Dagblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976. (i Utvarp 27 Sjónvarp 9 Vetrardagskrá útvarpsins: A föstudegi Föstudagsdagskráin er ekki mjög frábrugöin því sem verið hefur að öðru leyti en þvi að óskalögin hafa verið flutt á föstudagsmorgna frá laugar- dögum. Nú hefst Þingsjá Kára Jónassonar fréttamanns að nýju. Þátturinn er á dagskránni kl. 19.35. Klukkan 20.00 í kvöld er dag- skrarliður er nefnist Frá er- lendum tónlistarhátíðum en hálfsmánaðarlega er útvarpað fyrrihluta tónleika Sinfóníu- hljómsveitarinnar og verða þeir því næsta föstudag. í kvöld fáum við að heyra tónlist eftirFauré og Kalliwoda, sungin verða lög eftir Mozart og leikin sónata eftir Schumann. Nýr þáttur er í dagskránni kl. 20.50, Myndlistarþáttur í umsjón Hrafnhildar Schram. Þóra Kristjánsdóttir mun sjá um myndlistarþáttinn eftir hálfan mánuð. Leiklistarþáttur verður einnig hálfs- mánaðarlega og umsjá hans hafa Sigurður Pálsson og Haukur Gunnarsson. Báðir þessir menningarþættir eru 30 mín. í hvert sinn og hefjast kl. 20.50 á föstudagskvöldum. Að loknum lestri veðurfrétta kl. 22.15 hefst nýr þáttur sem verður vikulega á dagskránni á þessum tíma. Nefnist hann Ljóðaþáttur og eru það lektorarnir Njörður P. Njarðvík og Öskar Halldórsson sem stjórna þeim til skiptis, sína vikuna hvor. Hlustendur mega senda umsjónarmönnunum óskir um að heyra tiltekin ljóð lesin og einnig geta þeir óskað eftir ákveðnum lesurum. Umsjónar- mennirnir reyna að verða við þessum óskum, en form þáttanna getur orðið breytilegt. Umsjónarmennirnir munu fjalla um ljóðin, sem lesin verða, túlka þau og leitast við að svara spurningum hlustenda ef þeir bera fram fyrirspurnir. Einnig er hugsanlegt að rætt verði við ljóðskáld eða tónskáld og öðru hverju látinn heyrast lestur af gömium böndum úr segulbandasafni útvarpsins. 1 lok hvers þáttar verður lesið ljóð og eiga hlustendur að reyna að þekkja eftir hvern það er. Síðan verður dregið úr réttúm svörum og ljóðabók veitt í verðlaun. Síðasti liðurinn á dagskránni í kvöld kl.22.35 er þátturinn Afangar í umsjá Ásmundar Jónssonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. -A.Bj. Kári Jónasson er með Þingsjána í kvöld kl. 19.35. Með Kára á myndinni er hinn vinsæli útvarpsmaður Páll Heiðar Jónsson. Samkvæmt upplýsingum dagskrárstjóra útvarpsins fáum við ekki’ að heyra til Páls fram að áramótum, en hann mun nota þann tíma til þess að vinna að gerð dagskrárþátta, sem síðan koma fyrir eyru hlustenda eftir jól. ÍFMl Föstudagur 29. október 12.00 Da«skráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Viðvinnuna: Tónleikar. 14.38 Miðdegissagan: „Eftir örstuttan leik" eftir Elías Mar Höfundur les (3). 15.00 Miðdegistónleikar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Frcttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnirj. 16.20 Popphorn. 17.30 Útvarpssaga barnanna ..Óii Skuld" eftir Stefón Jónsson. Gísli Halldórsson leikari les (3). 17.50 Tónleikarjnikynninear. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingjsó. Umsjón: Kári Jónasson. 20.00 Frá erlendum tónlistarhátíðum. 20.50 Myndlistarþáttur í umsjá Hrafn- hildar Schram. 21.20 Tilbrigði eftir Sigurð Þórðarson um sálmalagið „Greinir jesús um græna tréð”. Haukur Guðlaugsson leikur á orgel. 21.30 Útvarpssaqan: „Breyskar óstir" eftir Óskar Aðalstein. Erlingur Glsiason leikari les 112). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Ljóflaþáttur. Umsjón- armaður: Njörður P. Njarðvík. 22.35 Áfangar. Tónlistarþátlur í unisjá Asmundar Jónssonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. Laugardagur 30. október 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir ki. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. dagbl.). 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50 Morgunstund barnanna kl. 8.00: Sigrún Sigurðar- dóttir les spánskt ævintýri. „Katalínu hina fögru“ í þýðingu Magneu J. Matthíasdóttur. Bókahomið kl. 10.25: Barnatími í umsjá Hildu Torfadóttur og Hauks Ágústssonar. Rætt við Örn Snorrason og lesið úr bókum hans. Líf og lög kl. 11.15: Guðmundur Jónsson les úr minningum Árna Thorstein-, sonar eftír Ingólf Kristjansson og leikur lög eftir Árna. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilk.vnn- ingar. 13.30 Á prjónunum. Bessí Jóhannsdóttir stjórnar þættinum. 15.00 í tónsmiðjunni. Atli Heimir Sveins- son sér um þáttinn (2). 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. islenzkt mál. Ásgeir Blöndal. Magnússon cand. mag. flytur þáttinn. 16.35 Johann Strauss hljómsveitin i Vin leikur valsa; Willi Boskovsky stjórnar. 17.00 Endurtekið efni: islenzk kvennasaga. Elsa Mia Einarsdóttir greinir frá Kvennasögusafni Islands og Elín Guðmundsdóttir Snæhólm talar um lopaprjón. (Áður útv. I marz 75). 17.30 Framhaldsleikrit bama og unglinga: „Skeiðvöllurinn" eftir Patriciu Wright- son. Edith Ranum færði í leikbúning Annar þáttur: „Leyndarmálið mikla“ Þýðandi: Hulda Valtýsdóttir. Leik- stjóri: Þórhallur Sigurðsson, Persónur og leikendur: Andri-Árni Benediktsson, Mikki-Einar Benedikts- son. Jói-Stefán Jónsson, Matti-Þórður Þórðarson. Flöskusafnari-Jón Aðils, Betsy-Ásdís Þórhallsdóttir, Nelly- Brynja Birgisdóttir, Sögumaður- Margrét Guðmundsdóttir. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fráttir. Fréttaauki. Tilkynningar. Guðni Rúnar Agnarsson sér um Afanga með Asmundi. DB- mynd Bj. Bj. Asmundur Jónsson er annar umsjónarmaður Afanga. Njörður P. Njarðvík lektor sér um Ljóðaþátt ki. 22.20 í kvöld. Hrafnhildur Schram list- fræðingur sér um Myndlistar- þátt i kvöid ki. 20.50. DB-mynd Jim. Laugardagsmorgunn- inn helgaður bók- menntum og tónlist Við viljum vekja athygli á barnatímanum, sem er á dag- skrá útvarpsins kl. 10.25 í fyrra- málið. Þgð verður Bókahornið sem er efni tímans á morgun. Umsjónarmenn eru Hilda Torfadóttir og Haukur Agústs- son. Rætt verður við Örn Snorra- son rithöfund og lesið úr 'bókum hans. Þátturinn Líf og list er á dag- skránni að loknum barnatíman- um kl. 11.15. Guðmundur Jóns- son les úr minningum Árna Thorsteinssonar eftir Ingólf Kristjánsson og leikin verða lög eftir Árna. — A.Bj. Sjónvarp & Föstudagur 29. október 20.00 Fróttir og veflur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Kastljós. Þáttur um innlend mál- efni. Umsjónarmaður Ómar Ragnars- son. 21.40 Byggt fyrir framtíftina. Mynd þessi er gerð árið 1969 í tilefni af 50 ára afmæli Bauhaus stefnunnar svonefndu, sem á uppruna sinn í Þýzkalandi og stóð þar með mestum blóma á árurium 1919—33. Hún hefur einnig haft áhrif á mynd- list og listmunagerð. Rætt er við Walter Gropius (1883—1969), upp- hafsmann þessa byggingastíls. og sýnd hús, sem hann teiknaði á sínum tíma. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson 21.55 Mefl söng í hjarta. (With A Song in My Heart). Bandarísk bíómynd frá árinu 1952. Aðalhlutverk Susan Hay- ward og Tavid Wayne. Myndin ergerð eftir ævisögu söngkonunnar Jane Froman. Sagan hefst, er fræðgarferill hennar er að hefjast. Jane giftist pfanóleikaranum Don og hann semur lög fyrir hana. Hún fer til Evrópu,'í síðari heimsstyrjöldinni að skemmta hermönnum og meiðist illa í flugslysi. Þýðandi Heba Júlíus- dóttir. 23.40 Dagskráriok. Það er mikið rætt um stóriðju á íslandi og mengun sem henni fyigir og hvernig hefta megi mengun. Eigum við kannski eftir að sjá marga slíka strompa í náinni framtíó hér? Sjónvarpið í kvöld kl. 20.40: Kastljós STÓRIÐJA Á ÍSLANDI - SK0TV0PN Þeir Gunnar Steinn Pálsson blaðamaður og Ómar Ragnarsson fréttamaður verða með Kastljós að þessu sinni. Gunnar mun aðallega fjalla um byssuleyfi og meðferð skotvopna. Hann fór upp á Hellisheiði og talaði þar við skyttur. Einnig ræddi hann við Engilbert Hannesson hreppstjóra Ölfus- hreppi og kom við í sportvöru- verzlunum og kynnti sér hvað menn þurfa að hafa til að fá byssuleyfi. Þá er ætlunin að hann ræði við talsmenn stjórnvalda eða lögreglu. Ömar brá sér til Akureyrar og færði í tal stóriðju á íslandi bæði við Akureyringa og Eyfirðinga, en sem mönnum er kunnugt er mikið rætt um álbræðslu, sem væntanlega gæti verið í Eyjafirði. Ómar talaði við Gunnar Kristjáns- son, oddvita Glæsibæjarhrepps, Val Arnþórsson, forseta bæjar- stjórnar Akureyrar, og tvo menn úr stjórn SUNN (samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi), þá Helga Hallgrímsson og Bjarna Guðleifsson. Það er sem sagt ætlunin að afla upplýsinga og varpa kastljósi á það hvaða atriði það eru sem þarf að athuga þegar tekin er ákvörðun um stóriðju. Dregin verða fram verðurfarsleg atriði, atvinnu- og félagsleg atriði og rætt verður við menn sem farið hafa til Noregs og kynnt sér þetta mál. Loks er ætlunin að fá tvo aðila til þess að rökræða um stóriðju á tslandi almennt og sömuleiðis að kanna hvernig mengun og áhrifum Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi og Álversins í Straumsvík er háttað. -EVI. IMEBUBB' ÞAÐ LIFI ;

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.