Dagblaðið - 16.09.1976, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976
4
Dragnótabótarnir landa af la sem
ekki ó að geta fengizt í dragnót
Einn Ólafsvikurbáta sviptur leyfi i gœr og
„fleiri munu fylgja á eftir", segir ráðuneytið
í gær svipti sjávarútvegs-
ráðuneytið einn þeirra báta frá
Ölafsvík leyfi því sem báturinn
hefur haft til dragnótaveiða.
Leyfissviptingin var fram-
kvæmd vegna samsetningar
þess afla sem báturinn landaði í
gærmorgun. Aflinn var ein-
göngu bolfiskur og að megin-
hluta til smáfiskur og undir-
málsfiskur. Telur ráðuneytið að
slíkur fiskur eigi alls ekki að
geta veiðzt í dragnót sé löglega
um veiðarfærin búið og farið að
reglum.
Jón B. Jónasson fulltrúi í
ráðuneytinu vildi ekki að svo
stöddu gefa upp nafn bátsins og
taldi slíkt ekki venju ráðu-
neytisins.
Jón B. Jónasson sagði að
ráðuneytið væri nú að kanna
löndunarnótur og aflaskýrslur
dragnótabáta bæði fyrir vestan
og norðan land. Við þá skoðun
hefði komið í ljós að aflasam-
setning hjá bátunum vestan-
lands væri afar grunsamleg,
þ.e. að landað væri fiski sem
alls ekki ætti að geta fengizt
með löglega frágenginni drag-
nót. Sagði Jón að sér sýndist við
skjóta yfirsýn að fleiri bátar
myndu verða sviptir leyfum til
dragnótaveiða.
Jón B. Jónasson sagði enn-
fremur að aflasamsetning hjá
bátum fyrir norðan yrði að
teljast eðlileg. Þar væri koli allt
að 70% af aflanum en fyrir
vestan land væri engan kola að
finna í afla úr mörgum veiðar-
færum. Slíkt vekti grunsemdir
því væri löglega um dragnótina
búið ætti enginn smáþorskur
eða undirmálsfiskur að geta
fengizt í dragnótina. Jón sagði
að nú væru eftirlitsmenn ráðu-
neytisins teknir til starfa, færu
í róðra og fylgdust með afla-
samsetningu landaðs afla.
Hefði eftirlit þannig verið mjög
hert.
Einn dragnótabátur var stað-
inn að ólöglegum veiðum á
Lónafirði hjá Þórshöfn 27.
ágúst sl. Var það vb. Geir, 36
tonna bátur frá Þórshöfn.
Réttað var í máli hans sam-
dægurs og lauk málinu þann
dag með dómsátt. Var skip-
stjóra gert að greiða 400 þús.
krónur og var sú upphæð
greidd þegar í stað. Dómsáttin
byggðist á ákvæðum nýrra laga
um veiðar með sérstökum
heimildum. I þeim segir að 1.
brot varði ekki upptöku afla, en
varði hins vegar leyfissvip.t-
ingu.
Samkvæmt því var vb. Geir
sviptur leyfi til dragnótaveiða.
Sú leyfissvipting stóð hins.
vegar ekki nema í hálfan
mánuð þá var báturinn aftur
kominn með leyfi til dragnóta-
veiða undirritað af sjávarút-
vegsráðherra.
Þórður Asgeirsson skrif-
stofustjóri sagði að ráðuneytið
hefði talið leyfissviptingu í
hálfan mánuð nægilega refs-
ingu. Dómurinn varðandi upp-
hæð dómsáttarinnar hefði einn-
ig verið óvenjulega hár. Þórður
neitaði þeim sögusögnum sem
ganga meðal sjómanna eystra
að þingmenn kjördæmisins hafi
,,kippt í spottann" og útvegað
veiðileyfi á ný. Kvað Þórður
það eingöngu hafa verið
ákvörðun og mat ráðuneytisins
að veita leyfi á ný enda hefði
dragnótasvæðið þar eystra
verið opnað rétt á eftir og
hvaða bátur sem væri gæti
fengið dragnótaveiðileyfi á
þessum slóðum.
—ASt.
i^jtísfiwsjtwwR
ÞVOTTAETNit?
[bakternieijbaivii
1/1 ds. ORA gr. baunir kr. 175,00
1 fl. Libby’s tómatsósa kr. 149,00
1 pk. Maggi súpur kr. 98,00
1 kg. egg kr. 385,00
1 kg. sykur kr. 129,00
3 kg. C-ll kr. 545.00
1 stk. Akra smjörlíki kr. 138.00
2 r. Andrex WC kr. 130.00
Ódýrir kínverskir úrvals ávextir
‘á ds. ferskjur kr. 140.00
'á ds. epli kr. 92.00
'A ds. bl. ávextir kr. 188.00
'á ds. ananas hringir kr. 169.00
'á ds. ananas bitar kr. 147.00
'á ds. aprikósur kr. 143.00.
0PIÐ TIL KL. 7 A F0STUDÖGUM.
L0KAÐ Á LAUGARDÖGUM. NÆG BÍLASTÆÐI
DAGBLAÐIÐ
Umboðið í Njarðvík vantar blaðbera í Innri-
Njarðvík. Upplýsingar í síma 2865 hjá Guð-
finnu Guðmundsdóttur.
Mikil og skemmtileg tilþrif voru við undirbúning og æfingar að Sólarferð og lofar það góðu um leikritið.
Frumsýning í Þjóðleikhúsinu laugardag:
SOLARFERÐ
— gamanleikur um íslendinga á
Spáni eftir Guðmund Steinsson
Sólarferð eftir Guðmund
Steinsson er fyrsta verkefni Þjóð-
leikhússins á þessu leikári og fer
frumsýningin fram nk. laugar-
dagskvöld.
Verkið er um þriggja ára
gamalt og er sögusviðið sólar-
strandir Suðurlanda. Er þarna
um að ræða lýsingu á íslending-
um í sólarferð en inntakið er til-
finningalíf hjóna í breyttu um-
hverfi. Að sögn höfundar gæti
leikritið gerzt hvar sem er en
Guðmundur er mjög kunnugur
þessum slóðum því hann hefur
starfað sem fararstjóri á Spáni og
Kanaríeyjum í mörg ár. Leikritið
er í frekar gamansömum stíl en
með alvarlegu ívafi, eða nokkurs
konar „grátbrosleikur'* (tragi-
komedia).
Guðmundur hefur skrifað mörg
leikrit og hafa tvö þeirra verið
sýnd í Þjóðleikhúsinu, Forseta-
efnið (1964) og Lúkas (1975).
Önnur hafa verið sýnd viðs vegar
um landið.
Leikstjóri Sólarferðar er
Brynja Benediktsdóttir en leik-
myndahöfundur Sigurjón
Jóhannsson. Með aðalhlutverk
fara Þóra Friðriksdóttir, Róbert
Arnfinnsson, Guðrún Stephensen
og Bessi Bjarnason.
t tengslum við leikritlð er
sýning á sólarlandamálverkum
Tryggva Ölafssonar í andd.vrinu.
Ennfremur ntunu Eyþór Þorláks-
son og 13 ára sonur hans, Sveinn.
leika suðræna tónlist f.vrir
sýningu og i hléi í anddvri leik-
hússins og Kristalssal.
Þetta er fyrsta uppfærsla leik-
ritsins og að sögn Brynju
Benediktsdóttur liggur mikil og
skemmtileg vinna að baki slíkri
frumuppfærslu. Nokkur óvenju-
leg atriði eru í henni. Má þar
nefna að feðgarnir Þórarinn
Guðmundsson og Ríkharð
Þórarinsson, sem báðir hafa starf-
að að tjaldabaki um árabil, koma
fram á milli atriða við steypu-
vinnu, 1 þeim tilgangi einum að
framkalla sem mestan hávaða. Þá
kemur ungt skáld, Sigurður Páls-
son sem stundað hefur nám í leik-
húsfræðum í París undanfarið,
nú fram í fyrsta skipti á leiksviði.
Þjóðleikhúsið býður nú sem
fyrr upp á áskriftarkort, bæði á
litla og stóra sviðið, en sala þeirra
mun standa fram að fyrstu frum-
sýningu á hvoru sviðinu um sig.
Að sögn forráðamanna virðast
vinsældir áskriftarkorta sifellt
vera að aukast og er því hver
síðastur að ná í eitt slíkt fyrir
þetta leikár. —JB
Húsmœður ekki
nógu harðar
— við að mótmœla verðhœkkunum
Islenzkir neytendur, og pá et
til vill ekki sízt íslenzkar hús-
mæður, hafa ekki látið verð-
hækkanir nægilega til sín taka
er álit Húsmæðrafélags Reykja-
víkur. Það skorar á þessa aðila
að mótmæla óeðlilegum hækk-
unum á nauðsynjavöru.
Mótmælin ná bezt tilgangi
sínum með því að fólk dragi úr
neyzlu ýmissa vörutegunda sem
þegar eru orðnar óeðlilega
dýrar. Engan veginn er nóg. að
framkvæmdanefnd Húsmæðra-
félags Re.vkjavíkur. sem aðeins
er skipuð 7 konum, láti þessi
mál til sín taka. Neytendur
verða sjálfir að leggja hér hönd
á plóg svo að árangur náist.
Nefndin telur það mikla
framför gagnvart ne.vtendum,
ef kaupa má mjólk og mjólkur-
afurðir í nýlenduvöruverzlun-
um og lýsir jafnframt þeirri
skoðun sinni að ekkert sé því til
fyrirstöðu að Mjólkursamsalan
geti áfram starfrækt mjólkur-
verzlanir þar sem þess gerist
þörf.
—EVl