Dagblaðið - 09.08.1976, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. — MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 1976
Þrír bflar í árekstri eftir
tilraun til framúraksturs
Harður árekstur varð á
Kjalarnesinu á laugardaginn og
tveir menn fluttir á sjúkrahús.
Tildrögin voru þau að tveir
bílar voru á Ieið um Vestur-
landsveg. Vildi þá sá siðari
komast fram úr og á móts við
Skrauthóla kom hann upp að
hlið fremri bifreiðarinnar. En
þá kom skýndilega þar að bif-
reið sem var á leið suður og
skipti það engum togum, að bif-
reiðarnar þrjár skullu saman.
Bifreið framúraksturs-
mannsins stórskemmdist og
klemmdist ökumaðurinn illa og
komst ekki út úr bifreiðinni.
Bifreið sú sem hann mætti lenti
út af veginum og kom niður á
toppinn Meiddist ökumaður
oifreiðarinnar illa og var þegar
fluttur á sjúkrahús.
Þriðja bifreiðin sem lenti í
þessum árekstri var sú sem aka
átti fram úr. I henni voru 5
farþegar auk ökumanns. Fór sú
bifreið á hliðina inni á
veginum. Engin meiðsli urðu á
fólki því sem var í bifreiðinni.
-BA.
Eins og sjá má er bifreið ökumannsins, sem ætlarti fram úr, heldur illa farin Meira að segja
stýrið hefur farið framúr rúðunni.
Peningaveski
stolið í Lands-
símahúsinu
Þjófar virðast nú stöðugt
verða leiknari við iðju sína
og tekst að ræna fólk án þess
að það veiti því nokkra eftir-
tekt. Einn fær náungi virðist
hafa verið á ferð í Lands-
sítnahúsinu í gær. Tókst
honum að ná veski sem
maður hafði í jakka sínum. í
veskinu voru 15 þúsund
krónur og hirti þjöfurinn
þær. Hann hafði hins vegar
engan áhuga á skilríkjum
sem veskið hafði að geyma
og skildi þau eftir. _bA—
Smóinnbrot
—mikið tjón
Sá sem brauzt inn a
Grensásbarinn um helgina
hefur að öllum líkindum
valdið meira tjóni en
fengurinn var. Komst inn-
brotsmaðurinn yfir nokkrar
sígarettulengjur og eitthvað
af sælgæti. Hann hafði orðið
að brjóta sér leið með því að
kasta grjóti í mjög stóra
rúðu sem er þarna í
dyrunum.
Ekki hefur enn tekizt að
hafa upp á manninum en
væntanlega mun það ekki
hafa gengið hljóðlaust fyrir
sig að komast inn á
,,barinn.“ —BÁ—
„Þd var það
mí betro í
Axarfirðinum"
Þegar húmar að fyrir spilið og löndun hefst án tafar.
Norðurlandi heldur „rækju-
bíllinn” út frá Akureyri til
stefnumóts við einhvern
rækjubátinn, sem er að koma af
miðunum. Bifreiðinni er ekið af
Kristjáni Þórissyni, sem starfað
hefir hjá niðurlagningarverk-
smiðju K. Jónsson og Co síðan
hann var 12 ára.
I þetta sinn er stefnumótið á
Ólafsfirði við rækjubátinn Múla
ÓF5, sem er að koma af miðunum
norð-austur af Grímsey. Það var
snemma í dag meðan báturinn var
enn að veiðum, sem ákveðið var
að hittast á Ólafsfirði kl. 23.00 —
og því skeikar ekki um mínútu,
kl. 11 um kvöldið leggst báturinn
að hafnargarðinum á Ólafsfirði og
þá er bifreiðin að koma fyrir
Ólafsf jarðarmúlann.
Rækjan bíður í lestinni, ísuð i
plastkassa. — Skipstjórinn á
bátnum, Óli Sæm, er klár við
„rækjukarlinn“ á Ólafsfirði.
Hann lætur ekki mikið yfir
aflanum, sem er 4 tonn eftir tvo
og hálfan sólárhring við veiðar:
„Þá var það nú betra í fyrra á
Axarfirðinum þegar maður hafði
allt að 16 tonnum í túr.“ — En
Axarfjörðurinn er lokaður núna,
þar mega engir veiða nema
heimabátar.
Löndunin tekur ekki langan
tíma. Það hljóðnar aftur á
bryggjunni og billinn hverfur inn
í nóttina á leið sinni til Akur-
eyrar.
Stúlkurnar í niðursuðunni
leggja niður nýja rækju í fyrra-
málið.
■F. Ax.
»»
UM 400 MANNS TIPPTIR í
ÞÓRSMÖRK VEGNA VATNAVAXTA
Miklir vatnavextir hafa verið
í Þórsmörk um helgina vegna
mikilla rigninga. Hefur af
þessum sökum verið ófært úr
Mörkinni nema fyrir bíla með
drif á öllum hjólum.
Síðdegis í gær biðu um 400
manns þess í Langadal að
eitthvað minnkaði f Krossá.
Töluvert er um rútubifreiðar í
Þórsmörk, en þær eru ekki
nærri allar búnar til aksturs í
slíkri færð. Má þvi búast við að
fólkið verði að dvelja þarna
eitthvað lengur. En að sögn
lögreglunnar á Hvolsvelli væsir
ekkert um það, þar sem að búið
er að koma upp ágætis aðstöðu
fyrir ferðamenn í Mörkinni.
Taldi lögreglan á Hvolsvelli
ekki ástæðu til að fara inn i
Þórsmörk þar sem væntanlega
myndi ekki líða á löngu þangað
til fólkið kæmist úr
„prísundinni“.
-BA.
KRANI FÓR í HÖFNINA
OG STJÓRNANDINN MED
„Þetta verður líklega
seinasta köfunin mín og hún
kom heldur óvænt,“ sagði Aage
Johansen sem lenti I höfninni á
Siglufirði á föstudaginn inni-
lokaður í kranabíl sínum.
Aage sat í stól inni í
krananum er óhappið varð og
sagði að hann hefði fundið
þegar kraninn losnaði og verið
aó hugsa um að stökkva út.
Hann hefði hins vegar talið
öruggara að lenda í sjónum
heldur en á þurru landi, enda
hefði sér ekki orðið meint af
þessu utan að hann hefði eitt-
hvað tognað smávegis í baki.
Aage, sem stundaði kafanir
um 35 ára skeið, beið síðan
rólegur eftir því að kraninn
kæmi til botns. Þar fór hann
svo út úr honum og synti til
lands.
Kraninn hefur nú verið
dreginn í land, en hann vegur
um sjö tonn.
-BA.