Dagblaðið - 31.08.1976, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. — ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGUST 1976..
Aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdœmi Reykjavikur
í septembermónuði
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
1. september
2. september
3. september
6. september
7. september
8. september
9. september
10. september
13. september
14. september
15. september
16. september
17. september
20. september
21. september
22. september
23. september
24. september
27. september
28. september
29. september
R-31601 til R-32000
R-32001 til R-32400
R-32401 til R-32800
R-32801 til R-33200
R-33201 til R-33600
R-33601 til R-34000
R-34001 til R-34400
R-34401 til R-34800
• R-34801 til R35200
R-35201 til R-35600
R-35601 til R-36000
R-36001 til R-36400
R-36401 til R-36800
R-36801 til R-37200
R-37201 til R-37600
R-37601 tii R-38000
R-38001 til R-38400
R-38401 til R-38800
R-38801 til R-39200
R-39201 til R-39600
R-39601 til R-40000
R-40001 til R-40400
30. september
Bifreiðaeigendum ber að koma með
bifreiðar sínar til bifreiðaeftirlitsins,
Borgartúni 7, og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 8.00 til
16.00.
Bifreiðaeftirlitið er lokað ó laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðunum til
skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreið-
anna leggja fram fullgild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiða-
skattur og vátrygging fyrir hverja bif-
reið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því, að skrán-
ingarnúmer skulu vera læsileg.
Vanrœki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar ó auglýstum tíma verður hann
lótinn sœta sektum samkvœmt umferðarlög-
um og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til
hennar nœst.
Til athugunar fyrir bifreiðaeigendur:
Við fullnaðarskoðun bifreiða eftir 1. ógúst
1976 skal sýna Ijósastillingarvottorð.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga
að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
27. ágúst 1976.
Hótel Akureyri
Sími 96-22525
í OPIÐALLTÁRIÐ ]
Ferðofólk othugíð:
Einstaklings, 2ja og 3ja manna herbergi.
Munið Hótel Akureyri
Sími 96-22525
Hef koupondo oð
2jo eða 3ja stafa
Reykjavíkurnúmeri.
Staðgreiðsla.
Uppl. á staðnum.
ÚNI
^-BlLAORVAUfK A
Norski forsœtisráðherrann á blaðamannafundi:
Norðmenn aðstoða
íslendinga í olíumál-
um og fiskveiðum
íslenzk stjórnvöld báðu norsk
að miðla sér af reynslunni í olíu-
málum. Norðmenn sögðu já. Is
lendingar hafa einnig beðið Norð-
menn um ráðleggingar í sam-
bandi við veiði á fisktegundum,
sem íslendingar hafa til skamms
tíma lítið veitt af. Þessu játuðu
norskir líka.
Þetta koijn fram á blaðamanna-
fundi Odvar Nordlis, forsætisráð-
herra Noregs, í gær. Hann sagði
að íslenzk stjórnvöld mundu
leggja fram síðar, í hverju þau
vildu, að aðstoð Norðmanna yrði
fólgin.
Hann sagði að Norðmenn myndu
styðja beiðni íslendinga hjá
norræna fjárfestingarbankanum
um fjárhagslega aðstoð til stofn-
unar járnblendiverksmiðju. Norð-
menn mundu einnig skoða „með
velvilja“ beiðnir, sem síðar kynnu
að koma um lán frá norræna fjár-
festingarbankanum til útflutn-
ings á framleiðslu væntanlegrar
verksmiðju á Grundartanga.
Forsætisráðherrann sagði, að
Norðmenn væru til viðræðna um
möguleika á lausn þessa vanda,
sem styrkir sem norsk stjórnvöld
veita útgerð sinni á erfiðleikatím-
um, sköpuðu íslendingum í sam-
keppninni um fiskmarkaðina.
Þetta mál væri hugsanlegt að
leysa í „stærra samhengi".
Erfiðara væri að leysa þann
vanda, sem óskir íslendinga um
útflutning á kjöti með útflutn-
ingsuppbótum til Noregs yllu. Þó
væri hugsanlegt að leysa einnig
það mál í stærra samhengi.
Einnig sagði Nordli að Bruno
Kreisky, kanslari Austurríkis,
hefði lagt til að samstarfið innan
Odvar Nordli á fundinum. — Norðmenn sögðu já.
DB-mynd Árni Páil.
fríverzlunarbandalagsins EFTA
yrði stóraukið. Þetta hefði verið
rætt á fundum ráðamanna hér.
Vera mætti, að „toppfundur"
EFTA-landa yrði haldinn, en vel
þyrfti að vanda til undirbúnings
hans, ætti hann að koma að
notum.
Skoðanir íslenzkra og norskra
stjórnvalda um öryggismál væru
samrýmanlegar, sagði Nordli.
Hann taldi, að Verkamanna-
flokkurinn og Hægri floKKurinn
væru nú í sókn í Noregi, en þar
verða þingkosningar eftir ár.
— HH
SAMIMAÐUR STAÐINN AÐ
INNBR0TI NÓn EFTIR NÓn
Undarlegt er okkar dóms-
málakerfi. Sú staðreynd er
löngu kunn. Fyrir helgina
gerðist enn eitt dæmið sem það
sannar. Innbrotsþjófur var
staðinn að verki í Grensásbar
við Grensásveg aðfaranótt
föstudags. Hafði vegfarandi séð
til hans og gert lögreglumönn-
um viðvart. Var þjófurinn
tekinn á staðnum, geymdur í
fangageymslu um nóttina og
færður rannsóknarlögreglunni
að morgni.
Líður nú laugardagurinn til
kvölds. Þá er lögreglu aftur
gert viðvart um innbrot á
öðrum stað. Vegsummerki voru
þau sömu er að var komið og
nóttina áður á Grensásvegin-
um, brotin rúða á framhlið
hússins og farið inn um gatið.
Þarna var þjófurinn líka á
staðnum við iðju sína. Lög-
reglumenn urðu hissa er þeir
þekktu þarna aftur sama þjóf-
inn og þeir höfðu afhent rann-
sóknarlögreglunni um morgun-
inn.
Það eru oft sömu mennirnir
sem lögreglan er að eltast við
vegna innbrota hér og þar um
borgina. Þeir gista fanga-
geymslur um nóttina en þaðan
liggur leiðin til rannsðknarlög-
reglu og sakadóms. Afbrota-
maðurinn játar sök sína og
síðan er honum sleppt. Mál
hans bíður dóms vikum og
mánuðum saman.
Lögreglumenn heyra undir
tvö embætti. Almennt lögreglu-
lið lýtur lögreglustjóra, rann-
sóknarlögreglumenn lúta saka-
dómi. Ríkjandi kerfi gerir það
mögulegt að lögreglulið elti
sömu mennina við afbrotaiðju
nótt eftir nótt. Hér þyrfti
sannarlega úr að bæta.
— ASt.
Bloðburðarbörn
óskast strox
í eftirtalin hverfi:
Barmahlíð, Miklubraut,
Suðurlandsbraut,
Hátún, Miðtún,
Skúlagötu frá 58 og út,
Steinagerði og Árbœ.
Uppl. i síma 27022
m:BLAÐIÐ
Séra Sigurður Haukur í
helgistund sjónvarpsins:
Fermi ekki
að vori
— ekki ágreiningur
heldur ársfri
„Eg er ekki hættur að
ferma, heldur er ég að fara
utan í ársfrí og mun þvi ekki
ferma að vori,“ sagði síra
Sigurður Haukur Guðjóns-
son í viðtali við blaðið í gær.
Tilefnið var að í kvöldbæn-
inni í sjónvarpinu sl. sunnu-
dag sagðist Sigurður ekki
ferma að vori og héldu
margir að það væri vegna
einhvers ágreinings um
ferminguna.
Svo mun þó ekki vera, því
Sigurður fer 1. október í
fríið og mun dvelja í Bret-
landi og Þýzkalandi til
haustsins 1977. —G.S.