Dagblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 3
DAC.BLAÐIÐ. KIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976 3 - Niðurstöður Framfarafélagsins: Unglingar í Breiðholti til sóma í hvívetna Sigurður Bjarnason. formað- ur Framfarafélags Breiðholts skrifar: Vegna mikilla skrifa í síð- degisblöðunum að undaníörnu, um ölvun unglinga á dansleikj- um í Fellahelli, skal eftirfar- andi tekið fram: Mál þetta var tekið fyrir á stjórnarfundi Framfarafélags Breiðholts Raddir lesenda Hringið i síma 83322 milfí kl. 13-15 eða skrifið Unglingar samþykktu að banna reykingar í Fellahelli í Breiðholti. en ekki vitum við hvort þær eru bannaðar að Dynheimum á Akureyri. en þaðan er þessi mynd. W ’i* F m • V N 4 jt, 1 js. ^ _ ’ i IBll , ■ hinn 2. þessa mánaðar og í framhaldi af umræðum um málið voru kosnir fjórir stjórn- armenn til þess að fara á dans- leik í Fellahelli og kynna sér málið af eigin raun. Fyrir valinu varð föstudagur- inn 3. þessa mánaðar og fóru þau Baldur Gislason, Elínborg Gísladóttir, Eyjólfur Pálsson og Svava Gisladóttir. Niðurstaða könnunar þeirra varð sú að ekki sást neinn ölvaður, hvorki innan dyra né utan, enda áfengisneyzla ekki leyfð í hús- inu. Reykingar eru einnig bannaðar í Fellahelli þegar dansleikir eru haldnir þar, nema í forstofu. Starfsmenn umrætt kvöld voru fimm talsins og bar þeim saman um, að frekar hefði dregið úr aðsókn á dansleiki hússins að undanförnu. Má telja lfklegt að foreldrar ungl- inganna hafi ekki hug á að leyfa þeim að skemmta sér í Fellahelli, eftir þær lýsingar sem birzt hafa um staðinn í síðdegisblöðunum áð und- anförnu. Telja fyrrnefndir fjórmenningar að skemmtun sú sem þeir sóttu í Fellahelli hafi verið þannig, að varla sé hægt að hugsa sér nokkuð betra fyrir unglinga á höfuðborgarsvæð- inu. Þess má að lokum geta, að þegar dansleiknum lauk kl. 23.30 var slökkt á hljómtækjun- um eins og lög gera ráð fyrir og um leið og tónlistin var þögnuð fóru unglingarnir út úr húsinu og hver sína leið. Ekki var um það að ræða að ungling- ar væru utanhúss, hvorki á meðan dansleikurinn stóð yfir, né eftir að honum lauk. Væri vel ef hægt væri að segja eitt- hvað svipaða sögu um skemmti- staði eldri aldurshópa á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Framfarafélagið vill því koma á framfæri við foreldra barna í Breiðholti, að taka e,kki of mikið mark á slúðursögum um dansleiki í Fellahelli, held- ur að kynna sér málið af eigin raun og lofa börnum sínum að skemmta sér í heilbrigðu um- hverfi í góðum íélagsskap. Blöndun á staðnum Sverrir Runólfsson á fundi með mönnum frá vegagerðinni og blaðamönnum á veginum upp i Kjós. „Siggi flug“ sendir okkur hugvekju sína (hugdettu) í Dagblaðinu 2. desember, þar sem hann fjallar um hinn marg- umtalaða vegarspotta Sverris Runólfssonar á Artúnsmelum á Kjalarnesi. Mér og sennilega mörgum fleiri hlutlausum lesendum og heyrendum þykir nóg um allar þær fullyrðingar sem Sverrir hefur látið frá sér fara og þá óverðskulduðu andúð sem hann ku hafa orðið fyrir vegna þessa ósérplægna stefnumáls síns — um hraðgerðar, ódýrar hraðbrautir um allt ísland, sem hann taldi sig geta lagt á stuttum tíma, „svo gott sem engum tíma". Hann hefur vissulega ekki lalið hjá líða að lýsa þessum h.ugmyndum sínum í blöðum og öðrum fjöl- miðlum, þar sem hefur ekki verið dregin nein dul á skoðanir hans (þessa hraðmenntaða vegagerðar- manns), sem lært hefur ýmis- legt í Bandaríkjunum, m.a. um það hvernig eigi að leggja vegi á Islandi og hversu vonlaust sé að láta Vegagerð ríkisins ('lslands) sóa almannafé vegna kunnáttuleysis og andúðar á öllum framförum á því sviði. Eftir ofurmannlega þrautseigju, dugnað og áróður var honum fenginn smáspotti á fyrrnefndum stað, Artúns- melum, sem hann sagði sjálfur ákjösanlegan stað, enda hefur vegur um þessa mela aldrei valdið neinum vandræðum í vegakerfinu nema síður sé að ég held. Viðskipti S.R. við fyrrver- andi vegamálastjóra, sem hann hefur oftar en tvisvar kvartað, yfir, sýna þvert á móti að vega- málastjóri hefur sýnt S.R. lof- samlegt umburðarlyndi og gengið lengra en búast hefði mátt við eftir aðstæðum, m.a. le.vft honum að gera þessa tilraun á þessum bezta stað á landinu (samanber umsögn S.R.) og borgað allan kostnað. Þessi vegur er orðinn frægur fyrir margra hluta sakir. Hann er sennilega meira umtalaður en allir aðrir vegir á landinu. Hann er, að því er manni hefur skilizt, dýrasti vegarspottinn á landinu miðað við staðhætti. Þá mun hann vera meðal þeirra vega sem enzt hafa stytztan tíma eftir að umferð fer leyfð. Hann er tvímælalaust merkilegur að mörgu leyti, enda hefur S.R. tjáð sig ánægðan með árangurinn. Það er oft gaman að lesa það sem „Siggi flug“ lætur frá sér fara en mér finnst að hann þakki Sverri meira en efni standa til f.vrir þessa tilraun. S.R. hefur, skilst mér, fengið allan kostnað greiddan og lítið verið skammaður fyrir óraun- hæfar fullyrðingar um ódýra, varanlega og fljótvirka lagningu vega unt landið (aðeins fáa ntánuði með veg til Akureyrar. ef ég man rétt) og mjög óverðskuldaðar ásakanir um andúð og illvilja fyrrver- andi vegamálastjóra, sem virðist hafa sýnt honum meira umburðarlyndi en efni stóðu til. Eg held, að „Siggi flug“ ætti ekki að blanda sínum hug- dettum samati við vegagerð og blöndu S.R. heldur eitthvað annað skemmtilegra eins og hans er von og vísa. Vegagerð Islands missir ekkert þótt S.R. hafi dregið umsókn sína uni vegamálastjóraembættið til baka, enda þótt sú hæverska hafi sennilega verið óþörf. 2. desember 1976 Guðfinnur Þorbjörnsson. Hvað skapar jólastemmn- inguna? Jón Ilelgi Emilsson. verzlunar- maður. Tilhlökkun litlu krakkanna og tal þeirra um jólin. Svo er ómögulegt að hafa ekki jólasnjóinn. Spurning dagsins Elsa Hjörleifsdóttir. vinnur hjá Félagsmálastofnun. Mér finnst snjórinn gera umhverfið alveg sérstaklega jólalegt. Svo þegar jólakveðjurnar eru lesnar 1 út- varpinu, þá er alltaf sérstök stemmning. Þóra Stefánsdóttir. Það er svo margt. Allur jólaundirbúning- urinn og bakkelsið en helzt verða að vera hvft jól. Svo vaknar eitthvað gott innra með okkur. Það er alveg nauðsynlegt fyrir okkur Islendinga að hafa jóla- hátíðina, svona til að við lifum af skammdegið. Finnbogi Pálsson. bílstjóri. Maður verður ónotalega var við að jólin eru að nálgast, þegar kaupæðið grípur um sig. Annars finnst mér það alltaf sérstök jóla- stemning þegar snjór er og logn. Heiða Sverrisdóttir. nemi. Allt jólaskrautið og jólasveinarnir. Svo verður að vera snjór. Aðalfriðtir Pálsdóttir. kennari. Gleði burnanua sem eru i kring- um mig. /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.