Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 1
2. AKG. LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1976 — 184. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMIJLA' 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022
--------------------------------------v
Þióðverjarnir í þorskinum okkar:
GETA HAGRÆTT AFLATÖiUM
AD BGIN VILD I BAKSÍÐA |
-
Ályktun B.Í.:
„Alvarleg
skerðing á
starfsfrelsi
blaðamanna"
Á fundi stjórnar
Blaöamannafélags Íslands,
sem haldinn var i gær, var
samþykkl svohljóðandi
ályktun:
„Stjórn B.í. hefur á fundi
sínum 20. ágúst fjallað um
það, er blaðamaður og
ljósmyndari Dagblaðsins
voru hindraðir í starfi í
húsakynnum nokkurra ríkis-
stofnana að Borgartúni 7
18. ágúst 1976. Telur
stjórnin að aðför nokkurra
starfsmanna Sakadóms
Reykjavíkur að
blaðamönnum, kyrrsetning
þeirra og upptaka á filmum
ljósmyndarans sé alvarleg
skerðing á ferða- og starfs-
frelsi blaðamanna. Skorar
stjórn B.í. á Sakadóm
Reykjavíkur að gefa nú
þegar skýringu á gerðum
starfsmanna sinna og skila
strax filmu ljósmyndarans.
Stjórn Blaðamannafélags
íslands lýsir fullum
stuðningi við blaðamenn
Dagblaðsins í þessu máli..“
Beðið eftir
sólskini
Það er ekki laust við að stór
hluti landsmanna sé farinn að
bíða eftir sólskini. Enn er
sumar samkvæmt dagataiinu
og ekki öll nótt úti enn að við
fáum að skreppa í sólbað.
Ljósmyndarinn sá einn
önnum kafinn viðskiptajöfur i
gær leita sér færist til að
skjótast yfir götu í miðborg
Reykjavíkur. Pétur Einarsson
heitir maðurinn, góðkunnur
borgari í Reykjavík og er hér
vel varinn af því þarfaþingi,
regnhlíf. (DB-mynd Arni Páll).
Fiórmálaraðherrq um breytingar á skattlagningu:
fbúðaeigendur þurfa
ekki að óttast „stórvœgilegar" breytingar
,,Þær hugmyndir að
bréytingum skattalegrar
meðferðar, fyrningar og
söluhagnaðar á eignum, sem
verið hafa til athugunar að
undanförnu, hafa fyrst og
fremst beinzt að eignum, sem
notaðar eru í atvinnurekstrar-
skyni. Það leiðir af sjálfu sér,
að jafnframt verða tekin til at-
hugunar ákvæði um skattalega
meðferð söluhagnaðar eigna til
einkanota, en ég vænti ekki
stórvægilegra breytinga þar.“
Þannig svaraði Matthías Á.
Mathiesen fjármálaráðherra
spurningu Dagblaðins um,
hvort íbúðaeigendur þyrftu nú
að óttast aukna skattlagningu á
söluhagnað íbúða, eftir
ummæli ráðherrans í sjónvarpi
fyrir skömmu.
Ráðherrann svaraði skriflega
með framangreindum haétti,
sem ætti nokkuð að róa
íbúðaeigendur, þar sem
ráðherra kveðst ekki vænta
„stórvægilegra" breytinga.
1 viðtali við blaðið nefndi
ráðherrann skip sem dæmi um
eignir, þar sem hugmyndir um
breytingar á skattlagningu
söluhagnaoar og meðferðar á
f.vrningu væru í athugun.
Hann sagði. að íbúðasala
hefði jafnan notið forréttinda
við skattlagninpu hér og yrði
svo áfram.
-HH.
Viljum ekki
vera neinir
beininga-
menn
— segja skákmenn og
vilja ekki taka boði
ísraels um fjárstuðning
— bls. 7
Topparnir í ríkiskerfinu:
Gjalda
keisaranum
það sem
keisarans er
— bls. 7
íslenzk
gestrisni,
sem kostaði
eigi allfáar
milljónir
— sjd bls. 5 um
hinar stórbrotnu
móttökur, sem
flugmálastjórar
fengu hjá
starfsbróður