Dagblaðið - 26.05.1976, Side 1
RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Somningar tfl skamms tíma í othugun
Samningur til skamms tíma í
landhelgisdeilunni er talinn
vera til athugunar. Þó fæst það
ekki staðfest hjá opinberum
aðilum. Nefnt hefur verið, að
samningur við Breta kynni að
ná fram í september eða til
ársloka.
Að sögn fréttastofa gera
Islendingar sér vonir um, að í
haust muni hafréttarráðstefna
Sameinuðu þjóðanna hafa
tekið af tvímæli um, að strand-
ríki eigi rétt á 200 mílna auð-
lindalögsögu. Er talið, að samn-
ingur við Bretá kynni að miðast
við það.
Þá er talið, að tslendingum
verði veitt tollfríðindi fyrir
sjávarafurðir i ríkjum Efna-
hagsbandalagsins eftir að
skammtíma samningur hefði
verið gerður við Breta.
Samningurinn mundi senni-
lega miðast við, að ákveðinn
fjöldi brezkra togara fengi að
veiða á Islandsmiðum.
JAFNVÍG Á RITVÉL1NA
OGSKAKRÚUUNA
— veiddi 20 kflóa þorsk, 120 cm langan
Hún er hress, hún Petrína Halldórsdóttir, enda var hún nýbúin
að krækja i þennan 20 kilóa þorsk, 120 em langan, þegar Sveinn
Þormóðsson tók þessa mynd. Petrína var i hópi 24 starfsmanna
Utvegsbankans, sem brugðu sér á handfæri á laugardaginn var á
tveim bátum frá Grundarfirði. Þorskurinn, sem Petrína veiddi, var
að sjálfsögðu stærsti fiskurinn, sem hópurinn veiddi. Fyrir
skömmu giftist hún Eggert Jónssyni og tók hann með i ferðina, en
hann varð aflakóngur ferðarinnar.
Petrína vinnur við erlendar bréfaskriftir i Búnaðarbankanum og
tók Sveinn Þ. litlu myndina af henni þar. — G.S.
Dagblaðið ræddi í morgun
við Þórarin Þórarinsson,
formann utanrikismálanefnd-
ar.
,,Ég veit ekki, hvað segja
skal,“ sagði Þórarinn, þegar
hann var spurður um framan-
greind atriði. „Sameiginlegur
fundur verður í utanríkis-
málananefnd og landhelgis-
nefnd kiukkan ellefu, og sfðan
verða fundir i þingflokkunum.
Málin fara þá að skýrast,"
Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra sagði I gær, að engra
frétta væri að vænta, fyrr en
Bretar hefðu kvatt herskip sín
út fyrir 200 mílurnar. —HH
r
Nýrekinn brezkur ráðherro:
„ÞORSKASTRÍÐIÐ
ER KJÁNASKAPUR"
Fyrrverandi ráðherra brezka
Verkamannaflokksins, Alex
Lyon, sakaði brezku stjórnina í
gær um kjánaskap í utanríkis-
málum og nefndi þorskastríðið
við Islendinga sem dæmi.
Hann missti embætti sitt sem
innanríkisráðherra, þegar
James Callaghan varð forsætis-
ráðherra í síðasta mánuði.
Hann sagðist þá hafa verið
settur úr embætti vegna sam-
úðar með innflytjendum.
Hann sagði á fundi í gær-
kvöldi, að það mundi kallast
spaugilegt, ef það væri ekki svo
háskalegt, að Bretar stund-
urðu ásiglingar með freigátum
við tsland, þegar vitað væri að
málstaður tslendinga yrði brátt
staðfestur í alþjóðasamningi.
Þá gagnrýndi hann utanrikis-
stefnu Breta í Kýpur- og
Ródesíumálinu. -HH.
Smyglmól tollgœzlumannanna:
Búið að yfirheyra hóp fólks
— enginn til viðbótar í gœzluvarðhald
— Við erum þegar búnir aí
yfirheyra nokkurn hóp fólks
vegna þessa máls, en enginn
hefur verið úrskurðaður i
gæzluvarðhald til viðbótar
mönnunum þrem, sagði Harald
ur Henrýsson, sakadómari i
morgun um rannsókn í meintu
smyglmáli tveggja tollgæzlu-
manna. A þessu stigi vildi hann
ekki segja hvort einhverjar
fleiri vörutegundir en áfengi
væru i spilinu.
von óþessu
— Ég bjóst alls ekki við að
verða bankastjóri, þegar ég fór
að starfa í Alþýðubankanum í
desember sl. heldur leit ég á
það starf sem hvert annað
tímabundið verkefni fyrir
Seðlabankann, sagði Stefán
Magnús Gunnarsson, ný-
kjörinn bankastjóri Alþýðu-
bankans í viðtali við DB í
morgun. Stefán var deildar-
stjóri í Seðlabankanum, en
sem kunnugt er, var hann
sendur í Alþýðubankann af
Seðlabankanum til að komast
til botns í fjármálum þar.
Stefán er því vel kunnugur
öllum málum bankans og
byrjar formlega í nýja starfinu
1. júní.
Bankaráð bankans sam-
þykkti Stefán einróma á fundi
sínum í gær. Stefán er fæddur
6. desember 1933, Samvinnu-
skólagenginn og er kvæntur
Herthu Jónsdóttur. — G.S.
J
Átti ekki
Ökumaður
banamanna
Guðmundar
var dóieiddur
— sjá baksíðu
•
Ásigling í morgun
— baksíða
•
Þau kenna
börnunum að
fara rétt að
í umferðinni
— bls.9