Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 24
HEILBRIGDISRÁÐHERRA
HUNDSAÐIÞRÍVEGIS ÁLIT
frjálst, úháð datjjhlað
LAUGARDAGUR 9. OKT 1976.
„Við skukim slótra máfínu"
— segir Halldór E. Sigurðsson
„Ég mun ekki svara því hér,
heldur mun ég gera það á
Alþingi, þar sem hann getur
svarað fyrir sig,“ svaraði
Halldór E. Sigurðsson, land-
búnaðarráðherra spurningunni
um það, hvaða álit hann hefði á
þingmanni, sem lýsti því yfir,
að hann myndi hafahoð og bönn
ráðuneytis að engu. „Ég hélt
ekki, að þetta yrði slíkt
stórmál og ákvörðun mín um að
veita undanþágu er byggð á því
að ég vildi firra vandræðum og
auk þess höfðu dýralæknar
ekki lagzt gegn því, að
sláturhúsi Slátursamlags Skag-
firðinga yrði veítt sú undan-
þága sem veitt er til eins árs og
felur í sér heimild til þess að
slátra 3000 fjár á þessu
hausti. “
Ráðherra hélt blaðamanna-
fund i gær, þar sem hann
skýrði sjónarmið sín í „Slátur-
málinu" og vildi fyrst og fremst
leggja á það áherzlu, að ekki
hefði verið um neina valdníðslu
að ræða frá ráðuneytsins hálfu,
að eina, sem gert hefði verið
var að fara að settum reglum.
Lögum samkvæmt væri eftirlit
með sláturhúsum mjög strangt
hvað varðaði alla gerð þeirra og
starfsemi, og væri það því
stefna stjórnvalda, að fækka
þeim tii þess, að unnt væri að
reisa færri en fullkomnari
sláturhús, sem væru mun af-
kastameiri en þau smærri. Þá
væri stærsta atriðið ótalið, en
það væru hreinlætissjónar-
miðin.
„Við flytjum út kjöt í æ
ríkari mæli og alltaf er verið að
gera strangari kröfur um hrein-
læti bæði erlendis og hér
'heima,“ sagði Halldór.
„Sláturhús sem fullnægja eiga
þeim kröfum eru dýr í
byggingu og verða því að hafa
meiri umsvif til þess að þau
beri sig.“
Það kom fram á fundinum
að 56 sláturhús eru skráð hér á
landi. en af þeim eru 30 á
undanþágu. Verða þau le.vfi
tekin til endurskoðunar á þessu
ári, en heimild til þess að veita
slíkar undanþágur rennur út
samkvæmt lögum nú um ára-
mót. Ekki kvaðst ráðherra
tilbúinn að tjá sig um það,
hvort þau lög verði framlengd.
„Ég legg þvi til, að máli þessu
verði slátrað," sagði ráðherra
að lokum.
Dagblaðið hafði samband við
Eyjólf Konráð Jónsson, for-
mann stjórnar Slátursam-
lagsins, og spurði hann um álit
hans á málinu: „Mér fínnst
máli þessu vera aflokið og vil
ekki segja neitt meira um
það." -HP.
— segir Jón Björnsson slóturhússtjóri
,„Það er nú eiginlega búið að
draga okkur svo lengi á þessu,
að við erum búnir að missa af
haustvertiðinni," sagði Jón
Björnsson, sláturhússtjóri
Slátursamlags Skagfirðinga í
viðtali við Dagblaðið í gær. „En
svo virðist sem margir bændur
hafi beðið eftir okkur með
sláturfé sitt, því við höfum nóg
að gera og slátrun hefur gengið
vel á þessum fyrsta degi.“
Jón sagði, að miklu hefði
verið til kostað til þess að mæta
kröfum yfirdýralæknis en ekki
vildi hann tilgreina nánar,
hversu háar þær fjárhæðir eru.
Þá sagði Jón að aygljósir
kostir væru að hafa tvö
sláturhús, sérstaklega ef flýta
þyrfti slátrun á slæmu hausti.
„Bændur báðu um þe{ta og þess
vegna réðumst við í fyrir-
tækið.“ sagði Jón.
„Við munum auðvitað ekki
gefa neitt eftir,“ sagði Jón að
lokum, er hann var spurður að
því. hver framtíð sláturhússins
yrði, eftir að undanþágan rynni
út.
— HP.
SERFRÆÐINGA
Hefur veitt þrjú lyfsöluleyfi
að eigin geðþótta
Pólýfón
syngur
Halldór E. Sigurðsson vætir
kverkarnar með ískö ldu
Gvendarbrunnavatni á blaða-
mannafundi í gær. (DB-mynd
Arni Páll).
fyrir Decca
„Þetta er víst einhver dýr-
asta framkvæmd sem hljóm-
plötufyrirtækið Decca í
London hefur lagt í, að flytja
svona stóran kór svona langa
leið, en ákveðið hefur verið að
Pólýfónkórinn syngi á rúss-
nesku inn á plötu fyrir D'ecca,“
sagði Friðrik Eiríksson, for-
maður Pólýfónkórsins í viðtali
við DB.
„Það er Vladimir Ashkenazy
sem hefur haft milligöngu um
þessa framkvæmd og verkið
sem kórinn syngur er
Litúrgisk messa eftir
Rahmaninoff — agatella, eóa
án undiriks.
Kórinn hefur notið ómetan-
legrar aðstoðar Arna Berg-
manns og konu hans, sem er
rússnesk, við framburðinn.
Einnig hafa þau hjálpað til við
að skrifa orðin á okkar letri.
Árni kemur á æfingar til
okkar og leiðbeinir.
Messan sem við flytjum
hefur ekki verið hljóðrituð
áður á rússnesku. Æfingar eru
hafnar af fullum krafti, og ráð-
gert er að kórinn haldi utan
um miðjan desember til upp-
tökunnar.“
— Fáið þið ekki vel greitt
fyrir þetta?
„Ég held að við fáum enga
peninga fyrir þetta, en að sjálf-
sögðu greiðir Decca allan
kostnað, sem af þessu hlýzt. En
við teljum þetta geysilega
viðurkenningu fyrir kórinn og
það er okkur nóg.“
— Eitthvað meira á döfinni
hjá ykkur?
„Kórnum hefur verið boðið
að syngja í sex eða sjö borgum
á Italíu næsta sumar,“ sagði
Friðrik Eiríksson.
— A.Bj.
1 sumar hafa lyfsöluleyfi í
þremur apótekum á landinu
verið auglýst laus til umsóknar
og síðan verið veitt. I engu
tilfellanna fór Matthias Bjarna-
son, heilbrigðismálaráðherra,
að tillögum sérfræðinga, sem
samkvæmt lögum eiga að raða
umsækjendum í röð eftir
reynslu þeirra og starfsaldri.
Sérfræðingarnir sem raða
eiga umsækjendunum upp eru
annars vegar tveggja manna
nefnd, skipuð fulltrúum lyfsala
og lyfjafræðinga og hins vegar
landlæknir. I öllum tilfellunum
þremur voru umsagnar-
aðilarnir sammála um
niðurröðun umsækjenda og
þannig fékk Matthías Bjarna-
son ráðherra í hendur lista yfir
umsækjendur í tölusettri röð. I
öllum tilfellunum virti ráðherr-
ann umsagnir sérfræðinganna
að vettugi og valdi „sína menn“
að eigin geðþótta.
Er þetta enn eitt dæmið um
valdníðslu ráðherra í embættis-
veitingum. Lögin fela honum
embættisveitingarnar, en þau
mæla líka fyr|r að áður skuli
álits áðurnefndra sérfræðinga
leitað. En álit sérfræðinganna
mun ekki hafa hentað ráðherra
í þessum tilfellum.
Lyfsöluleyfin sem auglýst
voru laus til umsóknar í sumar
voru á Egilsstöðum, í Nes-
kaupstað og Ingólfs apótek í
Reykjavík.
Á Egilsstöðum voru
umsækjendur fimm. Sér-
fræðingarnir skipuðu þremur í
röð 1, 2 og 3 þannig: Einar
Benediktsson, Hjálmar Jóels-
son og Vigfús Guðmundsson.
Ráðherra veitti Hjálmari Jóels-
syni embættið.
I Neskaupstað sótti Einar
Benediktsson aftur um og
einnig Vigfús Guðmundsson.
Aftur settu sérfræóingarnir
Einar í efsta sæti og Vigfús í 2.
sæti. Ráðherra veitti Vigfúsi
embættið.
Er kom að veitingu Ingólfs
apóteks í Reykjavík setti
umsagnarnefnd lyfsala og lyfja-
fræðingafélagsins Ingólf
Lilliendahl apótekara á Dalvík
í efsta sæti og Werner Ras-
musson í 2. sæti. Landlæknir
var sammála þessari niður-
stöðu. Ráðherra veitti Werner
Rasmussyni embættið.
Einar Benediktsson, sem
hefur þannig í tvígang á þessu
ári orðið fyrir valdníðslu
ráðherra, tók kandidatspróf
1967. Hann starfaði við
lyfsöludeild íyfjadeildar
Pharmaco til vors 1973. Það
sumar starfaði hann hjá lyfja-
eftirlitinu en frá hausti 1973
hefur hann verið lyfja-
fræðingur ríkisspítalanna með
fullri ábyrgð. Hann mun ekki
sömu stjórnmálaskoðunar og
ráðherra.
Efstu umsækjcndur um
Ingólfs apótek eru bekkjar-
bræður og kandidatar sama ár
eða 1963. Hefur Ingólfur
Lilliendahl rekið lyfjabúð á
Dalvík með fullri ábyrgð en
Werner starfað hjá öðrum í
Reykjavík. Tíðkazt hefur að
þyngra sé á metum við
leyfisveitingar rekstur
lyfjasölu úti á landi um árabil
en störf hjá öðrum í Reykjavík.
Um slíkt hirti ráðherra ekki nú,
„og þó ráðherra hafi veitingar-
valdið er óeðlilegt að hann sé að
hræra i málum að eigin geð-
þótta, gegn samdóma áliti sér-
fræðinga,“ komst einn lyfja-
fræðingur að orði i samtali við
DB.
-ASt.
Guðjón ekki
búinn að lesa
blaðið
Dagblaðið sneri sér síðdegis
í gær til Guðjóns Styrkárs-
sonar, hrl., stjórnarformanns
Flugfélagsins Vængja hf.,
vegna greinar og frétta um
félagið í blaðinu í gær.
Guðjón sagðist ekki hafa séð
blaðið og vissi því ekki um
hvað væri að ræða. Hann tók
ekki illa i þá hugmynd að hann
renndi augum yfir blaðið, ef
hann rækist á það, og ræddi.
síðan aftur viö fréttamann
blaðsins eftir helgina.
I grein DB í gær sagði m.a.
Srá því, að grunur léki á að
lljárdráttur hefði átt sér stað
hjá Vængjum hf„ og að marg-
víslegar stjórnarathafnir hafi
farið fram án samþykkis lög-
legrar stjórnar.
— ÓV.
Vœngir biðja
um 30 millj.
úr Byggða-
• r x •
S|00l
Flugfélagið Vængir hf.
hefur óskað eftir því við
Byggðasjóð að fá 30 milljón
króna lán úr sjóðnum, einkum
með tilliti til þess þýðingar-
mikla hlutverks, sem Vængir
gegna við landsbyggðina. Um-
sókn félagsins, sem er dagsett
20. ágúst 1976, er studd um-
sögnum og meðmælum ein-
staklinga og samtaka viða um
land, að sögn Guðmundar
B. Olafssonar, framkvæmda-
stjóra Byggðasjóðs.
Sjóðstjórnin hefur ekki
komið saman til fundar síðan
27. ágúst á Isafirði, og ekki
taldi Guðmundur líklegt að
fundir hæfust á ný fyrr en
undir mánaðamótin, þannig að
umsókn stj. Vængja hf. hefur
ekki verið tekin fyrir.
— ÓV.
„Erum núnast búnir að missa af vertíðinni"