Dagblaðið - 09.08.1976, Side 19
DAGBLAÐIÐ. — MÁNUDAGUR 9. ÁGUST 197(1 19
..... ■ \
SÍÐASTA
Stjornubio:
Leikstjori: Hal Ashby
Buddusky: Jack Nicholson
Mulhall: Otis Young
Meadows: Randy Quaid.
Litla hættu má telja á .því, að
þeir sem sjá ástæðu til að
bregða sér að sjá kvikmyndina
,,The Last Detail" verði fyrir
vonbrigðum. Myndin er afar
skemmtileg og frammistaða
leikara með ágætum.
Segja má að hérseumgaman-
mynd að ræða með talsvert al-
varlegri ádeilu á heraga. Ilins
vegar virtust hlátrasköll
áhorfenda gefa það til kynna að
þeir tækju ádeiluna ekki of
alvarlega.
EFNISÞRÁÐUR: Grasasni og Múlasni sjást hér á dúndrandi bjórfylliríi, sem að
Þrír sjóliðar eru á leið til sjálfsögöu var gert i og með til að koma Meadow á bragðið.
I -_______________________________________________
SENDIFERÐIN
Boston. Þrátt fyrir að þeir eigi
margt sameiginlegt bíða
þeirra ólík hlutskipti. Síðar i
myndinni kemur í ljós hve líf
þeirra fyrir h( rmennskuna á
stórar ^átt i ath(ifnum þeirra.
Þeim Buddudsky ((irasasna)
og Mulhall (Múlasna) hefur
verið falið að takast á hendur
þessa ferð. Er markmiðið það
að koma Meadow undir lás og
slá fyrir þann „glæp “ að gera
tilraun til smáþjófnaðar. Hafði
hann reynt að stela 40 dollurum
úr samskotabauk handa
lömuðum börnum. Glæpurinn
var f.vrst og fremst litinn
alvarlegum augum af aðmíráls-
frúnni, hverrar helztu
áhugamál voru safnanir sem
þessar.
Refsingin íyrir þetta tiltæki
er samkvæmt herlögum 8 ár, og
er þetta afar langur tími fyrir
18 ára ungling. Sérstaklega
þegar fangadvölinni á að eyða í
alræmdasta fangelsi landhers-
ins í Portsmooth í Boston
Feröin tekur téiaganá 7 daga,
og nota þeir þá 5 daga sem þeir
slæpast á leiðinni til að sýna
Meadow unaðssemdir lífsins.
Og bjóða þeir sífellt heim
þeim grun hjá áhorfandanum
að þeir séu að tæla vesalings
Meadow til að strjúka. En hefur
þessi stelsjúki ógæfumaður
kjark til þess?
LEIKARARNIR:
Jack Nicholson er orðinn
nokkuð öruggur stimpill fyrir
Kvik
myndir
gæðum mynda og bregzt hann
ekki vonum manna í þessari
mynd. Hinns vegar verður það
að segjast að leikur hans hefur
tíðum risið hærra. Má til nefna
frammistöðu hans í ,,One flew
over Cuckoo's Nest“ . sem hann
hlaut Oscarsverðlaun fyrir.
Otis Young er sannfærandi í
hlutverki góða dátans, sem sér
fyrir móður sinni, sem sífellt
gumar af stöðuhækkunum hans
innan hersins, sem enear °ru
Randy Quaid leikur
prýðilega hlutverk hins
saklausa pilts, sem hefur þann
eina veikleika að hnupla öllu
nærtæku. Einstæðingsskapur
hans kemur glöggt í ljós er þeir
félagarnir ætla að leyfa honum
að kveðja móður sína, sem
reynist vera áfengissjúklingur.
Einu vinirnir sem hann telur
sig eiga eru mennirnir, sem eru
á leiðinni með hann í fangelsi.
SAMANTEKT:
Skemmtileg og athyglisverð
mynd, en þó eru nokkur atriði
helzt til langdregin.
-BÁ-
BORGARHÚSGÖGN
VIKTORIA SAFÍR
Úrval af áklœðum
Lítið inn, það borgar sig
BORGARHÚSGÖGN
Grensásvegi m Sími 8-59-44
Útsölustaðir:
Reykjavík: Borgarhúsgögn og JL húsið
r r
Isafjörður: Húsgagnav. Isafjarðar
Akureyri: ÖrkinhansNóa
Húsavík: Hlynursf.
Neskaupstaður: Húsgagnaverzlun
Höskulds Stef ánssonar
Selfoss: Kjörhúsgögn
Keflavík: Bústoð
RÚBIN HORN
SAVOY