Dagblaðið - 16.12.1976, Side 15

Dagblaðið - 16.12.1976, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976 15 „Once is not Enough“ (1973). Kvikmynd eftir síðasttöldu bókinni var nýlega í Háskóla- bíói. Ivring Mansfield býr í glæsi- legri sjö herbergja toppíbúð við Central Park South á Manhattan. Rétt áður en Jackie dó lauk hún við bókina Dolores og bind- ur Irving miklar vonir við vin- sældir þeirrar bókar. Hann er á sífeildu ferðalagi um Bandarik- in þver og endilöng til þess að kynna bókina. Einn daginn er hann í Minneapolis, næsta dag í Texas, — síðan í Los Angeles og loks í New York. Irving Mansfield hitti Jackie árið 1943 í kaffistofu leikara i leikhúsi þar sem hún lék í leik- ritinu Jackpot. Þau voru gift áður en árið var liðið. Hún var við leiklistina til ársins 1962 en þá sneri hún sér að skriftum. Það var einnig sama árið sem í ljós kom að hún var með krabbamein og þurfti að fjarlægja annað brjóst henn- ar. „Henni fannst alltaf sem hún væri aðeins hálf kona eftir það," sagði Mansfield. „Ég reyndi að benda henni á að ég hefði ekki verið fæddur með brjóst og ég væri ekki hálfur maður." Eftir þetta hætti Mansfield vinnu sinni en hann var fram- leiðandi útvarps- og sjónvarps- þátta. „Eg ákvað að héðan í frá sk.vldi ég ekki sinna öðru en konu minni," sagði Mansfield. Þegar „Once is not enough" kom út sögðu læknarnir að hún mætti búast við því að meinið tæki sig upp á nýjan leik. „Daginn sem bókin kom út átti Jackie að koma fram í Today show", sem er frægur rabbþáttur í sjónvarpinu. Jackie kom á sjónvarpsstöðina beint af spítalanum, þar sem henni hafði verið gefið blóð. Eftir sýninguna gekk hún út úr húsinu, fyrir hornið þar sem sjúkrabíll beið hennar og hún var flutt beint aftur á sjúkra- húsið. Meðferð með kóboltgeislum gat ekki heft hina öru út- breiðslu krabbameinsins í líkama Jackie. Irving Mansfield segir að bækur konu sinnar hafi verið gefnar út á þrjátíu og níu tungumálum í tuttugu og níu löndum „The Valley of the Dolls" hefur verið gefin út í 22:6 milljón eintökum, sem er algjört met. Peningarnir streyma inn fyrir útgáfuréttinn. Mansfield segist ekki sjá eftir að hafa látið af eigin störfum: „Eg hefði heldur kosið að það hefði verið ég sem dó, og hún hefði lifað áfram. Jackie og Irving Mansfield eignuðust einn son, Guy sem nú er orðinn tuttugu og fimm ára gamall. Þegar hann var barn að aldri. fékk hann ungbarna- Jackie elskaði að hafa lifandi blóin í kringum sig og Irving gerir sitt bezta til þess að halda þeim i góðu formi. geðveiki og þurfti að vera á hæli af þeim sökum. Létu þau hjónin þá sögu út ganga að hann væri haldinn astma, þannig að hælisvistin yrði honum ekki til trafala síðar meir. „Við heimsóttum hann á hverjum laugardegi, og þess vegna gat Jackie ekki tekið við heimboðum þá daga. Var hún oft ásökuð fyrir að mæta ekki í laugardagsveizlur sem haldnar voru.“ Irving Mansfield hefur helg- að sig algjörlega kynningu og útgáfu síðustu bókar konu sinn- ar, Dolores. Það hefur gefið lífi hans gildi á nýjan leik. Dolores fjallar um fagra ekkju Bandaríkjaforseta, sem haföi verið myrtur. Hún á systur sem er gift brezkum lávarði en kann betur við sig f félagsskap bandarískrar sjón- varpsstjörnu. — Mansfield segir að Jackie hafi farið mjúk- um höndum um nöfnu sína, Onassis f bókinni. Hann hefur einnig sagt frá' því að eitt sinn eftir að Jackie Susann hafði selt „Love Machine“ fyrir hálfa aðra milljón dali var hún stödd á veitingastaðnum „21“ í New York. Þegar hún gekk framhjá borði Artistotle Onassis greip hann í handlegg hennar og sagði: „Afsakið Miss Susann, ég er farinn að halda að ég hafi ..kvænzt rangri Jackie!“ -Þýtt og endursagt A.Bj. Albúin í jóla- haldið Með ofurlitla silfurmálningu á öðru brjóstinu og silfurnet yfir annarri öxlinni er leik- konan CRIPPY Tocard albúin til þess að halda jólin hátíðleg. Þessi furðulega „mundering" var notuð í leikriti eftir ung- verskan framúrstefnu rit- höfund, Miklor Jancso, en gervið var hannað af málaranum Novelle Parigini. Það vantar ekkert upp á að hún Sé skrautleg, en ekki lítur þetta út fyrir að vera þægileg málning né holl fyrir augun! Gleöileg tíðindi Spil Muggs komin aftur Guðmundur Thorsteinsson, Muggur, teiknaði fyrstu íslenzku spilin árið 1 922, og seldust þau fljótt upp. Nú hafa þessi afbragðs skemmtilegu og listrænu spil verið endurútgefin. Tilvalin jólagjöf til vina innanlands og erlendis. Verð kr. 1050 og 2100 (Tvenn spil í kassa). Erum með spilin I einkasölu fyrst um sinn, takmarkaðar birgðir. Sendum i póstkröfu, burðargjald kr. 245 á sendingu. FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN Skólavörðustíg 21A sími 21170. Y'-/*... > Jólamarkaðurinn að Laugavegi 2$ Á jólamarkaönum er ótrúlegt vöruúrval og þér gerið * hvergi betri kaup fyrir jólin % H j ★ HÖFUM M.A. Á BOÐSTÓLUM: Appelsínur Leikföng Mandarínur Gjafavörur Epli Jólatré Greip Kerti \ Banana Myl,dir Veriö velkomin \ m^1'*\°V& \ Vínber Jólaskraut Nýjar vörur teknar upp daglega VERZLANA InöLLirJ Á ANNARRI HÆÐ Verzlið í Verzlana- höllinni Laugavegi 26, það er spor í rétta átt LAUGAVEGS6 KT“

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.