið að ræða.
Sáttamaður ræddi við Gísla.
Ekki vissi ég nákvæmlega hvað
þeim fór á milli en sáttamaður
benti mér á að tala við FlB. Eg
sagði honum sem var, að það
hefði ég þegar gert. Þá sagði
sáttamaður mér að tala viö
Gísla aftur.
Gísli sagði mér að ég skyldi
bara halda mig við FlB og
hefur sennilega haldið að ég
héldi þessu ekki til streitu.
meðal annars vegna rnikils
kostnaðar sem því var samfara.
Um dómstólana þarf vart að
ræða — almenningur veit hve
fljótvirknin þar á erfitt upp-
dráttar.
Að svo stöddu virðist mér að
neytandinn — ég — standi rétt-
laus i þessu rnáli eins og svo oft
þegar neytandi á í höggi við
f.vrirtæki.
Neytendasamtök máttlaus —
neytandinn réttlaus, á þetta
vildi ég benda með þessum
skrifum mínum.”
Spurning
dagsins
Telurðu að rannsóknarlög-
reglan standi sig nœgilega
vel við að upplýsa saka-
mól?
Helgi Birgisson kjötiðnaðarnemi:
Alls ekki. Ef maður brýtur af sér í
dag er hann laus strax daginn
eftir, það er ailtaf sama sagan.
Ingvi Skúlason iðnskólanemi:
Það er hörmulegt, það hefur tekið
allt of langan tíma að finna eitt-
hvað út úr þessu svonefnda Geir-
finnsmáli.
Aðalsteinn Ásgrímsson verka-
maður: Neei, það vantar vel
menntað fólk í þessi störf. Þeir
hefðu átt að þiggja aðstoð
erlendisfrá.
Gunnar Árnason iðnskólanemi:
Hún stendur sig ekki nógu vel
svona yfirleitt.
Guðmundur Jóhannesson
sjómaður: Mér finnst hún
standa sig mjög illa. Ef einhver
gerir eitthvað róttækt, eins og til
dæmis Kristján og Haukur í
Kefíatik. þá eru þeir stoppaðir af.
Klínborg Sigurðardóttir kennari:
Mér finnst þessi mál ekki í nógu
góöum höndunt. Þeir hlupu á sig í
Geirfinnsmálinu.