Dagblaðið - 26.05.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 26.05.1976, Blaðsíða 8
 DAGBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1976. r——— Jarðstöð í stað Scotice: w Alitsgerðin leyndar- plagg Halldórs E. Flateyri: Finnsk hug- mynd leysir vandann með iþrótta- hús „Ráðherra hefur ákveðið að álitsgerðin verði ekki birt opin- berlega,” var svar Brynjólfs Ingólfssonar, ráðuneytisstjóra í samgönguráðuneytinu, þegar Dagblaðið leitaði til hans i gær. Álitsgerð þessa studdist Hall- dór E. Sigurðsson samgöngu- ráðherra við i ákvarðanatöku um að jarðstöð til fjarskipta um gervihnött skyldi ekki byggð, heldur farið eftir samningi ís- lenzká ríkisins við Stóra norræna talsímafélagið um lagningu sæstrengs á mi'lli ís- lands og Skotlands um Fær- eyjar — Scotice. Halldór E. Sigurðsson fékk þrjá valda lögfræðinga til að semja þessa álitsgerð um mögu- leg eftirköst riftunar samninga ríkisins við Stóra norræna frá 19,—26. júni 1960. Þar eð þessi álitsgerð skiptir augljóslega miklu í þessu mikil- væga máli þótti Dagblaðinu til- hlýðilegt að falast eftir henni til birtingar fyrir lesendur. En svarið var nei og því ekki ljóst á hverju það byggist, að ekki verður af byggingu jarðstöðvar- innar. — OV. GRÍMSEYINGAR URÐU AF HEIMSÓKNINNI Þrjór milljónir í súginn vegna byrjunarframkvœmda við hönnun „draumórahallar" „Utlit er nú fyrir að skemmtileg lausn fáist á íþrótta- húsamálinu á Flateyri. Horfur eru á að við getum fengið hús sem við ráðum við fjárhagslega og sem uppfyllir allar okkar kröfur, þ.e. verður okkar fþróttahús, kvik- myndasalur, danshús og hefur auk þess búnings- og baðaðstöðu fyrir sundlaug sem reist yrði við hliðina." Þannig fórust Kristni Snæland orð er DB ræddi við hann í síma. Iþróttahúsbygging á Flateyri varð landsfræg er Dagblaðið og fl. fjölmiðlar skýrðu frá því að kostnaður við hönnun íþróttahúss þar myndi nema milljónatug og húsið allt fullbyggt kostaði upphæð er næmi margra áratuga fjárveitingu Flateyrarhrepps til íþróttamála. Eftir mikil blaðaskrif, er þá urðu um málið var haldinn fund- ur á Flateyri, þar sem málið var rætt. A þann fund mætti Þorsteinn Einarsson Iþrótta- fulltrúi. Af þeim tölum er hann flutti fundarmönnum kom 1 ljós að kostnaður við byggingu íþróttahúss, sem yrði 22x44 metrar að flatarmáli, yrði þannig: Hús úr steinsteypu tæpar 80 milljónir. 90 manna kór og hljómsveit ásamt 8 einsöngvurum heldur af stað norður á tand á fimmtu- dagsmorgun. Er það Sinfóníu- hljómsveitin 1 Reykjavík, kór Söngskólans 1 Reykjavik og ein- söngvararnir Ölöf K. Harðar- dóttir, Unnur Jensdóttir, Hrönn Hafliðadóttir, Guðmund- ur Jónsson, Halldór Vilhelms- son, Kristinn Hallsson, Sig- urður Þórðarson og Garðar Cortes, sem er fararstjóri og stjórnandi tónleikanna. Sungið verður í Miðgarði, Skagafirði, fimmtudagskvöld kl. 21.00, Skjólbrekku, Mývatnssveit, föstudagskvöld kl. 21.30 og á Dalvík laugardagskvöld kl. 21.00. Einnig var áætlað að syngja í félagsheimilinu I Grimsey, en þrátt fyrir ein- dregnar óskir Grímseyinga fékkst ekki styrkur úr félags- heimilasjóði til ferðarinnar milli lands og eyjar. Flutt verður Hljómsveitarsvfta eftir Malcolm Arnold, óperettan Mál fyrir dómi eftir Gilbert O’Sulli- van, í þýðingu Ragnheiðar Vig- fúsdóttur, en þvi verki stjórnar Brian Carlisle, og útdráttur úr óratóríunni Elía eftir Mendels- sohn. Er tæpast að nokkurn tíma hafi jafn stór hópur tónlistarmanna farið út á land til að kynna landsbyggðinni brot af því tónlistarlifi, er Reykvíkingar fá notið. Borinn blýfastur ennþá „Það er unnið við borinn dag og nótt, en því miður er ekkert nýtt að frétta héðan,” sagði Haraldur Sigurðsson við borinn Jötun á Laugalandi. I síðustu viku varð hrun í borholu númer þrjú, sem varð til þess að borinn festist, er búið var að bora 950 metra niður. „Við vitum ekki gjörla, hvar hrunið er, en við reynum að reka fóðringar niður með bornum,” sagði Haraldur ennfremur. „Við erum komnir niður á 575 metra dýpi og er við náum niður að borkrónunni ætti borinn að verða laus, ef hann losnar þá ekki fyrr.” Sagði Haraldur það vera aug- ljóst, að slíkt vinnutap kostaði auðvitað alltaf peninga en ekki væri hægt að segja hversu miklir þeir væru nú orðnir. „Héðan á borinn að fara í Kröflu en það er ljóst, að ekki verður farið langt með hann í bili,” sagði Haraldur. Stálgrindahús rúmar 79 milljónir. Límtréhús rúmar 70 milljónir. Flateyringar höfðu áður haft þær hugmyndir helztar að byggja tvö hús 15x30 m hvort. „Fundurinn gerbreytti sjónar- miðum okkar,” sagði Kristinn. „I ljós kom að limtréhús, sem reynzt hafa vel í Finnlandi, gæti, ef það væri 22x44 m að stærð, uppfyllt allar okkar óskir. Mátti þar koma fyrir íþróttasal, sem jafnframt gæti verið danssalur og auk þess yrði i húsinu aðstaða til kvik- myndasýninga auk búnings- og baðherbergja og eldhúss o. fl. Mætti þá reisa sundlaug við hlið hússins og nýta bað og búningsklefa hússins einnig fyrir hana.“ Límtréhús eru ódýr í flutningi hingað til lands og við að reisa þau nýtist vel sjálfboðavinna. Limtréhús nýtur viðurkenningar Iþrótta- og félagsheimilasjóðs og fengju Flateyringar ríkisstyrk til byggingarinnar samkv. lögum. Hallast menn þar vestra nú helzt að þvf að reisa slika byggingu. Ætti hún með sundlaug við hliðina ekki að kosta nema um 100 milljónir króna. Flateyringar fengu skrekk mikinn þá er þeir fengu reikninga fyrir hönnunarkostnað á iþróttahúsi sem þeir báðu um teikningu að fyrir Flateyri. Það sem búið er að vinna að teikningum að þeirri draumórahöll kostar um 3 milljónir króna. Kristinn kvaðst álíta að Flateyringar yrðu að greiða þann kostnað. Það verður samt ódýrara að gera það og hætta við: frekari framkvæmdir við þá byggingu og hverfatil hug- myndarinnar um límtréhús að finnskri fyrirmynd. VERÐUR GRÁSLEPPUVERTIÐIN i ÁR SÍÐASTA VERTÍÐIN? — ef bannað verður að lita hrognin eru þau óseljanleg, og Svíar hafa þegar ákveðið bann Svo kann að fara að mark- aður fyrir grásleppuhrogn okkar hrynji strax á næsta ári, eða næstu árum, en ekki ósennilegt að útflutningsverð- mæti hrognanna f ár verði 700 til 800 milljónir króna. Sverrir Þóroddsson er tekinn við af föður sínum, Þóroddi E. Jónssyni er var frumherji í út- flutningi grásleppuhrogna í rúm 30 ár. Sverrir sagði í við- tali við DB að tvær ástæður væru fyrir þessari aðsteðjandi hættu. Annars vegar er að Norð- menn og Kanadamenn eru nú að komast inn á markaðinn í stórum stíl og þannig bjóða Kanadamenn t.d. tunnuna, sem tekur 105 kg, á 170 dollara komna að verksmiðjudyrum í Bandaríkjunum en Sverrir sel- ur tunnuna af íslenzkum hrogn- um á 245 dollara komna í bandarlfjka höfn. Sverrir er eini aðilinn, sem flytur á Bandaríkjamarkað, en þar fæst hæsta verð. Sagði hann að þessi verðmunur gengi enn, vegna þess að Kanadamenn hafa ekki enn náð eins góðum frágangi á hrognunum og íslendingar. Frágangur hrogna færi hins vegar ört batnandi hjá þeim. Hin aðal ástæðan er að Svíar hafa frá næstu áramótum bann- að að lita hrogn svört með þeim litarefnum, sem hingað tilhafa verið notuð til þess, nema að haldbærar sannanir séu færðar fyrir að litarefnið, sem ekki er náttúrlegt, sé algerlega skað- laust. Skaðsemi þess er reyndar ekki sönnuð. Sagði Sverrir að fleiri lönd mundu sjálfsagt fylgja í kjölfar Svía og sagði hann að fyrirtæki eins og Limfjord Oyster Company í Danmörku, sem er stærsti niðurlagningaraðili grá- sleppuhrogna, væri mjög ugg- andi um sinn hag, þar sem ekk- ert náttúrlegt litarefni kæmi I stað hins tilbúna litarefnisins og þegar væri reynt að ólituð hrogn væri óseljanleg vara, m.a. vegna þess að hrogn eru notuð til skreytinga. Um ástandið nú sem stendur sagði Sverrir, að Bandaríkja- markaðurinn væri nú mjög góður og væri hægt að selja þangað öll hrogn sem bærust strax, en færu Bandaríkjamenn að dæmi Svía um næstu áramót yrðu þessi viðskipti dauð þar sem annars staðar. — G.S. — HP. -ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.