Dagblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. OKTÖBER 1976.
17
Þessi var yngsti starfsmaður
RAFHA við vinnu er biaða-
menn skoðuðu verksmiðjuna.
Hann sat með bros á vör og
málaði hluti í spennubreyta.
lampadeild, sérsmiðadeild,
málmgluggadeild og sam-
setningardeild.
Enn sem fyrr eru aðallega
framleiddar eldavélar en auk
þess annast RAFHA alls kyns
sérsmíði, s.s. á stórum eldavél-
um, steikarapönnum, hitaskáp-
um, afgreiðsluborðum fyrir
mötuneyti, lömpum, ýmsum
_ tækjum fyrir skip að ótöldum
* málmgluggum og hurðum eftir
óskum kaupenda.
20 umboðsmenn starfa víðs
vegar um land, en RAFHA
rekur eina söludeild, við Óðins-
torg í Reykjavík.
Axel Kristjánsson taldi
vandamál verksmiðjunnar nú
líklega sízt minni en þau voru í
upphafi. Aðild Islands að
EFTA skapar erfiðleika. Flutt
eru inn tæki sem nú er
greiddur 30% tollur af en
verður 20% á næsta ári og fell-
ur alveg niður 1. jan. 1979. Þess
eru hins vegar dæmi að tollur
af innfluttu efni til framleiðslu
RAFHA sé 35%.
Axel benti og á að RAFHA,
eins og ýmis önnur iðnfyrir-
tæki, ætti i erfiðleikum vegna
hærri flutningskostnaðar af
iðnvöru til Islands en sambæri-
legar erlendar verksmiðjur
þurfa að greiða fyrir sína flutn-
inga.
Þá benti hann á miklu hærra
raforkuverð til iðnaðar hér en
erlendir samkeppnisaðilar
greiði. RAFHA greiðir nú 10-11
krónur fyrir kílóvattstundina
en norsk verksmiðja, sem er
sambærileg við RAFHA og
Axel þekkir til, greiðir 1,50-2
kr. (íslenzkar) fyrir kílóvatt-
stundina. Auk þess búa íslenzk-
ar framleiðsluverksmiðjur við
erfiðari skattalöggjöf og allt er
hér óhagstæðara og dýrara en
hjá sambærilegum erlendum
verksmiðjum sem verið er að
keppa við. Loforð sem gefin
voru við aðild íslands að EFTA
og EBE hafa ekki verið efnd
nema að takmörkuðu leyti og
óhagstæð samkeppnisaðstaða
ógnar því íslenzkum iðnaði.
Hlutafé RAFHA hefur nú
verið 50 faldað með jöfnunar-
bréfum. Byggingar hafa verið
stórauknar ár frá ári og eru nú
6000 fermetrar að gólffleti og
24 þúsund rúmmetrar. Vinnu-
laun verksmiðjunnar á s 1. ári
voru 55-60 milljónir króna og
9,2 millj. króna voru greiddar í
gjöld til ríkis og bæjarfélags.
Á þessum 40 árum hefur
RAFHA framleitt 107.384 raf-
magnstæki auk 53271 lampa frá
því að sú framleiðsla hófst
1954. Eldavélarnar eru lang-
stærsti hluti framleiðslunnar
eða 46618 frá upphafi. Meðal
annarra framleiðsluvara má
nefna stórar eldavélar fyrir
skip og hótel, þilofna, rörofna,
brauðgerðarofna, þvottapotta
þvottavélar, kæliskápa, gufu-
katla, spennubreyta. vatns-
hitunartæki, kaffikönnur,
ryksugur og steikarapönnur.
Henry er að flytja:
Gömlu nágrannar hans eru
himinlifandi en þeir nýju
dauðkvíða því að fá hann!
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og konan
hans Nancy eru að flytja úr hús-
inu sem þau hafa búið i á hinu
kyrrláta Dumbartonstræti. Þau
ætla að flytja í hús við götu í
Georgetown, sem er elzti borgar-
hluti Washingtonborgar.
Gömlu nágrannarnir hjónanna
eru afar fegnir að losna
við þau úr hverfinu og nýju ná-
grannarnir dauðkvíða fyrir að fá
þau.
Kissingerhjónin neyddust til að
flytja vegna þess að konan sem
leigði þeim frú Grenville Emmet
neitaði að endurnýja leigusamn-
inginn sem rennur út í janúar.
Hún hefur sagt að hún yrði himin-
lifandi ef þau flyttu út áður en
samningurinn rennur út.
Henry verður að greiða dálag-
legan skilding fyrir nýju íbúðina,
en íbúðir í álíka húsum og hann
flytur í eru leigðar á 800—1000
dali (frá 160—200 þús. ísl. kr.) á
mánuði. Vel má þó vera að Sam
frændi geri vel við Henry og
honum ofbjóði ekki þessi húsa-
leiga.
Kona nokkur, tilvonandi
nágranni Kissingerhjónanna, lét
í ljós þá ósk að þau hjónin flyttu í
eitthvert úthverfi borgarinnar.
,,Það er alveg ótækt að gera
hverfið hér að einhverju við-
undri, sem ferðamenn flykkjast
til þess að skoða.“
„Eg gæti skrifað heila bók um
vandkvæðin sem eru því samfara
að búa nálægt Kissingerhjónun-
um,“ segir frú Bertram Hulen er
hefur búið í næsta húsi við þau á
Dumbartonstræti. „Ég er dauð-
fegin að þau skuli vera að flytja.
Þetta hefur verið erfiður tími.
Öryggisverðirnir ruddust yfir
mína lóð án þess að biðja um leyfi
og rótuðu upp í garðinum mínum
til þess að koma fyrir hlustunar-
græjunum vegna IÓssingers.“
Loks eru það bílastæðisvanda-
niálin sem fylgja Kissingerhjón-
unum.
„Eitt af því sem gerði mér
einna gramast í geði í sambandi
við Kissingerhjónin var að skot-
heldi 12 þúsund dollara (2,4 millj.
ísl. kr.) bíldrekinn þeirra, ásamt
þrem öðrum bílum þeirra tóku
alltaf upp allt bílastæðið fyrir
framan húsið,“ sagði annar
nágranni þeirra, frú John Kelly,
29 ára námskona sem leggur
stund á viðskiptafræði við háskól-
ann í Georgetown.
„Á veturna vill Henry að bíll-
inn hans sé orðinn vel heitur áður
en hann leggur af stað. Þá er
drekinn hafður í gangi allt upp í
tvo klukkutíma, áður en haldið er
af stað. Innkeyrslan, sem er beint
fyrir neðan svefnherbergisglugg-
ann minn fyllist af útblæstri bíls-
ins — hinir bílarnir eru einnig
settir í gang. Það liggur kannske
ekki ljóst fyrir i hvaða bíl Henry
þóknast að aka.
Mér datt i hug í fyrra, þegar
olíukreppan var í algleymingi,
hvað við gerðum eiginlega í sam-
bandi við hana. Jú, mikil ósköp.
Við sendum Henry Kissinger til
Austurlanda til þess að scmja um
kaup á meiri olíu fyrir okkur,
olíu, sem hann sjálfur brennir
fyrir neðan svefnherbergisglugg-
ann minn!“ segir frú Kelly.
Starfsmaður í þinginu, Mark
Greenspan, sem einnig er
nágranni úr Dumbartonstræti var
einnig argur út af bílastæðunum.
„Ég get aldrei skilið hvers vegna
það þarf fjóra bíla til þess að
koma Henry í vinnuna á morgn-
ana."
Einn af nýju nágriinnunum í
Starfsmenn leyniþjónustunnar eru að bera alls kyns elektrónísk tæki
inn f húsið þar sem Nancy og Henry ætla að búa í framtíðinni.
Georgetown er elzti borgarhlutinn í Washington. Það gefur auga leið
að bíiastæðisvandamálin eru allsráðandi því göturnar eru mjög þröng-
ar. Þetta er fallegt og skemmtilegt hverfi með litlum húsagörðum og
þarna búa margir af nafntogaðri heimamönnum.
,,P“-stræti, frú Gill, sagði að leyni-
þjónustan þyrfti að nota þrjú bíla-
stæði fyrir utan húsið.
„Þeir vildu fá afnot af bíl-
skúrnum mínum, en ég neitaði
þeim um aðgang að honum.“
„I fyrstu fannst mér að það yrði
einhver öryggiskennd því sam-
fara að fá Kissingerhjónin í ná-
grennið. Ég var þá með hugann
við innbrotsþjófa, en mér komu
ekki sprengjur til hugar.
Nancy og Henry Kissinger eru
ekki vinsæl meðal nágrannanna.
Ég veit að störf Henry Kiss-
ingers eru mjög umdeild, en ég
vona svo sannarlega að við slepp-
um við sprengjutilræði,“ sagði
Tony Pfannkuche sem býr við
„P“-stræti. Orð hans geta víst tal-
izt almennt álit annarra íbúa í
nágrenningu.
„Ég get ekki séð að okkur verði
einhver akkur í því að fá hann f
hverfið. Við eigum nú þegar við
geysilegt bílastæðisvandamál að
stríða. Eigandi þessa húss hefur
beðið okkur að vera á verði og ef
við sjáum einhverja grunsamlega
náunga á ferli og gera þá leyni-
þjónustunni aðvart."
Dökkklæddur maður, sem var
augsýnilega með byssu undir
jakkanum, kynnti sig sem starfs-
mann leyniþjónustunnar. Hann
sagði við biaðamanninn sem safn-
aði þessum upplýsingum frá fyrr-
verandi og tilvonandi nágrönnum
Kissingers:
„Blessaður vertu komdu hingað
aftur þegar þau hafa búið hér í
einn mánuð. Eg er viss um að
nágrannarnir hafa þá fengið
margt fleira til þess að kvarta
um.“
Þýtt og endursagt. A.Bj.
GAMALMENNIEÐA EKKI?
Einhver frægasta hertogafrú
í heimi hefur um árabil verið
hertogafrúin af Windsor. Hún
hefur jafnan haft fasta búsetu í
Parfs og býr nú ein síns liðs
eftir að eiginmaður hennar.
hertoginn,. sem áður var
Edward VIII. af Englandi, lézt í
hárri elli.
Hertogafrúin átti í mála-
ferlum við sjónvarpsstöð og
blað nokkurt f París vegna
birtingar mynda af henni. Hún
fékk dæmdar skaðabætur sem
námu 160 þúsund frönkum,
sem eru rúmlega 6 milljónir fsl.
kr.
Frúin hélt þvf fram, að með
þvi að birta þessar myndir, sem
teknar voru af henni í einka-
garði hennar, þar sem hún er
leidd af lnúkrunarkonu og
tveimur aðstoðarstúlkum, væri
hún sýnd sem gamalmenni.
Myndin var tekin f algjöru
leyfisleysi.
Er það nema von að hertoga-
frúnni sárni. Hún er kominn
fast að áttræðu og engin ástæða
til að sýna hana f gervi gamal-
mennis!
-A.Bj.
Hertogafrúin af Windsor hét
frú Wallis Simpson áður en
hún giftist hertoganum af
Windsor, sem þá var Edward
VIII. Hann varð að segja af sér
konungdómi til þess að geta
gengið að eiga elskuna sína.
sem var fráskilin. M.vndin er
tekin árið 1975 og sýnir greini-
lega að frúin er komin nokkuð
til ára sinna.