Dagblaðið - 09.10.1976, Side 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. OKTÖBER 1976.
Um veður og
I slðustu viku hófst ný vinnu-
•hagræðing hjá Ríkisútvarpinu
og er alit útlit fyrir að hún hafi
skemmtilegar afleiðingar.
Hófst hún með því að veður-
fræðingar tóku að sér bæði
„Daglegt mál“ og veðurfréttir 1
tvígang, enda bráðskýrir menn.
Á mínu heimili er nú beðið
eftir því að veðurfréttir í sjón-
varpi og jazzþáttur Jóns Múla
verði flutt saman, „Að kvöldi
dags“ og búnaðarþátturinn,
„Nýjasta tækni og vísindi" og
„Afangar“, — og fleiri
kombínasjónir væri eflaust
hægt að hugsa sér. Það var rétt
að láta veðurfræðingana riða á
vaðið, þar sem þeir eru jú eins
konar lykilmenn í þjóðfélagi
okkar. Með frumstæðum
þjóðum eru veðurspámenn
galdramenn, „sjamanar" sem
stjórnað geta regni og vindum.
Okkar veðurfræðingar eru ekki
eins voldugir, enda er enginn
að hafa fyrir þvi lengur að
fórna grís eða hænupútu þeim
til heiðurs. Samt kemur það
ótrúlega oft fyrir að maður
lítur á veðurfræðingana sem
persónugervinga veðursins, eða
þá ábyrgðarmenn fyrir því. Er
það t.d. tilviljun að andvörp
Hlyns veðurstofustjóra og
verstu lægðirnar virðast ávallt
fara saman? Ég er sannfærður
um að svo er ekki og dettur
ekki í hug að trúa þvi þegar
hann spáir léttskýjuðu.
Páll Bergþórsson gerir
veðurspá sína að notalegu
rabbi, oft svo notalegu að
maður gleymir spánni um leið.
Markús Einarsson er svo
heiðarlegur og sannfærandi á
svipinn að mér dettur ekki í
hug að vantreysta því sem hann
segir um veðrið, — verst er að
hann skuli alltaf vera að sýna
þessar óskiljanlegu loftmyndir
úr gervihnöttum. Knútur
Knudsen segir settlega frá og
er mikiö í mun að sannfæra
okkur og Guðmundur Haf-
steinsson er að vinna sér traust.
Annars var mikið um' glæpi
ög mannvonsku í sjónvarpsvik-
unni. Hvað mig snerti byrjaði
hún á mynd um eldsvoða, siðan
kom snertir af afbrotaöldunni.
Ég segi snertir, því ég rétt náði
í skottið á þeim þætti, — og
virtust þátttakendyr þá orðnir
þreyttir. Allavega var málflutn-
ingurinn orðinn loðinn. Ég hef
minar eigin skoðanir á þessari
glæpaöldu, en læt þær ekki i
ljós nema ég fái til þess sjón-
varpsþátt. Sjónvarpið kunni sig
greinilega þetta kvöld, því um-
ræðum fylgdi myndin „A
mannaveiðum". Slæmur vestri.
Ég hélt reyndar að nú væri
bannað að segja „This surah is
purty country" í vestrum.
Á laugardagskvöld var allri
annarri skemmtan og starfsemi
ýtt til hliðar til að horfa á
;,Þrúgur reiðinnar", þetta
meistarastykki John Fords og
Steinbecks. Eins og málum var
háttað í Hollywood var það
kraftaverk að þessi mynd var
glœpi
yfirleitt gerð, enda lentu
margir þeir sem að henni stóðu
síðar fyrir rétti MacCarthys.
AHur leikur var hreint frá-
bæf, ekki aðeins hjá Fonda
karlinum, heldur einnig hjá
Jane Darwell og öllu aukaliði.
Myndatakan var óhemjulega
dramatisk og áhrifamikil, —
útlínur og skuggar manna á
móts við hríslur og hrjóstrugt
land. En Hollywood varð að fá
eitthvað i sinn hlut og er endir-
inn því mun jákvæðari heldur
en gerist í bókinni, þar sem
Steinbeck skilur við sitt fólk I
sömu eymd og volæði og fyrr.
En hann skrifaði aldrei betri
bók.
David Copperfield á sunnu-
dögum er sem fyrr einkar
ásjálegt sjónvarpsefni. Nú
kemur hinn óborganlegi Mr.
Micawber til sögunnar, bjart-
sýnin holdi klædd hvað sem á
reynir; — og Arthur Lowe er
afbragð í hlutverki hans. En
þrátt fyrir þær ýkjur sem
Dickens notar í persónusköpun
bendir allt til þess að lifandi
fólk hafi verið fyrirmyndir
margra sögupersóna. „Tekjur
20 pund, útgjöld 19,6 pund, af-
leiðing: hamingja, — tekjur 20
pund, útgjöld 20,6 pund,- af-
leiðing: volæði“ — þetta ku
vera beint úr munni Dickens
eldra. Ekki má heldur gleyma
hinum lævísa og „auðmjúka"
Uriah Heep. Hér má enginn
missa úr þátt. Sunnudagurinn
endaði allavega á kærleiksrík-
f
I kringum
skjáinn
Aðalsteinn Ingólfsson
an hátt, með skerandi einsöng
og hugleiðingu. A mánudaginn
kom mannvonskan aftur til sög-
unnar í hinu sænska leikriti „A
flótta undan löndum mínum“,
þar sem fjallað var um dvöl
Brechts I Svíþjóð. Svíar hafa
margir státað sig af því að hafa
skotið skjólshúsi yfir flótta-
menn á stríðsárunum. Nú
kemur I ljós að þetta skjólshús
var engan veginn eins traust-
lega byggt eins og haldið hefur
verið og Brecht stóð í sífelldri
baráttu meðan hann dvaldi i
Sviþjóð, enda voru margir nas-
istavinir í skrifstofuveldi Svia á
þeim tíma. Palle Granditsky
var ótrúlega likur skáldinu og
þátturinn sjálfur var leikin
•heimildamynd eins og hún
gerist best. Mikil ósköp hlýtur
■11
svíum að líða illa, hafa það
svona gott — en þjást svo al
slæmri samvisku. Þeir fjölluðu
nefnilega aftur um siðferðileg
vandamál á þriðjudag i Vopmi-
búnaði heimsins og útlitið var
svart. En svo kom Bellmann og
allt virtist gott og skemmtilegt.
Columbo var óvenju ásjáleg-
ur á þriðjudagskvöldið, —
fjallað var um hrokafullan og
dyntóttan skáksnilling. Skýldi
vinur okkar Fischer hafa verið
fyrirmyndin? Allavega sýndi
þátturinn fram á nýja lausn á
endatafli, — að ýta and-
stæðingnum niður ruslaop.
Ég var reiðubúinn til þess að
tyta mér leiðast yfir mann-
fræðiþætti „Kírgisarnir i
Afghanistan“ á miðvikudag, —
en mér til undrunar reyndist
þetta besta drama vikunnar. —
Samtölin við Khaninn, þjón-
ustumann hans og grátur ungu
stúlkunnar yfir þvi að verða
seld upp í ópíumskuldir, — allt
var þetta áhrifamikið, — svo og
myndatakan. Siðan kom
„Brauð og vín“ og þar vandast
málin. Pietro Spina er bæði ráð-
villtur og sannfærður og neitar
að undirrita fordæmingu á
Búkharin fyrir rússneska
kommúnistaflokkinn og segist
ekki samþykkja neitt sem hann
hafi enga reynslu af. Þetta
segir okkur töluvert um sjálf-
stæði italskra kommúnista, sem
alla tíð hafa reynt að fara sínar
eigin leiðir allt frá Gramsci til
Togliatti. Við sáum fasista-
hátið, orðabelging og skrúð-
göngur, — en þetta tvennt var í
raun ftalskur fasismi. Ég
hlakka til þess að sjá hvernig
unnið verður úr endi bókarinn-
SLÁTURTÍÐIN GENGIN í GARD
Niðurlœging gjaldmiðilsins fullkomnuð
Það er táknrænt fyrir stjórn
fjármála í þessu landi, að ein-
mitt í sama mund og hin hefð-
bundna sláturtíð hefst á
þessu hausti er tekið til við að
„rétta“ í íslenzka peningakerf-
inu og færa undirstöðueiningu
þess, krónuna, til slátrunar.
En sl. föstudag, fyrir viku,
birtist krónan, þessi aumkunar-
verði og vesæli gjaldmiðill, al-
menningi í smækkaðri mynd.
Til frekari kynningar á þessari
undirstöðueiningu íslenzka
gjaldmiðilsins birtist mynd af
nokkrum krónum fljótandi í
vatnsglasi. Er það eitt nú talið
henni til gildis, að hún flýtur á
vatni, því um verðgildi hennar
er ekki lengur að ræða.
Líklegt er, að einhverjum
þyki þessi síðasta aðför að
grundvallareiningu peninga-
kerfisins nokkur niðurlæging.
Hitt mun þó algengara, að fólk
láti sér þessa breytingu í léttu
rúmi liggja. Svo lengi höfum
við búið við vesælustu peninga-
mynt allra landa, að fólk hefur
fyrir löngu misst alla virðingu
fyrir peningum og lítur raunar
á þá sem eins konar falsmynt,
sem gegni engu öðru hlutverki
en því að vera eytt. Er þá
nánast sama í hvað þeim er
eytt, því nánast hvaða hlutur
sem nafn má gefa er verðmeiri
en peningar.
Afföll á íslenzku krónunni á
erlendum gjaldeyrismörkuðum
hafa verið allt að 75%, þar sem
íslenzkum krónum er á annað
borð skipt, algengara er þó, að
íslenzkum krónum sé ekki skipt
i bönkum erlendis, jafnvel ekki
í bönkum frændþjóðanna.
Til viðbótar þeirri lokaaðför,
sem nú hefur verið gerð að
krónunni sjálfri, er vitað, að
fleiri breytingar muni eiga sér
stað á næstunni. Þar má nefna
tilkomu nýs penings, í stað eitt
hundrað króna seðilsins og, að
þvi að talið er, nýjan tiu
þúsund króna seðil, sem þó
mun ekki breyta því ástandi, að
fólk mun þurfa að bera þennan
nýja seðil, stærsta seðilinn í
kerfinu, á sér, þegar gerð eru
t.d. heimilisinnkaup fyrir
helgar.
Auðvitað var full þörf á þvi
að hætta sláttu krónunnar sem
slíkrar með núverandi verð-
gildi, því slátta hennar kostaði
margfalt meira en réttlætan-
legt var til áframhaldandi notk-
unar. Hitt vefst fyrir fólki,
hvers vegna ekki var horfið að
því ráði, sem svo oft hefur verið
bent á, að nota tækifærið og
koma á varanlegri undirstöðu-
breytingu myntkerfisins með
útgáfu nýrrar myntar eða fella
tvö núll aftan af krónunni.
Á þessi atriði til viðreisnar
íslenzka gjaldmiðlinum hafa
seðlabankastjóri og viðskipta-
málaráðherra lfka fallizt að
gera þurfi, m.a. í útvarpsþátt-
um, þar sem beint var til þeirra
spurningum um þetta efni.
Að vísu töldu báðir þessir
aðilar, að aðrar aðgerðir þyrftu
jafnframt að koma til jafnhliða,
svo að gagn mætti að vera. En
þeir minntust ekkert á hverjar
þessar „aðrar aðgerðir" ættu að
verða, enda ekki ætlazt til þess,
að slík svör séu gefin í stuttum
þáttum í útvarpi. En nóg tæki-
færi hafa gefizt til að gera
grein fyrir þessum hliðarráð-
stöfunum, þótt viðkomandi
ráðamenn hafi ekki séð ástæðu
til þess að skýra landsmönnum
frá þeim. Verður því að líta svo
á, að nefndar „hliðarráðstaf-
anir“ séu ekkert annað en
skálkaskjól ráðþrota manna,
sem hafa gefizt upp á stjórn
efnahagsmála fyrir þrýsting frá
vinstri öflúnum, sem alls staðar
eiga sína fulltrúa, einnig innan
opinberra peningastofnana,
þótt þeir eigi enga aðild að
stjórn landsins, a.m.k. ekki enn.
— En það er svo önnur spurn-
ing, sem fólk veltir fyrir sér,
hvernig á því standi, að stjórn-
málaflokkar, sem ekki eiga
aðild að rikisstjórn, skuli eiga
fulltrúa innan þessara opin-
beru peningastofnana.
Það hlýtur að verða að gera
þá kröfu til þeirra ráðamanna í
fjármálum og þeirra aðila, sem
sífellt tala um að „hliðarráð-
stafanir“ þurfi að koma til, ef
upp verði tekin ný mynt eða
núíl felld aftan af krónunni, að
þeir geri nú þegar grein fyrir
þessum ráðstöfunum og I
hverju þær eru fólgnar. Og
auðvitað er ýmislegt, sem
myndi fylgja I kjölfar svo rót-
tækrar breytingar sem mynt-
breyting er. En víst er um það,
að slíkar hliðarráðstafanir eru
ekki það stórkostlegar, að þær
réttlæti á nokkurn þátt þann
drátt, sem orðinn er á því að
gera íslenzku myntina verð-
meiri, með þeim hætti, sem hér
er ræddur.
Fjölmargir aðilar, þ.á m.
nokkrir kunnir aðilar, sem fást
við opinbera fésýslu, halda
þvi þó fram og með fullum
rökum, að myntbreytingarað-
gerðin krefjist engra sérstakra
hliðarráðstafana og hana megi
gera eina sér, hvenær sem er,
og raski hún I engu viðskiptum
manna í milli eða gerðum samn-
ingum innanlands eða-erlendis.
Okkar viðskipti við erlendar
þjóðir eru ekki svo margslung-
in, að þau séu þröskuldur í vegi
fyrir þessari breytingu. Þessa
leið fóru Frakkar og síðan
Finnar fyrir rúmum áratug.
Frakkar nokkru fyrr, og er við-
skiptakerfi þessara þjóða þó
allmiklu viðameira en okkar Is-
lendinga.
Menn eru nú almennt
komnir á þá skoðun, að þessi
breyting sé nauðsynleg hér á
landi, þ.á m. einstaka alþingis
menn og aðrir, sem möguleiká
hafa til þess að ýta á aðgerðir.
Sl. laugardag tekur Dagbiaðið
nokkra þekkta borgara tali og
spyr þá spurningarinnar:
„Eigum við að hafa krónuna
áfram sem gjaldmiðil?" — Svör
þeirra allra voru á þann veg, að
þeir töldu þörf ráðstafana til
þess að gera krónuna verðmeiri
og hölluðust flestir að því að
taka bæri tvö núll aftan af
henni. Einn þeirra, er spurður
var, svaraði þó á þann veg, að
hann teldi, að til þess að fá
alvörugjaldmiðil þyrftum við
alvöru stjórnmál.
Það er allt of oft, að stóru
rúmi í dagblöðum er eytt til
þess að ræða efnahagsmál við
hina og þessa forráðamenn, og
ófáir hafa útvarpsþættirnir
verið, sem hafa átt að „taka
fyrir,, efnahagsmál.En almenn-
ingur hefur oftast verið jafn-
nær eftir sem áður. því enginn
hefur raunverulega rætt um
meinsemdina sjálfa, islenzku
krónuna, sem nú er orðin
Itndanlega verðlaus fyrir til-
itilli forráðamanna islenzkra
fjármála, fyrr og siðar.
Þegar rætt er við forystu-
menn í efnahags- og fjármqlum
gera þeir lítið annað en segja til
um núverandi ástand i efna-
hagsmálum og þegar bezt lætur
að vara fólk við of mikilli bjart-
sýni, þrátt fyrir efnahagsbata
erlendis.
Urræði er ekki rætt um eða
ummæli, sem bentu til þess
hvað stæði fyrir dyrum að gera
varðandi hugsanlega lausn eða
úrbætur í efnahagsmálum,
hvað þá heldur að talað sé um
nauðsyn þess að gera íslenzku
myntina verðmeiri. — Það er
hlutur, sem íslenzkir efnahags-
sérfræðingar og forystumenn i
fjármálum láta aldrei eftir sér
hafa. — Hvers vegna? Það veit
enginn.
Og nú hefur þjóðinni verið
úthlutað ÁLKRÓNUM, skrum-
skælingu á frumeiningu ís-
lenzka myntkerfisins. Og þetta
er fólki ætlað að nota í viðskipt-
um, ef vanta skyldi upp á fimm
þúsund króna seðilinn eða nýja
tíu þúsund króna seðilinn,
þegar hann kemur f umferð.
Fáir munu verða til þess að
ganga með þessa glatkrónu í
veski eða vasa, því svo ömurleg
er hún að allri gerð, að hún
mun gleymast þar sem hún er
komin í það og það skiptið eða
týnast, svo segja má, að nú
þegar sé þessum óheillagrip of-
aukið í kerfinu.
Raunar væri það skylda al-
mennings, ef nokkur snefill af
siðgæði gagnvart peningum
leynist enn með þjóðinni, að
forsmá tilkomu þessa vesæla
penings með því að neita að
taka við honum hjá peninga-
stofnunum og í viðskiptum al-
mennt.
Þær, fálmkenndu aðgerðir,
sem nú nýverið hafa verið
hafðar í frammi gagnvart gjald-
miðlinum og byrjuðu*á „slátr-
un“ krónunnar, munu án efa
fljótlega segja til sin í ýmsum
myndum í daglegu viðskiptalífi
hjá fólki og leiða til enn frekari
siðferðisbrests og síðar til
glundroða.
Er t.d. við því að búast, að
foreldrar sjái um að börn fái
fræðslu eða eðlilega þekkingu á
því, hvers vegna nýr peningur
skýtur allt í einu upp kollinum,
þannig að tveir peningar i senn
hafa sama gildi, — eða er
reiknað með að skólarnir geri
það, — eða er kannski öllum
sama, hvernig þessi þáttur fer
Kjallarinn
Geir R. Andersen
fram? Hvað hafði rikisvaldið
hugsað sér? Það hefði vissulega
mátt búast við þvi í sæmilega
siðuðu þjóðfélagi, að hið opin-
bera hefði nú séð fólki fyrir
kynningarbæklingi vegna
þessara ráðstafana. En, nei, það
er ekki við slíku að búast frá
opinberum forsvarsmönnum
fjármála á íslandi. Þeir láta
bara skeika að sköpuðu um
meðferð slíkra smámála.
Það er nú nokkuð langur tími
liðinn síðan sá er þetta ritar
kom fram með þá hugmynd
fyrstur manna, að bezta ráðið
til þess að draga úr áhrifum
verðbólgunnar og styrkja sið-
ferðismat fólks I fjármálalegu
tilliti, væri að leggja alfarið
niður krónuna og taka upp nýja
mynt. íslenzk „nýkróna" eða
„rikisdalur“ með krónu að
undirstöðueiningu eru dæmi
um slíkar breytingar. Fleiri
leiðir eru auðvitað til, svo sem
að samræma ísl. krónuna
öðrum gjaldmiðli, t.d. þeim sem
við miðum gengisskráninguna
við, en það er Bandarikjadollar.
Megi þeir aðilar, sem stóðu
að tilkomu þessa
smánarpenings og stuðla að
niðurlægingu islenzka gjald-
miðilsins, hafa skömm og van-
sæmd af, — hinir heiður og
sæmd, sem kynnu að þora að
takast á við þá þjóðhagslegu
nauðsyn að leggja niður núgild-
andi falsmynt og taka upp aðra,
sem getur endurvakið traust
fólks á íslenzkum gjaldmiðli.