Dagblaðið - 30.07.1976, Side 7
DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDAGUR 30. JULl 1976
Erlendar
fréttir
USA:
Þingmaður
víttur í
fyrsta
sinif í
hálfa öld
Öldungadeild Bandaríkja-
þings samþykkti í gær meö
miklum meirihluta atkvæða að
víta Florida-þingmanninn
Robert Sikes. Þetta er í fyrsta
skipti í hálfa öld, að þing-
maður er víttur.
Með aðeins þremur mótat-
kvæðum samþykkti þingið
skýrslu siðanefndar deildar-
innar, þar sem langtvartil að
Sikes yrði víttur fyrir að láta
hjá líða að tilkynna um eignar-
aðild sína í flugvélaverksmiðju
og banka í Florida. Samkvæmt
þingsköpum ber þingmönnum
að tilkynna um allar slíkar eig-
ur sínar.
Sikes sagði síðar, að hann
hafi á engan hátt haft í hyggju
að brjóta þingreglur og að hér
hafi verið um óviljandi tækni-
skyssu, sem ekki hafi komið
sér að gagni á einn eða neinn
hátt.
Jarðskjálftarnir í Kína:
íbúar Peking varaðir
við frekari hrœríngum
— talið að fáir af 1.6 millj. ibúum Tangshan hafi komizt lífs af
íbúar Peking voru varaðir
við því í morgun að fleiri jarð-
skjálftar væru yfirvofandi.
Milljónir Kínverja flúðu til
öruggari staða en heimili þeirra
eru talin.
Opinberir embættismenn
fóru um götur og stræti
blásandi í flautur og hrópandi:
„Jarðskjálfti! Jarðskjálfti!“
íbúar þyrptust út úr húsum
sínum og bráðabirgðaskýlum á
gangstéttum inn í miðborgina,
þar sem torg eru víð og breið.
„Okkur er fúlasta alvara,"
sagði einn embættismannanna
við hóp útlendinga í borginni
laust fyrir dögun i morgun.
Þessi viðvörun fylgir i
kjölfar tveggja mikilla
jarðskjálfta, sem í fyrradag
riðu yfir norðvesturhluta
landsins. Annar, hinn stærsti
sem mælzt hefur í heiminum
undanfarin tólf ár, lagði
iðnaðarborgina Tangshan í rúst
og stendur þar ekki lengur
steinn yfir steini, að því er
segir i fréttum, sem borist hafa
frá Kina.
Borgaryfirvöld í Peking
sögðust í morgun búast við „til-
tölulega harkalegum"
jarðskjálfta innan nokkurra
klukkustunda. Á meðan héldú
erlendir sendiráðsstarfsmenn
sig í náttfötunum á tennis-
völlum sendiráðanna. Skömmu
áður en tilkynning yfirvalda
var gefin út fóru langar bíla-
lestir út úr borginni, hlaðnar
hjálpartækjum og gögnum
handa þeim, sem illa urðu úti í
jarðskjálftunum í Tangshan.
Enn hafa engar tölur um
mannfall verið birtar af
opinberri hálfu, en miðað
við frásagnir þeirra, sem
komizt hafa frá Tangshan í gær
og í nótt, er talið að ekki nema
lítill hluti fbúa borgarinnar —
sem telur 1.6 milljón — hafi
komizt af.
Vegna jarðskjálftahættunnar
aflýstu yfirvöld I gærkvöld
mikilli veizlu, sem halda átti á
morgun í Alþýðuhöllinni í
Peking. Veizlan er einn af
helztu árlegu viðburðum í
höfuðborginni og átti að vera
undanfari mikilla hátíðahalda á
sunnudaginn í tilefni þess að
fjörutiu og níu ár eru liðin
siðan Frelsisher alþýðu var
stofnaður þar 1 landi. ’
Töluverðar skemmdir urðu einnig á húsum og mannvirkjum í Peking í jarðskjálftunum, sem m.a.
iögðu heila borg í rúst. Þessi mynd var tekin i Peking í gær og sýnir vegsummerki í fjölförnu
verzlunarhverfi. Símamynd NTB í morgun.
LOFTIÐ LÆVIBLANDIÐIS0WET0
Loftið er lævi blandið í borgar-
hverfinu Soweto utan við
Jóhannesarborg í Suður-Afríku,
þar sem óéirðirnar urðu sem
mestar ekki alls fyrir löngu.
Að sögn lögreglunnar í Jóhann-
esarborg fóru hópar afríkanskra
ungmenna um götur i borgar-
hverfinu í gær, reyndu að brenna
nokkrar skólabyggingar og „sá
ótta og skelfingu“ meðal blakkra
íbúanna.
Flestum skólum var lokað um
Barnarœningjarnir
f San Francisco
hafa allir náðst
hádegið í gær en í gærkvöld sagði
talsmaður blakkra skólayfirvalda,
að þeir yrðu opnir í dag eins og
venjulega.
Skólar í borgarhverfum
biökkumanna umhverfis Jóhann-
esarborg og í Pretoríu voru
opnaðir formlega í síðustu viku
eftir mótmælaaðgerðirnar í
síðasta mánuði. Þær hófust þegar
fyrirskipuð var notkun afrikaans
í skólum — og kostuðu 176 blakka
S-Afríkumenn lífið.
Eyjahaf:
Tyrkir
byrjaðir
olíuleitina
Bulent Ecevit, forsætisráð-
herra T.vrklands.
Tyrkneskt jarðfræðirann-
sóknaskip hóf störf í Eyjahafi í
morgun í upphafi ferðar, sem
vafalaust verður til að auka
enn á spennu í sambúð Grikkja
og Tyrkja.
Skipið, Sismik I., kom inn á
Eyjahafið í gærmorgun í fylgd
tveggja byssubáta. Tilgangur
rannsóknarstarfanna er að
leita að olíu.
Gríska stjórnin sendi þegar í
stað nokkur skip úr flota sin-
um til móts við tyrknesku
skipin, en bæði ríkin gera
kröfur til auðlinda á land-
grunninu í Eyjahafi.
Sismik I. verður við rann-
sóknir á þessum slóðum næstu
þrjár vikur, en hvað lekur við
er ekki vitað og vekur mikla
forvilni.
Þeir þrír hafa verið handteknir. Frá vinstri: Fred Newhall Woods,
James L. Schoenfeld og yngri bróðir hans, Richard.
Þremenningarnir, sem leitað
hefur verið að vegna gruns um
að þeir hafi fyrir hálfum mán-
uði rænt rútu fullri af börnum
og bilstjóranum, hafa nú allir
verið handteknir. Tveir voru
handteknir í gær með nokkurra
klukkustunda millibili.
Áður hafði einn þeirra,
Riehard Schoenfeld,- 22 ára
gamall læknissonur frá San
Francisco, verið formlega
ákærður fyrir að ræna börnun-
um tuttugu og sex, en hann gaf
sig fram við lögregluna í
síðustu viku. Nokkrum
stundum áður en Richard kom
fyrir rétt í gær var 24 ára
bróðir hans, James, handtekinn
á fjölförnum þjóðvegi nærri
heimili sínu. Þriðji maðurinn,
Frederick Newall Woods, 24
ára, var handtekinn af riddara-
lögreglunni í Kanada, að sögn
bandarísku alríkislögreglunnar
FBI.