Dagblaðið - 22.09.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 22.09.1976, Blaðsíða 6
DACiBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1976. 6 Hcr heldur einn flugræningjanna, frú Juiiana Schuitz um ö\l eins farþeganna með Boeing 727 flugvélinni, sem hún rændi ásamt manni sínum og þremur til viðbótar. Króatarnir fímm koma fyrír rétt á nœstunni Króatarnir fimm, sem rændu Boeing 727 flugvél frá flug- félaginnu TWA og lentu m.a. á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Parísar, voru ákærðir í New York í gærkvöld fyrir aðgerðir sínar. Alríkisdómur ákvað að þeir skyldu koma fyrir rétt eftir að flugstjóri TWA vélarinnar og flugþjónn höfðu vitnað gegn Króötunum. Flugræningjarnir fimm munu koma fyrir rétt síðar í þessari viku eða í byrjun þeirrar næstu. Þeir sitja allir í haldi og verða ekki látnir lausir nema gegn einnar milljón dollara tryggingu hver. Pakistan: Krafízt rannsóknar á ólöglegrí landgöngu 600 Pakistana UMMÆLICARTERS íPLAYBOY VALDA MIKLU FJAÐRAFOKI — og ekki talið ólíklegt að eitthvað sé athugunar vert við kosningaframlög þegar frambjóðendur reyna að höfða til allra, gætu ummæli hans orðið til að fæla frá kjósendur í smábæjum og borgum víðsvegar um landið. Auk þess kann svo að fara að einhverjar konur telji ummæli hans bera með sér fordóma- fulla afstöðu gagnvart konum. Keppinautur Carters, Ford forseti, er einnig miðdepill deilu. Því hefur verið haldið fram að kosningaframlög í heimahéraði hans kunni að varða hann á einhvern hátt. Verið er að kanna þessar ásak- anir. Ford hefur einnig viður- kennt, að hann hafi leikið golf nokkrar helgar í boði banda- ríska stórfyrirtækisins U.S. Steel. Carter hefur engar áhyggjur af Playboy viðtaiinu. í gær og í morgun sat hann fundi með ráðgjöfum sínum og bjó sig undir sjónvarpseinvígið við Ford forseta annað kvöld. í heimabyggð Fords forseta Aðstoðar- og samstarfsmenn Jimmy Carters, forsetaefnis bandariska Demókrataflokks- ins, gera sér nú miklar vonir um að umdeilt viðtal hans við tímaritið Playboy muni í eitt skipti fyrir öll drepa hug- myndir manna um „fáfróðan hnetubóndann frá Georgíu". Carter, sem varð auðugur maður á hneturækt í Plains í Georgíu, sagði í viðtali við Play- boy (októberhefti), að han hefði haldið framhjá mörgum sinnum en aðeins í hjarta sínu. Hann taldi sig ekki eiga reiði hins almáttuga yfir höfði sér fyrir slíkan hugsunarhátt. Einn aðstoðarmanna hans sagði í Plains í gærkvöld, að hann gerði sér góðar vonir um að viðtalið myndi hafa góð áhrif á afstöðu fólks gagnvart Carter. Fréttaskýrendur hafa bent á, að yfirlýsingar Carters í Playboy muni i ákveðnum hópum ekki vekja sérstaka eftirtekt en á kosningaári, Carter hefur engar áhyggjur af fjaðrafokinu vegna við- taisins í Playboy. 100 ÞUSUND POLITISKIR FANGAR í INDÓNESÍU Mannréttindasmtökin Amn- esty International hyggjast á næstunni hefja baráttu fyrir frelsi um 100 þúsund pólitískra fanga í Indónesíu. Yfirmaður samtakanna í Bandaríkjunum sagði í New York í gær, að barátt- an yrði þríþætt. Fyrst og fremst verður reynt að hafa áhrif á bandaríska utanríkis- ráðuneytið, þingið og fyrirtæki sem skipta við Indónesíu. Þá verður haft samband við indónes- íska sendiráðið og farið fram á lista með nöfnum allra pólitískra fanga á eyjunum og skýrslur um ástand þeirra. Auk þess munu opinberir embættismenn í Indó- nesíu fá sendar áskoranir, um að láta fángana lausa, frá um 100 Amnesty International hópum í Bandaríkjunum. Amnesty International deildin í London hyggst einbeita baráttu sinni að því að um 11.000 pólitísk- um föngum á eyjunni Buru verði sleppt. Fangarnir á Buru eru þjakaðir af sjúkdómum. Þeir lifa mestmegnis á hrísgrjónum, en þegar erfitt er í ári verða þeir að éta rottur, snáka og alls konar skordýr til að halda lífi. Amnesty International er kunnugt um að stjórnvöld í Indónísíu liyggist senda 10.000 fanga til Buru fyrir árið 1978. Fangar á eyjunni eru í svokallaðri öryggisgæzlu. Mannréttindasamtökin sendu nefnd til Indóncsíu í fyrra til að kanna ástand fanga þar. Sú nefnd komst að þeirri niðurstöðu að pólitískir fangar þar væru um 100 þúsund. — Baráttan fyrir frelsi þeirra hefst í næsta mánuði. í Arabalýðveldunum Ríkistjórn Pakistan hefur fyrirskipað rannsókn á tilraun til að setja ólöglega rúmlega 600 Pakistani á land í Sameinuðu Arabalýðveldunum við Ómanflóa. Að minnsta kosti þrjátiu þeirra biðu bana í tilrauninni. Pakistanska fréttastofan skýrði frá þessari rannsókn í gærkvöld. Fréttastofan hafði eftir áreiðanlegum heimildum, að óprúttnir „agentar" hafi blekkt saklausa fátæklinga um borð í skipin tvö, sem alls fóru með 1150 ólöglega innflytjendur til Araba- landanna. Pakistanska stjórnin hefúr krafizt þess, að sendinefnd hennar í Abu Dhabi skili sér skýrslu um málið þegar í stað. Lík Pakistananna þrjátíu, sem dóu í tilrauninni til að setja hina ólöglegu innflytjendur á land á mannlausri strönd Ömanflóa, voru grafin í Islamabad i gær. Skipstjórar skipanna tveggja sögðu þeim sem eftir voru um borð að stökkva í stjóinn þegar lögreglubátur kom að þar sem verið var að setja karla konur börn og gamalmenni á land á ströndinni snemma á mánudags- morguninn. Bliullo. forsælisráðherra Pakislan. með nokkrum þegna sinna: ekki vilja allir vera um kvrrl. ÁREKSTUR Á NAT0-ÆFINGU Flugvélamóðurskipið John F. Kennedy (fyrir ofan) og tundurspillirinn USS Bordelon (að neðan) rákusl á á NATO æfingunuin Teamwork 76 fyrir nokkrum dögum. Areksturinn varð úti fvrir Norður-Skotlandi. Engir týndu lifi. en sex inanns slösuðust uin borð í Bordelon, — þar af tveir alvarlega. Frainhiuti Bordelons og möstur skemindust mikið. en ekki er getið um skenundir á J.F. Kennedy.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.