Dagblaðið - 30.07.1976, Page 12

Dagblaðið - 30.07.1976, Page 12
ALLT ÍFÖKUS HJÁ OKKUR NOTIÐ fílmuna í ferðalagið SMÁSALA FÓKUS HEILDSALA Lœkjargötu 6b, sími 15555 Nýja T-bleian MEÐ PLASTUNDIRLAGI FRA MÖLNLYCKE ER SÉR- LEGA HENTUG í FERÐALAGIÐ. SPARIÐ BLEIUÞVOTTINN OG KAUPIÐ PAKKA. Fœst í öllum lyf jabúðum, stœrri matvöruverzlunum og víðar Smurbrauðstofan Njálsgötu 49 — Sími 15105 Hótel Laugar s-wng Gisting og matur. Góð sundlaug. Stutt til Mývatns. Húsavikur og Akureyrar. Sími 96-43120. e sTíÍe^sI ■ ‘ -riO Í-EitJl-Íi §dt~' s s e 5 £l e * Gegn samábyrgð DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDAGUR 30. JULl 1976 Flökalundur, paradts Vestfjarða Býður upp á glœsilega gistiaðstöðu og f lest sem hugurinn girnist Þeir eru nokkrir staðirnir á landi voru, sem segja má um, að nálgist að vera paradís á jörðu. Einn slíkur er Vatnsfjörður í Vestur-Barðastrandarsýslu, þar sem Flóki Vilgerðarson gaf íslandi nafn. Þar vestra hefur nú Vatnsdalur og stór hluti Vatnsfjarðar verið friðlýstur, og stendur öllum til boða að njóta, sem náttúrufegurð unna og kunna við sig í kjarri- vöxnum hlíðum og með hrika- lega náttúrufegurð umhverfis sig. Þarna hefur verið byggð upp glæsileg gisti- og veitinga- aðstaða. Þarna á byggð eftir að vaxa með litlum sumarhúsum, heitt vatn úr jörðu að fylla sundlaug staðarins og hita upp vel búin herbergi hótels- ins. Þarna á eftir að rísa griða- og áningarstaður miklu meiri fólksfjölda en notið hefur stað- arins til þessa. Þarna eru Vest- firðingar að byggja sína para- dís. „Þennan stað, Flókalund, eiga allir Vestfirðingar ásamt Bjarkarlundi." sagði Páll Ágústsson er hann tók á móti T&toOiúk w. ** Vatnsdalsá er vatnsmesta á á Vestfjörðum. t fossunum hefur verið settur upp laxastigi. Þarna er kostur á veiðileyfum bæði til laxveiða í ánni og silungsveiða í vatninu. okkur á hiaðinu í Flókadal um miðja nótt. „Barðstrendinga- félögin í Reykjavík eiga meiri- hluta í hlutafélaginu Gesti.en sýslur og hreppsfélög á Vest- fjörðum hafa einnig lagt f fyrir- tækið. Þetta byrjaði smátt og þá á Brjánslæk. 1960 var svo brauð- skáli reistur hér og rekinn sem slíkur í 6 ár. 1966 var flutt inn norskt hús, borðsalur, eldhús og fjögur gistiherbergi. Það reyndist allt of lítið og alltaf var verið að neita fólki. 1973 var álma reist við hótelið og herbergin nú 17 og rúma 40—50 manns. Nú er ákveðið að Alþýðusam- band Vestfjarða byggi gis.iher- bergisálmu við hótelið, en hafi samstarf við hótelið um alla þjónutu og aðrar vistarverur. Hér rís líka innan tíðar sund- laug, því við borun nýlega feng- ust 5 sekúndulítrar af 40° heitu vatni rétt viö hótelið Byggðin mun svo enn vaxa h< r í hlíðun- um í kring, því ASV mun reisa 15 fjölskylduhús sem sumar- búðir og 15 aðrir aðilar munu þar og reisa hús sín. Eitt er upp komið, sem lögreglumenn á Isa- firði eiga. Við Flókalund eru einnig nóg tjaldstæði. Hér er rúmt og engin hætta á að meiri byggð eða fólks- straumur verði til ama. I Vatns- firði er nefnilega vítt til veggja. Sannast sagna hefur nýting nýja hótelsins ekki verið nægi- leg, einkum framan af sumri. Vegir opnast oft seint og augu fólks hafa enn ekki opnazt nægilega fyrir dýrðinni hér. Sumarnýtingin hefur enn ekki orðið nægileg, þetta 60—70% og langlökust í júní. Úr þessu viljum við bæta, því ég held að enginn fari héðan óánægður eftir dvöl,“ sagði Páll. —ASt. Álfkonan í Sönghól sem ekki vildi fónastöngina Á Vestfjörðum eru margir staðir sem sögur fara af, bæði kynlegar og nýstárlegar. Ein þeirra er sagan sem Páll Ágústsson sagði mér er við ókum inn með Vatnsdalsvatni og áðum á grasbala ofan við hátíðarsvæðið'fráÞjóðhátíðinni. Þetta er sagan um Sönghól, sem þar heitir og er á góðum stað og víðsýnum í dalnum. Gömul munnmæli herma að þar hafi smalar heyrt raulað í rökkrinu er þeir hugðu að fé. Er þjóðhátíðarundirbún- ingur fór fram var ákveðið að setja 18 m háa flaggstöng á hólinn og skyldi hún bera þjóð- hátíðarfánann. Flaggstöngin kom í dalinn 17. júní á bíl frá Reykjavík. Var ákveðið að festa hana á hólinn daginn eftir. Aldrei varð þó úr því, þvi þann dag skall á með 11 vind- stiga roki. Stórt tjald, sem sett hafði verið upp á hátíðar- svæðinu, hengilrifnaði í veður- ofsanum. Þótti nú úr vöndu að ráða og var setzt á ráðstefnu um hvað gera skyldi. Mönnum þótti sýnt að álfkonunni í Sönghól líkaði illa sú ákvörðun að fá fána- stöng í hólinn sinn. Varð það að ráði beztu manna, að ef veður gengi niður, skyldi flaggstöngin ekki fara i Sönghól, heldur bera fána sinn við hlið stanganna ellefu sem táknuðu aldirnar á öðrum stað. Og þó með ólíkindum sé brá svo til að eftir hálfa klukku- stund var komið logn. En fleira yfirnáttúrulegt skeði. Sunnanbyr gerði inn Vatnsdalsvatn og landnáms- báturinn okkar sigldi inn vatnið fyrir þöndum seglum. Flugan í dalnum datt niður með öllu, en hún hafði verið næstum óbærileg. Bókstaflega allt færðist til betri vegar. Þetta þökkum við íbúum Sönghóls, sem raulað hafa fyrir smala vestur hér. Magnús Magnússon hjá BBC var þakk- látur fyrir að flugan fór, því hann hafði orðið að hætta æfingum við mynd sina „Three faces of Iceland “ tveimur dögum fyrir hátíðina bólginn og blár í andliti eftir flugnabit. Enn hafa gestir gaman að því að ganga umhverfis Sönghól í Vatnsfirði. —ASt. Útgáfufyrirtœki óskar að ráða eftirtalið starfsfólk: 1. Mann/konu vön auglýsingasöfnun. Timabundið verk i ea 1—2 mamtði. Prósentugreiðsla. Ha‘gt að vinna úr heimasima. 2. Konu til innneimtu á Reykjavíkursvæðinu. Eigin bill nauðsynlegur. 3. Konu til stuttra innheimtuferða út á land. Eigin bíli nauðsynlegur. Limsóknir er greini aldur. fyrri störf og reynslu óskast sendar afgreiðslu Dagblaðsins fyrir nk. þriðjudagskvöld merktar „lippgrip".

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.