Dagblaðið - 31.08.1976, Qupperneq 15
DACBLAÐIÐ. — ÞRIÐJUDAGUR 31. AGUST 1976.
15
Siguröur Björnsson, nítján ára,
sem byrjaði sem lærlingur í
söðlasmíði hjá Þorvaldi Guð-
jónssyni í vor.
„Eg hef verið töluvert i hest-
um og á sjálfur þrjá. Ég var
eitthvað um tiu ára, þegar ég
eignaðist þann fyrsta," sagði
Sigurður.
Hann virtist orðinn alvanur
hnakkasmíðinni og sagðist /era
farinn að geta gert flest verkin
sem þyrfti til að smíða hnakk.
Sigurður var yngsti þátttak-
andinn í póstferðinni sem farin
var norður á Vindheimamela
þjóðhátíðarárið.
„Það var mjög gaman að taka
þátt í þeirri ferð. Hún tók ell-
efu daga og var einungis flutt-
ur ábyrgðarpóstur sem var með
sérstökum póststimpli."
— Hittirðu einhverja sem
mundu eftir gömlu landpóstun-
um?
„Jú, þeir elztu, sem maður
hitti, mundu vel eftir þeim og
höfðu margar skemmtilegar
sögur af þeim að segja.“
Þegar við spurðum hvort
hnakkar væru til á lager kom í
ljós að þeir hafa hingað til verið
smíðaðir eftir pöntunum, en
Björn Sigurðsson, sem er eig-
andi verkstæðisins, sagði að
ætlunin væri að um áramót
v@?ri hægt að fá hnakka af lag-
er, að minnsta kosti með mjög
stuttum afgreiðslufresti.
Hnakkur kostar í dag um 60
þúsund kr. og beizli frá 7—10
þúsund.
Þegar við vorum á leiðinni út
rákum við augun í kistur
miklar og eitthvað sem við
vissum ekki hvað var.
„Þetta eru póstkoffortin sem
notuð voru í póstferðinni miklu
og klifsöðlarnir,“ sagði Björn
Sigurðsson en hann átti sæti í
þriggja manna nefnd, sem
skipuð var til þess að koma
póstferðinni á laggirnar, og er
nú formaður hestamanna-
félagsins Gusts.
„Það var Indriði G. Þor-
steinsson sem átti upphaflega
hugmyndina að þessari póst-
ferð og leitaði póststjórnin til
stjórnar Landssambands hesta-
manna um aðstoð við fram-
kvæmdina.
Nú hef ég fengið þessi koff-
ort í umboðsölu, dettur svona í
hug að einhverjum þætti gam-
DB-myndir
Þormóðsson
Sveinn
Sigurður Björnsson var yngsti þátttakandinn í póstferðinni miklu sem farin var þjóðhátíðarárið 1974.
Hann er þarna annar í röðinni. Póstkoffortin og klifsöðlarnir eru nú til söiu á verkstæðinu i Kópavogi.
an að eiga þau til minningar.
Koffortin voru smíðuð fyrir
póstferðina, það er að segja
járnin voru notuð af gömlum
koffortum sem voru að öðru
leyti orðin ónýt. Það eru 32
koffort eftir af þeim sem notuð
voru í ferðinni. Klifsöðlarnir
eru einnig til sölu. Margir vilja
gjarnán eiga slíka söðla til þess
að geta bundið farangur upp á
trússhesta. Koffortin kosta 20
þúsund með söluskatti og sömu-
leiðis klifsöðlarnir. Það er ekki
viðlit að smíða slíka söðla fyrir
það verð nú til dags.“
Við gátum ekki stillt okkur ■
um að spyrja Björn, sem er
kunnur hestamaður, hvort
hann hefði ekki verið stoltur af
frammistöðu íslenzka hestsins í
Ameríkuförinni.
„Jú, svo sannarlega. Þeir eru
ákaflega þolgóðir ef farið er
rólega af stað. Við munum eftir
skólapiltunum á Bessastöðum i
gamla daga. Þeir tóku hestana
sína beint úr haganum á vorin
og riðu þeim norður og austur.
Þeir hafa ábyggilega ekki farið
neinn hægagang frekar en
ungir menn gera í dag,“ sagði
Hann sagðist sjálfur vera ný-
kominn úr sex daga Fjallabaks-
ferð.
„Við fórum hægt og sigandi
af stað og hestarnir voru aldrei
betri en þegar ferðinni var
lokið. Þeir hefðu getað haldið
áfram í það óendanlega,“ sagði
Björn Sigurðsson.
— A.Bj.
Þau hjónin Björn Sigurðsson og Kristín Bögeskov eru miklir áhugamenn um hesta og vita ekkert
betra en að sýsla um hesta og þeysa um hálendið á tryggasta þjóninum.
Björn.
f u I
s í
/ /
áyf
■■.■„ ái uUL~~ UisiUU
... ..
~ í'ÚuLás: m /
/z ✓
SÖLUBÖRN
SÖLUKEPPNI! =
Frá og með 36. tbl. E
hefst E
sölukeppni VIKUNNAR E
og stendur
tvo mánuði. E
•%
Þorvaldur Guðjónsson siiðlasmiður á finimtiu ára starfsafmæli i
september mestkomandi. Þetta er sveinshréfið hans sem gefið er út
af Þorsteini Þorsteinssyni sýslumanni Dalamanna.
NOVUS-VASATÖLVUR
5 1 VERÐLAUN.
Novus eru mjög ^
fullkomnar vasatölvur, með V
8 tölustöfum, prósentu,
kvaðratrót og minni.
Söluböm, hringið strax og
tryggið ykkur föst söluhverfi. Síminn er 35320. =
iiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii^