Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 6

Dagblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. — LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976. Siglir með saltfisk til Zaire f Karlmannaskór Lltur: Millibrúnt Stœrðir: 41—45. Verð kr. 3.900 Póstsendum Skóbúðin Snorrabraut 38 Simi 14190 V ■■ „Aðsóknin okkar mesta hvatning" „Aðsóknin er okkar mesta hvatning í starfinu,“ sagði Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri á blaðamannafundi á þriðjudag- inn. Ahorfendafjöldi á síðasta leikári var rúmlega 134 þús. og kvaðst þjóðleikhússtjóri alls ekki hafa búizt við að fyrra metið, 119 þús. áhorfendur, yrði slegið. Að vísu hefði verið farið í leikferðir, sem hefðu verið mjög vinsælar, út á land, en þær sóttu um 20 þús. manns. Æfingar eru nú hafnar af fullum krafti í Þjóðleikhúsinu en leikárið byrjaði 1. september. Fyrsta frumsýningin verður 18. sept. á Sólarferð, nýju verki eftir Guðmund Steinsson og er leik- stjóri Brynja Benediktsdóttir. Siðan rekur hver frumsýningin aðra en alls verða 8 nýjar sýningar á stóra sviðinu og 6 á litla sviðinu. Sú nýjung hefur verið tekin þar upp að nú er einnig hægt að fá keypt áskriftar- kort þar eins og á aðalsviðinu, en áskriftarkortin njóta sívaxandi vinsælda enda er þá 25% ódýrara að sækja leikhús. Áskrif tarkort með 25% afslœtti Sveinn sagði að fólk hefði á orði, að það væri þó ekki endilega aðalástæðan heldur: „Það er til þess að maður drífur sig i leik- húsið." Hann benti á að það væri í raun og veru mjög ódýr skemnit- un að sækja leikhús. Halldór Ormsson miðasölustjóri upplýsti að miðar hefðu hækkað nokkuð siðan i f.vrra, mest frumsýningar- miðar. en minnst miðar á barna- sýningar eða aðeins um 50 kr. fyrir börn. Kostar miðinn i ár 500 kr f'—>' tnirn og 700 kr. fvrir full orðna á barnasýningu.Um 1000 kr. á venjulegar sýningar, nema söngleiki, þar sem miðinn kostaði um 1300 kr. Frumsýningarmiðinn kostar 1500 kr. en miðinn í Kjall- arann kostar 800 kr. Vegna út- breidds misskilnings vildi Hall- dór benda á að vissulega væri hægt að fá miða á frumsýningar, þar væri alls ekki aðeins um fasta frumsýningargesti að ræða. Áskriftarkort verður byrjað að selja þann 8. sept. Fólk verður sjálft að koma í miðasöluna og velja sér sæti og sýningar, ekki er hægt að panta slíkt í gegnum sína. Nýjar sýningar: Vojtsek, Gullna hliðið, Hena fagra og Lér konungur Meðal nýrra feikrita, sem sýnd verða í vetur á aðalsviði, er Vojt- sek, eftir þýzka höfundinn Búchner, leikstjóri verður Rolf Hadrich sá sami og leikstýrði Brekkukotsannál, Gullna hliðið hans Daviðs Stefánssonar, söng- leikurinn Helená fagran eftir Offenbach, Lér konungur, eftir Shakespeare, Dýrin i Hálsaskógi, gamalkunnugt verk á fjölunum, eftir Egner og einnig verður ball- ettsýning. Á litla sviðinu verður syrpa af nútímaverkum, þar af eitt ís- lenzkt eftir Odd Björnsson, annað Nótt ástmeyjanna eftir Endkvist, þriója Þeir settu handjárn á blóm- in eftir spænska höfundinn Arra- bal og fjórða Endataf! eftir Beckett. Þá er Stefán Baldursson blaða- fulltrúi Þjóðleikhússins. þýðandi og leikstjóri með meiru. að æfa nýtt hópvinnuverkelni M-m á að vera auðvelt að ferðast með og Hann gerir aldcilis víðreist þorskurinn af Islandsmiðum jafnvel þó hann sé kominn á land. Hér er verið að skipa honum um borð í Suðurland sem sultfiski. — segir Sveinn Einarsson þjóleikhússtjóri í upphafi nýs leikórs draga þá,“ sagði Gunnar og hló við, „en annars eru ráðamenn skipafélagsins aldrei rónni fyrr en við erum horfnir úr augsýn," sagði Gunnar og glotti til Guðmundar framkvæmda- stjóra, — en þá vildi svo óheppilega til að DB-maðurinn rak fingurinn í gikkinn á myndavélinni án þess að Gunnar tæki eftir. Um það hvort Suðurlandið hefði tryggan farm í bakaleið- inni var allt óákveðið. Litlu skipafélögin eiga undir högg að sækja í samkeppninni við þau stóru sem Guðmundur taldi að hefðu fengið of sterka aðstöðu til flutninga. „Auðvitað rætist úr fyrir okkur, þetta er oft erfitt en gengur þó alltaf skref fyrir skref." Á Suðurlandinu er 11 manna áhöfn, „en ég vona að ekki hlaupi vöxtur í ána sem við eigum að sigla eftir í Afríku, — þá komumst við seint á áfanga- stað þvi að mér er sagt að þá Skipstjórinn, Gunnar Magnús- son, var að vísu ekkert fyrir mvndatökur en fyrir slysni smellti DB-maðurinn af einni mynd og þetta er árangurinn. verði straumhraðinn 12 mílur,“ heyrðum við að Gunnar sagði við þá Andrés og Guðmund um leið og við gengum frá borði. emm/JB Gunnar, sem ekkert var fyrir neinar myndatökur, hefur langa reynslu að baki í sigl- ingum, var meðal annars lengi skipstjóri á Önnu Borg. Honum vex því Afríkuferðin ekkert í augum. „Ætli við sprautum ekki úr slöngunni á þá sem ekki hafa fyrr komið suður fyrir miðbauginn í stað þess að kjöl- Þeir voru að fylgjast með útskipun Suðurlandsins. Karl Njálsson fiskverkandi í Garðinum, Guðmundur Asgeirsson framkvæmda- stjóri Nesskips og Andrés Pétursson útskipunarstjóri SÍF. sýna hvar sem er. „Þórhallur Sigurðsson, Sigmundur Örn Arn- grímsson, Þórunn Sigurðardóttir og Helga Jónsdóttir vinna með mér að verkefninu," sagði Stefán. „Kannski köllum við einhvern höíund okkur til aðstoðar. Allt getur gerzt.“ Sú nýjung verður að Don Juan í helvíti hluti úr Man and Super- man eftir Bernhard Shaw verður flutt í lestrarformi undir stjórn Baldvins Halldórssonar. Auk þessa verða svo ýmsar eldri sýningar teknar upp að nýju, eins og ímyndunarveikin, Litli prinsinn og Silfurtunglið. EVI Fyrsta islenzka skipið sem þangað fer með farm Simi 25252 Bílamarkaðurinn Grettisgötu 12—18 Rétt fyrir innan Klapparstíg 0PIÐ I DAG LAUGARDAG „Saltfiskfarmurinn sem Suðurlandið er að lesta hér í Keflavík er hinn fyrsti sem SÍF selur til Zaire,“ sagði Andrés Pétursson, útskipunarstjóri hjá SÍF, er við hittum hann að máli á hafnarbakkanum í Keflavík, þar sem hann hugaði að salt- fiskpökkunum sem biðu á bíl- pöllunum eftir að verða sveiflað niður í lestar Suður- landsins. „Að vísu hafa Zaire menn fengið íslenzkan þurrfisk í gegnum þýzka og enska aðila, en við vonum að þeir vilji heldur skipta beint við okkur hjá SlF, enda fæst viðunanlegt verð fyrir fiskinn.“ I blíðviðrinu gengum við fram bryggjuna ásamt Andrési og Guðmundi Ásgeirssyni fram- kvæmdastjóra sem tjáði okkur að Suðurlandið væri fyrsta ís- lenzka skipið sem sigldi með farm til Zaire, en Guðmundur sagði að Suðurlandið kæmi við í Lissabon á leiðinni suður og losaði þar um 500 tonn af þurr- fiski svo að eftir yrðu um 560 tonn sem færu til Afríku. „Siglingin tekur um 24 daga,“ sagði Gunnar Magnússon skip- stjóri um leið og hann bauð okkur sæti í káetu skipsins, „og þar af þurfum við að sigla upp til Zaire eftir Kongó-fljótinu um 150 km vegalengd. Straum- hraðinn í röstunum er um 10 mílur en skipið gengur 11 mílur svo að sá áfangi tekur sinn tíma.“ Ljósmœðrafélag Reykjavíkur hefir happdrœtti, fatamarkað og kökubasar í félagsheimilinu í Hveragerði (næsta hús við Eden) sunnudaginn 5. sept. Hefst kl. 1 e.h. •

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.