Dagblaðið - 04.09.1976, Síða 24
Smyglarar mega nú fara að vara sig:
Hraðskreiður tollbótur
í smíðum í Bretlondi
— Kemur hingað upp úr óramótunum
Aðstaða Tollgæzlunnar mun
stórbatna með tilkomu þessa
nýja báts og opnast með honum
möguleikar til að sigla t.d. á
móti skipum sem koma að utan,
sagði Björn Hermannsson toll-
stjóri í viðtali við blaðið í gær.
Nú er hafin smíði 45 feta
gæzlubáts hjá fyrirtækinu
Souper og Son í Bretlandi og á
báturinn að verða tilbúinn í
janúar nk. Ganghraði hans
verður lágmark 17 til 18 sjó-
mílur og eru svipaðir bátar
notaðir við hliðstæð störf í
Bretlandi og Hollandi.
Báturinn á að þola öll venjuleg
sjóveður og er svefnpláss fyrir
tvo menn þannig að hugsanlega
gæti verið fjögurra manna
áhöfn í lengri ferðum, tveir og
tveir á vakt og mun fleiri í
styttri ferðum. Aætlað verð er
28,5 milljónir króna.
Að sögn Björns hefur það
lengi verið draumur Tollgæzl-
unnar að fá þess háttar bát í
þjónustu sína enda er gamli
báturinn ekki nýtilegur til ann-
ars en að ferja tollverði út í
skip á ytri höfninni og orðinn
gamall og úr sér genginn. G.S.
Útlitsteikning af gæzlubatnum sem nú er verið að smíða í Bretlandi
fyrir Tollgæzluna hér.
Sölustrákar fœrðir á stöðina
— illa séðir á umferðareyjum
Flestir hafa víst orðið varir
við blaðasölukrakkana, sem
standa við umferðarljós í
höfuðborginni og bjóða Dag-
blaðið og Vísi til sölu. Þeir
setja svo sannarlega svip á bæ-
inn. En þótt vegfarendum þyki
gott að kaupa blöðin meðan
,,Ö11 laun á tslandi eru lægri en
laun á öðrum Norðurlöndunum,
en taxti iðnverkafólks er í sam-
ræmi við önnur laun í landinu",
sagði Björn Bjarnason starfs-
maður Iðju er íslenzk iðnkynning
var opnuð í fataverksmiðjunni
Dúk um hádegið í gær.
„Það eru litlir aukatekjumögu-
leikar hjá iðnverkafólki. bvi vfir-
þeir bíða óþolinmóðir eftir
grænu ljósi, telur lögregian að
krakkarnir séu til vandræða.
Verðir laganna hafa gert gang-
skör að því undanfarið að
smella þeim upp í lögreglubíl
og fara með þá niður á stöð til
þess að leggja enn meiri
vinna er nær engin“, sagði Björn.
— Hafa verkalýðsfélögin ekki
viljað leggja áherzlu á að verka-
fólk gæti aflað þeirra tekna sem
það þarf í dagvinnu og slyppi við
að þurfa að vinna yfirvinnu?
„Það hefur verið stefnan hjá
verkalýðsfélögunum á undan-
förnum árum en ég verð að játa
að þetta hefur fallið í skuggann
áherzlu á, að þetta athæfi sé
bannað.
Þeir eru ekkert hræðslulegir
á svipinn þessir og lögreglu-
þjónarnir eru svo sem ekkert
strangir á svipinn heldur.
DB-mynd Sveinn Þormóösson.
iðnaðinum
og einblínt hefur verið meira á þá
tekjumöguleika sem eftirvinnan
skapar. En þetta er verkefni sem
verkalýðshreyfingin þarf að
leysa.“
Björn Bjarnason er formaður
Lahdssambands iðnverkafólks en
í sambandinu eru nú um 4000
félagar.
— A.Bj.
Formaður Landssambands iðnverkafólks:
Lítil sem engin yfirvinna í
Fimm manns
í varðhald
vegna hass-
mólsins ó
Keflavíkur-
flugvelli
Fimm manns sitja nú í
varðhaldi vegna rannsóknar
Fíkniefnadómstólsins á máli
tveggja Bandaríkjamanna,
sem voru handteknir aðfara-
nótt fimmtudagsins síðasta i
hliði Keflavíkurflugvallar.
Þeir voru með um 250 grömm
af hassi á sér, sem þeir ætluðu
að smygla inn á völlinn.
„Þetta mál er nú í lausu lofti
eins og er,“ sagði Ásgeir
Friðjónsson dómari Fíkniefna-
dómstólsins í samtali við DB í
gær. „Þrír menn.til viðbótar
Bandaríkjamönnunum tveim-
ur , hafa verið úrskurðaðir í
varðhald — það eru menn úr
Keflavík og Reykjavík."
Ásgeir sagði einnig, að um
meira magn af hassi væri að
ræða en grömmin 250, sem
voru tekin af Bandaríkja-
mönnunum. Að öðru leyti gat
hann lítið tjáð sig um
rannsóknina á þessu stigi
málsins. -ÁT-
Skera mel
um helgina
Nú gefst fólki kostur á því
að njöta útivistar og skera mel
í landgræðslugirðingu í Þor-
lákshöfn um helgina. Lagt
verður af stað frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 12 á hádegi og
fólki skilað þangað að dags-
verki loknu. Það er Land-
græðsla ríkisins og Landvernd
sem standa að þessu starfi og
að sjálfsögðu er vænzt góðrar
þátttöku eins og undanfarin
ár. — KP.
Löggilding mjólkurbúða úr gildi 1. febrúar:
Fimm mjólkurbúðir munu
Að öllum líkindum munu
fimm mjólkurbúðir í Reykjavík
verða reknar áfram þótt
Mjólkursamsalan leggi niður
sínar mjólkurbúðir og er þar
um að ræða 4 mjólkurbúðir sem
reknar hafa verið á vegum Al-
þýðubrauðgerðarinnar og eina
búð á horni Bræðraborgarstígs
og Asvallagötu þar sem brauð-
gerðin vill yfirtaka mjólkur-
söluna þegar Mjólkursamsalan
hættir.
Guðmundur Oddsson for-
stjóri Alþýðubrauðgerðarinnar
sagði í viðtali við DB i gær að
hann h.vgðist halda þessum
húðum áfram sem mjólkur- og
halda ófram
brauðbúðum, svo framarlega
sem hann fengi það. Búðirnar,
sem hann hefur rekið, eru að
Laugavegi 61, Njálsgötu 106,
Hólmgarði 34 og Stórholti 16.
Sagði Guðmundur að sér
skildist að í nágrenni allra
þessara búða væri engin mat-
vörubúð sem gæti tekið við
ef leyfi fóst
mjólkursölunni. Fyrir nokkru
tilkynnti Heilbrigðiseftirlitið
að löggilding á þessum búðum
og reyndar öllum búðum
Mjólkursamsölunnar félli niður
frá 1. febrúar nk. Sagðist Guð-
mundur halda áfram rekstri
búða sinna ef þær fengjust lög-
giltar aftur. -G.S.
fijálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 4. SEPT. 1976.
Verðlagningin:
Frjólsrœðið
enn óókveðið
Vegna orðalags í blaðinu í
gær er rétt að ítreka, að enn
hefur ekkert verið ákveðið um,
hvort frjálsari verðlagslöggjöf
verði tekin upp. Þetta var ekki
haft eftir Björgvin Guðmunds-
syni, skrifstofustjóra í við-
skiptaráðuneytinu, heldur var
orðalagið komið frá blaða-
manni.
Menn geta hins vegar leitt
getum að því, hvort frjálsari
verðlagslöggjöf verði upp
tekin.
Það, sem eftir Björgvin var
haft í fréttinni, var fyrst og
fremst frásögn hans af um-
niælum Ólafs Jóhannessonar á
ráðstefnu í Bifröst í fyrradag.
-HH.
2 sœkja um Dómkirkjuna:
Annar umsœkjenda
messar á morgun
Tveir prestar sóttu um Dóm-
kirkjuprestakall í Reykjavík, en
umsóknarfrestur er nýliðinn.
Þeir eru sr. Hannes Guðmunds-
son á Fells.núla og sr. Hjalti Guð-
mundsson í Stykkishólmi. Ekki er
enn ákveðið hvenær kosning fer
fram, en prestarnir tveir eru
báðir að hefja kynningu fyrir
kjósendur í prestakallinu í hinni
gömlu miðborg Reykjavíkur.
Á morgun mun séra Hannes
messa í Dómkirkjunni kl. 11.
Hann er 53 ára gamall og hefur
undanfarin 19 ár, starfað sem
sóknarprestur, í Fellsmúla í
Rangárvallasýslu.
— JBP —
Samgönguróðuneytið:
Aðeins
undanþága
til skipstjór-
ans og stýri-
mannsins
Undanþágan til skipstjóra og
stýrimanns á Tjaldi, bátnum sem
sökk um síðustu helgi, var veitt af
samgönguráðuneytinu að sögn
Birgis Guðjónssonar, fulltrúa í
ráðuneytinu. Vélstjóra bátsins
var engin undanþága veitt, enda
ekki óskað eftir henni í skeyti,
sem ráðuneytinu barst frá bæjar-
fógetaembættinu í Vestmannaeyj-
um 28. júli sl.
Umsókninni fylgdu meðmæli,
sem ráðuneytið kannaði, og var
fallizt á að veita umbeðna undan-
þágu til skipstjórans,' sem hafði
verið skipstjóri á 30 tonna báti, og
stýrimannsins.
Kvaðst Birgir ekki skilja hvað
Allan Magnússon ætti við með
þeim ummælum í DB í gær, að
honum fyndist það einna athyglis-
verðast að vélstjóri og stýrimaður
gegndu störfum samkvæmt
undanþágum.
— JBP —