Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 3
3 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1976. TANGO OG CHA - CHA Á HÁALOFTINU - HVÍTIR DÚKAR, KERTAUÓS OG RÓMANS B.S. skrifar: „Háaloftió hans Sigurðar Hreióars sl. laugardag olli ekki vonbrigðum. Úttekt han’s á notagildi danskennslu hér- lendis var bráðskemmtileg í aðra röndina. Á hinn bóginn var hún bókstaflega raunaleg. I stuttu máli: Fjöldi manna og kvenna leggur bæði tíma og peninga í það að læra að dansa samkvæmisdansa. Þegar til kastanna kemur á almennum skemmtistöðum, þá kemur í ljós, að enginn viðstaddur kann þessa dansa. Sem sagt allt í steik, nema dansskólarnir. Þar eru þessir dansar stundaðir, en hvergi annars staðar. Þetta er hér um bil alveg laukrétt. A þessu sviði er Sigurður Hreiðar eins og Kolumbus. Leifur heppni var búinn að koma auga á þessi skringilegheit löngu áður. Hér i bænum starfar nefni- lega Samkvæmisdansaklúbbur. Þar er dansað djæv, tango, skottís, cha, cha, cha með sveiflu, auk einfaldari dansa svo sem sló fox og valsa. Vetrar- starfsemin er hafin og síðastliðið laugardagskvöld, þegar Háa- loftið fann ekkert nema ein- mana stjákl, dunaði dansinn í Samkvæmisdansaklúbbnum. Brautarholti undirágætismúsík Þarna eru sýningaratriði kunnáttufólks úr dansheimin- um, hvítir dúkar á borðum, kertaljós og rómans meó blóm- um. Þarna er eins og maður sé kominn á gömlu góðu Borgina, sem er að sækja sig aftur með Hauki Morthens, eða Vivex eða National Scala með Svend Amundsen. Já Sigurður minn, drífðu þig með þina elskulegu ofan af Háaloftinu eitt laugardags- kvöld og líttu inn í Samkvæmis- dansaklúbbinn. Fyrr en þú gerir það hefurðu ekki séð það, sem þú leitar að. Þarna er engin skylda að dansa eftir for- skrift, en margir gera það. En ef þú skyldir vera farinn að kunna við stjáklið, þá er það líka öllum heimilt. Blessaður líttu inn og prófaðu hvað þú manst frá Rigmor og Sigurði." \ Kvíðirðu komu vetraríns? Ingibjörg Pétursdóttir verka- kona: Nei, nei. Ég hugsa að þessi vetur verði ekkert verri en sá síðasti. Annars er maður orðinn svo vanur kuidanum að maður kippir sér ekki upp við neitt. Fjóia Einarsdóttir húsmóðir: Nei, alveg örugglega ekki. Fáum nokkra slökkviliðsbila á þetta svokaiiaða Hallærisplan og sprautum á skrílinn, segir gömul kerling sem alin er upp í sveit. SPRAUTIÐ Á SKRÍLINN, ÞAÐ ER ÞAÐ EINA SEM DUGIR Hvernig er með þessar útsendingar ó fimmtu- dögum? Ólafur Halldórsson hringdi: „Hvernig er það með þetta fólk sem fór i verkfallið hjá sjónvarpinu, ætlar það ekki að sjónvarpa á fimmtudögum? Fólkið var búið að bjóðast til þess og hvers vegna fram- kvæma þessir menn þetta þá ekki. Ef ekki verður sjónvarpað á fimmtudögum, þá finnst mér alveg sjálfsagt að við sjónvarps- notendur fáum endurgreiddan hluta af afnotagjaldinu.“ Kerling, sem var alin upp í sveit, skrifar: „Eg hef verið að lesa um þessi læti á gamla Hótel íslandsplaninu, sem þeir kalla nú Hallærisplanið. Ég á ekki orð yfir þessi ólæti. Hvað hefur komið fyrir uppalendur þessa lands? Þessir unglingar kunna hreint enga mannasiði og ég er viss um að þeim hafa aldrei verið kenndir neinir.Það þarf enginn að segja mér að þetta séu svona heimsk grey, þau hljóta að skilja muninn á réttu -og röngu. Það eru alltaf innan um börn, sem alls ekki er hægt að tala við, — þau eru í raun og veru svo treggáfuð. Þorrinn af þessum krökkum er ekki þannig. Fyrst þessir unglingar hafa hagað sér eins og hver annar skríll þá á að tala við þau eins og skríl. Það á sem sagt ekki að tala við þessa unglinga. Það er ekki hægt, þau eru of heimsk til að hægt sé að eyða orðum á þau. Það eina sem hægt er að gera er að fá slökkvibíl næst þegar skrílslætin standa sem hæst og sprauta vatni á þessa grislinga. Ætli þeim yrði ekki hverft við þegar þau stæðu í vatnsgusunni. Eina ráðið til að halda fress- köttunum heima er að vana þá Hildegard Þórhallsson hringdi: „Það er svo mikið af villikött- um hér í Reykjavík og nú þegar vetur gengur í garð verður vistin hjá þeim væntanlega slæm. Það er ömurlegt að sjá þessar skepnur skinhoraðar og illa til reika. Kattagre.vin væla fyrir utan húsið hjá manni. þar til einhver sér aumur á þeim og 'efur þeim eitthvað að éta. Það er einnig fjöldinn allur af heimilisköttum, sem týnist og finnst aldrei. Sérstaklega er þetta slæmt með fressketti. Þeir þvælast út um allt. Eina ráðið til að halda þeim heima er að láta vana þá. Það er alveg sjálfsagt að láta gera það, ef fólk vill halda í heimilisköttinn sinn. Það losnar við allt flakk og að gera út leiðangra til að leita að týnda heimilisvininum. Mér finnst að ef bílstjórar keyra yfir ketti. þá geti þeir látið vita. Það er auðvitað ekki hægt ef kötturinn er ekki merktur, en ef hann er merktur þá hafa þeir enga afsökun. Þeir verða að láta vita.“ Bílstjórar sem aka yfir merkta ketti eiga skil.vrðislaust að til- kynna eigendunum það; Kristján Bjarnason nemi: Nei, ekki nokkurn skapaðan hlut. Ég hef alls engar áhyggjur af kuld- anum. Björgvin Jensson vörubílstjóri: Nei, ætli það. Maður verður bara að taka þvl sem kemur. Anna Arnadóttir verkakona: Nei, nei. Mér er ekkert svo átakanlega illa við snjóinn og kuldann. Sveinn Guðnason. ekur áætlunar- bílnum milli Rvk og Keflavikur. Já. ég geri það. Maður er alltaf hálfsmeykur við hálkuna.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.