Dagblaðið - 31.08.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 31.08.1976, Blaðsíða 14
14 DACHLAÐIÐ. — ÞRIÐJUDACUR 31. ACUST 1976. , Það væri ákaflega leiðinlegt ef þetta félli niður því söðla- smíð er elzta iðngrein á land- inu,“ sagði Þorvaldur Guðjóns- son söðlasmiður en hann á ein- mitt 50 ára starfsafmæli núna í september. Við hittum Þorvald að máli þar sem hann var við vinnu sina ásamt Sigurði Björnssyni lærlingi sínum á söðlaverk- stæðinu að Hlíðarvegi 21 í Kópavogi. „Söðlar og hnakkar komu fyrst til landsins með land- námsmönnunum frá Noregi,“ sagði Þorvaldur. „Þeir voru að vísu mjög frábrugðnir þeim sem við þekkjum nú og mig minnir aó þeir hafi verið kall- aðir þófar.“ Þorvaldur nam söðlasmíð hjá Guðjóni Ásgeirssyni söðlasmið á Kýrunnarstöðum í Dalasýslu og tók sveinspróf í iðninni í september árið 1926. Um það leyti fluttist hann til Reykjavík- ur og hóf vinnu hjá Samúel Ólafssyni. — Voru margir söðlasmiðir í Reykjavík í þá daga? „Já, blessuð vertu. Þeir voru fjölmargir þarna á Laugavegin- um og Hverfisgötunni. Núna eru þeir ekki margir sem hafa réttindi.“ — Er mikill munur á hnökk- um í dag og þegar þú varst að byrja? „Já. Það er sérstaklega efnið sem er töluvert mikið öðruvísi. Ilnakkarnir eru líka miklu létt- ari, sniðið á þeim hefur breytzt. Áður voru yfirdýnur stungnar ofan á hnakkana. I þá daga voru virkin smíðuð hérlendis, nú koma þau tilbúin frá Bret- landi en smíðuð eftir íslenzkri fyrirmynd.“ — Hvað er lengi verið að smíða einn hnakk? „Hér áður fyrr voru áætlaðir þrír dagar með því að allt sem Þrír félagar á söðlasmíðaverkstæðinu, Sigurður Björnsson, Björn Ágúst Björnsson, sem hjálpar þeim féiögum á verkstæðinu en er ekki fastákveðinn hvort hann ætlar að læra iðnina.og meistarinn, Þorvaldur Guðjónsson, sem tók sveinspróf árið 1926. Söðlasmíði er ein greinin í landinu elzta iðn- Söðlaverkstœði í Kópnvogi heimsótt Sigurður Björnsson virðist vera alveg eldklár í hnakkasmiði þótt hann sé ekki búinn að vera við nám nema í rúma f jóra mánuði. þurfti að nota til smíðinnar væri fyrir hendi.“ — Hvaðan er leðrið sem notað er til smíðinnar? „Það kemur frá Englandi. Hér áður fyrr var leður unnið á Akureyri en það hefur ekki verið gert síðan verksmiðjan brann.“ Þorvaldur sýndi okkur hnakk sem var fullsmíðaður. Á neðri hlið hans var rúskinn. „Það er miklu mýkra fyrir reiðmanninn, þetta efni harðnar ekki og er ábyggilega óslítandi," sagði Þorvaldur. — Að hvaða leyti eru islenzk- ir hnakkar frábrugðnir þeim erlendu sem hingað eru fluttir? „íslenzkir hnakkar passa fyrir íslenzka hesta. Ensku hnakkarnir, sem hafa verið á boðstólum hér, ná of langt aftur fyrir íslenzka hesta og geta truflað gang þeirra," — Hefurðu alla tíð unnið við söðlasmíði, Þorvaldur? „Nei, það varð nokkurt hlé hjá mér eftir að verkstæðið mitt brann og ég missti allt sem ég átti. Þá var ég við önnur störf í nokkur ár. En þegar Á?anadrottning gifti sig ákváðu Islendingar að gefa þeim hjónum hesta með reiðtygjum í brúðargjöf og var ég fenginn til þess að smíða hnakkana. Það var árið 1967. Síðan hef ég verið við þetta en aldrei haft lærling fyrr en nú," sagði Þor- valdur brosandi. Lœrlingur í söðlasmíð. — Er ekki nauðsynlegt að hafa áhuga á hestum til þess að geta smiðað góða hnakka? „Ég hugsa að það sé að minnsta kosti ekki verra," sagði Þorvaldur segir okkur aó efnið sent unnið sé úr i dag sé miklu liprara en var áður og fvrr meir þegar hann var að byrja. i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.