Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 6
~ 1
inaasngn
DAGBLAÐIÐ. LAUG ARDAGUR 21. ÁGÚST 1976.
5 vinsœlustu
rokkhljóm-
sveitir landsins
í Laugardals-
höllinni
— á „Rock'N Roll Festíval
76" 1. september
Mikið rokkhátíð, ,,Rock N’ Roil
Festival ’76“, verður haldin í
Laugardalshöllinni í Reykjavík að
kvöldi 1. september nk.
Þar koma fram fimm
vinsælustu rokkhljómsveitir
landsins, Paradís, Celcius, Fresh,
Cabaret, og Eik, og leika í 30-45
mínútur hver.
Fyrir þessari hátíð — sem ei
hin fyrsta síðan Popphátíðin var
haldin á sama stað 1969 sællar
minningar — stendur ungur
Reykvíkingur, Óttar Felix
Hauksson, sem lengi hefur verið
viðloðandi poppheiminn hér.
,,í>etta verður að ganga snar-
lega og skipulega fyrir sig,“ sagði
Óttar, þegar hann leit inn á rit-
stjór DB í gær. „Hljómsveitirnar
munu kynna það nýjasta, sem
þær hafa fram að færa, töluvert
frumsamið efni, og allir eiga að
vera í góðu skapi.“
Forsala aðgöngumiða, sem
kosta 2000 kr. stykkið, hófst í
morgun víða um SV-hluta
landsins. 1 Reykjavík eru seldir
miðar í hljómdeildum Karnabæj-
ar, verzlunum Myndiðjunnar
Ástþórs, í Víkurbæ í Keflavík,
Radíó- og sjónvarpsstofunni á
Selfossi og verzluninni Eplinu á
Akranesi. —ÓV
Garðar í Kópavogi og Haf narfirði:
FALLEGIR GARÐAR ÞRÁn
FYRIR RIGNINGARTÍÐINA
Gengiðfrá ógn-
valdi við Tjörnina
Lögreglunni tókst í gær-
morgun að vinna á
veiðibjöllu sem hefur verið
skaðvaldur fuglalífs við
Tjörnina.
Gæzlumaður við Tjörnina
hringdi í gærmorgun o g
óskaði aðstoðar
lögreglunnar, sem mætti á
staðinn með byssu. Þegar
lögreglan kom auga á
veiðibjölluna var hún að
ganga frá fullorðinni önd,
en veiðibjallan leggst
einkum á unga og ógnar
lífríkinu við Tjörnina.
Lögreglan skaut síðan
veiðibjölluna og er vonazt til
að jafnoki hennar taki sér
ekki bólfestu þarna á
næstunni. -BÁ-
. Snyrtilegir og fallegir garður
eru öllum augnayndi. En það
eignast enginn fallegan garð
nema með því að leggja mikla
vinnu i hann, hvort sem aðstoð
er keypt til þess eða ekki.
Um nokkurra ára bil hafa
yfirvöld í einstökum bæjum
gert sér ljóst, að það fólk sem
leggur svona mikla vinnu á sig
til að fegra umhverfið eigi
viðurkenningu skilið.
Kópavogur
Þar hlutu 4 garðar
viðurkenningu og verðlaun í
ár. Hildur Kristinsdóttir og
Gunnar S. Þorleifsson fengu
viðurkenningu fyrir garð sinn
að Fögrubrekku 47.
Gyðríður Pálsdóttir og Páll
Marteinsson fyrir Borgarholts-
braut 32.
Þórdís Lúðvíksdóttir og
Björgvin Ólafsson fyrir Birki-
hvamm 1 og loks Ágústa
Björnsdóttir fyrir garðinn við
húsið Rein við Hlíðarveg.
Þá voru veitt allóvanaleg
verðlaun. Voru þau fyrir litaval
á íbúðarhúsum. Hlutu íbúar
húsanna að Nýbýlavegi 45a og
Digranesvegi 14. viðurkenningu.
Hafnarfjörður
Tvö systkinabörn í Hafnar-
firði hlutu tvær af fjórum
viðurkenningum fyrir
fallegustu garðana og
umgengni við þá. Þriðja syst-
kinabarnið hlaut
viðurkenningu í fyrra.
Að sögn Sveins Þórðarsonar
nefndarmanns í Fegrunar-
nefndinni, var garðurinn að
Þúfubarði 4 fegursti garðurinn
i Hafnarfirði að mati
nefndarinnar. Þann garð hafa
þau Steinunn Jónsdóttir og
Guðjón Sigurjónsson útbúið.
Garðurinn að Þrastarhrauni
6 í eigu Eyjólfs Einarssonar og
Ástu Lárusdóttur hlaut einnig
viðurkenningu.
Þriðji garðurinn er að
Stekkjarkinn 9. Eigendur hans
eru Ragnar Sveinsson og Erla
Þórðardóttir. Loks hlaut
garðurinn við fjölbýlishúsið að
Álfaskeiði 103-104
viðurkenningu, en af þeirri
viðurkenningu á eitt þriggja
systkinabarnanna mestan
heiðurinn.
Þá var einu fyrirtæki, Hval
h/f ( veitt viðurkenning fyrir
snyrtilegan frágang á lóð og
góða umgengni um hana.BÁ GS
Asta Lárusdóttir i garði sínum að Þrastarhrauni 6.
Garður Páls og Gyðnoar að Borgarholtsbraut 32.
Hinn snyrtilegi garður við f jöibýlishúsið sem stendur við Garðurinn við húsið Rein við Hlíðarveg. Ágústa Björnsdóttir hlaut
Álfaskeið. verðiaun fyrir snyrtilegan sölustað og þátt hennar í aukinni
ræktunarmenningu Kópavogsbúa.
koma út
í tilefni 200 ára afmælis
póststofunnar á Islandi verða
gefin út tvö ný frímerki kr. 35 og
kr. 45, en þau sýna titilblað og
niðurlagsorð fyrstu póstferða-
tilskipunarinnar.
Með tilskipuninni voru
ákveðnar þrjár póstferðir á ári til
Bessastaða frá Austur-Norður- og
Vesturlandi, en ekki gert að sinni
ráð fyrir póstferðum frá Bessa-
stöðum. Stjórnandi póst-
þjónustunnar var stiftamtmaður
sem sat á Bessastöðum, en
sýslumenn önnuðust póst-
afgreiðsluna út um landið.
Þá verður einnig minnzt aldar-
afmælis fyrstu aurafrímerkjanna,
en þau voru alls sex. Af því tilefni
verður gefið út 30 kr. frímerki
sem sýnir stimpluð 5 aura frí-
merki frá 1/7 1876.
Þrjú ný f rímerkl
Athugasemd við skrif
Undirfellseigandans:
Ég hef aldrei fundið að
störfum Gísla Pálssonar oddvita
— segir Jón Bjarnason, nýi oddvitinn
Jón Bjarnason, oddviti, Ási í
Vatnsdal hringdi til blaðsins með
athugasemd vegna síðustu skrifa
Undirfellsbóndans: ,,Þó að mér
finnist ekki ástæða til þess fyrir
einn eða neinn að fara í fjölmiðla
með innansveitarmál eins og
oddvitaskipti og réttarbyggingu
hér í Áshreppi, þá vil ég þó
leiðrétta frásögn Bjarna
Hannessonar í Dagblaðinu þann
17. þ.m. þar sem hann hefur eftir
mér að ég hafi viðurkennt við sig
að Gísli Pálsson hafi brotið af sér
sem oddviti. Það hef ég aldrei
sagt enda hef ég ekki gert neinar
athugasemdir við störf hans sem
oddvita. Sjálfur hef ég ekki óskað
eftir að vera kosinn oddviti i hans
stað, en ræð ekki meirihluta
hreppsnefndarinnar. Búendum
hér i hreppi finnst nú meira en
nóg búið að skrifa um þessa
réttarbyggingu okkar. ekki sízt
þar sem nýlega var gerður skrif-
legur samningur um þessi mál við
Undirfellseigandann. Það var
gert 13. júní sl.
En æði margir voru þeir sem
töldu að ekkert væri um að semja
þar sem þetta væri kvöð sem hvílt
hefur á jörðinni í 75 ár. Undirfell
er fornt prestssetur og höfuðból í
miðri sveit og þykir mörgum súrt
í broti að sjá hana svo niðurnídda
sem raun ber vitni.” Jón Bjarna-
son, Ási.
Mótmœli við sovézka sendiróðið
Einingarsamtök kommúnista,
marx-lenínistar, boða til mót-
mælastöðu við sendiráð Sovétríkj-
anna í dag klukkan hálf þrjú.
Ætlunin er að mótmæla hernámi
Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu.
Samtökin vilja hvetja til „bar-
áttu gegn yfirráðum og drottn-
unarstefnu auðherranna í Sovét-
ríkjunum, Tékkóslóvakíu og
öðrum Austur-Evrópuríkjum,
sem lúta áhrifavaldi Sovétrikj-
anna“.
Þau segjast hafa farið þess a
leit við svonefndan Kommún-
istaflokk tslands, marx-leninista.
að samtökin tvö stofnuðu til sam-
fylkingar og sameiginlegra mót-
mælaaðgerða , en Kommúnista-
flokkurinn hafnaði boðinu.
Hinn 21. ágúst eru átta ár liðin
frá innrás sovézka herliðsins og
herja Varsjárbandalagsins í
Tékkóslóvakíu. — HH