Dagblaðið - 13.08.1976, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1976.
MMBIAÐIÐ
frjálst, úháS daqhlað
Uli'ufamii Dajiblaðirt hf.
Framkviemilastjóri: Sveinn H. Kyjólfsson. Hitstjóri: Jónas Kristjánsson.
Frcttastjöri: Jön Birnir Pútursson. Kitstjórnarfulltrúi: Haukur Heljíason. Aóstoóarfrótta-
stjóri: A11 i Stoinarsson. íþróttir: Hallur Símonarson. Hönnun: Jóhánnes Reykilal. Handrit
Ásyrimur Pálsson.
Blaóamenn: Anna Bjarnason. Ásueir Tómasson. Berulind Ásj-eiisdöttir. BYími Sitturðsson.
Krna V. Injíólfsdóttir. (íissur Sijjurósson. Hallur Hallsson. Helui Pétursson. Jóhanna Birjiis-
döttir. Katrin Pálsdóttir. Kristin Kýósdóttir. Ólafur Jönsson. C)mav Valdimarsson. Ljósmyndir:
Árni Páll Jöhannsson. Bjarnleifur Bjarnleifsson. Björj;vin Pálsson. Hajtnar Th. Sijjurósson
(íjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifinj'arstjón: MárK.M. Halldórsson.
Áskfiftarjijald 1000 kr. á mánuói innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakió.
Hitstjórn Sióumúla 12. simi HJ322. auj’lýsinjiar. áskriftir oj* afjireiðsla Þverholti 2. sími 27022.
Sotninu ojj umbrot: Daj;blaóió hf. oj> Steindórsprent hf.. Ármúla 5.
Mynua-ojj plötuueró: Hilmir hf . Síóumúla 12. Prentun. Árvakur hf . Skeifunni 19.
Gagnrýnin hugsun
Gagnrýnin hpgsun almennings
er ein helzta for^enda lýðræðisins.
Hin ytri form lýðræðiskerfisins
duga ekki, ef umræða um þjóð-
félagsmál fer aðeins fram í fá-
mennum hópum án þátttöku al-
mennings. Þau duga ekki, ef al-
menningur lætur sig þessa um-
ræðu litlu skipta.
í gagnrýninni hugsun felst geta til að skoða
mál ofan í kjölinn og mynda sér skoðanir á
grundvelli upplýsinga og raka. Fordómar,
vanaviöjar og jámennska eiga ekki heima í
gagnrýninni hugsun, en eru því miður allt of
útbreidd, bæói hér á landi og annars staðar.
Þjóðfélagið er sífellt að verða flóknara og
torskildara venjulegu fólki. Þessu þarf því að
fylgja aukin gagnrýni í hugsun almennings, ef
ekki á að myndast gjá milli virkra ráðamanna
annars vegar og afskiptalítils almennings hins
vegar.
Því miður er mönnum veitt heldur lítil
aðstoð á þessu sviði. Skólar og fjölmiðlar hafa
yfirleitt ekki gætt hlutverka sinna í eflingu
gagnrýninnar hugsunar í þjóðfélagsmálum.
Skólarnir eru svo önnum kafnir við að búa til
fagmenn, að þeir mega ekki vera að því að búa
til borgara og kjósendur. Einn megintilgangur
grunnskólans ætti þó að vera sá að gera ung-
lingana færa um að fylgjast með þjóðfélags-
málum og beita atkvæði sínu.
í skólunum á að fjalla um yfirborð og undir-
djúp þjóðfélagsins, segja frá ýmsum kenning-
um um eðli þjóðfélagsins og æskilega þróun
þess, svo og að ræða um stefnur og störf
stjórnmálaflokka og ríkisstjórna, svo að dæmi
séu nefnd.
Ástandið er ekki betra í fjölmiðlunum.
Útvarp og sjónvarp eru kirfilega bundin í
viðjar óhlutdrægnisreglna. Og dagblöðin hafa
verið of upptekin af hinni pólitísku baráttu,
auk þess sem þar virðist víða ríkja sá misskiln-
ingur, að órökstuddar dylgjur þeirra og per-
sónuníð séu eins konar gagnrýni.
Eitt af því, sem bætir úr skák, er birting
kjallaragreina eftir áhugamenn og sérfræðinga
í þjóðfélagsmálum, þar sem þeir setja fram á
skýru máli skoóanir sínar, studdar vönduðum
rökum og upplýsingum. Slíkar greinar geta
orðið til að vekja blundandi hugsun lesenda og
geta leitt þá til sjálfshjálpar í gagnrýninni
hugsun.
Enn mikilvægari þjónusta fjölmiðla á þessu
sviði felst í aukinni viðleitni til að afla frétta,
sem kafa djúpt undir slétt og fellt yfirborð
þjóðfélagsins. Með þeim hætti er unnt að sýna
almenningi raunveruleikann aó baki silkitjald-
anna.
Hvorki í fréttaköfun né í kjallaragreinum
eru íslenzkir fjölmiðlar vel á vegi staddir.
Nokkur hreyfing hefur þó verið í rétta átt á
síðustu mánuðum. Vonandi veróúr sú þróun
hraðari á næstunni, því að mikið er í húfi.
Lýðræðið blómstrar, ef hinir venjulegu borg-
arar geta áttaó sig á þjóómálunum í heild og
einstökum þáttum þeirra, geta séð í gegnum
rugl og blekkingar og geta beitt gagnrýninni
hugsun sinni í verki.
EF BANDARÍKJA-
MENN VIUA
AÐSÓPSLÍTINN
F0RSETA, ER
F0RD SENNI-
LEGA SÁ BEZTI
Omannblendinn, hljóöur og
aögerðarlítil: Ford Bandaríkja-
forscti vekur mismunandi til-
finningar hjá fólki, allt frá
áreiðanlegur og traustur til við-
kunnanlegur en neikvæður.
í næstu viku mun flokksþing
republikana ákveða hvort það
muni velja hann eða fyrrum
rikisstjórann í Kaliforníu.
Ronald Reagan, sem for-
setaefni flokksins.
Ef flokksþingið velur Ford
forseta, sem kom til valda er
Nixon fyrrum Bandaríkjafor-
seti hvarf frá embætti.mun það
verða gert í þeirri trú að þjóðin
vilji hafa yfir sér forseta sem
ekki vekur ntiklar hugar-
hræringar hjá fólki.
Ef menn halda sér við þá trú
er Ford tilvalið forsetaefni,
viðræðugóður og traustur —
einmitt það sem þjóðin þurfti
að fá eftir Waterjate.
Eða þá að hann er heilmikill
klaufi, sífellt að klúðra hlutum,
eða að detta um þá — við-
kunnanlegur en neikvæður
náungi sem vantar allan
persónuleika — húsvörður í
Hvíta húsinu.
Forsetatíð Fords forseta
hefur alveg verið laus við
hatrið og tilbeiðsluna sem
einkenndi Franklin Roosevelt
eða Richard Nixon, eldmóðinn
hjá Harry Truman, glauminn
og glaðværðina hjá John
Kennedy eða hin hráu völd hjá
Lyndon Johnson.
Margir hafa orðið til þess að
gagnrýna Gerald Ford en þó
t
„Laugardogs-
byhíngin"
1971 kom út lítið rit sem
vakti ekki mikla athygli.
Reyndin hefur samt orðið sú að
þar er að finna ýtarlega lýsingu
á vinnubrögðum þess valda-
hóps, sem nú krefst þess að
sérhver tslendingur beygi
höfuð sitt í auðmýkt fyrir
siðleysingjum og bröskurum.
Ritið nefnist Laugardags-
byltingin og var gefið út af
fráfarandi stjórn F.U.F. i
Reykjavík. Fjallar bókin
eingöngu um aðalfund
félagsins. En þar hafði það
gerst að stór hópur hins
aktivasta hluta unghreyfingar
Framsóknar var felldur frá
trúnaðarstörfum og í
kosningum til fulltrúaráðsins
voru kjörin ungmenni sem
smalað hafði verið saman úr
íþróttafélögum og veitinga-
húsum borgarinnar, sumir jafn-
vel enn í öðrum stjórnmála-
félögum. Voru þessir nýliðar
teknir fram yfir hinn þraut-
reynda kjarna félagsins. Fyrir
þessari byltingu stóð Kristinn
Finnbogason eins og sést best á
þessari yfirlýsingu Jónatans
Þórmundssonar prófessors í
áðurnefndu riti.
„Nægar sannanir eru fyrir
hendi um það að Kristinn Finn-
bogason formaður Framsóknar-
félagsins i Reykjavík og Alvar
Öskarsson aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra stóðu að baki
Laugardagsbyltingunni.“
Ennfremur segir Jónatan:
,,Ég hef ekki sótzt eftir
mannvirðingum í Framsókn og
mun ekki gera það meðan
menn eins og Kristinn Finn-
bogason, Alvar Óskarsson,
Tómas Karlsson og Alfreð Þor-
steinsson rá'ða þar ferðinni.“
Ég hygg að mörgum hafi
Hilmar Jónsson
farið eins og mér, þegar þeir
lásu frásagnir um þennan aðal-
fund F.U.F. í Reykjavík, að
þeir hafi ályktað sem svo að hér
væri um venjulegar stjórnmála-
erjur að ræða. En atburðir
síðustu ára hafa leitt annað í
ljós. Hér voru að verki fjárafla-
menn, sem notað hafa stjórn-
mál út í æsar sjálfum sér og
sínum fylgismönnum til fram-
dráttar og í þeirri baráttu eru
öll meðul leyfileg.
Um árabil hefur Kristinn
Finnbogason verið leiðandi
maður í Framsóknarflokknum í
Reykjavík. Hann hefur bæði
verið framkvæmdastjóri
Tímans svo og stjórnarmaður í
hússtjórn Framsóknar-
flokksins. Við hlið Kristins í
hússtjórninni eru Guðjón
Styrkársson og Jón Aðalsteinn.
Guðjón Styrkársson hefur nú
komist í sviðsljósið vegna lítilla
skatta, nánar tiltekið engra. Á
sama tíma sem eignir hans eru
taldar nema 100 milljónum.
Höfuðatvinnugrein Guðjóns er
hótelrekstur. Hefur hann á því
sviði komið víða við. Á vegum
Framsóknarfélaganna rak
hann Glaumbæ í sam-
vinnu við frægan Sigurbjörn.
Þá átti hann um skeið veitinga-
húsið Hábæ og nú rekur hann
og hótel á Raufarhöfn. Guðjón
er líka talinn standa á bak við
rekstur hótels i Vestmanna-
eyjum. Flest hafa þessi fyrir-
tæki átt í útistöðum við þá er
eiga að gæta laga og réttar. Á
Hábæ lá það orð að þar væri
auðvelt að fá eiturlyf og því
veitingahúsi var beinlínis lokað
vegna sukks. Á Raufarhöfn var
opnaður vínveitingabar án þess
að leyfi væri fyrir hendi. Og í
Vestmannaeyjum hefur hótelið
verið kært fyrir að vera með
smyglað vín á boðstólum.
Fullyrða má því með rökum að
Guðjón Styrkársson kynni sér
betur skattalöggjöfina heldur
en áfengislög.
Athygli vekur að það skuli vera
dómsmálaráðherrann í landinu
sem felur slíkum manni fjár-
mál síns stjórnmálaflokks.
Hilmar Jónson,
bókavörður, Keflavík.