Dagblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976.
Björgvin er búinn S’
með
að lata klippa sig! I stelpur J
Þórey Sigurðardóttir, Leiru-
bakka 18, skrifar:
Mig langar að beina hér
nokkrum upplýsingaratriðum
til stelpnanna sem voru að
kvarta yfir hárinu á honum
Björgvini Gíslasyni um daginn.
Þessi frábæri gítarleikari Para-
dísar er nú búinn að láta klippa
sig og gerði hann það áður en
hljómsveitin hélt í Spánar-
ferðina. Þið ættuð að fylgjast
betur með, steipur, áður en þið
hlaupið með svona í blöðin.
Varðandi það atriði hvort hár
Björgvins sé hreint eða ekki, þá
er það sjálfsagt matsatriði
hvers og eins, en það breytir
ekki því að hann er frábær
gítarleikari eins og allir hans
aðdáendur vita.
Nú er Björgvin í Paradis búinn að láta klippa sig og geta aðdá-
endur hans væntaniega verið rólegir þess vegna í bili.
o sannarlega ekki neðsl á lista okkar yfir vlnsrlustu hljómsveitlrnar segja tvi
Hinn fróbœri
gítarleikari Paradísar
œtti cið lóta klippa sig
fvarr sem unna rokkl skrlfa: fylgdumst auðvitað með út- vcgna þess hve gitarleikari leikara að fara til rakara. Hann
sendingu sjónvarpsins frá rokk- hljómsveilarinnar var hræði- yrði miklu skárri þegar hann
„Við höfum óskapa mætur á tónleikum I Laugardalshöll sl. lega illa til fara. Hár hans var væri búinn að láta klippa sig
rokk-tónlist og öllu sem henni laugardagskyöld Við biðum allt of sltt og svo var það sklt Það er heldur ekki I tlzku
viðkemur. Sú frábæra hljóm spenntar eftir þvl að hljóm- ugt. Það á enginn að fá að koma lengur að vcra með svona sltt
sveit Paradls er svo sannar- sveitin Paradis birtist á skján- fram svona lil fara. hár. Vonandi tekur hann þetta
lega ekki neðst á lista hjá okkur um. Þegar hún loksins kom Við viljum nú ráðleggja ekki' illa upp, við viljum bara
yfir rokkhljómsveitir. Við fram brá okkur hcldur I brún þessum annars frábæra gltar- veg Paradisar sem mestan."
Lofttæmdur og loftþéttur —
það er ekki alveg það sama
Hafa
rangan
Lassí-hund
fyrir sök
Elsa Stefánsdóttir, Arnartanga
12 Mosfellssveit, hringdi:
„Eg vildi biðja Dagblaðið að
koma á framfæri fyrir mig svo-
lítilli athugasemd að gefnu til-
efni. Á dögunum beit „Lassí“-
hundur (Collie hundur) barn
hér við götuna. Málið var rann-'
sakað og kom í ljós að hundur-
inn kom frá Hlíðartúni hér í
Mosfellssveit.
Nú vill þannig til að við hér í
Arnartanga 12 eigum líka
Lassíhund. Höfum við orðið vör
við þann leiða misskilning að
hundurinn okkar hafi átt hér
sök í máli. Hefur það gengið svo
langt að börnum í hverfinu er
bannað að fara inn á lóðina til
okkar, foreldrar óttast að
hundurinn bíti börn þeirra.
Vildum við gjarnan að það
kæmi í ljós að okkar hundur er
alltaf bundinn, þegar hann er
úti við, og er auk þess meinlaus
og glefsar ekki í fólk. Þykir
okkur leitt að börn hafa komið
og kastað grjóti að hundinum
og vonum að með þessum
orðum verði allur misskiln-
ingur upprættur."
Anna skrifar:
„Undanfarið hefur verió aug-
lýsing í sjónvarpinu um hið
ágæta Kaaberkaffi. Þar er sagt
m.a. að það sé eina ísl. kaffiteg-
undin sem sé í lofttæmdum um-
búðum.
Mér finnst undarlegt að þessi
setning skuli ekkt hafa verið
felld niður þvi það er komið
annað „islenzkt" kaffi í loft-
tæmdum umbúðum á mark-
aðinn, nefnilega Bragakaffi!"
Við höfðum samband við
kaffibrennslu KEA á Akureyri
og þar fengust þær upplýsingar
að Braga-kaffi er ekki í loft-
tæmdum umbúðum heldur í
loftþéttum. Þannig er Kaaber-
kaffið víst eina „isl.“ tegundin
sem er í lofttæmdum umbúð-
um.
Kaaberkaffið, þó ekki þessar pakkningar, er i lofttæmdum umbúðum, en Bragakaffið er i loftþéttum.
Þegar farartæki ungs manns
er stolið
Móðir skrifar:
„Það er sárt fyrir ellefu ára
dreng að missa farariækið sitt,
50 þúsund króna grip, sem
hann hefur lengi verið að aura
saman til aö kaupa. Fyrir hálf-
um mánuði kom sonur minn
heim úr skólanum. Hann skildi
hjólið sitt eftir fyrir utan húsið
þar sem við búum meðan hann
skilaði af sér skólatöskunni.
Ekki hafa liðið nema 2—3
mínútur þar til hann var
kominn aftur þangað sem hann
hafði skilið hjólið eftir. En þá
var það horfið.
Hjólið var 2 ára gamalt
Chopper-hjól, ljósblátt með
svörtum lás. Sézt hafði til
drengs, 11-13 ára gamals, sem
hafði hjólað á slíku hjóli niður
Háaleitisbraut um þetta leyti.
Sást hann hjóla inn hliðargötu í
átt að Laugarnesi. Drengur
þessi var í hvítri stormblússu
með breitt. svart leðurbelti.
Ekkert hefur frétzt af hjólinu
þrátt f.vrir eftirgrennslan lög-
reglumanna og fleiri. Væntan-
lega á drengurinn, sem tók
þarna reiðhjól ófrjálsri hendi,
foreldra eða aðstandendur og
vissulega ættu þeir að verða
varir við þessa „eignaaukn-
ingu“ sonar síns. Það eru vin-
samleg tilmæli mín að þeir hafi
samband við mig i síma 38755
eða 38572 á kvöldin. Þá mun
þetta leiðindaatvik verða upp-
rætt með öllu.
í sambandi við hjólmissinn
reyndi ég að fá tjónið greitt í
tryggingafélagi þar sem ég hef
keypt heimilistryggingu. Gaf ég
heiðarlega skýrslu um öll til-
drög málsins, m.a. að hjólinu
hefði ekki verið læst í þessu
tilviki. Taldi tryggingafélagið
þá að því bæri ekki skylda til að
bæta tjónið. Ættu börn og
unglingar og ekki síður for-
eldrar að huga að því hversu
mikið atriði það er að hjólum sé
ævinlega læst, jafnvel þótt ætl-
unin sé að grípa til hjólsins
eftir andartaksstund eins og
var í þessu tilfelli."
Spurning
dagsins
Finnst þér að leyfa œtti
meiri hámarkshraða á
Reykjavíkursvœðinu?
Halldór Gunnarsson verkamaður:
Nei, alls ekki. Þó gæti það átt við'
sums staðar.
Hans Hafsteinsson lögreglu-
þjónn í Reykjavík. Nei, það er
ákaflega hæpið. Til þess er.u eng-
ar aðstæður fyrir hendi.
Þorsteinn Þorsteinsson um-
sjónarmaður: Það veltur nú á
ýmsu. Sums staðar eru aðstæður
þannig að hámarkshraðinn er of
lítill, annars staðar mætti hann
ekki vera meiri.
Andrés Asmundsson húsa-
smíðanemi: Jú, á vissum götum.
Það mundi bæta margt ef menn
reyndu að halda sig við þann
hámarkshraða sem leyfður er, því
silarnir eru ekki hvað minnst
hættulegir i umferðinni.
Ólafur Friðþjófsson nemi: Nei.
ekki nema á hraðbrautum eins og
t.d. Reykjanesbrautinni.
Geir Þormar ökukennari: Að
sjálfsögðu. En fyrsta skrefið er þó
að menn laki sig saman og reyni
að aka ekki hægar en leyfilegt er.