Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 28
í Guðjón Styrkórsson ) CIS*IJID kliCD 1AA
y hœstaréttarlögmaður: J BK I W
MILUÓNUM EN ENGINN
TEKJU- OG EIGNASKATTUR
— Vil ekki tjá mig um dœmið en
f urðulegustu útkomur kunna að
standast, segir skattstjórinn í Reykjavík
Guðjón Styrkársson hæsta-
réttarlögmaður í Reykjavík á
33% í Ferðamiðstöðinni og
12,5% hlutafjár í Flugfélaginu
Vængjum, og liggja i þessum
bréfum 4,5 milljónir króna.
Hann á jörðina Hrafnhóla og
15% af veiðirétti i Leirvogsá.
Það er eign upp á um 20
.milljónir króna miðað við sölu-
verð nú. Hann á einnig íbúð í
raðhúsi og nýlegan glæsilegan
bíl. Þá rekur hann Veiðival,
sem leigir og endurleigir
laxveiðiár í Þistilfirði og loks á
hann Hótel Norðurljós á
Raufarhöfn, en fasteignamat
þess er upp á 44 milljónir
króna.
Eins og fram kom í blaðinu
fyrir nokkrum dögum greiðir
Guðjón ekkert í tekjuskatt,
ekkert í eignarskatt ekkert í
skyldusparnað og aðeins 63
þúsund í úfsvar. Skv, þessum
tölum virðist Guðjón búa við
harla þröngan kost þrátt fyrir
eignir sínar og bað blaðið hann
að skýra út hvernig honum
tækist að framfleyta fjöl-
skyldunni miðað við þetta.
Guðjón sagði að fyrirtæki sín
fyrir norðan teldu fram undir
sínu nafni, taprekstur hefði
verið á þeim í fyrra og því
ekkert um tekjur þar. Þá sagði
hann að Ferðamiðstöðin og
Vængir væru ung fyrirtæki í
þróun og hafi hlutabréf sín í
þeim fyrirtækjum því ekki
skilað arði enn. Sagði hann að
um skuldasöfnun væri að ræða
hjá sér. Væruþví vaxtagreiðslur
miklar, t.d. um 3,5 milljónir af
Hótelinu sl. ár.
Af rekstri sínum greiðir
Guðjón í útsvar, launaskatt, að-
stöðugjöld og önnur smærri
gjöld kr. 433,415 og auk þess
greiðir hann 536,800 kr í
aðstöðu- og fasteignagjöld á
Raufarhöfn.
Blaðið hafði samband við
Halldór Sigfússon skattstjóra í
Reykjavík og spurði hann
hvernig svona dæmi mætti
ganga upp. Halldór vildi ekki
tjá sig um þetta tiltekna dæmi.
en sagði að framtalsgreiðslui
gerðust stöðugt flóknari og al-
menningi óskiljanlegri, sér-
staklega í sambandi við at-
vinnurekendur. Hinar furðu
legustu útkomur í auguir
almennings kynnu að standasl
fyrir skattalögum.
G.S
Guðjón Styrkársson hafði fengið Iánaða skattskrá áður en blaða-
maður DB heimsótti hann og Árni Páll tók þessa mynd er hann
var að hringja i endurskoðanda sinn.
r
ÓKEYPSS KOLMUNNI í
FISKBIJÐIRNAR í DAG
Ókeypis kolmunni verður á
boðstólum í fiskbúðum Sæbjarg-
ar í Re.vkjavík og jafnvel fleiri
fiskbúðum t dag, eða eftir að skut-
togarinn Runólfur kemur til
Reykjavíkur á hádegi með
kolmunnafarm.
Að sögn þeirra. sem reynt hafa,
er kolmunninn ljúffengur fiskur
og sé hann flakaður, er hentugast
að steikja hann eftir vvnjulegum
aðferðum við steikingu fisks.
Einnig er sagt gett að heilsteikja
hann eins og smáan silung.
Kolmunninn verður óslægður í
búðunum, en hver maður getur
slægt sjálfur.
Hlutar farmsins veróa annars
unnir í Þorlákshöfn og í
Garðinum og einnig ætla nokkrir
útgerðarmenn suður með sjó að fá
hluta til að frysta í beitu.
Leigusamningur á Runólfi
hefur veriö framlengdur um
hálfan mánuð til frekari kol-
munnaveiða, en eins og blaðið
hefur skýrt frá, lofa þessar
tilraunaveiðt'.r tcgarans i sumar
mjög góðu.
—G.S.
Bílvelta á Þingvallavegi
Bílvelta varð í nótt á
gatnamótum Þingvallavegar
og Vesturlandsvegar. Öku-
manninn, sem var einn í
bílnum, mun ekki hafa
sakað.
Lögreglan var ekki viss
um orsök þessa óhapps en
taldi að hér hefði ekki verið
um of hraðan akstur að
ræða.
— BÁ
BAT HVOLFDIVIÐ GELGJUTANGA
- MANNBJÖRG VARÐ
Bát hvolfdi út af Keili laust
fyrir klukkan 7 í gærdag.
Maðurinn sem í bátnum var
komst á kjölinn. Lögreglan var
þegar kvodd til og reyndi hún
aó róa á gúmbjörgunarbát
sem er í eigu lögreglunnar.
Töluverður strekkingur var og
rak lögreglubátinn eitthvað frá.
í beinni línu frá bátnum sem
hvolfdi var sanddæluskipið
Perla og brugðust skipverjar
hart við. Tókst þeim að setja út
bát og komast að manninum á
undan lögreglunni.
Lögregluvarðstjóri sem talað
var við, sagðist telja að unnt
hefði verið að komast að
manninum á lögreglubátnum.
Það hefði hins vegar tekið mun
lengri tima og væri þvi lög-
reglan mjög þakklát hinum
knáu skipverjum sanddælu-
skipsins.
Manninum, sem lenti í
sjónum, mun ekki hafa orðið
neitt verulega meint af volkinu.
En í gær var sjórinn illa kaldur.
-BÁ.
frjálst,áhað dayblað
MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 1976
Islenzkur
maður
beíð
banaí
New York
Sviplegt umferðarslys átti
sér stað í New York sl. föstu-
dagskvöld með þeim afleiðing-
um að íslenzkur maður,
Fleming Thorberg, beið bana.
Slysið átti sér stað skömmu
eftir miðnætti. Fleming var á
leið úr vinnu, en hann var yfir-
matsveinn á veitingahúsinu
Copenhagen, á Manhattan.
Hafði hann farið með lest
u.þ.b. hálfa leið heim til sín en
hugðist sækja bil sinn í bíla-
geymslu á leiðinni. Var hann á
leið yfir götu, Queen’s Bole-
vard, í Forest Hills, er bifreið
ók á hann og missti hann með-
vitund samstundis. Farið var
með hann á sjúkrahús, þar sem
hann lézt um kl. 11 á laugar-
dagsmorgun, án þess að hafa1
komizt til meðvitundar. Bíl-
stjýrinn sem ók\ á hann,
hugðist stinga af frá slysstaðn-
um, en í hann náðist þó fljót-
lega.
Fleming Thorberg, sem var
maður á fimmtugsaldri, hefur
verið búsettur í New York um
árabil og lengst af starfað á
veitingahúsinu Copenhagen.
Hann lætur eftir sig eiginkonu
og tvo sym.
JB
Piltur drukknor
of Dagnýju
f rá Sigluf irði
Páll Kristjánsson skip-
verji á skuttogaranum
Dagnýju drukknaði er hann
fór út með trolli. Kom skipið
inn til Siglufjarðar á laugar-
dagskvöldið og hafði lík
piltsins ekki fundizt.
Páll heitinn var 22ja ára
gamall Siglfirðingur. Hann var
sonur skipstjórans á Dagnýju
og var á togaranum í sumar, en
stundaði annars nám við
Háskóla íslands. —BÁ—
Safnoð handa
hasssmyglara!
„Þar sem opinberir aðilar ís-
lenzkir gera sig á engan hátt lík-
lega til að aðstoða Matthías á
raunhæfan hátt (aðbúnaður í
spönskum fangelsum ætti að vera
öllum kunnur), höfum við valið
þá leiðína að éfna til fjársöfn-
unar" segir í fréttatilkynningu
frá „starfshópi sem stuðlar að
frelsun Matthíasar Einarssonar”.
Matthias var handtekinn fyrir að
smygla hassi frá Marokkó til
Spánar í vor. Starfshópur þessi
efndi til hljómleika i Austur-
bæjarbíói 24. júlí sl. og er frekara
hljómleikahald áformað, og gíró-
reikningur að opnast í Lands-
bankanum. „I spönskum fangels-
um má kaupa það sem á íslandi
telst til sjálfsagðra mannrétt-
inda,” segir starfshópurinn, sem
vill frelsa hasssmyglarann.
— JBP —