Dagblaðið - 09.10.1976, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER 1976.
5
Þing norrænna gigtarfélaga var haldið í Reykjavík í sumar er leið. Þarna er íslenzka undirbúnings-
nefndin á fundi með forsvarsmönnum norrænu félaganna.
SAMTÖK GIGTVEIKRA VERÐA STOFNUÐ í DAG
Vélprjónasamband íslands
Hvetur fólk til þess að
koma út úr skelinni
Það er ýmsa eigulega muni að fá á sölusýningu Vélprjónasam-
bandsins, sem verður i dag í kjallaranum á Hallveigarstöðum.
Db-mynd Sveinn Þormóðsson.
Gigt er sjúkdómur sem líklega
er jafngamall mannkyninu sjálfu,
en gigtsjúkdómar færast mjög í
vöxt og finnst nú gigt í fólki á
öllum aldri.Gigt veldur margvís-
legum þjáningum og er ein al-
gengasta orsök skertrar starfs-
orku, og er því einhver dýrasti
sjúkdómurinn, sem herjar á þjóð-
irnar.
Ríkisstarfsmenn
dragast aftur úr
Kaupmáttur launa ríkis-
starfsmanna hefur síðustu
tæp tvö árin rýrnað 20—25
af hundraði meira en laun á
frjálsum ' vinnumarkaði.
Laun ríkisstarfsmanna eru
30—60 af hundraði lægri en
laun sambærilegra stétta á
almennum vinnumarkaði.
Svo segja ríkisstarfsmenn.
Bandalag háskólamanna
kveðst þurfa að taka upp
„nýjar aðferðir í kjarabar-
áttunni". Boðað hefur verið
til almenns fundar ríkis-
starfsmanna í bandalaginu
12. október.
Þar verða ræddar hug-
myndir um aðgerðir til að fá
kjörin bætt „og koma verk-
fallsréttarmálinu í höfn“.
Bandalagið er nú eina laun-
þegafélagið, sem ekki hefur
fengið samþykktan verk-
'fallsrétt.
1 fréttatilkynningu frá
bandalaginu segir að
heiðarleg röksemdafærsla
virðist hvorki bíta á ríkis-
valdið né kjaradóm.
— HH
Nú hafa alþjóðasamtök gigtar-
félaga í samvinnu við alþjóða
heilbrigðisstofnunina helgað árið
1977 baráttunni gegn gigt.
Laugardaginn 9. október
verður stofnað Gigtarfél. tslands
í Domus Medica klukkan 15.00.
Gigtsjúkdómafélag íslenzkra
lækna hefur forgöngu um þessa
félagsstofnun og hefur fengið til
tiðs við sig ýmsa aðila svo sem
gigtarsjúklinga og fulltrúa ýmissa
heilbrigðisstétta, t.d. sjúkra-
þjálfara, iðjuþjálfara og hjúkr-
unarfra^ðinga.
Gigtarfélagið hyggst ná tilgangi
sínum með því að annast fræðslu
um gigtsjúkdóma og gefa út leið-
beiningarrit fyrir gigtveika, halda
fræðslufundi og fá fjölmiðla til
þess að birta fræðslu um eðli
þeirra og orsakir. Félagið hyggst
einnig beita sér fyrir því að rann-
sóknir á gigtsjúkdómum verði
efldar og bæta aðstöðu til gigt-
lækninga.
Gigtlækningum hefur fleygt
fram á undanförnum árum.
Þekking á sjúkdómnum fer
stöðugt vaxandi, bæði hvað
varðar varnir og lækningu.
„Það eiga ekki allir heiman-
gengt og þá er ýmislegt hægt að
gera heima samhliða því að vera
„bara“ húsmæður eins og svo
niðrandi er talað um þann
starfa."
Þær sem þetta hafa að segja
eru í fyrirsvari fyrir Vélprjóna-
samband íslands, en það er ungur
félagsskapur aðeins þriggja ára
gamall. Stofnendur voru 7, en
félagar eru nú á þriðja hundrað.
Tilgangur félagsins er að efla
samstöðu þeirra mörgu kvenna
sem grípa í prjónavélarnar til
þess að drýgja tekjur heimilisins,
en allt of fáar eru enn komnar í
félagið, sem stendur þó öllum
opið, sem vélprjón stunda.
Sigríður Nordquist sagði að
framleiðsla Vélprjónasam-
bandsins væri öll fyrsta flokks.
Hún hefði verið kynnt í Dan-
mörku og þar væru jafnvel að
opnast sölumöguleikar. Hún sagði >
að þeim fyndist ófært að
söluaðilar hér legðu fyrst
heildsöluálagningu á vöruna og
síðan smásöluálagningu. Þá væri
lítið eftir fyrir félagsmenn að
hafa fyrir sinn snúð. Vissulega
legðu þeir ýmislegt tii fram-
leiðslunnar, húsnæði, rafmagn og
fleira.
Ekki eru „bara“ húsmæður í
félagsskapnum, enda þótt enn sé
þar bara einn karlmaður. Hann er
hátt á áttræðisaldri og prjónar
sokkabuxur og gammosíur í gríð
og erg.
Félagið vill leggja áherzlu á það
að hver kona getur tekið að sér
prjónaskap sjálfstætt fyrir Pétur
og Pál og líka eftir máli og t.d.
myndum, sem menn sýna þeim úr
verðlista.
, 1 dag verður sölusýning að
Hallveigarstöðum á ýmsum verk-
um félagsmanna og getur þá hver
fyrir sig séð hvernig vöruvöndun
er. Verð er vitanlega jafnmis-
munandi og hlutirnir eru margir,
250-3500 kr. Hún er opin frá 2-7.
-EVI
A.Bj.
NÝ VERZLUN í GLÆSIBÆ
MEÐ UNDIR- 0G NÁTTFATNAÐ KVENNA
Nóttserkir fró Ceres, stuttir og síðir. Fallegir nóttkjólar í stœrðunum 40-50
Bómullarbuxur í stœrðum 38 til 50 og bómullar frottébuxur. Þykkir
sportsokkar í kuldann.
VERZLUNIN MADAM Glœsibœ — Simi 83210
GLÆSILEGASTA BILASYNING VOLVO FRAM TIL ÞESSA.
SÝNINGARBÍLAR:
Nú hefur Volvo örugglega bíl fyrir yður.
Komið og skoöið stórglæsilega bílasýningu í Volvosalnum
að Suðurlandsbraut 16.
VOLVOSYNINGIN ER OPIN:
Laugardaginn, 9/10, kl. 14—19.
Sunnudaginn, 10/10, kl. 10—19.
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
I VOLVO 245
CO
VOLVO 343
VOLVO 66