Dagblaðið - 30.07.1976, Page 8

Dagblaðið - 30.07.1976, Page 8
 DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDACUR 30. JÚLl 1976 Skattakóngar Reykjaness Sveinn Skaftason fram- kvæmdastjóri sreiðir hæstu opiriberu ftjiildin í Kópavogi. Alls eru þetta 12.221.181. Þar af er tekjuskatturinn 7.302.471 op ýtsvarið 2 171.500. Sveinn kvaðst ekkert vera óhress yfir þessum tölum. Verktakafyrirtæki hans hefði gengið ágætlega. Sveinn hefur unnið að hitaveituframkvæmd- um i Kópavogi og Hafnarfirði. Sveinn sagði að hver og einn yrði að greiða i santræmi við það sem hann hefði. Hann hefði ekkert orðið undrandi á þess- um háu gjöldum, enda hefði hann verið sá næsthæsti í fyrra. Friðþjófur Þorsteinsson í Efnagerðinni Val í Kópavogi kemur næstur í röðinni hvað opinber gjöld varðar. Honum er- gert að greiða 7.152.754. Utsvar er 805.100 en tekjuskattur 2.539.554. Friðþjófur sagðist vera farinn að venjast því að fá háan seðil. Hann hefði ýmist verið hæstur eða með þeim hærri á undanförnunt árum. Hins vegar hefði hann ekki reiknað með þessu alveg svopa háu nú. Friðþjófur benti á- að það væri öliu sæntra að greiða sína skatta í samræmi við umsvif heldur en vera með litla skatta en mikil umsvif. Grétar Sveinsson er skatt- kóngur Reykjaness. Hann er húsasmiður, sem býr í Hafnar- firði. Er honum gert að greiða alls 12.311.410. Tekjuskattur- inn er 6.834.114 og útsvar 1.970.100. Grétar var ekki svo óhress er Grétar Sveinsson hæsti skattgreiðandi i Reykja- nesumdæmi. Friðþjófur Þorsteinsson er orðinn afslappaður gagnvart skattinum, enda verið á toppnum und- anfarin ár. rætt var við hann um skattinn. Sagði hann að þetta væri bein afleiðing þess hversu mikil um- svif hann hefði haft. Grétar hefur verið með dreifikerfi hitaveitu í Kópavogi og Hafnar- firði. Hann kvaðst aldrei hafa þurft að greiða svona há opin- ber gjöld áður. Grétar bepti á það, að þegar menn hefðu ekki tök á því að færa neitt á milli fyrirtækja, kæmu auðvitað skattarnir í samræmi við tekj- urnar. — BA Ýmislegt að athuga áður en haldið er út á vegina: ERTUMEÐ VARAHLUTI MEÐ í BÍLSK0TTINU? Sveinn Skaftason (sá frpmri) hafði nóg að gera, enda þarf hann að greiða rúma milljón á mánuði í skatta. ,,Eg vil benda fólki á að hafa með sér varahluti í kveikjukerfi, viftureim og athuga áður en lagt er af stað að varadekkið sé í lagi,“ sagði Sveinn Oddgeirsson fram- kvæmdastjóri hjá Félagi ís- lenzkra bifreiðaeigenda er við spurðum hvort hann vildi ekki gefa ferðalöngum um verzlunar- mannahelgina einhver góð ráð áður en lagt væri af stað. „Einnig er æskilegt að fólk hafi með sér slökkvitæki og sjúkra- kassa, gleymi ekki að spenna öryggisbeltin og gæti þess að keyra ekki með allar hurðir læstar. Ekki er víst að neitt sé tiltækt til að brjóta rúðu og bjarga fólki út ef eitthvað kemur fyrir. Og oft skipta sekúndurnar máli. Hafið því allavega eina hurð ólæsta, og þá helzt bílstjóramegin. Stundum vill það bregða við að varadekkið dugi ekki, að fólk sé það óheppið að dekk springi tvisvar eða jafnvel þrisvar. Til er frábær lausn á þessum vanda, hún nefnist meðal manna „vara- dekk í spreibrúsum“. Það fæst yfirleitt á öllum bensínstöðvum, og er alveg tilvalið að hafa slikan brúsa tilbúinn í hanzkahólfinu. Viðgerðaþjónustan notar þessa brúsa eingöngu er þeir eru beðnir að hjálpa ef springur hjá ein- hverjum.“ Um verzlunarmannahelgina verður FÍB með vegaþjónustu eins og hér segir: FÍB 1. Mosfellsheiði — Þingvell- ir, FÍB 2 Húnavatnssýsla, FÍB 3 Hvalfjörður, FÍB 4 Arnessýsla, FÍB 5 Borgarfjörður, FÍB 6. Dalvik, FÍB 7 A-Skaftafellssýsla, FÍB 8 Vík — Klaustur, FlB 9 Akureyri FÍB 11 nágrenni Reykjavíkur. FÍB 12 Vestfjarðaleið, FÍB 13 Rangárvallasýsla, FÍB 16 Neskaupstaður, FÍB 17 Snæfellsnes. Aðstoðarbeiðnum er hægt að koma á framfæri í gegnum Gufu- nes-radíó í síma 22384, Brú-radíó í síma 95-1112 og Akureyrar-radíó i síma 96-11004. Upplýsingamiðstöð umferðarráðs og lögreglunnar verður einnig í beinu sambandi við alla bilana. Síminn þar er 83600. Einnig er hægt að ná í bílana í gegnum hinar fjölmörgu talstöðvarbifreiðar, sem eru á vegum úti. Félagsmenn ganga fyrir með alla þjónustu. Vegaþjónustan gerir ekki við bifreiðar i Reykja- vík, og fer ekki inn á mótssvæði. Hún heldur sig eingöngu á þjóð- vegunum. „Annars vil ég benda fólki á að vera ekki að þvælast neitt á vafasömum farartækjum, það mun bara valda þeim og okk- ur leiðindum." — KL Verkamannabústaðirnir: Byrjað að f lytja inm Fjörið um verzlunarmanna- helgina um allt land: REYKJANESIÐ VERÐUR ÚTUNDAN Þeir landsmenn sem hafa gaman af að fá sér snúning ættu allir að geta sinnt því áhugamáli sínu um helgina. Dansleikir verða haldnir í stórum sem litlum kauptúnum um allt land. Þá munu mörg félagsheimili hafa verið „dubbuð upp“ í hátíðarbúning til að draga að gesti. Hér á eftir verður getið nokkurra staða þar sem dans- inn á að duna: Dalabúð, Búðardal: Þar verða dansleikir bæði laugar- dags- og sunnudagskviild. Hljómsveit Grettis Jóhannes- sonar leikur f.vrir dansi bæði kvöldin. Veitingasaia verður í Dalabúð báða dagana, og unnt er að tjalda á túni við félags- heimilið. Húnaver: Dansleikir verða laugardags- og sunnudags- kvöld. Þar leikur hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar frá Selfossi. Þá munu þeir Karl Einarsson og Gylfi /Egisson koma fram. Klukkan 3 á surinu- dag verður haldin skemmtun. Þann dag verður hægt að fá veitingar. F'élagsheiniilið Hnífsdal: Dansleikir verða föstudags- og laugardagskvöld. Þar leika Ásgeir og félagar. Valaskjálf: Þar verða haldnir dansleikir í tengslum við Eiðahátíðina. Dansað verður föstudags- laugardags- og sunnudagskvöld. Hljóm- sveitin Völundur sér um undirleik og söng. Félagsheimilið Vík: Unglingadansleikur verður þar á föstudagskvöld. Leikur hljómsveitin Hálf dansi. Kirk.jiihvoll á Kirkjubæjar- klaustri: Dansleikir verða þar haldnir laugardags- og sunnu- dagskvöld. Hálf-sex sér þar um fjörið. Mánagarður, Höfn í Hornafirði: Alfa Beta leikur þar fyrir dansi laúgardags- og sunnudagskvöld. Reykjanesið virðist verða hálfpartinn útundan vfir verzlunarmannahelgina., A Suðurnesjum verður enginn dansleikur heldinn. —B.\— ógústmánuði Fyrstu íbúarnir í verkamanna- bústöðunum nýju í Breiðholti munu flytja inn í íbúðir sínar upp úr miðjum ágúst nk. að því er Ríkarður Steinbergsson fram- kvæmdastjóri Framkvæmda- nefndar byggingaáætlunar tjáði blaðinu í gær. Það er þvi missagt, sem kom fram i fréttagrein í blað- inu, að byrjað verði að fl.vtja inn í október. smáaug er lýsinga blaðið

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.