Dagblaðið - 30.10.1976, Page 14
14
DACBLAÐItí. LAUCARDACUR 30. OKTÖBER 1976.
m ERUM ALDREI
NÓGU VARKÁR
— nokkur
grömm af
gætni geta
riðið bagga-
muninn
í augum lítilla barna eru allir
hlutir afar forvitnilegir. Þaö er
heldur ekki nóg að sjá, þaó þarf
aö þreifa á hlutunum eða jafn-
vel smakka svolítið á þeim og
velta þeim fram og aftur.
Hægt væri að nefna sem
dæmi hana Ástu litlu, sem er
tveggja ára síðan i vor. Dag
nokkurn sá hún skrítinn hlut á
eldhúsborðinu. Þegar lítil hönd
teygði sig eftir hiutnum varð
fyrst fyrir kaffikanna með sjóð-
heitu kaffi. Það var ekki að
sökum að spyrja, kaffið skvett-
ist yfir Ástu litlu og svo lá hún
margar þjáningarfullar vikur á
sjúkrahúsi með ljótan annan
stigs bruna á herðum og hand-
leggjum. Þetta er sorgarsaga en
því miður ekkert einsdæmi.
198 börn brenndust illa
198 börn 5 ára og yngri
brenndust illa á heimilum sín-
um sl. ár. Þar af voru 54 börn
jafngömul Ástu og 49 þeirra
yngri. 11 börn á fyrsta ári urðu
einnig fyrir brunaslysum.
Þetta kemur meðal annars
fram í greinargerð þriggja
manna starfshóps sem í eru
Regína Höskuldsdóttir sér-
kennari, Eirikur Ragnarsson
félagsráðgjafi og Margrét
Sæmundsdóttir fóstra. Þau
hafa unnið að gagnaöflun og
greiningu viðtækra upplýsinga
um slys á börnum til 10 ára
aldurs hér á landi. Hópurinn
vann að könnunni ásamt Jóni
Björnssyni sálfræðingi sem
samræmdi verkið.
Sum börnin brenndust af
sömu orsökum og Ásta litla,
önnur höfðu hvolft yfir sig
heitum matarpottum af elda-
vél, sum náð í snúruna úr hrað-
suðukatlinum og dregið yfir sig
sjóðandi vatnið, og nokkur
hreinlega kveikt í sér með eld-
spýtum eða á annan hátt komizt
í óvarinn eld.
Strax við tveggja ára aldur
getur barn kveikt á eldspýtu.
Barnið sér fullorðna kveikja í
sígarettu eða á kerti, ljósið
lokkar og freistar. Kennið barn-
inu að eldur er hættulegur,
lofið því að finna að hann er
heitur. Rafmagnssnúrur þurfa
ekki að vera langar til þess að
þær þjóni sínum tilgangi.
Hœgt að fó plastlok
ó innstungur
Hægt er að fá plastlok á inn-
stungur í raftækjaverzlunum,
sem eru þannig útbúin að börn
ná þeim ekki út. Allt of oft
verða slys vegna þess að börn
pota mjóum hlut inn í innstung-
urnar og fá í sig straum. Slík
slys hafa leitt til dauða.
Talið við barnið um hætt-
urnar og gerið það rólega.
Hrætt barn skilur illa það sem
við það er sagt. Útskýrið hvers
vegna það má ekki leika með
þennan og hinn hlutinn og fáið
þvi svo leikfang.
Fyrstu viðbrögð
við brunaslysi
Ef barn verður fyrir bruna-
slysi, þá komdu því eins fljótt
og auðið er undir læknis-
hendur. Leiðbeiningarnar her á
eftir eiga þvi aðeins við þangað
til barnið kemst til læknis.
Bruna má skipta í þrjú stig
eftir því hve djúpur hann er.
1. stig. Hörundið verður
rautt. Ekkert sár myndast en
samfara roðanum er sviði og
þroti.
2. stig. Blöðrur koma á hör-
undið, fylltar glærum vessa.
3. stig. Hörund og hold kol-
brennur. Djúp sár myndast, og
hið skorpna hörund verður
ýmist brúnleitt eðasvart.
Vatnsmeðferð
við brunasór
Við minni háttar bruna á hör-
undi má láta hinn brennda
líkamshluta undir væga vatns-
bunu, dýfa honum í vatnsílát
eða hreinan læk. Sé ekki vatn
við höndina, má til bráðabirgða
nota mjólk, gosdrykk, sjó eða
snjó. Athugið, að framangreind
ráð eru aðeins til bráðabirgða,
því að framhald á kælingu
brunans á að fara fram í
hreinu, hálfköldu vatni (eða
ekki kaldara en svo, að það rétt
haldi sviðanum í skefjum).
Hættið ekki kælingu fyrr en
sviðinn er horfinn fyrir fullt og
allt.
Ef föt hylja brenndan lík-
amshluta er bezt að kæla allt
strax, en klippa svo flíkurnar
frá, þegar þær eru orðnar
kaldar.
Ef um útbreiddan bruna er
að ræða er volgt vatn notað.
T.d. má nota kerlaug með volgu
vatni. Ef notað væri kalt vatn í
kerlaugina gæti sjúklingurinn
hlotið kuldalost eða ofkælingu.
Vatnsbuna gæti komið að
svipuðu gagni ef kerlaug er
ekki fyrir hendi og bakstrar.
Skulu þá notuð mjúk, hrein,
ólituð stykki, lauslega undin úr
þú, eins og þúsundir annarra,
ruglaður þegar um er að ræða
móteitur og önnur efni, sem
notuð eru í neyðartilvikum.
Það er heldur ekkert undar-
legt, þegar tekið er tillit til hins
ógnvekjandi fjölda hættulegra
efna, sem börn geta náð til nú á
dögum. Listinn yfir þau er jafn-
langur og hann er lífshættuleg-
ur.
Sum efnanna eru eitruð, sum
eru tekin í of miklu magni,
sumt er ætandi (eyðandi,
brennandi), annað er olíuefni
— í sumum tilvikum er lffs-
nauðsynlegt að kasta upp, í
öðrum tilvikum gæti það verið
lífshættulegt.
Það er óhugnaniega algengt
hversu oft slys verða vegna
eitrana. í fyrra var komið með
325 börn, 3 ára og yngri á slysa-
deild.
Um að gera að
vera rólegur
Nauðsynlegt er að hafa snör
handtök og að vera rólegur.
Hættan á að verða gripinn
skelfingu er afar mikil.
Hvernig er hægt að verjast
henni? Með þekkingu. Hafðu
leiðbeiningar um hvernig á að
veita fyrstu hjálp við eitrun.
Þarna er sitthvað afar spennandi. Eg ætla að sjá hvað það er,
kannski er það gott á bragðið.
kallað á hjálp, byrjið þá strax
fyrstu hjálp. Eiginleikar eiturs-
ins ákvarða hvaða fyrsta hjálp
er veitt — eins og bent er á hér
að neðan — þar til læknishjálp
fæst.
Ef barnið er
meðvitundarlaust
eða með krampa:
— Reynið ekki að gefa barninu
vökva og framkallið ekki upp-
köst.
— Hefjið öndunarhjálp, liggi
barninu við köfnun. Haldið því
heitu og komið því á sjúkrahús
strax.
— Takið með umbúðir eiturs-
ins, merkimiða, afgang eiturs-
ins (ef einhver er) eða sýnis-
horn af uppsölu til hjálpar við
að greina eitrið.
Ef barnið hefur tekið inn
œtandi (eyðandi, brenn-
andi) efni eða olíuefni:
— Framkallið ekki uppköst.
— Gefið barninu vatn eða
mjólk. Skammtur: 1-2 bollar
fyrir barn undir 5 ára aldri, —
allt að 1 lítri fyrir barn 5 ára og
eldri.
— Komið barninu strax á slysa-
deild eða sjúkrahús — takið
með umbúðir eitursins, merki-
miða eða afgang til hjáipar við
að greina eitrið.
Ef barnið hefur tekið inn
lyf í of stórum skammti
eða eitur sem ekki er
œtandi (eyðandi, brenn-
andi) efni eða olíuefni:
Gefið barninu vatn eða
mjólk. Skammtur: 1-2 bollar
fyrir börn 5 ára og yngri — allt
að 1 lítri fyrir börn 5 ára og
eldri.
— Komið barninu strax á slysa-
deild eða sjúkrahús, takið með
umbúðir, merkimiða, afgang
eiturs eða sýnishorn af upp-
sölu.
— Komið af stað uppsölu með
því að stinga fingri eða skeiðar-
skafti ofan í kok barnsins.
Gefið ekki saltvatn.
Ef langt er í nœsta lœkni
eða sjúkrahús
Gefið 1 matskeið af ipecae-
saft með a.m.k. 1 bolla af vatni
Hvað sk.vldi vera í þessum brúsa? Hann er fallegur á iitinn. Vitið
þið að farið var með 325 börn á slysadeiid á sl. ári 5 ára og yngri.
Það er Hka betra að vita svolítið sjálfur um hvernig á að bregðast
við þegar svona slys ber að höndum.
köldu eða volgu vatni eftir þvi
sem við á.
Ef hrollur er í sjúklingnum,
má gefa honum heita mjólk eða
súpu (ekki kaffi, áfengi eða
örvandi lyf). Einnig skal að
honum hlúð með hlýjum klæðn-
aði nema brennda staðnum,
sem helzt skal vera án umbúða
eða fata.
Notið ekki nein smyrsl.
Sprengið ekki blöðrur. Snertið
ekki brenndu svæðin.
325 börn yngri en 5 óra
ó slysadeild
vegna eitrana
Hvað á að gera ef barn
gleypir eiturefni. Sjálfsagt ert
Við hliðina á símanum skaltu
að staðaidri hafa símanúmer
slysadeildar, læknis eða sjúkra-
húss, einnig símanúmer lög-
reglu og slökkvistöðvar vegna
sjúkraflutninga.
Auðveldasta og einfaldasta
molelmð gegn slysum er
,, nokkur grömm af gætni“.
Leiðbeiningar
um fyrstu hjólp
við eitrun
Komið barninu strax undir-
læknishendur. Hringið á slysa-
deild, sjúkrahús eða i næsta
lækni og gerið grein f.vrir hvað
gerzt hefur, fáið frekari fyrir-
mæli. Ef annar aðili getur
V