Dagblaðið - 26.05.1976, Side 4

Dagblaðið - 26.05.1976, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1976. [ Þingmennirnir eftir að þingi lýltur: ] ÞAÐ ER í MQRG HORN AÐ LÍTA Það er fjarri því að þingmennirnir okkar leggist í einhvers konar sumardvala, núna þegar þing- önnum er lokið í bili. Flestir þeirra munu eiga œrinn starfa fyrir höndum, og þegar við hittum þó eftir þing- slitin núna ú dögun- um, þú voru þeir enn ekki lausir undan ýmsum störfum 6 veg- um Alþingis. Við tók- um 4 þingmenn tali: Leiðinlegt þing „Eg fer ekkert dult með það, að þetta er eitt leiðinlegasta þing sem ég hef setið, þó ég hafi ekki langa reynslu í þeim efnum,“ sagði Karvel Pálma- son, þingmaður Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, þegar blaðamaður Dagblaðsins hitti hann að máli í Þórshamri. „Og nú liggur leiðin vestur til að bæta upp það sambands- ieysi sem vill myndast þegar maður er langdvölum hér í Reykjavík við þingstörf,” heldur Karvel áfram. ,, Það er stærsti gallinn við starf utan- bæjarþingmannsins, að erfitt er að halda tengslum við kjósendur á meðan á þingtíma stendur. Og svo er auðvitað mjög erfitt að skilja fjöl- skylduna eftir vestur á Bolungarvík allan þennan tíma. Vestfjarðakjördæmi nær frá Reykhólasveit á Barðaströnd norður á Hornstrandir, svo það gefur auga leið að verkefnin eru nóg framundan. Nú, ég er líka upptekinn af félagsmálum t.d. hjá Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Bolungarvíkur og það er nægilegt starf út af fyrir sig,” sagði Karvel ennfremur. „Það hefur fátt markvert gerzt á þingi i vetur,“ heldur vestfirzki þingmaðurinn áfram. „Staðfesting á lífeyrissjóða- málum verkalýðs- hreyfingarinnar var þó stór á- fangi í mínum augum og einnig samþykkt ábúðalaganna, sem eru fyrsta skrefið í þá átt að almenningur eigi kost á að nýta landið. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með að frumvarp um aukna þátttöku ríkisins f sundlaugabyggingum sjávarþorpa skyldi ekki ná fram að ganga og einnig breyting á söluskatti eftir kjör- dæmum, en annað stórvægilegt. er erfitt að nefna,“ sagði Karvel Pálmason að lokum. / Dundað við útgerð „Við erum nú að draga saman útgerðina eftir tuttugu ára starf, en það verður samt eitthvað að dunda í sumar í kringum það.“ Það er Jón Ármann Héðinsson, þingmaður Alþýðuflokksins og útgerðar- maður, sem sagði þessi orð í viðtali við Dagblaðið á dögunum, er hann var spurður um sumarstörfin. „Við seldum síðasta bátinn, Héðin, 450 tonn, til Grinda- víkur í fyrrasumar og erum hættir fiskverkun,“ hélt Jón áfram. „(Jtgerðarfélagið Hreifi hf. hóf göngu sína á Húsavík og fyrsti báturinn var 55 tonn að stærð. En þegar síldin hvarf, fluttum við okkur hingað til Hafnarfjarðar og höfum verið hér síðan.“ Aðspurður um þingstörf i vetur sagði Jón Ármann: Fjárlögin eru að sjálfsögðu alltaf stærsta málið, hvort sem þau eru góð eða slæm, þar sem þau eru undirstaðan fyrir starf- semi þjóðarbúsins. Nú svo eru lögin um fiskveiðar i land- helginni, sem voru mjög merkileg og líka afar umdeild. Ábúðalögin voru líka stór áfangi út af fyrir sig. Því miður lentu ýmis merkileg mál fyrir ofan garð og neðan enda þótt mörgum félagsmálum hafi verið veitt afgreiðsla. En þegar til baka er litið held ég að þingið hafi verið frekar dauft og engin stórmál verið á ferðinni," sagði Jón enn- fremur. „Manni er náttúrlega ofarlega í huga umræður um landhelgina og vestræna samvinnu. Eftir framkomu Bandaríkjamanna finnst mér persónulega að við ættum að gera kröfu á hendur þeim fyrir aðstöðu NATO á Keflavíkurflugvelli. Það væri eins og dropi í hafið fyrir þá, sem eyða billjónum dollara í alls konar gereyðingartæki, að greiða okkur eins og 10 milljónir árlega til að endur- nýja samgöngukerfi okkar og halda því við,“ sagði hann að lokum. í mörg horn að líta „Ég mun að öllum líkindum einbeita mér að störfum fyrir Tollvörugeymsluna í sumar, en ég er stjórnarformaður hennar," sagði Albert Guð- mundsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins með meiru I samtali við Dagblaðið. „Það verður annars nóg að gera hjá mér, bæði i minu eigin fyrirtæki og svo i borgarstjórn og borgarráði," hélt Albert áfram, en auk þess að vera þingmaður rekur hann heild- verzlun, er borgarfulltrúi og á sæti í borgarráði. „Þessi störf eiga vel saman, þvi ég held að það sé mikilvægt fyrir borgar- stjórn að eiga fulltrúa á Alþingi," sagði hann enn- fremur, „enda eru þess mörg dæmi frá fyrri tíð. Útfærsla landhelginnar var að sjálfsögðu hápunktur þing- starfa í vetur,“ hélt þing- maðurinn áfram. „Ég vona að þjóðin standi sameinuð að þeirri lausn sem finnst á málinu. Persónulega styð ég stutta samninga við Breta, en Ætlar ekki utan „Ég ætla ekki í utanlands- reisu, þó mörgum finnist eflaust mál til komið“. Það er Helgi Seljan, þingmaður Alþýðubandalagsins í Aust- fjarðakjördæmi, sem mælir þessi orð og hlær, í upphafi viðtals, sem Dagblaðið átti við hann fyrir skömmu, en hann mun vera einn fárra, ef ekki sá eini af framámönnum í þjóðfé- laginu, er ekki hefur komið út fyrir landsteinana um dagana. „Já, nú er þessu blessaða Alþingi lokið i bili, og eru sjálf- sagt margir þingmenn þvi fegnir, því ég er þess fullviss að Alþingi Islendinga er einn sá leiðinlegasti starfsvettvangur sem hægt er að hafna í. Fyrir nú utan það, hversu þrautleiðinlegt er að vera í Reykjavík," heldur Helgi áfram. „Eg fer austur fljótlega og í sumar verður maður upptekinn við að ferðast um kjördæmið og fylgjast með þvi sem er að gerast. Austfjarða- kjördæmi er mjög stórt, nær sunnan úr öræfasveit og allt Gossvœðið við Leirhnúk: BORHOLAN ER ORÐIN AÐ HVER „Það er vendilega fylgzt með svæðinu og gerðar á þvi alls kyns mælingar." sagði Axel Björnsson hjá Orkustofnun í viðtali við Dag- blaðið um það hvað liði Leir- hnúkssvæðinu. „Orkustofnun er með hluta af þessu eftirliti, en auk okkar vinna Raunvísinda- stofnunin og Norræna eldfjalla- stöðin að umfangsmiklum mælingum á svæðinu." Axel sagði, að þeir hjá Orku- stofnun fylgdust aðallega með hitastigi í borholum og hreyting- um á sprungum, en auk þess færu fram hálfsmánaðarlegar halla- mælingar á landi. „Stuttu eftir gosið í Leirhnúk seig suðurhluti Hlíðardalsins um einn og hálfan metra, en nú virðist sú þróun vera að snúast við,“ sagði Axel ennfreinur. „Það sýnir, að það er engan veginn komin kyrrð á svæðinu. Borholan stóra er í svipuðu ástandi og má eiginlega frekar kalla hana hver heldur en bor- holu," sagði Axel. „Tiiluvert vatn er nú farið að streyma upp úr henni og er fylgzt vendilega með því. Gufan streymir þarna óbeizl- uð og ég á ekki von á, að hægt verði að hemja hana í bráð. Þá er, eins og áður hefur komið fram, aðeins um eina tilbúna holu að ræða, sem hægt væri að láta gufu- aflsvirkjuninni í té nú. Sú hola lét þó á sjá við hamfarirnar og ekki jru enn farin að sjást merki þess að sami þrýstingur náist." —HP. treysti utanríkisráðherra full- komlega til að ná þeim árangri sem möguleikar eru á, enda enginn maður til þess hæfari. Af öðrum málum get ég nefnt breytingar á Grænmetisverzlun landbúnaðarins um afnám einkasölu og svo laun til handa innheimtumönnum ríkistekna.. Þessi mál voru bæði mjög mikilvæg að mínu áliti,“ sagði Albert að lokum. norður á Langanes, og eigi að sinna þessu sem skyldi þýðir það tvær til þrjár ferðir yfir svæðið á þessum þremur mánuðum. Nú, og svo verður eitthvað að gera í búskapnum líka, þó ég hafi minnkað bú- stofninn mikið. Þetta þingtímabil, sem nú er að enda, hefur verið einstaklega viðburðalítið og þurrt,“ sagði Helgi ennfremur. „Að sjálfsögðu hafa einstök at- hyglisverð mál fengið af- greiðslu eins og t.d. lög um fisk- veiðar í landhelgi tsiands og svo ábúðalögin, en engar teljandi breytingar á heildar- löggjöf hafa orðið. Sárast þykir manni hversu erfitt virðist vera að fá afgreiðslu á félagslegum hagsmunamálum, eins og heildarlöggjöf um málefni van- gefinna, en í þeim efnum erum við svo langt að baki nágranna- þjóðum okkar. Hér eigum við ekkert nema nokkur ákvæði um rekstur fávitahæla, sem allir sjá að er alveg út í hött,” sagði þingmaðurinn. „Eg hef oft fengið orð á mig fyrir fyrirgreiðslupólitík. En þessar fullyrðingar eiga ekki við nokkur rök að styðjast. Það er starf þingmannsins að huga að hagsmunum íbúa í sínu kjördæmi og gefur starfinu mest gildi að geta aðstoðað fólk, sem er staðsett langt fyrir utan kerfið. Þetta eru þeirra stórmál, þó borgarbúum finnist eflaust lítið til þeirra koma“, sagði Helgi Seljan að lokum. -JB. :t

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.