Dagblaðið - 23.09.1976, Síða 14
1-t
Rœður nú
öðrum heilt
Brezki ráðherrann, John
Profumo, sem neyddist til þess
að segja af sér, þegar upp
komst um samband hans við
gleðikonuna Christine Keeler á
sínum tíma, hefur fengið auka-
starf. Hann er ráðinn við
Capital útvarpsstöðina og er
einm af fimm mönnum, sem
gefa fólki i vandræðum góð ráð.
Liggan tók ó móti
„löggunni“
Þegar vinur okkar Peter
Falk kom til Parísarborgar á
dögunum tók lögregiuþjónn á
móti honum á flugvellinum.
Peter Falk — eða Columbo—
hafði ekki gert neitt af sér. Lög-
reglumaðurinn vildi aðeins
hitta persónulega manninn,
sem hafði gert hann heims-
frægan, en lögregluþjónninn
hét einmitt Columbo!
Bergman til
Þýzkalands
Ingmar Bergman, hinn frægi
leikstjóri Svía, ætlar sér nú að
hafa fast aðsetur í Þýzkalandi.
Hann heiðraði Svíþjóð raunar
með nærveru sinni í sumar, en
segist alls ekki geta búið eða
unnið í „þannig“ landi.
Heldur upp ó
60 óra starfsafmœli
Fred Astaire hefur nýlega
haldið upp á 77 ára afmæli sitt
og eftir nokkra mánuði á hann
60 ára starfsafmæli.
Hefði ótt að vera
ó matarkúr
Málverkið fræga af Mónu
Lisu hinni dularfullu hefur nú
enn á ný orðið umræðuefni
manna á meðal. Japanskur
næringarfræðingur hefur
komið fram með þá kenningu
að fyrirmyndin hafi einkenni
mikillar blóðfitu. Hvítan I
augum hennar er gulleit. Hún
hefði átt að vera 1 ströngum
matarkúr!
HUN
GETUR
SVARAÐ
FYRIR SIG
Birgitte Bardot hefur lengi
hjft orð á sér fyrir að geta
svarað vel fyrir sig. Nýlega
fékk hún biðilsbréf frá
brasiliskum margmilljóna-
mærinpi.
1 bréfinu lýsir milljóna-
mæringurinn þvi að hann hafi
hugsað sig vandlega um áður
en hann lagði út biðilsbréfa-
skriftirnar og hafi nú ákveðið
að biðja ungfrúna að giftast
sér.
Hann segist eiga ótaldar
milljónir Bandaríkjadala. Af
eiginkonunni tilvonandi vilji
hann fara fram á að hún hafi
yndi af hljóðlátum kvöldum
heima fyrir, hlusti á hann segja
frá eða þegi með honum ef svo
ber undir. Þar að auki fer hann
fram á að um ævilangt hjóna-
band verði að ræða.
Bréfið sem Birgitte skrifaði
milljónamæringnum var miklu
styttra en biðilsbréfið. Það
hljóðaði á þessa leið:
Hlusta? Þegja? Ævilangt
hjónaband?
Þú skalt fá þér hund!
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976.
iiiiiiHtiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Hér er ég í fyrstu leðurfötunum í fyrsta raun-
verulega hlutverkinu mínu í kvikmyndinni
„The Big Trail“, sem var fjögurra milijón doll-
ara mistök.
Michael Wayne var ávöxtur af fyrsta hjónabandi mínu með
Josephine Saenz.
Sveitadrengurinn sem
varð að haiðsoðnum
kvikmyndaleikara
Hann hefur verið goðsögn í kvik-
myndaheiminum í meira en hólfa öld
Hann ber þess stundum
merki að aldurinn er að færast
yfir hann. I lok erfiðs dags eftir
miklar kvikmyndatökur má sjá
þreytudrætti á andliti hans. En
það varir ekki lengi. 50 ár hefur
hann verið í sviðsljósinu, og
hann hefur eflzt við hverja
raun.
1907 var piltur einn í mið-
vesturríkjum Bandarikjanna
skírður Marion Michael Morri-
son. Ekki hefur þetta nafn
verið drengnum neinn fjötur
um fót. t 25 ár hefur hann verið
eitt msta aðdráttaraflið sem
kvikmyndahús hafa haft upp á
að bjóða.
Fyrir þrettán árum lifði
hann af mikla lungnaaðgerð og
síðan hefur hann smám saman
minnkað við sig vinnuna
þannig að vinnutími hans
nálgast nú vinnutíma venjulegs
miðaldra manns. Nýjasta mynd
hans, The Shootist, er um
byssumann sem þjáist af
krabbameini. Hann gerir út
herferð gegn bófaflokki einum.
Jón neitar öllum getgátum um
að myndin sé eitthvað táknræn
fyrir hann.
„Mér fannst sagan fjári góð
og hún hafði á mörgum áhuga-
verðum persónum að skipa. Ein
ungis þess vegna ákvað ég að
gera myndina. Og ég er ekkert í
þann veginn að hætta— langt
frá því.“
Skapgerð hans er marg-
breytileg, aðra stundina er
hann hlýlegur og opinskár per-
sónuleikij, hina stundina er
hann innibyrgður og fáskipt-
inn. Nú hættir honum til að
skipta skapi, sérstaklega í lok,
erfiðs vinnudags, en heima við
er hann alltaf jafnljúfur og af-
slappaður.
Wayne er skilinn við þriðju
konu sína, Pilar. Skilnaðurinn
fór mjög vinsamlega fram og
hann býr ennþá i húsi þeirra í
Newport. Pilar hefur flutt í
nýtt hús sem er nær klúbbnum
þar sem hún spilar tennis.
Heimil John Wayne er fullt
af alls konar gripum sem minna
á velferó hans í kvikmynda-
heiminum. Honum virðist líða
vel þarna og börn hans koma
næstum um hverja helgi til að
dveljast hjá honum.
John Wayne er ekki einn af
þeim sem lifir í fortíðinni en þó
Hann hefur verið goðsögn i
kvikmyndaheiminum i meira
en 50 ár og i Hollywood er þessi
kúrekahetja kölluð hertoginn.
Hér á eftir fylgir frásögn hans
ásamt myndum úr fjölskyldual-
búminu.
gaf hann sér tíma til að rifja
upp gamlar minningar og fletta
upp í gömlum myndaalbúmum.
„Þau tvö ár, sem foreldrar
mínir bjuggu á sendinni eyði-
mörk í Kaliforníu reyndust
hjónabandi þeirra ofviða,“
sagði Wayne. „Ekki er hægt að
ímynda sér hve erfitt lífið þar
var. Móðir min var sterkbyggð
kona en lífið reyndist jafnvel
henni of erfitt. Eftir að þau
skildu stjórnaði hún aug-
lýsingaherferð fyrir stjórn-
málamann í smábæ einum.“
Þegar John Wayne var ungur
maður, vakti hann aðallega at-
hygli fyrir færni sína í amerísk-
um fótbolta. Fólki hættir til að
gleyma því að hann náði góðum
námsárangri í Glendale High
School og fékk styrk til náms í
hinum fræga bandaríska skóla
Yale þótt hann kysi heldur að
fara í háskólann í Suður-
Kaliforníu.
Það var fótboltinn sem varö
þess valdandi að hann fór í
kvikmyndaiðnaðinn. Nokkrir
úr liði því sem hann lék í, voru
fengnir til að vera staðgengnlar
frægra leikara í myndinni
Brown At Harvard, og John'
Wayne var staðgengill eins
fremsta leikara þeirra daga,
Francis X. Bushman jr.
Næsta sumar tókst honum að
fá vinnu sem burðarmaður hjá
kvikmyndaverinu. Hann
rogaðist með vélar og dót fyrir
leikstjórann John Ford. Þar
hófust ævilöng kynni þeirra og
virðing þeirrahvors fyriröðrum.
John Wayne var að störfum
fyrir Ford þegar leikstjórinn
Raoul Walsh, sem vann þá fyrir
Fox Films, kom auga á hann og
réð hann til að ieika aðalhlut-
verkið í The Big Trail. Walsh
og Ford voru Wayne að skapi,
harðir í horn að taka og ekki
með neitt fuður. Þeir voru
menn sem komu hlutunum i
verk, og vissu hvað veikleiki
var en höfðu engan tima fyrir
hann.
Þótt myndin The Big Trail
væri gjörsamlega misheppnuð
þá missti John Wayne ekki
áhugann á kvikmyndaleik og
hann var kominn út á þá braut
sem gerði hann að einum af
beztu leikurum sem á lífi eru í
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll